Morgunblaðið - 05.10.2005, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
RALPH LAUREN
POLO JEANS
iðunn
tískuverslun
Lagersala
50-70%
afsláttur
Seltjarnarnesi
s. 561 1680
FYRSTU bráðabirgðatölur benda til
þess að 53.500 laxar hafi veiðst á
stöng í íslenskum ám í sumar. Er
það um 7.600 löxum meiri veiði en
var á árinu 2004 og um 52,4% meiri
en meðalveiði áranna 1974–2004. Að
sögn starfsmanna Veiðimálastofn-
unar er stangveiði á laxi sumarið
2005 sú mesta sem skráð hefur verið
í íslenskum ám en fyrra met var
1978 þegar 52.679 laxar veiddust.
Laxveiði í net á árinu 2005 stefnir
í að verða um 7.000 laxar og er það
svipuð veiði og var á árinu 2004, þeg-
ar netaveiðin var 6.742 laxar. Mestur
hluti netaveiðinnar er í Þjórsá, en
einnig í Ölfusá og Hvíta í Árnes-
sýslu. Lítil netaveiði á laxi er stund-
uð í öðrum ám. Í heild stefnir lax-
veiðin sumarið 2005 því í að verða
nærri 60.500 laxar en að um 52.000
þeirra hafi verið landaður afli.
Veiðimálastofnun segir, að þeir
laxar sem tekið hafi agn og verið
sleppt aftur séu skráðir sem veiddir
í veiðibækur og taldir með en þessi
veiðiaðferð tók að ryðja sér til rúms
hér á landi eftir 1995. Hluti þeirra
laxa sem sleppt er veiðist aftur og
hækkar þannig veiðitölur margra
áa. Segir stofnunin að hlutfall laxa,
sem sleppt sé, hafi farið hækkandi á
undanförnum árum og voru þeir um
16% á árinu 2004. Reikna megi með
að sú þróun haldi áfram. Í veiðitölum
2005 eru einnig laxar ættaðir úr
sleppingum gönguseiða en þar mun-
ar mest um góðan árangur í Rang-
ánum þar sem um 6.900 laxar hafa
veiðst á stöng. Uppbygging þeirrar
veiði hófst eftir 1990.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
kom hlutfallslega mest aukning
fram í laxveiði á Vesturlandi en met-
veiði varð þar í nokkrum veiðiám.
Langmest var veiðin í Eystri-Rangá,
4.153 laxar, og í Þverá-Kjarrá, 4.151
lax og er veiðin í Rangá Íslandsmet.
Morgunblaðið/Einar Falur
Lukkulegir veiðifélagar dást að laxi sem þeir drógu í Eystri-Rangá. Sam-
kvæmt bráðabirðgatölum náði áin Íslandsmetinu á síðustu dögum.
Veiðimálastofnun
staðfestir metveiði
veidar@mbl.is
VERK íslenskra myndlistarmanna
munu koma við sögu á uppboði hjá
Bruun Rasmussen-uppboðshúsinu í
Kaupmannahöfn í vikunni. Þar
verða meðal annars seld verk eftir
Snorra Arinbjarnar, Guðmund frá
Miðdal, Ólaf Elíasson, Eggert Guð-
mundsson, Svavar Guðnason, Krist-
ínu Jónsdóttur, Ragnar Jónsson,
Jón Stefánsson og Júlíönu Sveins-
dóttur.
Jón Stefánsson og Svavar
Uppboðið hófst í gær og stendur
til morguns, og eru myndlistarverk í
ólíkum flokkum boðin upp á hverj-
um degi. Í gær voru boðin upp verk
í flokknum Cobra og nútímalist.
Einn íslenskur málari er í þeim
hópi, frumkvöðullinn Svavar Guðna-
son sem var hluti af hinni fjöl-
þjóðlegu Cobra-hreyfingu, en nafn
hennar er dregið af þremur borg-
um; Kaupmannahöfn, Brussel og
Amsterdam. Verk Svavars þykja
einna verðmest af íslensku verk-
unum á uppboðinu að mati Bruuns
Rasmussen, ef undanskilin eru verk
Ólafs Elíassonar og Jóns Stef-
ánssonar. Tvö málverk Svavars
voru til sölu og var verð þeirra sett
á 75.000 danskar krónur, 750.000 ís-
lenskar, en verk Jóns aftur á móti
sett á 75.000-100.000 danskar krón-
ur, eða allt að milljón íslenskar.
Að öðru leyti eru verk Íslending-
anna á uppboðinu misdýr, allt frá
6.000-8.000 dönskum krónum fyrir
olíumálverk Guðmundar frá Miðdal
til 25.000 - 35.000 fyrir verk Júlíönu
Sveinsdóttur.
Verk flestra Íslendinganna eru í
flokknum klassískur módernismi
sem boðinn verður upp í dag.
Alls verða átta verk eftir Ólaf Elí-
asson boðin upp, og eru þau af ólík-
um toga. Þar er að finna fjögur olíu-
málverk frá upphafi 10. áratugarins
og þrjú nýleg ljósmyndaverk, þar af
eitt úr Jöklaseríunni sem metið er á
300.000 danskar krónur, þrjár millj-
ónir íslenskar. Einnig verður boðið
upp grafíkverk eftir Ólaf, sem kost-
ar mun minna eða 3.000 danskar
krónur, 30.000 íslenskar.
Picasso og Cindy Sherman
Á uppboðinu eru líka í boði verk
ýmissa stórlaxa listasögunnar. Átta
verk Joans Miró verða boðin upp,
fjögur verk eftir Marc Chagall og
fjögur verk Picasso, auk myndarað-
ar eftir Andy Warhol, sem byggist á
H.C. Andersen og verkum hans.
Ennfremur má finna á uppboðinu
verk eftir Roy Lichtenstein, Willem
de Koonig og þrjá járnskúlptúra
eftir Salvador Dalí, þar af einn með
hinni einkennandi bráðnuðu klukku.
Uppistaðan í uppboðinu eru þó
dönsk verk. Þar á meðal er að finna
verk danskra myndlistarmanna sem
eru til sýnis um þessar mundir á
sýningunni Hraunblóm í Listasafni
Sigurjóns; Carl-Henning Pedersen
og Else Alfeld, auk annara lista-
manna af sömu kynslóð, til dæmis
Robert Jacobsen, Richard Morten-
sen og Asger Jorn.
Dýrustu verkin á uppboðinu virð-
ast einmitt vera verk hins síðast-
nefnda, olíumálverk sem metið er á
2.500.000-3.500.000 danskar krónur
eða um 30 milljónir íslenskar, sem
og olíumálverk Belgans Pierre
Alechinsky, sem metið er á
3.200.000 - 3.800.000, eða 32 - 38
milljónir íslenskra króna. Báðir
voru þeir hluti af Cobra-hreyfing-
unni svonefndu.
Íslensk verk boðin upp hjá Bruun Rasmussen
Ólafur Elíasson dýrastur
Þessi mynd Jóns Stefánssonar verður boðin upp í næstu viku.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt rúmlega þrítugan Albana í
45 daga fangelsi fyrir skjalafals með
því að framvísa fölsuðu vegabréfi við
komuna til landsins 20. september.
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli
ákærði manninn og krafðist refsing-
ar en í millitíðinni gekk maðurinn
laus vegna óskar sinnar um pólitískt
hæli hér á landi. Í ljós kom ennfrem-
ur að maðurinn var grunaður um
morð í Grikklandi.
Þegar í ljós kom við vegabréfa-
skoðun að vegabréf hans var falsað,
óskaði maðurinn eftir hæli og var
settur í umsjón félagsþjónustunnar í
Reykjanesbæ á meðan umsókn hans
var til skoðunar. Honum var synjað
um hæli viku eftir komuna og tók þá
sýslumaður upp þráðinn við að rann-
saka meint skjalafalsbrot hans. Með
aðstoð alþjóðadeildar ríkislögreglu-
stjóra var send út beiðni um upplýs-
ingar um manninn og kom þá í ljós
að gríska lögreglan var að leita hans
vegna rannsóknar á morðmáli þar í
landi.
Vissu ekki um hvern
var að ræða
Málið í heild veldur sýslumanni
áhyggjum og segir Eyjólfur Krist-
jánsson sýslufulltrúi að hér hafi það
gerst að manni hafi verið hleypt inn í
landið án þess að yfirvöld hefðu hug-
mynd um það hvern væri um að
ræða. Þetta hefði gerst ósjaldan áð-
ur með því að útlendingar bæðu um
hæli og kæmust þannig inn í landið
og gætu dvalið þar án gæslu á meðan
verið væri að skoða hælisumsókn
þeirra. Í Reykjanesbæ væru t.d um
20 útlendingar sem biðu niðurstöðu
Útlendingastofnunar. Að sögn Eyj-
ólfs varðar það hagsmuni ríkisins og
almennings að yfirvöld viti hverjum
þau séu að hleypa inn í landið.
Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra
hefur tilkynnt grískum yfirvöldum
um stöðu mála og jafnramt bent
þeim á að krefjast þurfi framsals og
leggja fram nauðsynleg gögn, að
sögn Smára Sigurðssonar aðstoðar-
yfirlögregluþjóns. Hafi grísku við-
takendurnir komið þessum upplýs-
ingum á framfæri við rétt yfirvöld
þar í landi.
Grunaður morðingi gekk
laus í viku hérlendis
STÆRSTA flugvél í heimi, Antonov
AN-225 lenti á Keflavíkurflugvelli í
fyrrinótt á leið sinni frá Grikklandi
til flóðasvæðanna í Bandaríkjunum
með risavaxnar rafstöðvar. Vélin er
sannarlega risavaxin, 84 metrar á
lengd, 18 metrar á hæð og með 88,5
metra vænghaf, og er hún stærri en
risaþotur sem bæði Boeing og Air-
bus eru nú með í smíðum.
Fulllestuð er vélin um 600 tonn í
flugtaki, og þarf sex þotuhreyfla til
að koma henni á loft. Hjólabúnaður
vélarinnar er allsérstakur, hún er
með samtals 32 dekk, fjögur að
framan og 28 á sjö öxlum að aftan.
Ekki veitir af, enda getur vélin bor-
ið um 250 tonna farm í 280 fer-
metra farangursrými.
Antonov AN-225 vélin var upp-
haflega smíðuð í Úkraínu til að
bera Buran-geimferju Sovétríkj-
anna. Flugvélin flaug með geim-
ferjuna einu sinni, árið 1989, en var
svo endurbyggð til þess að flytja
þunga hluti um heiminn. Flugþol
hennar er um 15.400 km án farms,
en fulllestuð hefur hún um 4.500
km drægi. Upphaflega var smíðuð
ein Antonov AN-225 vél, og önnur
var kláruð að hluta, og árið 2002
var ákveðið að klára síðari vélina.
Ljósmynd/Víkurfréttir
Antonov-þotan er stærri en þær risaþotur Boeing og Airbus eru að smíða.
Stærsta flugvél í heimi í Keflavík
STANGVEIÐI