Morgunblaðið - 29.10.2005, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 47
MINNINGAR
✝ Sigrún Ágústs-dóttir fæddist á
Núpi undir Eyja-
fjöllum 14. nóvem-
ber 1910. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð í Kópa-
vogi 23. október síð-
astliðinn. Sigrún
var dóttir Guðrúnar
Jónsdóttur og
Ágústs Guðmunds-
sonar. Hún var tek-
in í fóstur hjá hjón-
unum Ingibjörgu
Ólafsdóttur og Ólafi
Ketilssyni sem bjuggu á Núpi. Þar
ólst hún upp og bjó til 18 ára ald-
urs. Sigrún átti tvo bræður sam-
feðra, þá Guðmund og Gísla, sem
eru báðir látnir. Hinn 8.12. 1934
giftist Sigrún Þórarni Jónssyni
frá Ásólfsskála undir Eyjafjöllum
f. 5.5. 1905, d. 8.8. 1959. Þau hófu
búskap í Engidal í Vestmannaeyj-
um en lengst af bjuggu þau að
Skólavegi 18 (Mjölnir). Þau eign-
uðust 7 börn og komust 5 þeirra á
legg. Þau eru: 1) Ingólfur f. 24.10.
1935, kvæntur Mörtu Sigurjóns-
dóttur. Þau eiga þrjá syni, Sigur-
jón Inga, Þórarin og Gunnar Örn,
og sjö barnabörn. 2) Einar f.
20.12. 1937, kvæntur Sólveigu
Þorleifsdóttur. Þau eiga tvö börn,
Aðalheiði og Þórarin Rúnar, og
þrjú barnabörn. 3) Guðrún f.
14.11. 1940, gift Gísla B. Lárus-
syni. Þau eiga þrjú
börn, Þórarin, Jónu
Bryndísi og Sig-
rúnu, og níu barna-
börn. 4) Ágúst Ingvi
f. 1.12. 1943, kvænt-
ur Guðrúnu Ingi-
bergsdóttur. Þau
eiga þrjár dætur,
Sigrúnu, Lovísu
Ingu og Þóreyju, og
sex barnabörn. 5)
Andrés f. 14.9. 1945,
d. 12.11. 1993, var
kvæntur Margréti
Lárusdóttur. Þau
eiga fimm börn, Hrafnhildi, Þór-
unni, Sonju, Sigríði Láru og Lárus
Má, og tíu barnabörn. Áður átti
Andrés dótturina Ólöfu Ingu, hún
á þrjú börn.
Sigrún var heimavinnandi hús-
móðir lengstan hluta starfsævi
sinnar eða allt þar til hún varð
ekkja árið 1959 en þá fór hún að
vinna í fiskvinnslu. Í gosinu á
Heimaey 1973 fluttist Sigrún upp
á land en flutti síðan aftur til Eyja
þar sem hún bjó í 2 ár áður en hún
fluttist aftur til Reykjavíkur. Þar
bjó hún lengst af á Kleppsvegi 32
og í þjónustuíbúð á Lindargötu 61
eða allt þar til hún fluttist á hjúkr-
unarheimilið Sunnuhlíð í Kópa-
vogi. Sigrún verður jarðsungin
frá Landakirkju í Vestmannaeyj-
um í dag og hefst athöfnin klukk-
an 14.
Elsku mamma
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku mamma, þú hefur alltaf
verið stór hluti í lífi mínu, engin af-
mælisdagur eða jól hafa verið án
þín enda áttum við sama afmæl-
isdag. Við vorum einmitt farnar að
ræða það hvað við ættum að gera
okkur til skemmtunar núna í nóv-
ember þegar þú yrðir 95 ára. En
þér var ætlað annað. Þó að fæt-
urnir hefðu gefið sig þá var hug-
urinn alltaf sá sami. Þú fylgdist
alltaf vel með öllum þínum ástvin-
um og varst í góðu sambandi við þá.
Við gátum alltaf talað um hvað sem
var og aldrei sast þú auðum hönd-
um. Þú varst óþreytandi við að
sauma, mála og prjóna. Hafðir allt-
af eitthvað í vinnslu. Mikil breyting
verður nú á lífi mínu, þar sem það
var fastur liður að heyra í þér í
kringum hádegið og síðan hittumst
við líka seinni partinn. En við eig-
um eftir að sjást og heyrast á ný,
þó leiðir skilji nú. Elsku mamma
mín, hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þín dóttir
Guðrún.
Elsku amma, ég hef verið svo
lánsöm að hafa fengið að hafa þig
þetta lengi í mínu lífi, elsku amma.
En þrátt fyrir það vill maður alltaf
meira. Hafa allt óbreytt. Þegar ég
var lítil í pössun hjá þér varst þú
óþreytandi við að spila og spjalla
um heima og geima. Og ekki
skemmdi fyrir að þú áttir alltaf ein-
hverjar góðar kökur handa manni.
Þegar ég var orðin eldri og komin
með bílpróf fórum við stundum í
bíltúr, sem við höfðum báðar gam-
an af. Þá keyrði ég þig og vinkonur
þínar milli félagsmiðstöðva, í spil,
dans, skemmtanir eða hvað sem í
boði var. Ég sá allavega að það var
ekki leiðinlegt að verða eldriborg-
ari, því það var alltaf svo gaman hjá
ykkur. Eftir að ég eignaðist stelp-
urnar mínar breyttist þetta en það
breyttist ekki að alltaf var gott að
koma í heimsókn til þín. Í lífi
stelpnanna minna varst þú líka
fastur punktur og alltaf fannst
þeim gaman að koma til þín og ekki
skemmdi fyrir að þú áttir alltaf
eitthvað gott handa þeim í skúff-
unni þinni. Aldrei sast þú auðum
höndum og það eru ófá listaverkin
sem ég á eftir þig. Þó það sé sárt að
kveðja þá veit ég að þú varst tilbúin
að fara og hitta fólkið þitt hinum
megin. Takk fyrir allt, elsku amma,
þín
Sigrún Gísla.
Elsku amma, þegar ég sit hér
rifjast upp margar góðar minning-
ar.
Þú varst svo góð, sterk og ákveð-
in.
Þú þurftir að ganga í gegnum svo
margt á þinni ævi.
Erfitt var það þegar pabbi dó,
þitt yngsta barn.
Ég veit að hann pabbi og afi taka
vel á móti þér.
Nú kveð ég þig, elsku amma,
með söknuði og mörgum góðum
minningum.
Bið að heilsa pabba, kysstu hann
frá mér.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð
hjartans þakkir fyrir liðna tíð
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Þitt barnabarn
Sonja Andrésdóttir.
Mig langar að skrifa nokkur orð
um hana ömmu Sigrúnu.
Ég man þegar fjölskyldan fór í
„kaupstaðarferð“ til Reykjavíkur,
þá sat maður spenntur í bílnum og
beið eftir að hitta hana ömmu. Þá
bjó hún amma á Kleppsveginum.
Alltaf tók hún amma jafn vel á móti
okkur og finnst mér það eins og
það hafi verið í gær. Maður á marg-
ar góðar minningar af Kleppsveg-
inum. Ég var alltaf svo stolt af
henni ömmu, hún var alltaf svo fín
og flott, og leit hún út fyrir að vera
mörgum árum yngri en hún var.
Þegar ég var yngri tók ég vinkonur
mínar með mér í heimsókn til
ömmu, þá spurði ég þær alltaf hvað
þær héldu að amma væri gömul og
auðvitað giskuðu þær á að hún væri
mörgum árum yngri en hún var.
Ég heimsótti ömmu alltaf þegar
ég kom til Reykjavíkur og var það
alltaf jafn gaman og alltaf var hún
svo ánægð að sjá mann. Hún var nú
reyndar mishrifin af því, hvernig
veðri maður væri að ferðast í, sér-
staklega ef drengirnir voru með í
för. Amma var ekki þekkt fyrir að
sitja á sínum skoðunum. Ég gæti
setið hér endalaust og rifjað upp
yndislegar minningar um hana
ömmu en læt þetta gott heita. En
elsku amma, það verður nú eitt-
hvað skrítið að fara í borgina og
fara ekki í heimsókn til þín. Ég á
eftir að sakna þess mjög mikið. En
ég veit að þú þurftir hvíldina og að
þér líður vel, hittir afa aftur og
hann elsku pabba og drengina þína.
Megi guð blessa þig.
Knús og kossar,
Sigríður Lára.
Í dag kveðjum við systur ást-
kæra ömmu okkar.
Guð sá að þú varst þreytt
og þrótt var ekki að fá.
Því setti hann þig í faðm sér
og sagði; „Dvel mér hjá.“
Harmþrungin við horfðum
þig hverfa á annan stað.
Hve heitt sem við þér unnum
ei hindrað gátum það.
Hjartað úr gulli hannað
hætt var nú að slá.
Og vinnulúnar hendur
verki horfnar frá.
Guð sundur hjörtu kremur
því sanna okkur vill hann,
til sín hann aðeins nemur
sinn allra besta mann.
(Höf. ók.)
Þessar línur finnst okkur lýsa
henni ömmu allra best.
Eftir langa ævi hafði hún unnið
mörg handtökin, bar handavinnan
hennar þar af og fengum við systur
að njóta hennar sem og litlu lang-
ömmubörnin. Amma var líka svo
miklu meira en bara amma, hún
hafði hjarta úr gulli og var alltaf
eins og besta vinkona okkar, hjá
henni var ekkert kynslóðabil.
Amma var alltaf svo vel með á nót-
unum og gátum við setið og spjall-
að við hana um alla okkar hagi,
enda vissi amma um mörg okkar
dýpstu leyndarmál. Amma sagði
okkur umbúðalaust hvað henni
fannst og oftar en ekki var hlegið
dátt að allri vitleysunni sem ung-
lingsstúlkum gat dottið í hug.
Amma var sjálf léttlynd kona og
fleytti það henni vel í gegnum þær
djúpu sorgir hún upplifði á sinni
löngu ævi.
Eftir að amma hafði tíma fyrir
sjálfa sig hafði hún gaman af að
vera vel til höfð og oftar en ekki var
naglalakkið á lofti í heimsóknunum
hjá henni, eftir vangaveltur um
hvort liturinn hentaði henni spurði
hún með bros á vör hvort við ætt-
um ekki bara að skella á augabrún-
irnar í leiðinni. Þessu höfðum við
gaman af enda vorum við stoltar af
því hvað við áttum alltaf fína
ömmu.
Við ætlum ekki að telja hér upp
alla kosti ömmu, það hefði hún ekki
kært sig um. En það sem okkur
þykir best var að hún vissi sjálf
hversu mikið okkur þótti vænt um
hana og vitum við að það var gagn-
kvæmt. Við kveðjum hana með
söknuði en erum þó glaðar yfir því
að hennar þreytta hjarta fékk loks-
ins hvíldina.
Nú þökkum við með tár og trega
hvert tillit, orð og ráð.
Þín minning, amma elskulega,
Skal aldrei verða máð.
(G.Á.)
Góða nótt elsku amma og við
sjáumst aftur eins og við töluðum
um.
Þínar
Sigrún, Lovísa Inga
og Þórey Ágústsdætur.
Elsku amma.
Nú skilja leiðir.
Það er svo ótalmargt sem mig
langar að segja en erfitt reynist að
koma því á blað.
En amma mín þú varst alveg ein-
stök, alltaf glöð, alltaf jákvæð, allt-
af vel til höfð og alveg laus við for-
dóma. Þú varst ung í anda og
töluðum við saman eins og jafnöldr-
ur. Veturinn sem ég var í Ármúla
áttum við margar góðar stundir.
Ég veit ekki hvernig ég hefði farið
að ef ég hefði ekki átt þig að þá.
Elsku amma, takk fyrir allt, ég
bið að heilsa afa sem hefur örugg-
lega tekið glaður á móti þér.
Þín
Aðalheiður (Alla.)
Elsku Sigrún. Það hefur gert líf
mitt ríkara að þekkja þig í 20 ár
eða frá því að ég kom með Öllu son-
ardóttur þinni í heimsókn til þín á
Kleppsveginn. Oft er sagt að fyrstu
kynni bregðist ekki og var það
raunin. Virðing og væntumþykja
hefur verið óskoruð til þín allar
götur síðan.
Við fjölskyldan nutum samveru-
stundanna með þér í hvívetna. Oft
var hlegið og ósjaldan hláturköst.
Þú hafðir góða nálægð, varst glað-
lynd og hláturmild. Vel til fara,
virðuleg kona sem tekið var eftir.
Jákvæð í garð nútímans, tísku unga
fólksins og laus við fordóma. Góð
fyrirmynd.
Það vakti aðdáun mína hversu
vel þú fylgdist með stórum hóp
ömmu- og langömmubarna þinna
og hafðir fréttir af þeim öllum. Þú
gafst þér góðan tíma til að spjalla
við þau um heima og geima. Sann-
kölluð ættmóðir.
Ég vil þakka þér fyrir skemmti-
legar bílferðir og þá sérstaklega
þær sem við fórum austur undir
Eyjafjöll. Á leiðinni varstu eins og
atvinnu fararstjóri. Þekktir öll ör-
nefni, alla bæi og sagðir okkur frá
þeim sem þar áttu heima. Þú sýnd-
ir okkur með stolti æskuslóðir þín-
ar og sagðir okkur sögur frá því að
þú varst ung blómarós á Núpi þar
sem þú bjóst til 18 ára aldurs. Þetta
var greinilega sveitin þín.
Södd lífdaga, sátt við guð og
menn, ertu komin á áfangastað.
Stað þar sem taka á móti þér elsku
maðurinn þinn sem þú saknaðir svo
mikið, litlu drengirnir sem þú
misstir svo ung og sonurinn sem
lést á besta aldri. Hjá ykkur eru
miklir fagnaðarfundir, hlý faðmlög,
innilegir kossar og gleðitár falla.
Allt hefur upphaf og endi og um
leið og einar dyr lokast opnast aðr-
ar. Þrátt fyrir mikinn söknuð héð-
an, samgleðjumst við þér á nýjum
stað. Hafðu þakkir fyrir allt og allt.
Megi algóður Guð vernda afkom-
endur þína og fjölskyldur þeirra og
gera þig stolta af þeim sem hingað
til. Kveðja,
Guðmundur Þór.
Elsku langamma, þá er komið að
kveðjustund, sem er kannski ekki
svo sorgleg því að ég er svo þakklát
fyrir öll árin sem eru næstum því
95, sem þú fékkst að vera heilbrigð
og hress. Ég sá þig hressa og káta
fyrir aðeins 2 mánuðum síðan og sú
minning mun alltaf fylgja mér. Ég
passaði mig alltaf á því að koma
ekki í heimsókn á þeim tíma sem
Leiðarljós var í sjónvarpinu, því þá
náði maður sko ekki sambandi við
þig, því að þér fannst sá þáttur svo
skemmtilegur, þú fékkst líka að
mæta aðeins of seint fram í mat svo
þú gætir klárað þáttinn og það
kalla ég frábæra ummönnun. Þú
sagðir líka alltaf að þér liði svo vel
þarna og þá vorum við fjölskyldan
að sjálfsögðu sátt.
Elsku langamma, nú muntu hvíla
á stað sem þér var svo kær og það
eru Vestmannaeyjar.
Guð veri með þér.
Marta yngri.
Elsku amma.
Mig langar að kveðja hana ömmu
mína með örfáum orðum. henni
hafði hlotnast langt og tiltölulega
gott líf. Þar sem deildi út sinni líf-
speki og sínum yndislega fallegum
hannyrðum sem hún vann í nánast
fram á síðasta dag. Hún amma var
sérstakar persónuleiki henni virtist
alltaf takast að aðlaga sig þeim stað
sem hún bjó á og átti alltaf ógrynni
af vinum, þannig maður upplifði
það aldrei að ömmu leiddist eða
væri einmana. En sú sem kannski
sá mest til þess að amma hefði fé-
lagsskap var hún mamma mín þær
hafa verið óaðskiljanlegar alla tíð
og hefur mamma sinnt henni af því-
líkri alúð og umhyggju. Veit ég að
söknuðurinn eftir ömmu á eftir að
verða mikill núna 14. nóv. nk. þegar
hún hefði orðið 95 ára og mamma
65 ára hafa þær nánast alltaf verið
saman þennan dag. Einnig verða
jólin tómleg án hennar ömmu
minnar. En maður huggar sig við
það að hún sé komin þangað sem
hún vildi vera hjá sínum yndislega
manni og 3 sonum sem voru farnir
á undan henni.
Elsku amma, hafðu þökk fyrir
allt og ég tel það forréttindi að hafa
átt jafngóða ömmu og þig og ég
kveð þig með þessum orðum.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku amma mín, hvíldu í friði.
Ástarkveðja
Jóna Bryndís.
Hún er dáin. Hún vinkona mín.
Hún Sigrún.
Þau eru ellefu árin, síðan við
kynntumst. Það var á Vitatorgi,
þar sem ég starfaði, og hún var
íbúi. Við bundumst vináttuböndum,
og höfum fylgst að síðan. Það er 30
ára bil á milli okkar. En þau voru
ekki finnanleg, því við gátum alltaf
spjallað saman um allt milli himins
og jarðar, án þess að aldursmunur
truflaði.
Sigrún var mjög heppin, þegar
hún flutti sig um set, því þá komst
hún að í Sunnuhlíð, þar sem henni
leið ávallt svo vel. Því svo vel var
um hana hugsað.
Henni féll varla verk úr hendi.
Það eru ekki margar vikurnar, síð-
an hún gaf mér fagran dúk, saum-
aðan með eigin höndum. Hann hef-
ur verið á borðstofuborðinu mínu
síðan, og hefi ég verið afar stolt af
að sýna þessa fögru vinnu 94 ára
gamallar manneskju.
Við áttum skemmtilegt tal saman
vikuna áður en hún dó, þar sem við
hlógum og flissuðum um allt og
ekkert.
Oft, þegar hún var mikið þreytt,
sagði hún við mig: „Er bara ekkert
pláss fyrir mig þarna uppi?“ Ég
svaraði ávallt „Nei, greinilega ekki
ennþá.“ En nú var plássið komið,
og þau hafa áreiðanlega tekið vel á
móti henni vinkonu minni góðu,
maðurinn hennar og sonurinn, sem
hún syrgði mikið.
Guð blessi þig Sigrún. Ég þakka
allar góðar stundir.
Þín
Þórdís.
SIGRÚN
ÁGÚSTSDÓTTIR
Elsku amma, mig langar
að kveðja þig með þessum
orðum. Takk fyrir hvað þú
varst góð við mig.
Hún amma mín minnir
mig á ilminn af rósunum, sól-
skinið um sumarið, stjörn-
urnar um veturinn og
hlýjuna sem kemur frá vind-
inum.
Takk fyrir allt, elsku
amma mín.
Þín
Edda Sigrún.
Elsku langalangamma!
Takk fyrir þau 5 ár sem við
fengum að þekkjast.
Mér fannst svo gaman að
koma í heimsókn til þín og
príla í rúminu þínu og fá
brjóstsykur.
Baldvin Ingi.
HINSTA KVEÐJA