Morgunblaðið - 20.09.2005, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 41
DAGBÓK
Þróunarsamvinnustofnun Íslands er sjálf-stæð stofnun er heyrir undir utanrík-isráðuneytið. Stofnunin vinnur að tvíhliðasamstarfi Íslands við þróunarlönd og
leggur í þeim efnum sérstaka áherslu á þau lönd
þar sem aðstæður eru lakastar og sérþekking Ís-
lendinga getur komið að mestu gagni. Í stjórn
stofnunarinnar sitja 7 menn og eru 6 kosnir af Al-
þingi en formaður er skipaður af utanríkisráðherra.
Sigurður Helgason er nýskipaður stjórn-
arformaður Þróunarsamvinnustofnunar: „Ég hafði
í sjálfu sér ekki mikla þekkingu fyrir á verkefnum
stofnunarinnar. Það kom mér á óvart að sjá hvað
starfið er umfangsmikið og vel unnið. Stofnunin
hefur einkum verið að vinna að verkefnum í Afríku
og þá aðallega í fjórum ríkjum undanfarin ár en það
eru: Úganda, Mósambík, Namibía og Malaví. Á síð-
asta ári var síðan tekin ákvörðun um að bæta við
aðstoð á Sri Lanka og tekin hefur verið ákvörðun
um að bæta við Nikaragúa á þessu ári,“ segir Sig-
urður.
„Menn hafa hingað til einkum beint sjónum að
verkefnum á sviði sjávarútvegs en í vaxandi mæli
hefur verið farið í önnur verkefni, bæði kennslumál
og mál tengd orkugeiranum. Það hefur komið í ljós
að menn héldu að við gætum miðlað töluverðri
reynslu og þekkingu í sjávarútvegi en menn eru að
reka sig á að á Íslandi er stundaður hátæknisjáv-
arútvegur á meðan sjávarútvegurinn í þessum
löndum er iðulega á algjöru frumstigi. Það er meðal
annars ástæða þess að við höfum hafið starf á Sri
Lanka en þar er atvinnustigið töluvert þróaðra og
því um leið betri möguleikar á að aðstoð Íslendinga
verði að gagni.
Íslendingar standa einnig fremstir þjóða í virkj-
un jarðhita og er það ástæða fyrir þátttöku okkar í
verkefni í Nikaragúa en þar eru jarðhitasvæði sem
möguleikar eru á að nýta betur.“
Sigurður kveðst ekki munu leggja fram neinar
stórtækar breytingar á starfsemi Þróunarsam-
vinnustofnunar: „Komin er töluverð reynsla á þessi
mál og við farin að sjá hvar við getum orðið meira
að liði og hvar minna. Sé ég ekki fram á neinar
meiriháttar breytingar nema að starfsemi stofn-
unarinnar er að aukast töluvert, úr því að vera í
fjórum löndum í 6, og að fjárframlög ríkisins munu
aukast umtalsvert.“ Í því sambandi nefnir Sigurður
að framlög til þróunaraðstoðar hafi árið 2003 verið
0,17% af vergri landsframleiðslu og jukust í 0,19%
næsta ár en verða á þessu ári 0,21%. Ríkisstjórnin
hafi sett það markmið að framlög verði aukin smám
saman þannig að árið 2009 nemi þau 0,35% af
vergri landsframleiðslu.
Menn | Sigurður Helgason, nýskipaður formaður Þróunarsamvinnustofnunar Íslands
Starfsemin eykst töluvert
Sigurður Helgason
fæddist í Reykjavík 1.
maí 1946. Hann lauk
stúdentsprófi frá VÍ
1967, Cand. Oecon frá
HÍ 1971 og MBA frá
Univ. of North Caroline,
Chapel Hill 1973. Sig-
urður starfaði hjá Hag-
vangi 1973–74 og hjá
Flugleiðum 1974–
2005, sem forstjóri frá
1985. Hann var formaður landafundanefndar
1998–2000, formaður stjórnar Vildarbarna
og í stjórn IATA frá 2004. Sigurður hlaut
Riddarakross íslensku fálkaorðunnar 1990.
Eiginkona Sigurðar er Peggy Oliver Helgason
iðjuþjálfi.
90 ÁRA afmæli. Í dag, 20. sept-ember, verður níræður Guð-
mundur Kristján Hákonarson, húsa-
smíðameistari, Kleifahrauni 2a í
Vestmannaeyjum. Guðmundur er
kvæntur Halldóru Kristínu Björns-
dóttur. Hann dvelur á Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Brúðkaup | 3. sept. sl. voru gefin sam-
an í hjónaband í óbyggðum Alaska
Jennifer Arsenau, umhverfisfræð-
ingur, og Tumi Traustason, dokt-
orsnemi í skógarvistfræði. Heimili
þeirra er að 3971 Ridgeview Drive,
Fairbanks, 99709 Alaska. Netfang:
fstt@uaf.edu
Veikur tromplitur.
Norður
♠1065
♥D7
♦KD74
♣ÁG32
Suður
♠Á8743
♥K8
♦ÁG6
♣KD9
Suður verður sagnhafi í fjórum
spöðum án afskipta AV af sögnum.
Vestur spilar út smáu hjarta, sem
austur tekur með ás og spilar aftur
hjarta.
Hvernig á að spila trompinu?
Trompíferðin skiptir engu máli
ef liturinn brotnar 3-2 og þess
vegna mætti hlamma niður ásnum í
byrjun. En það er 4-1 legan sem
veldur áhyggjum. Tæknilega er að-
eins hægt að ráða við eina slíka
uppsetningu – KDG2 í austur og
níuna staka í vestur. Þá er hvort
heldur hægt að spila litlu að blind-
um eða tíunni úr borði.
Norður
♠1065
♥D7
♦KD74
♣ÁG32
Vestur Austur
♠K ♠DG92
♥G9632 ♥Á1054
♦9832 ♦105
♣764 ♣1085
Suður
♠Á8743
♥K8
♦ÁG6
♣KD9
En það er öflugra að spila tíunni
strax, því það er aldrei að vita
nema austur leggi á með tvö
mannspil og níuna.
E.s. Það er ómaksins vert að
íhuga hvernig spila eigi litnum ef
aðeins má gefa einn slag. Með
bestu vörn er það auðvitað ekki
hægt, en segjum að vestur sé með
G9x og austur Dx. Ef sagnhafi spil-
ar smáum spaða að tíunni gæti
vestur freistast til að rjúka upp
með gosann. Heimskulegt? Vissu-
lega, en brids er mistakanna
íþrótt.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
70 ÁRA afmæli. Sunnudaginn 18.september sl. varð sjötugur
Brynjar H. Jónsson, fyrrverandi
starfsmaður VIS á Akureyri, en ekki
VISA eins og misritaðist í blaðinu og er
beðist velvirðingar á því.
70 ÁRA afmæli. Í dag, 20. sept-ember, er sjötugur Jóhann
Gunnarsson, deildarstjóri upplýsinga-
mála hjá Fjármálaráðuneytinu. Hann
og kona hans, Edda Þorkelsdóttir, eru
stödd á skipinu Costa Mágica, á sigl-
ingu um Miðjarðarhafið. Tölvupóstur
hans er: johg@centrum.is
Seljen er
týnd
SELJEN er
týndur, hann
er ekki með
hálsól en er
örmerktur.
Hann týndist
frá Bárugötu
9. september
sl. Þeir sem hafa orðið hans varir
eru beðnir að hafa samband við Jo
Ann í síma 552 5213, 846 0723 eða
Tony í síma 848 9984.
Skotta er týnd
SKOTTA hvarf 9. sept. frá Hvera-
fold í Grafarvogi. Hún er svart/grá
bröndótt, mjög dökk á baki og brún-
leit á kvið, hún er með fjólubláa ól og
er eyrnamerkt: G94.
Hennar er sárt saknað og ef ein-
hver hefur séð hana vinsamlegast
hafið samband við Guðnýju í síma
567 5666.
Læða fannst við Hafravatn
ÞESSI gullfallega þrílita læða
fannst laugardaginn 17. september
við Hafravatn. Hún er greinilega
heimilisköttur og afskaplega ljúf og
barngóð. Það voru 6 skátastúlkur í
útilegu sem fundu hana og tóku að
sér. Kisa dvelur nú í góðu yfirlæti
heima hjá tveimur þeirra. Vonandi
kemst hún samt til eigenda sinna því
þetta er með eindæmum ljúf kisa
sem allir hér hafa tekið miklu ást-
fóstri við. Upplýsingar hjá Vigdísi í
síma 553 5746 og 894 9483.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Kl. 9 jóga, bað-
stofa og vinnustofa. Kl. 13 postu-
línsmálning hjá Sheenu.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Leikfimi kl. 9.
Boccia kl. 9.30. Smíði/útskurður kl.
9–16.30. Menningarferð í Norræna
húsið kl. 13.15.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, vefnaður, leikfimi, línudans,
boccia, hárgreiðsla, böðun, fótaað-
gerð, sund.
Dalbraut 18 – 20 | Félagsstarfið er
öllum opið kl. 9–16. Fastir liðir eins
og venjulega. Skráning stendur yfir
á postulíns- og framsagnar-
námskeið. Kynntu þér haust-
dagskrána. Við getum líka sent þér
netbréf. Síminn okkar er 588 9533.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Skák í dag kl. 13. Bókmenntaklúbb-
ur í dag kl. 14.30, allir velkomnir.
Félagsvist kl. 20. Skrifstofa og fé-
lagsstarf FEB í Stangarhyl 4, sími
588 2111.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Skráning í kvenfélagsferðina á
Bessastaði 22. sept. er í síma
525 8590 og 820 8565. Vatns-
leikfimi kl. 9.45, Inni–golf kl. 10.30
og karlaleikfimi kl. 13.30 í Mýri.
Málun kl. 13 og trésmíði kl. 13.30 í
Kirkjuhvoli. Opið hús á vegum kirkj-
unnar kl. 13 og Garðakórsæfing kl.
17.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–
16.30 vinnustofur opnar, m.a. gler-
skurður, umsjón Helga Vilmund-
ardóttir og perlusaumur án leið-
sagnar. Kl. 10.30 létt ganga um
nágrennið. Frá hádegi spilasalur op-
inn. Veitingar í hádegi og kaffitíma í
Kaffi Berg.
Félagstarfið Langahlíð 3 | Nám-
skeið í postulínsmálun kl. 13–17. Al-
menn handmennt kl. 13–17.
Furugerði 1 | og Norðurbrún 1. Far-
in verður haustlitaferð fimmtud.
22. sept. Ekið verður um Nesjavelli
og Þingvöll. Kaffi á veitingastaðn-
um Hafinu bláa við Óseyrarbrú.
Lagt af stað frá Norðurbrún kl. 13.
Uppl. í Norðurbrún í síma
568 6960 og í Furugerði í síma
553 6040.
Hraunbær 105 | Kl. 9 glerskurður,
kaffi, spjall, dagblöðin, hárgreiðsla.
Kl. 10 boccia. Kl. 11 leikfimi. Kl. 12
hádegismatur. Kl. 12.15 ferð í Bón-
us. Kl. 13 myndlist. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl
9. Leikfimi í Bjarkarhúsinu kl. 11.30.
Brids kl. 13. Glerskurður kl. 13.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnu-
stofa kl. 9–13, bútasaumur. Boccia
kl. 9.30–10.30. Helgistund kl. 13.30
í umsjón séra Ólafs Jóhannssonar.
Námskeið í myndlist kl. 13.30–
16.30. Minnum á rabbfund FAAS kl.
14.30 yfir kaffibolla. Fótaaðgerðir
588 2320. Hársnyrting 517 3005.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
opið öllum kl. 9–16. Fastir liðir eins
og venjulega. Skráning á tölvu-,
listþæfingar- og framsagnar-
námskeið stendur yfir. Ef þú vilt
hitta skemmtilegt fólk þá kíktu inn,
fáðu þér kaffisopa, líttu í dagblöðin
og skoðaðu haustdagskána. Við
getum líka sent þér netbréf. Síminn
er 568 3132.
Korpúlfar, Grafarvogi | Gaman
saman á morgun í Miðgarði kl. 14.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9–12 myndlist, kl. 9 smíði, kl. 9–
16.30 opin vinnustofa, kl. 10 boccia,
kl. 13–16.30 postulínsmálning, kl. 14
leikfimi.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30
handavinna. Kl. 10.15–11.45 enska.
Kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl.
13–16 postulínsmálun. Kl. 13–16
bútasaumur. Kl. 13–16 frjáls spil. Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vesturgata 7 | Haustbingó verður
haldið í dag kl. 13. Rjómapönnukök-
ur með kaffinu. Allir eru velkomnir.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur
kl. 9.
Árbæjarkirkja. | 7–9 ára starf í Ár-
bæjarkirkju kl. 15. 10–12 ára starf í
Árbæjarkirkju kl. 15.
Áskirkja | Opið hús milli kl. 10 og
14 í dag, kaffi og spjall. Bænastund
kl. 12. Boðið upp á léttan hádeg-
isverð. Allir velkomnir.
Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjón-
usta kl. 18.30.
Digraneskirkja | Kl. 11.10 Leikfimi
I.A.K. Kl. 12 Léttur málsverður,
helgistund, samvera og kaffi. 10–12
ára starf KFUM&K kl. 1718.15 á
neðri hæð. Kynning á Alfa nám-
skeiði kl. 20 í safnaðarsal.
Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli,
Vídalínskirkju, á þriðjudögum kl. 13
til 16. Við „púttum“, spilum lomber,
vist og bridge. Röbbum saman og
njótum þess að eiga samfélag við
aðra. Kaffi kl. 14.30. Helgistund í
kirkjunni kl. 16. Akstur fyrir þá sem
vilja, upplýsingar í síma 895 0169.
Allir velkomnir.
Grafarvogskirkja | TTT fyrir börn
10–12 ára kl. 17.30–18.30 á þriðju-
dögum í Engjaskóla. Æskulýðsfélag
fyrir unglinga í 8.–10. bekk á þriðju-
dögum kl. 20 í Grafarvogskirkju.
Grafarvogskirkja | Haustferð eldri
borgara verður farin 20. sept. kl. 10
frá Grafarvogskirkju. Farið verður í
Stykkishólm, norska húsið og kirkj-
an skoðuð. Komið verður við í
Bjarnarnesi á leiðinni heim.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs-
þjónusta alla þriðjudaga kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum. Opið hús fyrir
aldraða alla þriðjudaga og föstu-
daga kl. 11–14. Leikfimi, súpa, kaffi
og spjall.
Hjallakirkja | Bæna- og kyrrð-
arstund er í Hjallakirkju þriðjudaga
kl. 18. Prédikunarklúbbur presta er
hvern þriðjudag í Hjallakirkju kl.
9.15–11 í umsjá sr. Sigurjóns Árna
Eyjólfssonar héraðsprests.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Kl.
19 er Alfa 1 námskeið, ef þú hefur
ekki enn skráð þig láttu þá sjá þig,
það eru enn laus pláss – Eða
hringdu í síma 535 4700 og skráðu
þig. www.gospel.is.
Laugarneskirkja | Kl. 17 KMS (14–
20 ára) Æfingar fara fram í Fé-
lagshúsi KFUM & K við Holtaveg.
Mannræktarkvöld eru á þriðjudög-
um: Kl. 20 Kvöldsöngur í kirkjunni.
Kl. 20.30 gerist þrennt: Trú-
fræðslutími í kirkjuskipi, kynning á
12 spora starfinu auk þess sem 12
spora hópar ganga til sinna verka.
Óháði söfnuðurinn | Alfanámskeið
I. kl. 19–22.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos