Morgunblaðið - 04.11.2005, Page 20
Laxamýri | Miklar fram-
kvæmdir standa nú yfir hjá
Samgöngusafninu í Ystafelli í
Þingeyjarsveit. Verið er að
byggja annan sýningarskála og
er verkið komið vel á veg.
Sýningarsvæðið stækkar um
750 fermetra með tengibygg-
ingu sem verður í eldri skál-
ann. Sverrir Ingólfsson safn-
vörður segir að aðstaða
safnsins batni til muna og að
nú verði hægt að hýsa mikinn
fjölda bíla, enda af nógu að
taka.
Það er trésmíðafyrirtækið
Norðurpóll sem sér um bygg-
inguna og á myndinni má sjá
Árna Brynjar Ólafsson vinna á
þakinu og með honum Friðrik
Steingrímsson. Allt skal verða
tilbúið að vori áður en ferða-
mannatíminn hefst enda að-
sókn vaxandi að safninu.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Samgöngusafnið stækkar við sig
Bílar
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
Ánægðir með síðuna | Liðlega 62%
þeirra sem tóku þátt í spurningu vikunnar á
vef Snæfellsbæjar (www.snb.is) í síðustu
viku sögðu að þeim þætti síðan mjög góð
eða ágæt. Vefstjórinn bendir á að samt sem
áður finnist 36% síðan ekki nógu góð. Til að
gera síðuna betri óskar hann eftir ábend-
ingum um það sem betur megi fara.
Hugur í garðyrkjubændum | Kúabænd-
ur í Hrunamannahreppi eru margir að end-
urnýja fjós sín, eins og fram hefur komið.
En í Pésanum, fréttabréfi Hrunamanna-
hrepps, kemur fram að einnig er fram-
kvæmdahugur í garðyrkjubændum hrepps-
ins.
Í Silfurtúni er verið að byggja stórt gróð-
urhús til að auka jarðaberjaframleiðsluna,
sömuleiðis á Hverabakka en þar er hug-
myndin að auka framleiðslu tómata. Á sama
hátt er verið að huga að byggingu gróð-
urhúss í landi Götu.
koma þar við sögu.
Einnig koma nemendur,
foreldrar og kennarar
að uppsetningu söng-
leiksins. Þá hafa Valgeir
Í Grundaskóla áAkranesi er mikiðum að vera þessa
dagana. Söngleikurinn
er eftir kennarana Flosa
Einarsson, Einar Við-
arsson og Gunnar
Sturlu Hervarsson og
verður frumsýndur á
morgu, laugardag.
Leikendur eru nem-
endur í 8.–10. bekk skól-
ans. Söngleikurinn heit-
ir Hunangsflugur og
Villikettir og sögusviðið
er Akranes árið 1970.
Fyrr í haust tóku
nemendur í 7. – 10.
bekk þátt í þema þar
sem fjallað var um tíma-
bilið 1960–1970. Nem-
endur lærðu þar um
sögu þess tímabils, tón-
list, tísku og tíðaranda.
Í framhaldi af því var
farið af stað með æfing-
ar á söngleiknum sjálf-
um. Leikendur hafa
mætt daglega á æfingar
og leggja sig alla fram
við að ná settu marki,
en um 30 nemendur
Skagfjörð og Vignir Jó-
hannsson verið leik-
stjórnendum innan
handar við leikstjórn og
gerð sviðsmyndar.
Hunangsflugur og Villikettir
Sigurjón ValdimarJónsson orti limruþessa:
Þórarinn gamli á Þverá
var þuklari en lét ekki beŕá
nú berst það í fréttum
að birtist í réttum
börn sem enginn veit hveŕá.
Guðmundur Magnús-
son frá Reyðarfirði komst
ekki á hagyrðingakvöld
með Ómari Ragnarssyni,
en ætlaði að leggja þetta
af mörkum:
Þú ferðast yfir fjöllin há,
það fagurlega hljómar
fengi ég að fljúga á
frúnni þinni, Ómar!
Hallmundur Krist-
insson orti í sextugs-
afmæli Birgis Jónas-
sonar:
Kominn í dag á efri ár
æskuna má því trega.
Birgis aldur er býsna hár
þótt beri hann sig mannalega.
Hreiðar Karlsson las að
starfsmaður vistheimilis
hefði hirt sjóð vistmann-
anna:
Eðlinu hlýða hver maður má
og margur á svellinu tæpur.
En stela af fólki sem ekkert á
er um það bil fullkominn glæpur.
Fullkominn
glæpur?
pebl@mbl.is
ÍSLANDSPÓSTUR hefur gefur út tvær
nýjar frímerkjaraðir. Myndefnin á þeirri
fyrri er fuglar
en í hinni eru
jólafrímerkin
í ár.
Myndefni
fuglafrí-
merkjanna er
grágæs og
stari. Verðgildi þeirra
er 60 kr. og 105 kr.
Ragnheiður I. Ágústs-
dóttir hjá EnnEmm
hannaði fuglafrímerkin
og Jón Baldur Hlíðberg
teiknaði fuglamyndirn-
ar.
Myndefnið á jólafrí-
merkjunum 2005 er epli
og grenitré og eru þau með greni-, epla- og
kanelilm. Ilmurinn af frímerkjunum er
vægur en eykst ef yfirborð frímerkisins er
strokið. Verðgildi þeirra er 50 kr. og 70 kr.
Jafnframt verður gefið úr frímerkjahefti
með 10 jólafrímerkjum í. Hany Hadaya hjá
H2 hönnun hannaði jólafrímerkin.
Jólafrí-
merki með
eplailm
Laugar | Tveir eldri nemendur Lauga-
skóla í Reykjadal stóðu fyrir stofnun holl-
vinafélags Laugaskóla, Laugamanna-
félagsins, við hátíðahöld sem efnt var til í
tilefni af 80 ára afmæli skólans. Liðlega 80
manns skráðu sig í félagið á afmælishátíð-
inni.
Laugamannafélagið er opið öllum vel-
unnurum Laugaskóla og er ekki síst ætlað
að styrkja samband eldri nemenda skólans
og annarra velunnara hans. Félagið hyggst
safna í sjóð til að kaupa tæki fyrir skólann,
stuðla að nemendamótum og miðla upplýs-
ingum og fréttum um skólann til fé-
lagsmanna.
Lauga-
mannafélag
stofnað á
Laugum
♦♦♦
H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9
H V E R A F O L D 1 - 3 , G R A F A R V O G I • S Í M I 5 7 7 4 9 4 9
-40%
AFSLÁTTUR
AF VÖLDUM VÖRUM
Í 4 DAGA
NÓVEMBER ÚTSALA
BYRJUM Í DAG
TÍSKUVÖRUVERSLUN
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Sjóminjasafnið í heimspressuna | Get-
ið er um Sjóminjasafnið í Reykjavík í nýj-
asta ferðablaði Independent on Sunday.
Þar er talað um 10 ,,heita“ áfangastaði í
heiminum og Reykjavík að venju þar á
meðal.
Stefán Jón Hafstein, formaður stjórnar
Sjóminjasafnsins, vekur athygli á þessu og
segir að hið nýja Sjóminjasafn sé nú komið
á kortið, þegar getið er um borgina. Stefán
Jón telur þetta uppörvandi viðurkenningu
fyrir starfsmenn og þá sem settu upp sýn-
inguna um 100 ára afmæli togaraútgerðar.
Tindastóll opnaður | Skíðasvæði Skag-
firðinga í Tindastólnum verður opnað kl. 15 í
dag. Aðstæður eru hinar ákjósanlegustu, er
haft eftir Viggó Jónssyni, umsjónarmanni
svæðisins, á vef Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar.
Snjó hefur kyngt niður síðustu daga og
segir Viggó þetta vera snjó fyrir þá sem vilja
renna sér á skíðum eða brettum og sömu-
leiðis fyrir þá sem stunda skíðagöngu. Viggó
segir nú þegar vera kominn meiri snjó en
var þegar best lét í fyrra og snjórinn sé
harður og hverfi ekki í næstu rigningu. Það
er því upplagt fyrir Skagfirðinga að skófla
hrífunni, sláttuvélinni og trampólíninu til
hliðar í skúrnum og grafa sig niður á skíðin,
stafina og klossana, segir á vefnum.