Morgunblaðið - 20.09.2005, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 20.09.2005, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 43 MENNING syngja íslensk gullaldarljóð sem og sínar útfærðustu óperuaríur og jafn- vel eitt þýskt ljóð. Þess má geta að Jón Svavar fékk nýverið inngöngu í óperudeildina í Tónlistarháskóla Vínarborgar og hefur þar senn nám. JÓN Svavar Jósefsson bassbaríton mun halda styrktartónleika á mið- vikudaginn kemur klukkan 20 í Nor- ræna húsinu. Með honum leikur Agnes Löve á píanó. Miðaverð er 1.500 krónur, greitt við innganginn. Á tónleikunum mun Jón Svavar Ljósmynd/Gabriel Patay Jón Svavar syngur í Norræna húsinu ÞAÐ var í febrúarbyrjun á síðasta ári að Skáldaspírukvöldin hófu göngu sína. Þessi upplestarkvöld nutu töluverðra vinsælda og eru nú að hefja göngu sína að nýju eft- ir sumarfrí en 37. skálda- spírukvöldið verður í kvöld í bóka- versluninni Iðu við Lækjargötu. Benedikt S. Lafleur er skipu- leggjandi skáldaspírudagskrár- innar: „Þetta varð til á sínum tíma vegna þess að það þótti mikil þörf fyrir upplestarkvöld af þessu tagi. Þá voru eiginlega engir upplestrar haldnir reglulega nema þá helst fyrir jólin. Okkur þótti að tími væri til kominn að sinna bók- menntunum með þessum hætti allt árið um kring og gefa þá allskonar skáldum – ekki bara þeim sem eru að gefa út efni heldur og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref – færi á að lesa upp úr verkum sínum.“ Þannig segir Benedikt að Skáldaspíran gefi grasrót- arskáldum vettvang til að koma sér á framfæri en hann segir kvöldin fyrir alla þá sem spíra skáldskap – ekki bara þá sem eru að spíra í fyrsta sinn. Strax fyrsta kvöldið segir Benedikt að þörfin fyrir kvöld af þessu tagi hafi verið augljós. „Þá mættu 50 manns sem var langt framar vonum okkar sem að við- burðinum stóðum og gífurleg hvatning til að halda áfram.“ Skáldaspírukvöldin hafa verið með ýmsu sniði og jafnvel stundum að tónlist- armenn hafa verið fengnir til að leika tónlist með. „Við reynum að tefla fram þeim skáldum sem eru í deiglunni og eru annaðhvort að semja verk eða að gefa út. Kvöldin eiga að vera lifandi og taka púls- inn á því sem er að gerast í núinu,“ segir Benedikt. Örlítið breytt snið Skáldaspírukvöldin verða nú með örlítið breyttu sniði frá því sem áður var. Fyrst voru kvöldin haldin á skemmtistaðnum Jóni Sigurðssyni og síðar á Kaffi Reykjavík en verða í Iðu fram- vegis. Kvöldin verða tíðari, haldin hvern þriðjudag en ekki annan hvern eins og áður og þá um leið færri skáld sem lesa: eitt eða tvö í senn í stað fjögurra eða fimm áð- ur. „Hugmyndin er sú að skapa kósí stemmningu og gefa, með rýmri tíma, skáldunum færi á að kynna betur verk sín og gefa gest- um um leið kost á að spyrja skáld- in úr verkum sínum og skapa þannig bókmennta- legar umræður. Fyr- irmyndin er fengin er- lendis frá en þar tíðkast víða kvöld af þessu tagi í bókabúð- um.“ Benedikt segir Skáldaspírukvöldin hafa fest sig í sessi: „Þetta er orðið þekkt- ur og virtur viðburður í bókmenntaheiminum og hlaut styrk frá Reykjavíkurborg, sem er ákveðin viðurkenn- ing. Flest virtustu skáld landsins hafa lesið á Skáldaspírukvöldunum og svo öll efnilegu óþekktu skáldin sem eru að grúska í bókmenntum en í heildina hafa langt á annað hundrað skálda lesið á þessum kvöldum.“ Lesið verður á fyrstu hæð húss Iðu þar sem komið hefur verið upp upplestraraðstöðu en gestir geta sótt sér hressingu á kaffihúsið á efri hæðinni. Nöfn þeirra sem lesa verða birt í gluggum verslunar- innar hverju sinni en í kvöld eru það Sveinbjörn I Baldvinsson og Eyvindur Karlsson sem lesa en að auki grípur Eyvindur í gítar. Lesið verður hvert þriðjudags- kvöld eins og fyrr sagði og hefst lesturinn alltaf kl. 20 og er að- gangur ókeypis. Bækur | Skáldaspírukvöld hefja göngu sína á nýjan leik Grasrótarskáldin kveðja sér hljóðs Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is Benedikt S. Lafleur Í GALLERÍ Boxi á Akureyri hef- ur Darri Lorenzen gert innsetn- ingu sem samanstendur af hljóði og formrænum rannsóknum á rýminu sjálfu. Darri hefur áður unnið með hljóð og er skemmst að minnast framlag hans í verk Elín- ar Hansdóttur á Listahátíð. Hér eins og þar tekur Darri upp hljóð- ið eða þögnina í rýminu að næt- urlagi og hækkar upp og end- urspilar fyrir gesti sýningarinnar. Þá hefur hann teiknað á vegg upp- drátt af spegilmynd rýmisins og tekið myndir af örsmáum misfell- um í rýminu sem hann sýnir utan rýmisins. Þessar litlu myndir virð- ast við fyrstu sýn vera landslags- myndir en þegar betur er að gáð þá má þekkja sprungur í máln- ingu, naglagöt og dauðar flugur. Þessi sýn á hið smáa minnir á verk Helgu Óskarsdóttur í Klink og Bank þar sem hún kom fyrir stækkunargleri með ljósi yfir hin- um ýmsu misfellum í sýning- arrýminu svo þær urðu að áhuga- verðum þrívíddarheimi annars konar landslags. Myndir Darra eru þó frekar dauflegar í þessum samanburði, prentaðar út í tölvuprentara og staðsettar sem cover á geisla- diskum sem aftur innihalda hljóð- verkið úr sýningunni. Sýningin nær ekki flugi, en meginhugmynd hennar er áhugaverð hvað varðar nýtnina og fagurfræðilega upp- hafningu þess sem við venjulega köllum ekkert, tómt rými og þögn. Rými og hljóð MYNDLIST Gallerí Box Sýningunni lýkur á sunnudag. Stað sett Darri Lorenzen Þóra Þórisdóttir MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfar- andi athugasemd frá Valgerði Guðmunds- dóttur menningarfull- trúa hjá Reykjanesbæ vegna umsagnar Rögnu Sigurðardóttur í blaðinu 18. sept- ember síðastliðinn undir fyrirsögninni Atvinnumenn og áhugafólk. „Listasafn Reykja- nesbæjar hefur frá árinu 2002 staðið fyrir 19 sýningum í Lista- salnum í Duushúsum og hafa þetta verið einu sýningarnar sem haldnar eru í nafni safnsins. Í tilefni þessara sýn- inga hefur safnið gefið út 36 síðna litabækling um viðkomandi lista- menn og verk þeirra, haldin eru opnunarhóf með lifandi tónlist og léttum veitingum og send eru út ca. 1000 boðskort hverju sinni. Safnið kostar flutning á verkunum til og frá sýningarstað og sér um allar kynningar. Listamönnunum er heimilt að selja verk sín án íhlut- unar safnsins, þ.e. safnið tekur eng- ar prósentur af sölunni. Safnið ber þennan kostnað alfarið (með stuðn- ingi fyrirtækja í Reykjanesbæ) en í staðinn skilja listamennirnir eftir verk sem bætist þá við safneignina. Árið 2004 komu tæplega 30 þúsund gestir á safnið. Á meðfylgjandi lista má sjá hvaða listamenn hafa sýnt í Listasafni Reykjanesbæjar og dæmi nú hver fyrir sig, hver er at- vinnumaður og hver ekki? 2002: Einar Garibaldi, Gullpensl- arnir. 2003: Sigurbjörn Jónsson, Lista- safn Íslands (Maður og haf, verk eftir ýmsa), Sossa, Stefán Geir, Kristin Pálmason. 2004: Carlos Barao, Kristján Jónsson, Margrét Jónsdóttir, Lista- safn Reykjavíkur (Erró), Ása Ólafs- dóttir, Valgarður Gunnarsson, Úr safneigninni (Íslensk náttúra, ýmsir listamenn 1950–1980). 2005: Kristín Gunnlaugsdóttir, Erlingur Jónsson og samtímamenn, Martin Smida, Hönnunarsafn Ís- lands (Sænsk glerlist), Eiríkur Smith og konurnar í Baðstofunni, Húbert Nói, Úr safneigninni (Ýmsir listamenn 1980–2005). Listasafnið styður einnig við sýningarhald annars staðar í bænum þó svo að sýningarnar séu ekki í nafni þess. Nýlistagalleríið Suð- suðvestur er t.d. í hús- næði Listasafnsins að Hafnargötu 22 og er rekið á kostnað safns- ins. Sýningarstjórnin þar er hins vegar í höndum Suðsuðvesturs hópsins. Þetta er leið Listasafns Rnb. til að þjóna ungum gagn- rýnum listamönnum (eins og það er svo vel orðað í sýningarstefnu Suðsuð- vestur) og þá um leið tilraun til að kynna þá tegund listarinnar fyrir almenningi. Þess má geta að fyrir tilkomu Listasafns Reykjanesbæjar var ekki um að ræða fast sýning- arhald á myndlist hér á Suð- urnesjum og því hefur orðið mikil breyting með opnun þess en um leið er ábyrgðin mikil. Á þessum tveim- ur sýningarstöðum hafa atvinnu- menn í listinni gengið fyrir, eins og sjá má á upptalningunni hér að ofan og á vef Suðsuðvestur, og mikill metnaður til að gera vel. Hins vegar hefur safnið einnig aðstoðað við sýningarhald annarra, bæði atvinnumanna og áhugafólks víðs vegar um bæinn og þá sér- staklega í kringum Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar, þó svo að þær sýningar séu ekki nafni safnsins. Á síðustu Ljósanótt voru t.d. sýnd verk eftir tæplega 100 manns víðs vegar um bæinn en myndlist- aráhugi hér á svæðinu er ein- staklega mikill. Ekki færri en þrjú félög áhugamanna um myndlist eru nú starfandi og því sjálfsagt að reyna að þjóna þeim hópi á ein- hvern hátt þó svo að það sé ekki gert með sýningarhaldi í húsnæði Listasafns Reykjanesbæjar og alls ekki á kostnað atvinnumennsk- unnar. Listasafn Reykjanesbæjar er ungt og alls kyns byrjunarörð- ugleikar hafa gert vart við sig en þar hefur alltaf verið gerður skýr greinarmunur á atvinnumennsku og áhugamennsku. Annar hópurinn á ekki að þurfa líða á kostnað hins.“ Sýningarstefna Listasafns Reykjanesbæjar Valgerður Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.