Morgunblaðið - 04.11.2005, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
LOKIÐ hefur verið við að setja upp
stærsta hluta sjókerfisins sem unnið
hefur verið að síðustu vikur við
Böggvisstaðafjall við Dalvík, en á
miðvikudag var síðasti brunnurinn
settur niður. Þeir eru sjö talsins og
er sá efsti í 1.150 metra hæð. Þar
með lauk allri suðu- og gröfuvinnu
á skíðasvæðinu sjálfu og aðeins eft-
ir að tengja stofnlögnina inn í dælu-
húsið. „Við stefnum að því að opna
svæðið um miðjan mánuðinn,“ segir
Óskar Óskarsson, formaður Skíða-
félags Dalvíkur. Dælan sjálf er nú í
skipi á leið til landsins, en ákveðið
var að bíða örlítið með byssurnar
sjálfar, þar sem ný og fullkomnari
útgáfa var að líta dagsins ljós. Þær
koma væntanlega til Dalvíkur frá
Svíþjóð þaðan sem búnaðurinn er
keyptur, í næstu vikur. Búnaðurinn
er af gerðinni Lenko.
Eftir er að leggja rör að dælunni
sem kemur í brunninn rétt við dælu-
húsið og næstu daga verður hafist
handa við að frágang á rafmagni.
Það er því að sögn Óskar ljóst að
verkinu mun ljúka innan skamms,
en frá upphafi var að því stefnt að
gangsetja búnaðinn um miðjan nóv-
ember.
Leggjum allt í sölurnar
Heildarkostnaður við búnaðinn
og uppsetningu hans nemur um 25
milljónum króna og segir Óskar að
skíðafélagsfólk hafði þegar safnað
styrkjum og gjafafé fyrir um 15
milljónir króna. „Bærinn hefur enn
sem komið er ekki lagt í þetta
krónu,“ segir hann. „Við erum að
leggja allt í sölurnar svo fólk geti
farið á skíði hérna, heimamenn og
gestir og það mun örugglega skila
sér margfalt til baka, þó kostnaður-
inn sé nokkur í upphafi.“ Þá gat
Óskar þess að félagsmenn hafðu
unnið mikla sjálfboðavinnu vegna
uppsetningar búnaðarins. Þá nefnir
hann að félagið spari um 15 millj-
ónir króna þar sem ekki þurfi að út-
búa uppistöðulón en vatn til að
framleiða snjóinn verður tekið úr
Stórhólstjörn, sem er við bæjar-
dyrnar á skíðasvæðinu.
Fyrir bæjarstjórn Dalvíkur-
byggðar liggur beiðni um aðstoð
við að greiða niður lán að upphæð
6,5 milljónir króna, en niðurstaða
liggur ekki fyrir enn að sögn Ósk-
ars. Hann segir ekki óeðlilegt að
bærinn taki þátt í þessu stóra verk-
efni, en nefndi einnig að viðræður
við forsvarsmenn ýmissa fyrirtækja
og félaga um þátttöku hafi verið já-
kvæðar. „Það er ekki útilokað að
okkur takist að fjármagna þetta allt
saman með framlögum,“ segir
hann.
Óskar gerir ráð fyrir að aðsókn
að skíðasvæðinu muni aukast til
muna nú þegar ávallt er tryggt að
það verði opið og er stefnt að því að
aukin aðsókn muni að mestu greiða
kostnað við rekstur búnaðarins.
Að mestu lokið við að setja upp snjóframleiðslubúnað í Böggvisstaðafjalli við Dalvík
Ekki útilokað að allt verði
fjármagnað með framlögum
Morgunblaðið/Kristján
Framkvæmdir Jón Halldórsson (í
brunninum), starfsmaður skíða-
svæðisins í Böggvisstaðafjalli, og
Ófeigur Sigurðsson frá Steypustöð-
inni við vinnu sína í fjallinu.
Morgunblaðið/Kristján
Skíðasvæði Óskar Óskarsson, formaður Skíðafélags Dalvíkur.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
VERSLUNARMIÐSTÖÐIN Gler-
ártorg er fimm ára um þessar
mundir og í tilefni þess verður
efnt til hátíðar dagana 4. nóv-
ember til 13. nóvember næstkom-
andi. Í boði verða skemmtiatriði
og ýmislegt fleira fyrir unga sem
aldna og mörg afmælistilboð í
gangi.
Laugardagana 5. og 12. nóv-
ember mun Dalvíkingurinn Júlíus
Júlíusson kynna heilmikla hátíð-
ardagskrá á Glerártogi og meðal
þeirra sem koma fram eru Óskar
Pétursson, Ellen Kristjánsdóttir
og Eyþór Gunnarsson, Í fínu
formi, kór eldri borgara, Krist-
jana Arngrímsdóttir, Sixties,
Karlakór Akureyrar, Tónlistar-
skólinn á Akureyri, auk þess sem
sýnd verða atriði úr kabarett
Freyvangsleikhússins og Húsið
mun kynna starfsemi sína. Boðið
verður upp á afmælisköku og all-
ir krakkar fá ís.
Á þessum dögum mun Friðrik
V einnig töfra fram gómsæta
humarrétti, Helgi Björnsson tek-
ur lagið og rithöfundar frá Hóla-
útgáfunni og Bókaútgáfunni
Tindi lesa upp úr bókum sínum.
Fyrir börnin verður sett upp leik-
fangaland, efnt verður til Sing-
Star-keppni og allir krakkar fá
að prufukeyra nýja Snowmoto
sleðann. Þá verður sett upp sýn-
ing með ljósmyndum frá bygging-
artíma og opnun Glerártorgs.
Afmælishátíð á Glerártorgi
STARFSFÓLK Norðurmjólkur á
Akureyri býður gestum og gang-
andi að líta í heimsókn í húsnæði
fyrirtækisins við Súluveg laug-
ardaginn 5. nóvember kl. 12–16 og
kynna sér fjölþætta starfsemi þess.
Vinnslusalir verða opnaðir og
leitast við í máli og myndum að
svara spurningum gesta um fram-
leiðsluvörur Norðurmjólkur og
hvernig þær verða til. Gestum verð-
ur boðið upp á veitingar og að
smakka framleiðsluvörur fyrirtæk-
isins.
Gestir verða fræddir um starf-
semina, m.a. að mjólkurbílar Norð-
urmjólkur flytja um 28 milljónir
lítra af mjólk á ári frá 180 framleið-
endum, en meðalbúið á starfssvæði
Norðurmjólkur framleiðir um 150
þúsund lítra af mjólk á ári, sem er
um 30 þúsund lítrum meira en með-
albúið á Íslandi. Norðurmjólk er
langstærsti ostaframleiðandi lands-
ins – önnur hver ostasneið sem
landsmenn sporðrenna er fram-
leidd hjá Norðurmjólk. Í hvert kíló
af osti þarf um tíu lítra af mjólk.
Opið hjá
Norðurmjólk
APRIL Caverhill opnar sýningu á
Bókasafni Háskólans á Akureyri á
morgun, laugardaginn 5. nóvem-
ber, en hún stendur til 18. nóvem-
ber og er opin um leið og safnið,
virka daga frá kl. 8 til 18 og laug-
ardaga frá kl. 12 til 15.
Sýningin ber heitið „The Secret
Life of Mushrooms.“ en á henni
verða veggteppi sem eru um 1,5 x
1,75 m að stærð. Hvert teppi lýsir
erótískum þjóðsögum og goðsögn-
um um sveppategundir sem finna
má í Kanada og eru verkin stór,
djörf og litrík.
April Caverhill hefur unnið að
list sinni í u.þ.b. tuttugu ár og sýnt
litrík og frumleg verk sín víða í
Kanada, en þar býr hún og starfar.
Goðsagnir
um sveppi
Klæddu þig vel
Ný sending
Kápur, jakkar, dragtir, skinnkragar og bolir
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Sími 462 3505
Opið virka daga 10-18
laugardaga kl. 10-16