Morgunblaðið - 05.10.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2005 37
DAGBÓK
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
90 ÁRA afmæli. Í dag, 5. október,er níræður Sigurður B. Sig-
urðsson, Dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi. Af því tilefni tekur hann á
móti vinum og vandamönnum í sal
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi laugardaginn 8. október milli kl.
15 og 18.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Olnbogabörn þjóðarinnar
ÞANNIG er að ég er ellilífeyrisþegi
og ég er mjög ósátt við þá afgreiðslu
sem við fáum nú um þessi mán-
aðamót, almennt. Ellilífeyrisþegum
var sagt um síðustu mánaðamót að
breyting yrði hjá hjónum. Þá átti að
vera búið að gefa út tekjuáætlun
sem við gætum áttað okkur á.
Síðustu mánaðamót fékk ég
greiddar 81.577 kr. og þar af var bú-
ið að taka 7.130 kr. í skatta. Núna í
morgun, 3. október, fæ ég greiddar
41.661 kr. Ég var ekki búin að fá
þetta bréf sem Tryggingastofnun
lofaði að senda svo maður gæti áttað
sig á hlutunum og gert sitt greiðslu-
mat fyrir þessa útborgun. Það sem
ég tapa núna er tekjutrygging,
43.113 kr., tekjutryggingarauka
4.357. Ég hef haft smávegis í orlofs-
uppbót sem er varla talandi um, ég á
að greiða til baka af henni 745 kr.,
sem er kannski ekki há upphæð en
nóg fyrir mig, því búið er að skerða
tekjurnar um helming, án þess að
mér væri tilkynnt um það fyrirfram
eins og lofað var.
Eiginmaðurinn, sem er enn í
vinnu og hefur unnið í 9 vikur eftir
veikindi, fékk í ellilífeyrislaun 21.103
kr., hann fékk núna í ellilaun 14.778
kr. Það voru teknar af honum 11.266
kr. (tekjutrygging, orlofsuppbót).
Hann verður að greiða til baka
15.077 kr. allt í allt.
Mér þætti gaman að fá svar frá fé-
lagsmálaráðherra eða Ágústi Sig-
urðssyni hjá Tryggingastofnun um
hvernig þeir færu að að lifa af þess-
um tekjum og þurfa meira og minna
að fara til sérfræðinga til Reykjavík-
ur, jafnvel 2–3 sinnum í mánuði, því
ekki er aðstaða hér í Hveragerði.
Ég skora á þessa menn að svara
þessu. Öryrkjar hafa farið illa síð-
ustu árin og nú er komið að ellilíf-
eyrisþegum. Við erum olnbogabörn
þjóðarinnar.
Sunna Guðmundsdóttir.
Flugmál og sóun
VINNU minnar vegna þarf ég að
fara 22 ferðir á milli Hótels Loftleiða
og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar að
meðaltali í hverjum mánuði. 22 X 40
= 880 mínútur eða 14,6 klst. Höldum
áfram í margföldunarleiknum. Tólf
sinnum 14,6 er 176 klst. á ári. Deil-
um í það með 24 til að fá út dagana
og það gerir 7 daga og 7 klst. á ári!
Ég eyði sem sagt rúmlega heilli viku
á hverju ári á Reykjanesbrautinni.
Minni starfsævi lýkur eftir 30 ár og
það gerir þá 219,9 daga á Reykja-
nesbrautinni héðan í frá! Reyndar
miðast það við rútur dagsins í dag
sem verða vonandi orðnar fljótari í
förum þegar ég fer á eftirlaun. Ég
get hugsað mér margt annað sem ég
get gert við 220 daga.
Fjöldi íslenskra flugáhafna sem
situr daglega í rútum milli Reykja-
víkur og Keflavíkur er dágóður og
skv. upplýsingum flugfélaganna
vinna alls um 317 flugmenn og 543
flugfreyjur og flugþjónar út frá
Keflavík. Daglega þarf um 304 flug-
liða til að starfrækja allt millilanda-
flug. Miðað við þetta reiknast mér til
að 8 vinnudagar og 11 vinnustundir
fari í ferðir milli Hótels Loftleiða og
Leifstöðvar á hverjum degi, eða alls
3.087 vinnudagar á ári. Þvílík sóun!
Sóunin yrði ennþá meiri með innan-
landsflugið í Keflavík, fyrir utan
aukna bílaumferð, fleiri slys, aukið
slit bifreiða, meiri mengun o.fl.
Valdimar.
Nýverið var opnaður nýr vefur,www.samvinna.is, en vefurinn erfrumkvæðis- og nýsköpunarverk semHalla Hrund Logadóttir, nýútskrif-
aður stjórnmálafræðingur, hefur unnið und-
anfarið misseri. Markmiðið með vefnum er að
sögn Höllu að efla áhuga almennings á alþjóða-
málum en efnið á vefsíðunni er ætlað hinum al-
menna borgara en einnig sem kennsluefni innan
framhaldsskólanna. Vorið 2005 var frumsýnd
stuttmynd sem heitir Afrek dagsins sem Halla
stóð að baki en myndin var unnin í samvinnu við
Kvikmyndaskóla Íslands og var myndin styrkt af
menntaáætlun ESB. Halla segir að á meðan hún
hafi unnið myndina hafi hún fengið hugmyndin
að vefnum, www.samvinna.is, „Þrátt fyrir að
myndin hafi verið skemmtileg og frumleg hafði
hún ákveðna vísun í stöðu heimsmála í dag sem
vakti áhorfendur til umhugsunar. Í kjölfarið átt-
aði ég mig á því að lítið er til af íslensku efni sem
vekur áhuga almennings um alþjóðamál og sömu-
leiðis kom í ljós að flest slíkt efni er á bókaformi
sem erfitt er að uppfæra með auðveldum hætti.
Afleiðingin varð sú að ég réðst í þróun verkefnis
sem miðaði að því að gera eitthvað nýtt og
spennandi í þessum geira. Ég ákvað eftir að hafa
hugleitt málið vel og lengi að ráðast í gerð þess
sem nú birtist í www.samvinna.is. Vefurinn var
gerður með því markmiði að hann yrði hlut-
lægur, myndrænn, aðgengilegur, áhugverður og
lifandi. Og efnið á síðunni er um Ísland og al-
þjóðasamvinnu.“ Halla fékk styrki víðsvegar á
Íslandi við gerð vefjarins enda er þetta fyrsti vef-
ur sinnar tegundar á Íslandi. „Ég fékk styrk frá
forsætisráðuneytinu, Landsbanka Íslands, Ný-
sköpunarsjóði námsmanna, Samtökum atvinnu-
lífsins og Samtökum iðnaðarins.“ Halla vann síð-
una nær alla frá A-Ö, þ.e.a.s sá um að skrifa
texta, hanna útlitið á vefnum og sá um uppsetn-
ingu. „Síðan er nú opin öllum sem hafa áhuga á
því að skoða hana en fyrsti efnishlutinn fjallar
um Ísland og Evrópusamvinnu. Verkefninu er þó
hvergi nærri lokið.“ Halla segir að helsti til-
gangur verksins sé að miðla upplýsingum til al-
mennings um tengsl Íslands við umheiminn. „Nú
þegar eru á síðunni fjölmargir tenglar sem al-
menningur getur nýtt sér en einnig mun þar von
bráðar birtast fyrsta viðtalið sem verður við
Steinar Berg Björnsson um Ísland og frið-
argæslu Sameinuðu þjóðanna.“ Vert er að benda
á að hægt er að skrá sig sem notanda á síðunni
sem gerir fólki kleift að fá tölvupóst þegar nýtt
efni birtist á síðunni.
Halla mun dvelja í Japan í nóvember og eftir
áramót verður hún í starfsþjálfun í sendiráðinu í
Brussel og ætlar hún sér að nýta þá reynslu við
vinnslu á efni fyrir síðuna.
Alþjóðamál | Frumkvæðis- og nýsköpunarverkefnið www.samvinna.is
Eflir áhuga á alþjóðamálum
Halla Hrund Loga-
dóttir er fædd í Reykja-
vík 12. mars 1981.
Hún útskrifaðist úr
Kvennaskólanum í
Reykjavík vorið 2001.
Hún hóf nám haustið
2002 í stjórnmálafræði
og lauk því þremur ár-
um seinna – vorið
2005.
Samhliða námi hefur
Halla hefur tekið þátt í
fjölmörgum verkefnum, t.d. á vegum Vest Nor-
disk Ungdomsforum og Háskóla Íslands.
Halla stefnir á mastersnám í stjórnmálum í
Asíu haustið 2006.
1. d4 f5 2. Bg5 g6 3. Rd2 Bg7 4. c3 h6 5.
Bf4 d6 6. e3 e5 7. Bg3 De7 8. De2 f4 9.
exf4 exd4 10. cxd4 Rc6 11. d5 Rd4 12.
Dxe7+ Rxe7 13. Bd3 Bf5 14. Bxf5
Rdxf5 15. 0-0-0 Rxd5 16. Rc4 Rb6 17.
Rxb6 axb6 18. Kb1 Kd7 19. Rf3 Hae8
20. Hd2 Bf6 21. h3 He4 22. Bh2 Rd4 23.
Rxd4 Hxd4 24. He2 He8 25. Hhe1
Staðan kom upp í Evrópukeppni tafl-
félaga sem lauk nýverið í St. Vincent í
Ítalíu. Daninn Søren Sogaard (2.191)
hafði svart gegn Birni Þorfinnssyni
(2.328). 25... Hd1+! og hvítur gafst upp
þar sem eftir 26. Hxd1 Hxe2 er staðan
að hruni komin. Þessi skák er að mörgu
leyti áhugaverð þar eð lærdómsríkt er
að skilja hvers vegna svartreitabiskup
hvíts varð svo snemma óvirkur en skýr-
ingin á því var sú að hann beit í grjót í
formi síns eigin peðs á f4.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
vinnustofa, kl. 10.45 bankaþjónusta
fysta miðvikudag i mánuði, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi, verðlaun.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–16 mynd-
mennt. Kl. 10–12 sund (Hrafn-
istulaug). Kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður. Kl. 12.15–14 verslunarferð í
Bónus, Holtagörðum. Kl. 13–14 Spurt
og spjallað. Kl. 13–16 tréskurður. Kl.
14.30–15.45 kaffi.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9–12.30, handmennt alm. kl. 9.30–
16.30, morgunstund kl. 10–11, bók-
band kl. 10–13, verslunarferð kl.
12.30. Hárgreiðslu- og fótaaðgerð-
arstofa opnar.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn
kl. 9.30–11.30. Allir foreldrar vel-
komnir með börn sín. Kirkjuprakk-
arar kl. 15.30. – TTT kl. 17.
Árbæjarkirkja | TTT – 10–12 ára
starf í Selásskóla kl. 16. Söngur, sög-
ur, leikir og ferðalög fyrir hressa
krakka. STN – 7–9 ára starf í Sel-
ásskóla kl. 15. Söngur, sögur, leikir
og ferðalög fyrir hressa krakka.
Áskirkja | Hreyfing og bæn í safn-
aðarheimili II milli kl. 11 og 12 í dag.
Allir velkomnir.
Bessastaðasókn | Dagur kirkjunnar
í Haukshúsum. Foreldramorgnar eru
frá kl. 10–12 og opið hús eldri borg-
ara er frá kl. 13–16.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Tónlist, hugvekja, fyrirbænir.
Léttur málsverður eftir stundina.
Kirkjuprakkarar kl. 16. TTT kl. 17.
Æskulýðsfélag KFUM&K og kirkj-
unnar kl. 20.
hjúkrunarfr. frá heilsugæslunni kl.
9.30, leikfimi kl. 11, postulínsmálun
og almenn handmennt kl. 13.
Hallgrímskirkja | Kvenfélag Hall-
grímskirkju heldur fund 6. okt. kl.
20. Gestur fundarins verður Birna
Hjaltadóttir kirkjuvörður sem flytur
erindi um líf íslenskrar fjölskyldu við
Persaflóa og sýnir búninga. Gestir
velkomnir. Ath. að gengið er inn að
sunnanverðu.
Hraunbær 105 | Kl. 9 útskurður,
postulínsmálun, kaffi, spjall, dag-
blöðin, fótaaðgerð og hárgreiðsla.
Kl. 11 banki. Kl. 12 hádegismatur. Kl.
13 brids. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl.
9. Línudans kl. 11. Saumar kl. 13.
Glerskurður kl. 13. Pílukast kl. 13.
Gaflarakórinn kl. 16.30.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnu-
stofa kl. 9–16 hjá Sigrúnu, mósaík,
ullarþæfing og íkonagerð. Jóga kl.
9–12. Samverustund kl. 10.30. Böð-
un virka daga fyrir hádegi. Ferð að
Gvendarbrunnum kl. 13.15, kaffi við
heimkomu. Fótaaðgerðir 588 2320.
Hársnyrting 517 3005.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
opið öllum. Betri stofa og Lista-
smiðja kl. 9–16. Fastir liðir eins og
venjulega. Tölvunámskeið hefst 22.
okt. Skráning stendur yfir á fram-
sagnarnámskeið. Gönguferð „Út í
bláinn“ alla laugardaga kl. 10. Bók-
menntaklúbbur hefst kl. 20. Sími
568 3132.
Kvenfélagið Hrönn | Skemmti-
fundur fim. 6. okt. kl. 20 að Borg-
artúni 22, 3. hæð. Konur taki með
sér gesti. Stjórnin.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–16.30 opin
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Postulínsmálning
kl. 9 og 13. Leikfimi kl. 9, sögustund
kl. 13. Ath. farið í Hagkaup, Skeif-
unni, fyrsta miðvikudag í mánuði.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, glerlist,
spiladagur, fótaaðgerð,.
Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er
öllum opið 9–16. Fastir liðir eins og
venjulega. Aðstaða til frjálsrar hóp-
amyndunar. Postulínsnámskeið
hefst 7. okt. kl. 9. Framsögn mánu-
daga kl. 13.30. Skráning í Biblíuhóp
stendur yfir. Sími: 588-9533.
FEBÁ, Álftanesi | FEBÁ–stafgang-
an. Gengið frá íþróttahúsinu mán-,
mið- og föstudaga, mæting kl. 10
f.h. Athugið breyttan tíma. Guðrún
sími 565 1831. Haukshús kl.13–16.
Grétudagur. Postulínsmálun I. Spil-
að, teflt, spjallað. Gróukaffi. Auður
og Lindi annast akstur, sími
565 0952.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan er opin í dag kl. 10–11.30.
Viðtalstími í Gjábakka kl. 15–16. Fé-
lagsvist spiluð í Gjábakka í dag kl.
13.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Fundur um nýja leiðarkerfið með
forráðamönnum Strætó verður í
Stangarhyl 4, í dag miðvikudag, kl.
15. Söngfélag FEB kóræfing kl. 17.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11
og bútasaumshópur kl. 13 í Kirkju-
hvoli. Brids spilað í Garðabergi kl.
13.
Félagsstarfið Langahlíð 3 | Hár-
greiðsla kl. 10, fótsnyrting kl. 10,
Bústaðakirkja | Starf aldraðra í Bú-
staðakirkju. Samverur á mið-
vikudögum frá kl. 13. Við spilum,
föndrum og erum með handavinnu.
Um klukkan 15 er kaffi og þá kemur
alltaf einhver gestur með fróðleik
eða skemmtiefni. Öllum er velkomið
að taka þátt í þessu starfi. Sjá:
www.kirkja.is.
Dómkirkjan | Bænastund kl. 12.10–
12.30. Léttur hádegisverður á
kirkjuloftinu á eftir. Bænarefnum
veitt móttaka í síma 520 9709. Allir
velkomnir.
Garðasókn | Foreldramorgnar kl. 10–
12.30. Fyrirlestur mánaðarlega. Gott
tækifæri fyrir mömmur og börn að
hittast og kynnast. Allir velkomnir,
pabbar og mömmur, afar og ömmur.
Alltaf heitt á könnuni.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyr-
irbænir. Boðið er upp á léttan há-
degisverð á vægu verði að lokinni
stundinni. Prestar safnaðarins þjóna
fyrir altari, organisti Hörður Braga-
son. Allir velkomnir. TTT fyrir börn
10–12 ára á miðvikudögum í Rima-
og Hamraskóla, kl. 17.30–18.30.
Grensáskirkja | Samverur eldri
borgara á miðvikudögum kl. 14.
Boðið er upp á Biblíulestur og léttar
veitingar. Það er kvenfélagið í kirkj-
unni sem heldur utan um samver-
urnar og þangað eru allir velkomnir.
Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl.
8 árdegis. Íhugun, altarisganga. Ein-
faldur morgunverður í safnaðarsal
eftir messuna.
Háteigskirkja | Opið hús kl. 10–12.
Fastur liður í dagskránni er helgi-
stund í kirkjunni kl. 10.30 í umsjón
séra Helgu Soffíu Konráðsdóttir.
Kaffi og ýmis fróðleikur. Uppl. gefur
Þórdís í síma 511 5405.
Hjallakirkja | Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Tíu til tólf ára krakkar í
Hjallakirkju kl. 16.30–17.30. Tólf
spora námskeið eru í Hjallakirkju kl.
20–22. Kynningarfundur í kvöld kl.
20. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn á Akureyri | Bæn
kl. 12. Allir velkomnir.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut
58–60, miðvikudagskvöld 5. okt. kl.
20. „Ný kenning með valdi“. Ræðu-
maður er Haraldur Jóhannsson.
Bænastund. Kaffi eftir samkomuna.
Allir velkomnir.
Langholtskirkja | Hádegisbæna-
gjörð með orgelleik og sálmasöng
kl. 12.10. Súpa og brauð kl. 12.30 (kr.
300). Starf eldri borgara kl. 13–16.
Söngur, tekið í spil, föndur, spjall,
kaffisopi. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 10 Mömmu-
morgunn. Kl. 10.30 Gönguhópurinn
Sólarmegin. Kl. 14.10–15.30 Kirkju-
prakkarar. (1.–4. bekkur) Kl. 16.15
T.T.T. (5.–7. bekkur). Kl. 17 Adrenalín
gegn rasisma. Laugalækjarskóla.
(Miðborgarstarf KFUM&K o.fl.) kl.
19.30 Fermingartími. Kl. 20.30 Ung-
lingakvöld.
Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10.
Kaffi og spjall. Fyrirbænamessa kl.
12.15. Prestur sr. Örn Bárður Jóns-
son. Opið hús kl. 15. Mynd á þili.
Þóra Kristjánsdóttir, listfræðingur,
ræðir um kirkjulist. Athugið að
koma beint í Þjóðminjasafn kl. 15
þar sem tekið verður á móti hópn-
um.