Morgunblaðið - 20.09.2005, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 20.09.2005, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Nudd Glæsilegur ferðanuddbekkur til sölu. Með höfuðpúða og tösku, 195 cm langur, 70 cm breiður. Reyki endaplötu. Á nokkra bekki sem hægt er að breikka upp í 80 cm. Frá 45.000 kr. Nálastungur Íslands ehf., sími 520 0120 eða 863 0180. Snyrting Snyrtisetrið Áhrifarík andlitsmeðferð. Betri en Botox!? Byggir upp og þéttir húð og bandvef. Árangur strax. SNYRTISETRIÐ, Domus Medica, s. 533 3100. Taktu auglýsinguna með. Húsgögn HÅG skrifstofustólarnir eru við- urkenndir af sjúkraþjálfurum og eru með 10 ára ábyrgð. EG skrifstofuhúsgögn, Ármúla 22, s. 533 5900 www.skrifstofa.is Sumarhús Sumarhús — orlofshús. Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbú- in hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Fjallaland við Leirubakka Glæsilegar sumarhúsalóðir við Ytri-Rangá. Kjarrivaxið hraun. Falleg fjallasýn. Miklir útivistar- möguleikar. Veðursæld. Góðar samgöngur. Nánari upplýsingar í s. 893 5046 og á www.fjallaland.is Föndur Tifsagir og Olson tifsagarblöð. Komdu og prófaðu. Þér er hér með boðið í heimsókn! Hjá Gylfa, Hólshrauni 7, 220 Hfj., sími 555 1212. Til sölu Tékkneskar og slóvanskar krist- alsljósakrónur handslípaðar. Mikið úrval. Gott verð. Slóvak Kristall, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, s. 544 4331. Tékknesk postulíns matar-, kaffi-, te- og mokkasett. Frábær gæði og mjög gott verð. Slóvak Kristall, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, s. 544 4331. Rakarastóll til sölu. Tegund Bel- mondo. Lítur vel út og er í góðu lagi. Upplýsingar í síma 552 2099. NERO skrifstofustóll kr. 58.600 Skrifstofustólar í úrvali. EG Skrifstofuhúsgögn, Ármúla 22, s: 533 5900 www.skrifstofa.is Miðstöðvarofnar til sölu. 5 ofn- ar, 1. H. 30, l. 210 (þrefaldur). 2. H. 50, l. 97. 3. H. 61, l. 96. 4. H. 61, l. 192. 5. H. 61, l. 177 (tvöfaldur). Allir saman á 25 Þús. Uppl. í síma 896 0913, 849 3622, Helgi. Galloper jeppi 4x4. Tilboð ósk- ast. Árg. '99, ekinn 100.200 km, lítur vel út, litur blágrár. Ný kúpl- ing og nýr rafgeymir, dráttarkúla, útvarp og geislasp. Uppl. í síma 437 1885 og 861 4775. Óska eftir Þjónusta Þakþéttingar og viðgerðir. Er komið að viðhaldi á þakinu hjá þér. Tökum að okkur lagfæringar á þökum. Viðkennd efni. Vönduð vinnubrögð. Upplýsingar í síma 690 1770 eða 691 9839. Raflagnir og dyrasímaþjónusta Setjum upp dyrasímakerfi og gerum við eldri kerfi Nýlagnir, viðgerðir, töfluskipti, endurnýjun á raflögnum. Gerum verðtilboð Rafneisti sími 896 6025 • lögg. rafverktaki Hitaveitur/vatnsveitur Þýskir rennslismælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís sf., s. 567 1130 og 893 6270. Ýmislegt Mjög góðir herraskór úr leðri með innleggi og höggdeyfi í hæl. Litir: Cognac, brúnt og svart. Stærðir: 40-47. Verð: kr. 6.975. Misty skór, Laugavegi 178, s. 551 2070. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Bæði fallegur og sérstaklega þægilegur í BCD skálum á kr. 1.995,- buxur í stíl á kr. 995,- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Bátar Bílar VW Polo 1.4 árg. '98, ek. 72 þús. km. Verð 490 þús. Skr. 11/98. Tveir eigendur. Smurbók. Skoða skipti upp í eldri Jeep eða Leg- acy/Outback. Upplýsingar gisli.sigurdsson@gmail.com eða í síma 896 7852. Toyota árg. '97, ek. 120 þús. km. Toyota Land Cruiser 97-árg., 36" breyttur. Er á 35", en ný 36" negld á felgum fylgja. Ekinn 120 þ. Verð 2.190 þ. Sími 844 4423. Til sölu VW Passat station, árg. '99, ekinn 123 þús., álfelgur, nýjar bremsur, sk. '06. Góður bíl. Verð 850 þús. Áhv. 720 þús. Upplýsingar í síma 669 1195. Saab 900 árg. '96, ek. 102 þús. km. Til sölu góður Saab 900 árg. '96, ek. 102.000, skoðaður '06, aukafelgur fylgja. Verð 400 þús. Uppl. í síma 892 5219. Audi A4 '96 til sölu v. flutnings. Audi A4 1800 turbo árg. 1996. Ek. 125 þús., sjálfsk. Mjög gott eintak og fæst á mjög góðu verði fram á föstudag. Frekari upplýsingar í síma 660 1553. Sendibílar M. Benz 410 m. kassa og lyftu (vsk bíll). M. Benz 410 m. kassa og öflugri lyftu (1800 kg) til sölu, árg. '97, ek. 197 þús. Verð 1.200 þús. m. vsk. Upplýsingar í síma 892 5219. Bílaþjónusta Bryngljái á bílinn! Endist árum saman - verndar lakkið - auðveldar þrif. Mössun - blettun - alþrif - djúp- hreinsun. Yfir 20 ára reynsla! Litla Bónstöðin, Skemmu- vegi 22, sími 564 6415. Tjaldvagnar Fellihýsi, tjaldvagnar og fleira. Geymum fellihýsi og tjaldvagna í upphituðu rými í Borgarfirði. Að- eisn 95 km frá Reykjavík. Sann- gjarnt verð. Upplýsingar s. 577 4077. Kerrur Brenderup Bravo 260 P. Iðnað- arkerra. Mál: 260x145x30 cm, heildarþyngd 750 kg. Verð kr. 207.000 m/vsk. Sími 421 4037 lyfta@lyfta.is, www.lyfta.is Hreingerningar Fyrirtæki, stofnanir og heimili Við hreinsum allar tegundir af gardínum. Gerum tilboð. Upplýsingar í síma 897 3634. hætt að mála þegar hann sá að ýmsir aðrir voru farnir að gera það eins vel og hann sjálfur. Þá hefði hinsvegar legið á annarstaðar: Byggingararfur- inn elsti var að hverfa í borg og sveit, og enginn virtist ætla að sinna þessu nema hann. Það var ekkert val. – Eftir merka starfsævi í myndlist sem frumkvöðull og hugmyndafræð- ingur á splunkunýjum tímum mód- ernismans tekur smám saman við önnur starfsævi helguð byggingar- sögu og húsagerðalist á Íslandi. Og þar er Hörður líka frumkvöðull, upp- götvari, kennari. Hann sýnir okkur hvernig víkingaskálinn verður smátt og smátt að burstabæ 19. aldar. Hann málar dómsdaginn í Hóla- kirkju upp á nýtt eftir fáeinum strik- um á gömlum fjölum. Hann reisir þjóðveldisbæ fyrir nútímamenn í Þjórsárdal. Hann leitar uppi forsmiði fyrri alda og skapar úr þeim íslenska listamenn handa þjóð sem vissi ekki betur en að þessir bæir og kirkjur hefðu vaxið af sjálfu sér. Hann les gömlu kirkjudagshómilíuna og teikn- ar svo fyrir okkur kirkjuna þar sem hún var flutt. Þetta er auðvitað gald- ur. Sprettur upp af tengingu lista- mannsins og fræðimannsins, sam- komu staðreynda og sköpunar. Hinn síkviki leitandi krefst fullkominna vinnubragða og stöðugrar iðju. Aldr- ei gefast upp. Ekki fyrr lokið einu verki en það næsta kallar. Skálholt. Byggingararfleifðin eitt og tvö. Lauf- ásbærinn. Yfirlitssýning á Kjarvals- stöðum. Og svo kirkjurnar í Laufási. Á þetta tilbúið í möppunum. Byrja á áhöldum og skrúða. Skoðaðu út- tektakaflana. Af hverju er hún Maja ekki búin að tölvusetja þetta allt saman? Hvar eru teikningarnar sem ég var að leiðrétta í fyrradag? Nú er orðin töf sem varla verður unnið á. Kannski við Jón Torfason ráðumst samt í það sjálfir með Gunn- ari og Guðrúnu að ganga frá kirkj- unum? Auðvitað er þetta allt tilbúið einhverstaðar í möppunum, með réttum sítötum og tilvísunum, út- hugsað fyrir löngu, uppteiknað og kompónerað, ómissandi partur af seríunni og ennþá meira til þar á eft- ir… Málarinn og fræðimaðurinn Hörð- ur Ágústsson var vakinn og sofinn í æviverki sínu. Jafnvel þótt slíkur maður nái níræðisaldri er honum lífið alltof stutt. Bótin er sú að listin lifir lengi. – Já, og það er allt gott að frétta af æskuheimilinu númer 9 við Frakka- stíg. Þeir í Garðyrkjufélaginu eiga húsið núna og halda öllu vel við. Það er málað í réttum litum, gulu og brúnu, gluggar óhreyfðir einsog í upphafi aldar og svolítið hvítmálað grindverk fyrir blómskrýddum garði. Sigríði Magnúsdóttur og börn þeirra Harðar bið ég vita um samúð okkar Lindu þessa erfiðu daga. Mörður Árnason. Kveðja frá Hinu íslenzka bókmenntafélagi Hörður Ágústsson átti öðrum fremur þátt í að birta Íslendingum byggingararfleifð sína. Það var ekki auðvelt verk því að byggingarefni það sem notað var stóðst illa tímans tönn. Hér standa engar byggingar eldri en frá 18. öld þótt í sumum þeirra megi finna hluta sem lengra megi rekja. Þetta hefur valdið þeim lífseiga fordómi að Íslendingar hafi lengst af sögu sinnar búið í hálfgerð- um moldarkofum og gegni því nokk- urri furðu að bókmenntaarfur þeirra hafi orðið til við slíkar aðstæður. Enginn hefur átt meiri þátt í að kveða niður þessa moldarkofa-sagn- fræði en Hörður Ágústsson. Torfbæ- irnir, sem svo eru kallaðir, voru timb- urhús með ytri hlíf af torfi og grjóti, þótt að sjálfsögðu hafi misjanflega mikið verið lagt í þau eftir efnum og ástæðum manna. Þeir voru reistir með notagildi að leiðarljósi og þeirri tækni sem tiltæk var auk þess sem má sjá listræna þætti sem meðal annars birtast í fallegum hlutföllum. Um þessa tegund húsagerðar birti hann fjölmargar greinar og ritgerðir. Þar sýndi hann fram á að íslenzki torfbærinn er einn þáttur í sögu húsa á jörðinni sem gefa ber fyllsta gaum. Þá gerði Hörður einnig húsagerð síðari tíma ítarleg skil í ritinu Íslenzk byggingararfleifð, sem kom út í tveimur bindum á vegum Húsafrið- unarnefndar ríkisins á árunum 1998 og 2000. Þá er að nefna hinar um- fangsmiklu rannsóknir hans á Skál- holts- og Hóladómkirkjum sem kom- ið hafa út í ritröð sem nefnist Staðir og kirkjur. Hann ritstýrði bókinni Skálholt – Fornleifarannsóknir 1954–1958 sem bókaforlag Sverris Kristinssonar, Lögberg, gaf út. Síð- an tók Hið íslenzka bókmenntafélag við útgáfu þessarar ritraðar og þar hafa birzt ritin Dómsdagur og helgir menn á Hólum (1988), Skálholt – Kirkjur (1989) og Skálholt – Skrúði og áhöld (1992). Þessi rit voru gefin út í samvinnu við Þjóðminjasafn Ís- lands. Loks skal nefnt ritið Laufás við Eyjafjörð – Staðurinn sem kom út 2004, en þegar Hörður lézt hafði hann hann þegar tekið saman efni annars bindis þessa verks sem mun fjalla um kirkjur í Laufási, skrúða þeirra og áhöld. Fylgdi hann síðan verkinu eftir af lifandi áhuga, þrátt fyrir heilsubrest. Vonir standa til þess að það birtist áður en langur tími líður. Ritið um Laufás er ekki einungis byggingarsaga bæjar og kirkju, heldur allsherjar úttekt á staðnum og því lífi sem þar var lifað. Í stuttu máli má segja að í fram- angreindum ritum um Skálholt og Hóla birtast biskupsstólarnir í nýju ljósi, þar sem voru stæðileg staðar- hús og glæstar dómkirkjur – ein- hverjar stærstu timburkirkjur í Evr- ópu – ekki einungis hús til helgrar þjónustu, heldur þjóðleg og alþjóðleg listasöfn. Væru kirkjurnar einstök byggingarverk ef enn stæðu. Hér hefur einungis verið drepið á einn þátt í ævistarfi Harðar og í stuttri minningargrein er enginn vegur að gera honum einum viðhlít- andi skil; raunar þyrfti til þess hóp sérfræðinga ef vel ætti að vera. Í lögum Hins íslenzka bókmennta- félags er svo mælt að það skuli „í ljós leiða rit þau, er samin hafa verið á ís- lenzku og landinu sé sómi að“. Félag- inu er það mikill heiður að hafa í sam- ræmi við þetta ákvæði átt nokkurn hlut að því að koma ritum Harðar á framfæri. Að leiðarlokum er efst í huga að þakka það traust sem Hörð- ur sýndi félaginu með því að fela því útgáfu rita sinna. Það var upphaf að löngu samstarfi sem aldrei bar minnsta skugga á. Fjölskyldu Harð- ar flyt ég fyrir hönd Bókmennta- félagsins innilegar samúðarkveðjur. Sigurður Líndal. HÖRÐUR ÁGÚSTSSON  Fleiri minningargreinar um Hörð Ágústsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Sturla Frið- riksson, Margrét Hallgrímsdóttir, Aðalsteinn Ingólfsson, Auður Ólafs- dóttir, Pétur H. Ármannsson, Mar- grét Auðuns og Halldór Björn, Hjálmar H. Ragnarsson, Hannes Lárusson, Guðmundur Oddur Magnússon og Pjetur Stefánsson formaður Íslenskrar grafíkur og fyrrverandi formaður Sambands ís- lenskra myndlistarmanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.