Morgunblaðið - 29.10.2005, Page 2

Morgunblaðið - 29.10.2005, Page 2
2 LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LIBBY SAGÐI AF SÉR LEWIS Libby, skrifstofustjóri varaforseta Bandaríkjanna, sagði af sér í gær eftir að hafa verið ákærður fyrir að hindra framgang réttvís- innar og bera ljúgvitni við rannsókn á upplýsingaleka í Hvíta húsinu. Tal- ið var hugsanlegt að saksóknarinn Patrick Fitzgerald myndi einnig ákæra Karl Rove, nánasta stjórn- málaráðgjafa George W. Bush for- seta, en svo fór ekki. Metafkoma bankanna Afkoma viðskiptabankanna þriggja hefur aldrei verið betri en fyrstu níu mánuði þessa árs, sam- anborið við fyrri ár. Hagnaður bank- anna samanlagður er 67,2 milljarðar króna. Hagnaður þeirra allt siðasta ár nam um 40 milljörðum. Rúm milljón Írana mótmælir Rúm milljón manna tók þátt í mótmælum gegn Ísrael á götum Te- heran og fleiri borga í Íran í gær og fólkið lét í ljósi stuðning við þau um- mæli forseta landsins að þurrka bæri Ísrael út. Ófærð og óveður Óveður hamlaði innanlandsflugi í gær og olli ófærð víða. Snjóflóðavakt Veðurstofunnar fylgdist með ástandinu norðanlands. Strætisvagn fauk útaf á Kjalarnesi og fjórir voru fluttir á slysadeild eftir að jeppi valt við Hvalfjarðargöng. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Umræðan 40/45 Úr verinu 20 Kirkjustarf 58/59 Viðskipti 18 Skák 65 Erlent 22/23 Minningar 67/69 Akureyri 28 Myndasögur 64 Suðurnes 30 Dagbók 64/67 Landið 31 Víkverji 64 Árborg 29 Staður og stund 65 Daglegt líf 34/35 Velvakandi 65 Ferðalög 36/37 Ljósvakamiðlar 74 Menning 32 Staksteinar 75 Forystugrein 38 Veður 75 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %            &         '() * +,,,                        Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablaðið Eitt líf – njót- um þess. Frá Betra bak. Metsölubók um allan heim Allan og Barbara Pease hafa selt yfir 19 milljón eintaka af bókum sínum Bókin sem varpar ljósi á samskipti kynjanna. Stórkostleg bók, er samdóma álit lesenda. Og ekki að ástæðulausu! Vikan 19. okt. 2005 BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR Gildir til 30. nóvember 2005 30% afsláttur UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ er að undirbúa frumvarp um út- streymisheimildir, útstreymisheim- ildabókhald og fleira. Magnús Jó- hannesson, ráðuneytisstjóri, segir gert ráð fyrir að umhverfisráðherra leggi frumvarpið fram öðrum hvor- um megin við áramót. Þær heim- ildir sem Ísland hefur til að losa gróðurhúsalofttegundir duga þeim stóriðjufyrirtækjum sem nú eru að byggja álver hér á landi, en ef ný fyrirtæki vildu koma upp stóriðju á Íslandi gæti komið til þess að þau þyrftu að útvega sér losunarheim- ildir. Magnús sagði að umhverfisráðu- neytið fjallaði nú um þær ráðstaf- anir sem þyrfti að gera vegna gild- istöku Kyoto-bókunarinnar, en hún tekur gildi árið 2008. Öll ríki sem undirrituðu hana ætla að staðfesta eða hafa staðfest hana nema Bandaríkin og Ástralía. „Þetta snýst um að koma upp kerfi til að halda utan um losun á gróðurhúsalofttegundum og sömu- leiðis möguleika á að tengjast þessu alþjóðlega viðskiptakerfi með los- unarkvóta sem verður rekið í Bonn,“ sagði Magnús. Samkvæmt hinu svokallaða ís- lenska ákvæði hefur Ísland heimild til þess að auka losun á koltvíoxíði um 1.600 þús. tonn á ári að með- altali á árunum 2008–2012 vegna nýrrar stóriðju sem notar endur- nýjanlega orku. Samkvæmt út- reikningum iðnaðarráðuneytisins eykst árleg losun koltvíoxíðs síðan 1990 frá nýrri stóriðju líklega um 1.183 þús. tonn á skuldbindingar- tímabilinu 2008–2012. Aukningin hjá Alcan er 130 þúsund tonn, Járn- blendiverksmiðjunni 175, Norðuráli 392 og Alcoa Fjarðaáli 486. Þetta þýðir að Íslendingar hafa líklega um 417 þús. tonn af koltvísýringi á ári til ráðstöfunar í samræmi við ís- lenska ákvæðið fram að og með fyrsta skuldbindingartímabilinu. Það lætur nærri að það dugi til byggingar á einu nýju álveri, en það fer þó eftir stærð þess. Ekki útlit fyrir að gefa þurfi út kvóta Magnús sagði að miðað við nú- verandi stöðu væri ekki útlit fyrir að fyrirtæki sem hér starfa þyrftu að kaupa sér losunarheimildir. „Samningurinn gefur hins vegar möguleika á því. Stefnumótun okk- ar frá árinu 2002, og í sjálfu sér hefur ekki orðið nein breyting á henni, gerir ráð fyrir að við þyrft- um ekki að úthluta kvótum heldur að við myndum ná okkar mark- miðum með almennum aðgerðum.“ Magnús var spurður hvernig staðan yrði ef ákvörðun yrði tekin um að reisa stórt álver á Norður- landi. Hann sagði að ef allar heim- ildir sem Ísland hefði væru full- nýttar og menn vildu koma með ný fyrirtæki sem losuðu gróðurhúsa- loftegundir þá reyndi á sveigjan- leikaákvæði bókunarinnar. Fyrir- tækin gætu þá komið með kvóta með sér eftir að hafa keypt hann. Eins væri hægt að vinna sér inn kolefniskvóta hér heima með land- græðslu og skógrækt. Sá möguleiki væri einnig fyrir hendi að fara í verkefni í öðrum löndum sem mið- uðu að því að draga úr losun eða fara í svokallaða loftslagsvæna þró- unaraðstoð í þróunarlöndunum. Sigríður Anna Þórðardóttir um- hverfisráðherra gerði grein fyrir undirbúningi ráðuneytisins í þessu máli í svari við fyrirspurn frá Merði Árnasyni alþingismanni á síðasta ári. Þar kom fram að útstreymis- og bindingarbókhald Íslands yrði vistað hjá Umhverfisstofnun. Frumvarp um útstreym- isheimildir lagt fram Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is Morgunblaðið/Steinunn Framkvæmdir við nýtt álver Fjarðaáls á Reyðarfirði eru í fullum gangi. MÝFLUG og Landsflug munu sjá um sjúkraflug næstu fimm árin, en ákveðið var að taka tilboðum félag- anna í flugið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Þar kem- ur fram að Mýflug mun sjá um norð- ursvæðið og Landsflug Vestmanna- eyjasvæðið og er samningstíminn frá 1. janúar 2006 og út árið 2010. Norðursvæðið var í útboðinu stækkað og tekur nú til Vestfjarða, Norðurlands og Austfjarða, þ.m.t. Hornafjarðar. Gerð var krafa um sér- útbúna vél í sjúkraflugið og í fyrsta skipti mun nú sérútbúin sjúkraflugvél sinna verkefni sjúkraflugs á norður- svæði. Mýflug mun í þessu sambandi útvega sjúkraflugvél af gerðinni Beechcraft King Air 200C sem stað- sett verður á Akureyri frá vorinu 2006, en notast við aðra vél þangað til. Sjúkraflugvélin er tveggja hreyfla, búin hverfihreyflum og jafnþrýsti- búnaði. Hún mun ávallt standa tilbúin til útkalls eins og sjúkrabifreið á Ak- ureyrarflugvelli. Í flugvélinni verður sérhæfður búnaður til notkunar fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Miðstöð sjúkra- flugsins verður áfram á Akureyri, en við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri (FSA) er starfandi flugsveit lækna sem fer í sjúkraflug þegar þörf er á. Sjúkrafluginu á Vestmannaeyja- svæðinu verður áfram þjónað frá Vestmannaeyjum. Samið verður við Landsflug, sem mun nota flugvél af gerðinni Dornier DO228 til flugsins og verður hún staðsett í Vestmanna- eyjum. Kostnaðurinn við sjúkraflugið á árinu sem er að líða verður um 165 milljónir króna. Samningarnir sem nú verða gerðir kosta um 139 milljónir króna og er þá miðað við um 370 sjúkraflugsferðir að jafnaði, en á liðnu ári voru þær 381. Samið um sjúkra- flug til næstu 5 ára LEIT úr lofti og sjó var hafin eftir að merki frá neyðarsendi bárust til Landhelgisgæslunnar um gervitungl í gegnum jarðstöð í Bodø í Noregi í gærmorgun. Samkvæmt upplýsingum Gæsl- unnar virtist sem neyðarsendir- inn væri um 5 mílur suðvestur af Grindavík. Sendirinn sendi út á tíðninni 121,5 Mhz og er um 10 mílna frávik á staðsetningu hans. TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæsl- unnar var send til leitar en ekk- ert fannst. Neyðarmerkið var dauft og greindist ekki vel í flugturninum í Keflavík. Hvorki var vitað í hvaða báti sendirinn var né hvort hann væri í báti úti á sjó. Fáir bátar voru á sjó við Reykjanes í gær vegna brælu. Flugvélar og aðrir bátar voru beðin um að hlusta eftir merkjum neyðar- sendisins. Um klukkan 13:30 dóu merkin út og var leit hætt í bili síðar um daginn en málið er enn til athugunar hjá Gæslunni. Árangurslaus leit að neyðarsendi ÁLFTARUNGI sem sat eftir á Bakkatjörn þegar foreldrar hans og systkin flugu suður á bóginn bar sig aumlega þegar vegfarendur og starfsmenn Seltjarnarnesbæjar urðu varir við hann á dögunum. Virtist unginn ekki vera fleygur enn og var því haft samband við Húsdýragarðinn, sem lofaði ung- anum húsaskjóli yfir veturinn. Því næst hófst vinna við að fanga fugl- inn, en það reyndist strembnara en í fyrstu var talið. Á endanum hafð- ist það þó með dyggri aðstoð starfs- manna Náttúrufræðistofnunar Ís- lands og báts. Álftin unga gistir nú í góðu yf- irlæti í Húsdýragarðinum og slepp- ur við þau harðindi sem nú ríkja hjá fuglum landsins. Gengur hún með gæsum og öndum í garðinum og fellur að sögn ágætlega í hópinn. Vonast Seltirningar til þess að fuglinn noti veturinn til að koma sér upp flugfjöðrum, sem ættu að nýtast honum til ferðafrelsis næsta sumar. Yfirgefinn álftarungi FYRIRTÆKIÐ Þormóður rammi – Sæberg hf hefur sent níu starfs- mönnum í Siglufirði uppsagnarbréf vegna hagræðingar í rækjuvinnslu fyrirtækisins í Siglufirði. Verður framvegis unnið á einni vakt í vinnsl- unni. Á undanförnum vikum hefur yfir hundrað starfsmönnum í rækju- vinnslu víða um land verið sagt upp störfum. Lágt afurðaverð og hátt gengi krónunnar eiga mestan þátt í þessum aðgerðum.           !"#    $           % !&  '( )*$+       ' ,-& . ,-& /&( #% %&&    $( ' Uppsagnir í rækjuvinnslu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.