Morgunblaðið - 05.10.2005, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2005 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
NÝHERJI hf. hefur undir-
ritað samning um kaup á
danska ráðgjafar- og hug-
búnaðarfyrirtækinu Appli-
Con A/S. AppliCon A/S er
einn stærsti samstarfsaðili
SAP í Danmörku og eitt af öflugri
SAP ráðgjafarfyrirtækjum þar í
landi, en SAP er alþjóðlegt hugbún-
aðarfyrirtæki sem þróar og selur
hugbúnaðarlausnir fyrir fyrirtæki. Í
fréttatilkynningu segir að kaupin séu
í samræmi við stefnu Nýherja að
auka starfsemi fyrirtækisins erlendis
á sviði hugbúnaðarþjónustu og upp-
lýsingatækni.
Samhliða kaupunum á AppliCon
A/S verður stofnað sérstakt félag um
starfsemi hugbúnaðarlausna Ný-
herja undir nafninu AppliCon ehf.
Jafnframt verður sérstakt eignar-
haldsfélag stofnað undir nafninu
AppliCon Holding ehf. sem starfsem-
in í Danmörku og á Íslandi mun falla
undir. Fyrirtækin verða dótturfélög
Nýherja.
Samkvæmt fréttatilkynningunni
verða engar breytingar gerðar á
stjórnendahópnum. Framkvæmda-
stjóri félagsins í Danmörku er Martin
Nørballe, en hann starfaði áður sem
yfirmaður ráðgjafardeild-
ar SAP í Danmörku.
Kristján Jóhannsson,
framkvæmdastjóri hug-
búnaðarsviðs Nýherja,
tekur við nýju starfi fram-
kvæmdastjóra AppliCon ehf.
Markaður í örum vexti
Rekstur og þjónusta viðskiptahug-
búnaðar á vegum Nýherja mun því
framvegis fara fram undir merkjum
AppliCon.
Að sögn Þórðar Sverrissonar, for-
stjóra Nýherja hf., er markaðurinn
fyrir viðskiptahugbúnaðarlausnir á
Norðurlöndum í örum vexti. „Við telj-
um AppliCon öflugt fyrirtæki til að
selja þessar lausnir til danskra við-
skiptavina og þekkt nafn til að þróa
sem fyrirtæki á Norðurlöndum,“ seg-
ir Þórður. „Með þátttöku ráðgjafa frá
AppliCon A/S í verkefnum fyrir ís-
lensk fyrirtæki og starfi íslenskra
ráðgjafa í Danmörku næst að sam-
nýta víðtæka þekkingu og reynslu
ráðgjafa og veita þannig enn betri
þjónustu við viðskiptavini. Sameinað
fyrirtæki verður jafnframt betur í
stakk búið til að takast á við stærri og
flóknari verkefni en hingað til.“
Nýherji kaupir hug-
búnaðarfyrirtæki
● BREYTINGAR á úrvalsvísitölu
Kauphallar Íslands fram að áramót-
um verða á bilinu frá því að lækka
um 1% og upp í að hækka um 4%.
Þessu spáir Greining Íslandsbanka
en deildin hefur sent frá sér afkomu-
spá fyrir helstu félög í Kauphöllinni.
Fram kemur í spá Greiningar ÍSB
að deildin gerir ráð fyrir því að úrvals-
vísitalan hækki um 35–42% frá byrj-
un til loka þessa árs. Það jafngildir
1% lækkun til 4% hækkun til ára-
móta. „Við eigum þannig einungis
von á lítilsháttar hækkun hlutabréfa-
verðs á fjórða ársfjórðungi, þ.e. um
2%, ef stuðst er við miðju spábilsins.
Ekki er hins vegar hægt að útiloka lít-
ilsháttar lækkun. Spáin er mjög háð
því hvernig gengur hjá stærstu félög-
unum en þau fimm stærstu vega
samtals um 80% í Úrvalsvísitölunni,“
segir Greining ÍSB.
Litlar breytingar
til áramóta
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands í gær námu um 17,3 millj-
örðum króna, þar af voru viðskipti
með hlutabréf fyrir um 1,2 milljarða.
Mest voru viðskipti með bréf Lands-
banka fyrir um 385 milljónir.
Engin hlutabréf hækkuðu í verði í
gær en mest lækkun varð á bréfum
Flögu, 3,1%.
Úrvalsvísitala aðallista lækkaði um
1,11% í gær og er nú 4.521,22 stig.
Engin hlutabréf
hækkuðu
● STERLING lággjaldaflugfélagið,
sem er í eigu Fons eignarhaldsfélags,
áætlar að fljúga til ellefu staða frá
Helsinki í Finnlandi, þegar flug félags-
ins þaðan hefst næsta sumar. Frá
þessu er greint í frétt á fréttavef
danska blaðsins Politiken. Þar kemur
fram að fyrirhugaðir áfangastaðir séu
Barcelóna, Malaga, Bologne, Krít,
Búdapest, Edinborg, Faro, Nice, Par-
ís, Prag og Róm.
Í frétt á finnska fréttavefnum virtu-
al.finland.fi segir að Sterling sé enn
eitt flugfélagið sem ætli að reyna fyrir
sér með lággjaldaflug til og frá Finn-
landi. Hlutdeild lággjaldaflugfélaga
þar sé með því lægsta í Evrópu, eða
um 6% á meðan víða annars staðar
sé hlutdeildin um 20%.
Haft er eftir Almari Erni Hilmars-
syni, forstjóra Sterling, á virtual. fin-
land.fi, að lággjaldaflugmarkaðurinn í
Finnlandi sé skammt á veg kominn.
Sterling stefni að því að stækka
markaðinn en ekki endilega að taka
farþega frá öðrum flugfélögum. Hægt
sé að taka þátt í þessum markaði við
hliðina á Finnair.
Ellefu áfangastaðir
frá Finnlandi
!" "
!" #
!$
%&
' " %& ( %
) ( %
* +%# %
*
#%
$ %& ( % ' " %&
, -"
.'!
. /!01- %# ( %
2
#
$%
! / ' " %&
/0 %
3-" %&
, ! %
45-0
6#0
78! " % 7- "-/
9:##%# /
%
;%% "
%
& '
()
! -"&<:0 0
$ %& =/' " %& ."1 >" #." %&
9? ?
(
*
3@<A
.=
-
B
B
B
B
B
B
B
-: %#1
: -
B B B B
B
B B B
B B B B B B
B
B
B
B B
B
B B
B
B
B
B B
B
B
CB DE
CBDE
CB
DE
CBDE
B
CB
DE
CB DE
CB DE
CBDE
CB
DE
CBDE
CBDE
CBDE
B
B
B
B
CB DE
B
B
CB DE
B
B
B
B
CB DE
B
B
B
-"&
& # %
9"(=" & # F
* . "
B
B
B
B
B
B
B
; =+G
9H #% " !0
"&
B
B
B
B
B
B
B
9B;-#% :
"(
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
ÍSLENDINGAR eru að skoða hugsanleg fyrirtækja-
kaup á norðurhluta Jótlands. Danskir fjömiðlar greina
frá þessu. Haft er eftir Karl Otto Nicolajsen hjá at-
vinnumálaráði Álaborgar í frétt á fréttavefnum Idag –
Industriens Dagblad, að viðræður standi yfir milli
ráðsins og íslenskra fjárfesta og að íslensk stjórnvöld
komi einnig að þeim viðræðum.
Már Másson, viðskiptafulltrúi við sendiráð Íslands í
Kaupmannahöfn, segir að fulltrúar atvinnumálaráðs
Álaborgar hafi haft samband við sendiráðið og óskað
eftir aðstoð þess við að koma á tengslum við aðila í ís-
lensku atvinnulífi. Hann segir að hann muni funda
með fulltrúum atvinnumálaráðsins um miðjan þennan
mánuð, þar sem farið verði yfir þessi mál.
Nicolajsen segir að um sé að ræða þrjá íslenska
banka og nokkur fyrirtæki, sem vilji gjarnan fjárfesta
á svæðinu. „Við viljum ekki upplýsa nánar um inni-
hald þessara viðræðna en við vonum, að þær geti leitt
til þess að störf skapist fyrir 150–200 manns,“ segir
hann.
Segir í fréttinni að hugsanleg fyrirtækjakaup Ís-
lendinga í Jótlandi séu a.m.k. að hluta til í mat-
vælaiðnaði.
Nokkur íslensk fyrirtæki eru í Álaborg, þar á meðal
Larsen Seafood. Haft er eftir Nicolajsen að hann von-
ist til þess að áhugi Íslendinga fyrir fjárfestingum á
Jótlandi muni einnig vekja áhuga hjá dönskum fjár-
festum, hugsanlega þannig að um samvinnu við Ís-
lendinga gæti orðið að ræða.
Nokkuð hefur verið um að fyrirtækjum á Jótlandi
hafi verið lokað að undanförnu, svo sem Flextronics í
Pandrup og Danish Crown í Hjørring.
Íslendingar skoða fjár-
festingar á Jótlandi
Morgunblaðið/Þorkell
Matvælaiðnaður Ostar eru meðal þeirra matvæla sem
Danir hafa getið sér gott orð fyrir framleiðslu á.
EIMSKIP hefur eignast allt
hlutafé í norska flutninga-
félaginu CTG. Í fréttatilkynn-
ingu frá félaginu segir að
mikil samlegðaráhrif séu á
milli félaganna en CTG sér-
hæfir sig í flutningum og
geymslu á frystum og kæld-
um sjávarafurðum.
Fram kemur í tilkynning-
unni að Eimskip hafi átt
meirihluta í CTG frá því í
upphafi árs 2004 en verðmæti
félagsins er ríflega milljarður
króna. Gert er ráð fyrir að
velta félagsins á árinu verði
um 1,5 milljarðar króna.
Ennfremur hefur Eimskip
gert samstarfssamning við
DHL og hefur Eimskip nú að-
gang að flutninganeti DHL í
sjó- og flugfrakt. Segir í
fréttatilkynningunni að Eim-
skip geti nú boðið upp á hrað-
flutningsþjónustu til viðbótar
við eigin þjónustu.
CTG að
fullu í eigu
Eimskips
GASFÉLAGIÐ ehf. í Straumsvík
hefur samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins verið selt. Félagið hefur
frá stofnun verið í eigu Olíufélagsins,
Skeljungs og OLÍS en ástæða söl-
unnar mun vera sú að eining ríkir
ekki meðal eigenda um reksturinn í
kjölfar skýrslu Samkeppnisstofn-
unnar um verðsamráð þeirra.
Gasfélagið var stofnað árið 1995
og skiptist eignarhaldið jafnt á milli
eigendanna þriggja, þ.e. 33,3% eign-
arhlutur á hvern eiganda. Félagið
sérhæfir sig í innflutningi á própan-
gasi og selur það til olíufélaganna
sem síðan selja gasið áfram til neyt-
enda og stærri viðskiptavina. Próp-
angas er meðal annars notað til þess
að kynda gasgrill og gashitara á ver-
andir en meðal stærri viðskiptavina
eru veitingastaðir og álver. Starfs-
menn Gasfélagsins eru níu.
Kaupverð liggur ekki fyrir en
heimildir Morgunblaðsins herma að
kaupandinn sé félag tengt Saxhóli
sem er eignarhaldsfélag fjölskyld-
unnar sem er kennd við Nóatún.
Morgunblaðið/Sverrir
Grillkútar Gaskútar fyrir grill eru
meðal þess sem Gasfélagið selur.
Gasfélagið skiptir
um eigendur
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
● TILBOÐ verður lagt fram í bresku
verslunarkeðjuna Somerfield áður
en frestur, sem breska yfirtöku-
nefndin hefur sett, rennur út 14.
október næstkomandi. Reuters-
fréttastofan hefur þetta eftir heim-
ildamönnum innan þess hóps sem
hefur verið að undirbúa tilboð. Um
síðustu helgi sögðu breskir fjöl-
miðlar að svo kynni að fara að ekkert
tilboð yrði lagt fram í verslunarkeðj-
una, eins og greint var einnig frá í
Morgunblaðinu í gær.
Viðræður um hugsanlega yfirtöku
á Somerfield hófust í marsmánuði í
kjölfar þess að Baugur lagði fram til-
boð í verslunarkeðjuna upp á liðlega
einn milljarð punda.
Tilboð verður lagt
fram í Somerfield
4 & I
.J7 "#$%&
$#"$'
()*&
()*+
D
D
!9.<
KL
&#%,%
&#$-'
()*$
.$*$
D
D
@@ 6,L
%#/&)
,)-
.)*/
()*-
D
D
*!L
4 -
-%-
$-#+-,
()*%
.$*/
D
D
3@<L KM)%-
%#&"$
$)#%&'
($*$
()*+
D
D