Morgunblaðið - 29.10.2005, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 41
UMRÆÐAN
Á UNDANFÖRNUM árum
hafa nýir tímar haldið innreið sína
á mörgum sviðum íslensks sam-
félags, meðal annars í viðskiptalíf-
inu og á vettvangi
ríkisins. Á báðum
þessum sviðum eru
Íslendingar í mörgum
skilningi á heims-
mælikvarða. Þótt
sumt hafi þokast í
rétta átt hefur ný
hugsun hins vegar átt
erfitt uppdráttar í
Ráðhúsinu. Mér
finnst þess vegna
augljóst að borgin
stendur á tímamótum
í aðdraganda kosn-
inganna í vor. Nú er
lag til þess að virkja
kraft nýrrar kynslóðar. Kynslóðar
sem býr yfir frumkvæði, skynjar
og skilur kröfur nútímans og kann
að nýta tækifæri framtíðarinnar.
Ný hugsun: hlustum
á óskir borgarbúa
Á mörgum sviðum hafa borg-
aryfirvöld fremur viljað steypa
borgarbúa í sitt eigið mót en að
sinna óskum okkar sjálfra. Þetta
er að mínu viti til marks um gam-
aldags hugsun.
Í skipulagsmálum hefur til
dæmis ekki verið boðið upp á þær
lóðir sem eftirspurn hefur verið
eftir. Í samgöngumálum hafa
bráðnauðsynlegar endurbætur og
framkvæmdir verið látnar sitja á
hakanum. Í staðinn hefur verið
lögð ofuráhersla á næsta vonlausa
baráttu við að fá okkur borgarbúa
með einhverjum ráðum til þess að
skilja bílinn eftir heima og fara
sem flestra okkar ferða labbandi,
hjólandi eða með strætó. Í skóla-
málum hefur afbragðsgóðum og
eftirsóttum valkostum við hefð-
bundna borgarrekna skóla verið
gert erfitt fyrir með markvissum
hætti, í stað þess að hlúa að fjöl-
breyttum rekstrarformum og auka
val foreldra og barna.
Frumkvæði og framtíðarsýn
Ég vil að nýr meirihluti í borg-
arstjórn setji sér það markmið að
þjónusta borgarinnar verði á
heimsmælikvarða á sem flestum
sviðum. Ég tel að þetta sé bæði
sjálfsagt markmið og raunhæft.
Við þurfum að gera stórátak til
þess að bæta umhverfi okkar;
opnu svæðin, skólalóðirnar, leik-
vellina. Við eigum að tryggja að
leikskólar geti sinnt þeirri þjón-
ustu sem skattgreiðendur hafa
borgað fyrir. Við eigum að greiða
úr umferðarhnútum og auka ör-
yggi vegfarenda með endurbótum
sem blasir við að eru nauðsyn-
legar. Við eigum að aflétta lang-
varandi neyðarástandi í málefnum
aldraðra með því að fjölga hjúkr-
unarrýmum.
Þá hefur sjaldan verið þýðing-
armeira en nú að hafa skýra fram-
tíðarsýn að leiðarljósi í skipulags-
málum. Viljum við koma stærstum
hluta nýrra Reykvíkinga framtíð-
arinnar fyrir við Úlfarsfell, eða
viljum við í staðinn byggja upp á
Geldinganesi, í Örfirisey og í
Vatnsmýri? Þetta hefur úr-
slitaþýðingu um þróun borg-
arinnar á næstu árum og áratug-
um. Ég hef talað eindregið fyrir
síðari kostinum og hafði meðal
annars frumkvæði í því í hópi okk-
ar sjálfstæðismanna, að taka
skýra afstöðu á þann veg að
Vatnsmýrin verði framtíðarbygg-
ingarland Reykjavíkur og flugvell-
inum verði fundinn annar staður í
eða við höfuðborgina. Það er mjög
ánægjulegt að sú niðurstaða nýtur
vaxandi stuðnings.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
meðbyr í aðdraganda þessara
kosninga. Ég er ákaflega þakk-
látur fyrir þann mikla og góða
stuðning sem ég hef fengið hjá
þeim stóra hópi fólks sem ætlar að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn í vor.
Það er gleðilegt að sjá þann
stuðning endurspeglast í skoð-
anakönnunum. Ég veit að í þess-
um hópi eru, meðal
annarra, ótalmargir
óflokksbundnir Reyk-
víkingar sem velta
flokkadráttum lítið
fyrir sér en vilja taka
þátt í því að innleiða
nýja tíma; nýja hugs-
un við stjórn borg-
arinnar.
Þrátt fyrir allt sýna
kannanir líka – sem
kemur reyndar ekki
mjög mikið á óvart –
að dágóður hópur
fólks vill helst að ein-
hverjir aðrir en Sjálf-
stæðisflokkurinn fari með sigur af
hólmi og hefur því ákveðið að
kjósa aðra flokka. Það verður svo
sannarlega hlustað á sjónarmið
þessa fólks, rétt eins og sjónarmið
annarra borgarbúa, komist Sjálf-
stæðisflokkurinn að við stjórn
borgarinnar í vor. Mér finnst hins
vegar umhugsunarefni hvort besta
leiðin til þess að tryggja að svo
verði, sé að hlusta á óskir þess
núna um hvernig það vill að við
sjálfstæðismenn stillum upp fram-
boðslista okkar fyrir kosningar.
Á vit nýrra tíma
Það er mjög þýðingarmikið fyrir
Reykjavík að Sjálfstæðisflokk-
urinn beri sigur úr býtum í vor
eftir tólf ára valdatíð R-listans,
sem nú er allur. Í því sambandi
skiptir reynsla talsvert miklu máli,
ekki síst reynsla Reykvíkinga af
þessum tólf árum.
En hún dugar ekki ein og sér.
Þótt fortíðin kunni að leggja okk-
ur lið munu úrslitin ekki ráðast á
henni. Það sem verður efst í huga
okkar sem greiðum atkvæði í vor,
og mun því ráða úrslitum, er
framtíðin.
Ég hef lagt mikla áherslu á að
kynna skýra kosti, skýra stefnu og
skýra framtíðarsýn. Allt þetta
liggur fyrir; kjósendur vita að
hvaða kostum þeir ganga. Ég hvet
alla þá, sem vilja taka þátt í því að
leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs
í vor, til þess að taka fyrsta skref-
ið á vit nýrra tíma í prófkjöri okk-
ar sjálfstæðismanna í næstu viku.
Það gæti reynst risastökk fyrir
Reykjavík.
Frumkvæði og framtíðarsýn;
kraftur nýrrar kynslóðar
Eftir Gísla Martein Baldursson ’Það er mjög þýðing-armikið fyrir Reykjavík
að Sjálfstæðisflokk-
urinn beri sigur úr být-
um í vor eftir tólf ára
valdatíð R-listans, sem
nú er allur. ‘
Gísli Marteinn
Baldursson
Höfundur er varaborgarfulltrúi, í
framboði til prófkjörs Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík og býður sig
fram í fyrsta sætið.
Prófkjör í Reykjavík
Nánari upplýsingar gefur Einar í síma 896 8767
Sími
530 6500
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sérlega björt og falleg ca 110 fm
neðri sérhæð auk bílskúrs í reisu-
legu húsi í Teigahverfi. Rúmgóð
stofa og borðstofa og þrjú svefn-
herbergi. Bílskúrinn er innréttaður
sem íbúðarrými og er í útleigu
sem ætti að henta þeim sem vilja
lækka greiðslubyrðina. V. 27,9 m.
LAUGATEIGUR
Nánari upplýsingar gefur Einar í síma 896 8767
Gott 202 fm raðhús á tveimur
hæðum með innbyggðum 36 fm
bílskúr. Fimm svefnherbergi, ný-
legt eldhús og baðherbergi,
hellulögð afgirt verönd og suður-
svalir út frá stofu. Möguleiki á að
stækka húsið með garðskála yfir
svalir og verönd. V. 47,9 m.
NESBALI
Nánari upplýsingar gefur Bogi í síma 699 3444
Góð 119 fm útsýnisíbúð með sér-
inngangi af svölum. 4 svefnher-
bergi innan íbúðar og stór 12 fm
geymsla á 1. hæð með glugga.
Endurbætt eldhús og baðher-
bergi. Góð sameign með marga
kosti. V. 20,7 m.
LUNDARBREKKA - 5 HERB.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn