Morgunblaðið - 20.09.2005, Qupperneq 40
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÞEGAR KÖTTUR HNERRAR,
ÞÁ RIGNIR ATSJÚ! SVALT!
ÉG
HEF
HANN
EÐA ÉG
HELD ÞAÐ
HVERJUM ER SVO SEM
EKKI SAMA. ÞEGAR ÁSTIN ER
GLÖTUÐ, ÞÁ ER ALLT GLATAÐ
HVER HEFUR HANN? ÉG
HEF HANN. ÞÚ HEFUR HANN.
VIÐ HÖFUM HANN ÖLL. EN
SAMT HEFUR HANN ENGINN
ÉG ÞOLI ÞETTA EKKI!
ÉG ÞOLI ÞETTA EKKI!
ÉG ÆTLA AÐ
LÆRA AÐ HJÓLA
ÞÓ ÞAÐ
VERÐI MITT
SÍÐASTA VERK
SVONA,
LÁTTU VAÐA ERTU
DAUÐUR?
EKKI ENN-
ÞÁ. BARA
MJÖG ILLA
MEIDDUR
SAMT ER SVO
MÖRGU ÓSVARAÐ
TIL DÆMIS, HVAÐ ER ÞETTA
GRÆNA DRASL SEM ER FAST Í
TÖNNUNUM Á HONUM?
VIÐ HÖFUM HLUSTAÐ Á MÁLFLUTNING
BEGGJA AÐILA OG HÖFUM VERIÐ FRÆDD
UM VIÐEIGANDI LÖG
JÁ, EN BJARGAÐI ÉG
ÞÉR EKKI ÚR ÁNAUÐ Í
FYRRA LÍKA, BARA ÚR
ÖÐRUM KASTALA?
JÚ, EN ÞETTA
ER ANNAÐ
HJÓNABAND
MITT
GETURÐU
FUNDIÐ ÞAÐ Í
HJARTA ÞÍNU
AÐ BJARGA
MÉR ÚR
ÁNAUÐ?
ALDIN-
GARÐURINN
EDEN
HLEYPA
YKKUR AFTUR
INN? ÉG HELD
NÚ SÍÐUR. EKKI
NEMA ÞIÐ
FRAMVÍSIÐ
AFRIFUNNI AF
AÐGÖNGU-
MIÐANUM
YKKAR
Í MIÐJUM SKOTBARDAGA
Á MANHATTAN...
BEYGÐU
ÞIG!
NEI, VIÐ
VERÐUM AÐ...
AAAAAA!
ÞÚ
ERT
SÆRÐUR
ÞETTA ER BARA
SMÁ SKEINA
SJÁÐU, KÓNGULÓARMAÐURINN!
HANN ÆTTI AÐ GETA GÓMAÐ
ÞESSA ÞRJÓTA
Dagbók
Í dag er þriðjudagur 20. september, 263. dagur ársins 2005
Víkverji veltir þvífyrir sér hvernig
einstaklingur á að lifa
af venjulegum launum
í þessu landi. Hann
þarf varla að vera ein-
stætt foreldri, það er
nóg að vera bara ein-
staklingur.
Víkverji fór á dög-
unum í greiðslumat
vegna húsnæðislána
og komst að því að á
blaðamannalaunum,
með einn bíl gat hann
keypt sér íbúð upp á
3,9 milljónir króna. 48
fermetra risíbúð í
Hlíðunum kostar þessa dagana
þrettán og hálfa milljón svo Víkverji
reyndi að gera sér í hugarlund hvers
konar hænsnakofa hægt væri að fá
fyrir 3,9.
Með herkjum tókst þó Víkverja að
sveigja til kostnaðartölur sínar og
fleira og blaðamannalaunin nægja til
að kaupa 48 fermetra risíbúð í Hlíð-
unum. En Víkverji þarf að öllum lík-
indum að losa sig við bílinn, gsm-
símann og internettenginguna auk
þess sem innkaup verða ekki gerð
utan lágvöruverðsverslana. Og ef
einhver reynir að segja Víkverja að
kaupmáttur hans hafi aukist síðustu
árin getur viðkomandi fengið að
kíkja á launaseðlana
og síðan heimilis-
útgjöldin undanfarið
og séð fyrir sjálfan sig
þessa stórkostlegu
kaupmáttaraukningu.
Kannski hefur með-
alkaupmátturinn auk-
ist svona svakalega.
Allavegana kvarta þeir
ríku ekkert sér-
staklega mikið þessa
dagana, enda virðast
þeir yfirleitt vera í að-
stöðu til að hækka eig-
in laun að vild, ólíkt
t.d. leikskólakenn-
urum og umönn-
unarstarfsfólki, sem alltaf fær sömu
svörin, að ekki séu til nógir peningar
fyrir þeirra vinnu.
Víkverji veit allavegana að akk-
úrat núna hugsar hann mun hlýlegar
til grunnskóla- og leikskólakenn-
aranna sem annast og önnuðust
dóttur hans, heldur en verðbréfasal-
anna, fasteignasalanna og banka-
mannanna sem eru að rúlla með
peningana hans daginn út og inn.
Kennararnir hafa vissulega skilað
góðu búi, en banka-, verðbréfa- og
fasteignafólkið hefur litlu skilað
öðru en hækkandi kollvikum Vík-
verja, sem fattar gersamlega ekki
hvað er svona frábært við peninga.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Íslenska óperan | Aðalverkefni Íslensku óperunnar á haustmisseri er óperan
Tökin hert, eða „The Turn of the Screw“, eftir breska tónskáldið Benjamin
Britten og er þetta í fyrsta skipti sem verkið er sett upp hér á landi. Fyrsta
æfing fór fram í húsakynnum Óperunnar í gær. Frumsýning er 21. október
og verða sýningar aðeins sex.
Hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky en það er Halldór E. Laxness sem
leikstýrir. Einsöngvarar í sýningunni eru: Hulda Björk Garðarsdóttir
(kennslukonan), Ólöf Kolbrún Harðardóttir (Frú Grose), Gunnar Guðbjörns-
son (Peter Quint), Hanna Dóra Sturludóttir (Frk. Jessel), Þórunn Arna
Kristjánsdóttir (Flora) og Ísak Ríkharðsson (Miles).
Morgunblaðið/Kristinn
Tökin hert í Óperunni
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Fyrir því segi ég yður: Hvers sem þér biðjið í bæn yðar, þá trúið, að þér
hafið öðlast það, og yður mun það veitast. (Mark. 11, 24.)