Morgunblaðið - 29.10.2005, Síða 14

Morgunblaðið - 29.10.2005, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur borist frá Húsasmiðjunni: „Húsasmiðjan hf. tilkynnti sl. mánudag 24. október, fyrst ís- lenskra fyrirtækja, VERÐVERND á heimilis- og byggingarvörum. Viðbrögð helsta keppinautarins Byko og auglýsingastofu hans voru þau að þau sökuðu Húsa- smiðjuna opinberlega um stuld á hugverkaréttindum þeirra og héldu því fram því til staðfestingar að Húsasmiðjan hefði komist yfir auglýsingarefni Byko með ólögleg- um hætti og notað það sem fyr- irmynd að auglýsingum Húsa- smiðjunnar. Þessi ásökun birtist í formi sér- stakrar yfirlýsingar frá auglýs- ingastofu Byko, Góðu fólki hf., sem send var út rétt fyrir fréttatíma Sjónvarpsins og um hálfri klukku- stund fyrir útsendingu Kastljóss þar sem fyrirhugað var að for- stjórar Byko og Húsasmiðjunnar skyldu ræða verðverndartilboð fé- laganna. Ásökun um stuldinn var síðan rakin í upphafi Kastljóss rík- isútvarpsins og gerði forstjóri Byko hana að sinni með því að taka undir ásökunina í þættinum. Forstjóri Húsasmiðjunnar kynnti í fyrrgreindum Kastljós- þætti gögn sem sýna fram á að VERÐVERND Húsasmiðjunnar var í öllum meginatriðum undirbú- in í nóvember 2004 þar sem nafnið VERÐVERND var ákveðið, „logo“ átaksins útbúið, helstu skilmálar og prentmiðlaauglýsingar hannað- ar. Frekari gögn þessu til staðfest- ingar fylgja yfirlýsingu þessari til fjölmiðla og er þeim boðið að sann- reyna það enn frekar ef fjölmiðlum þykir vanta upp á. Það skal tekið fram að lítils háttar breytingar voru gerðar á skilmálum og útliti auglýsinga þegar málið var tekið til lokaútfærslu daginn fyrir birt- ingu. Aldrei var um það að ræða að nokkur frá Húsasmiðjunni sem að þessu máli kom hefði séð und- irbúningsvinnu Byko fyrir þeirra herferð né fengið neina lýsingu á útliti hennar eða uppbyggingu. Húsasmiðjan hefur frá upphafi gert hreint fyrir sínum dyrum og útskýrt aðdraganda þess að fyr- irtækið hóf kynningu á VERÐ- VERND sl. þriðjudag. Húsasmiðj- an hefur auk þess kynnt þessi gögn sérstaklega fyrir auglýsinga- stofu Byko og hefur hún fengið gögnin í hendur til að leggja fyrir sína lögmenn. Húsasmiðjan og lögmenn henn- ar telja að ummæli og yfirlýsingar forstjóra Byko og auglýsingastofu Byko, Góðs fólks hf., feli í sér ann- ars vegar meiðyrði og hins vegar óréttmæta viðskiptahætti, og skora því á báða aðila að draga þau ummæli sín til baka sem hugs- anlega brjóta gegn lögum, til að forðast frekari aðgerðir af hálfu Húsasmiðjunnar til að hreinsa sig af þessum ásökunum. Það er vilji stjórnenda og stjórnar Húsasmiðj- unnar að ljúka þessu máli og ein- beita sér að heiðarlegri og eðli- legri samkeppni. Verði Byko og auglýsingastofa þeirra ekki við þessari áskorun áskilur Húsa- smiðjan sér allan rétt í málinu.“ Yfirlýsing frá Húsasmiðjunni EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur borist frá Höfuðborgarsamtökun- um: „Höfuðborgarsamtökin undrast ótrúlegt og óskammfeilið uppátæki hagsmunasamtakanna Áfram í Dal- víkurbyggð að hrinda af stað undir- skriftasöfnun til að negla niður flug- völl í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Áfram-menn ættu að vita eftirfar- andi: 1. Bráðveikir og stórslasaðir ein- staklingar eru fluttir með þyrlum, ekki með vængjuðu flugi, slíkt væri óábyrgt og hættulegt. 2. Vængjað sjúkraflug er einkum notað til að flytja sjúklinga milli sjúkrastofnana og samanstendur af þremur áföngum: A. Ökuferð frá sjúkrastofnun 1 á flugvöll, B. flug- ferð milli flugvalla og C. ökuferð frá flugvelli á sjúkrastofnun 2. Tíma- lengd hvers þessara þriggja áfanga hefur ekki áhrif á batahorfur sjúk- linga. 3. Fórnarkostnaður 190.000 höf- uðborgarbúa felst m.a. í því að sitja 7 sólarhringum lengur á hverju ári í bíl en ella þyrfti ef byggð væri í Vatnsmýri í stað flugvallar. Þetta er hálf klukkustund af kjörtíma hvers einasta borgarbúa hvern einasta dag ársins, ár eftir ár. 4. Fórn borgarbúa birtist einnig í því að kostnaður vegna aksturs er a.m.k. þriðjungi hærri en ella væri eða 120 milljarðar kr. á ári. Mis- munurinn, sem sparast árlega, þeg- ar flugvöllurinn hverfur úr Vatns- mýri, er 40 milljarðar króna eða 570.000 kr. á hvert heimili á höf- uðborgarsvæðinu. 5. Akstursvegalengd á höfuðborg- arsvæðinu er þá um þriðjungi lengri en vera þyrfti og umferðarslys að sama skapi þriðjungi fleiri en ella, þar með taldir látnir og stórslas- aðir. 6. Mengun og neikvæð áhrif á heilsufar borgarbúa vegna umferð- ar eru þá einnig þriðjungi meiri en ella. 7. Þjóðhagslegt verðmæti byggð- ar í Vatnsmýri er a.m.k. 200 millj- arðar kr. Þar af eru byggingarlóðir fyrir 90 milljarða kr. Ríkið á þriðj- ung þess eða 30 milljarða kr. 8. Hæglega mætti byggja nýja miðstöð innanlandsflugs á góðum stað utan byggðar á höfuðborgar- svæðinu fyrir allt að 10 milljarða kr. og skipta 20 milljörðum kr. milli allra landsmanna og kæmu um 200.000 kr. í hlut hverrar fjölskyldu. 9. Reikna verður vexti af bundnu fé undir Vatnsmýrarflugvellinum á meðan ekki er byggt þar. Miðað við 6% vexti eru það 12 milljarðar kr. á ári eða einn milljarður á mánuði, sem samsvarar um 9.000 kr. á hvern Reykvíking í fórnarkostnað. Höfuðborgarsamtökin harma að Áfram-menn efni til ósættis og ill- deilna milli landsbyggðar og höf- uðborgar með svo skammsýnum og vanhugsuðum hætti. Það er mat Höfuðborgarsamtak- anna að Áfram-mönnum væri sæmst að leggja fremur sitt af mörkum til að finna megi farsæla framtíðarlausn fyrir innanlandsflug- ið. Það þarf varla mannvitsbrekku til að sjá að innanlandsflug í Vatns- mýri á sér enga framtíð, þvert gegn hagsmunum og vilja höfuðborgar- búa.“ Yfirlýsing frá Höfuð- borgarsamtökunum Neskaupstaður | Þær Sesselja Rán Hjartardóttir og Hrönn Hjálmarsdóttir fengu lítið frí á kvennafrídag- inn. Þann dag völdu dætur þeirra sér að koma sér í heiminn á fæðingardeild Fjórðungssjúkrahússins í Nes- kaupstað. Það er ljóst að sum kvennanna verk geta karlmenn ekki leyst og því var ekki um annað að ræða fyrr mæður, dætur og ljósmæður en að sleppa frídeg- inum í þetta sinn. Það er ekki mjög algengt að tvö eða fleiri börn fæðist sama dag á fæðingardeild FSN, en það sem af er árinu hafa 49 börn fæðst á deildinni, þar af 28 stúlkur. Að sögn Hafdísar Eddu Eggertsdóttur ljósmóður hefur fæðingum verið að fjölga hægt og sígandi undanfarin ár þar sem aðkomukonur af Mið-Austurlandi hafa kom- ið í auknum mæli til að fæða á deildinni. Árið 2001 fæddust 35 börn á deildinni en árið 2004 hafði fæð- ingum fjölgað í 59. Stúlkurnar sem völdu sér þennan táknræna dag til að koma í heiminn heita Sigurbjörg Ósk, dóttir Hrann- ar Hjálmarsdóttur og Gunnars Þórs Guðmundssonar og Hafdís Huld, dóttir Sesselju Ránar Hjartardóttur og Helga Guðmundssonar. Báðar voru þetta myndar- stúlkur, Sigurbjörg Ósk mældist 16 og hálf mörk og 55 sentimetrar en Hafdís Huld var öllu stærri eða 19,5 merkur og 58 sentimetrar. Þær verða vonandi öflugir liðsmenn í kvennabaráttunni. Sum kvennaverk geta karlmenn einfaldlega ekki leyst Fæddust á kvennafrídegi Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Sesselja Rán með Hafdísi Huld Helgadóttur og Hrönn Hjálmarsdóttir með Sigurbjörgu Ósk Gunnarsdóttur. GARÐAR Baldvinsson hefur látið af formennsku í Félagi ábyrgra feðra vegna samskiptaörðugleika í stjórn félagsins. Stefán Guð- mundsson hefur tekið við for- mennskunni af Garðari. Á stjórnarfundi 24. október gekk Garðar af fundi og og sagði daginn eftir af sér öllum trúnaðar- störfum fyrir félagið. Meginástæð- an er alger viðsnúningur í stefnu stjórnarinnar, að mati Garðars. Sagði af sér formennsku

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.