Morgunblaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 31
MENNING
„ÞETTA eru um þrjátíu litlar
vatnslitamyndir, allar af fugl-
um,“ segir Sigurður Örlygs-
son um verkin sem hann sýnir
í Listhúsi Ófeigs að Skóla-
vörðustíg 5 frá kl. 16 á morg-
un. Sigurður er löngu lands-
kunnur myndlistarmaður, og
hefur fengist við margt í list-
inni, en hingað til hafa vatns-
litir ekki verið sá miðill sem
fólk tengir list hans. „Ætli ég
sé ekki bara að reyna að
minnka fyrirferðina á þessu
hjá mér,“ segir Sigurður og
hlær. „Þetta eru sumpart
ökonómískar ástæður. En ég
hef gaman af þessu. Ég hef
aldrei unnið með vatnsliti áður
– kann ekkert á þetta, en er að
fikra mig áfram, og þetta á
ljómandi vel við mig. Þetta er
allt miklu „lekkerara“ en
stóru verkin.“
Við opnunina á morgun
leika hljómsveitin UHU og
söngkonan Unnur Malín
djass; Unnur Malín er dóttir
Sigurðar og sonur hans leikur
í hljómsveitinni.
Myndir Sigurðar eru ýmist
af íslenskum fuglum eða æv-
intýrafuglum, en öll verkin
eru til sölu.
Sýningin stendur til 24.
nóvember og er opin á virk-
um dögum kl. 10–18, og kl.
11–16 á laugardögum.
Fikra mig áfram
í vatnslitunum
Íslenskir fuglar og
ævintýrafuglar.
Myndlist | Sigurður Örlygsson sýnir vatnslitamyndir af fuglum
SÝNING á málverkum Ein-
ars Hákonarsonar verður
opnuð í dag í Listasetrinu
Kirkjuhvoli, Akranesi.
Þar sýnir Einar 45 verk
unnin í olíu á striga.
Á þessari sýningu má sjá
verk unnin á fimm ára tíma-
bili.
Sýningunni lýkur 20. nóv-
ember og er Listasetrið opið
alla daga nema mánudaga frá
kl. 15–18 en athugið að lokað
er sunnudaginn 13. nóvem-
ber.
Einar
Hákonar-
son sýnir í
Kirkjuhvoli
Einar Hákonarson við eitt verka sinna.
FANGELSISYFIRVÖLD í
Frakklandi fengu á dögunum
Saint-Etienne-sinfóníuhljómsveit-
ina til að spila tvö tónverk eftir
Mozart fyrir 60 fanga í La Tal-
audiere-fangelsinu. Er þetta liður
í tilraun til að róa fangana.
Stjórnandi hljómsveitarinnar vill
fá að spila fyrir fangana á nýjan
leik en í kjölfar tónleikanna hófu
nokkrir fanganna að læra á gítar.
„Tónlist, sérstaklega sú sem við
heyrðum á tónleikunum, er vel til
þess fallin að róa skepnur eins og
okkur,“ sagði einn fanganna í
samtali við breska ríkisútvarpið í
dag.
Eftir tónleikana spjölluðu fang-
arnir við tónlistarmennina en einn
fanganna sagði
uppákomuna
skemmtilega
tilbreytingu í
lífi þeirra.
Laurent
Campellone,
stjórnandi sin-
fóníuhljóm-
sveitarinnar,
hefur áður farið
með hljómsveit-
ina í heimsókn í fangelsi í Þýska-
landi og á Ítalíu. Sagðist hann
vonast til að þeir 400 fangar sem
nú taka út refsivist sína í La Tal-
audiere-fangelsinu lærðu á fleiri
hljóðfæri á borð við flautur, óbó,
saxófón og slagverk.
Mozart notaður til að
róa fanga í Frakklandi
Wolfgang
Amadeus Mozart
LISTAKONAN Guðrún Benedikta
Elíasdóttir opnar sýninguna Berg-
numin á morgun kl. 17–19 á Thor-
valdsen Bar í Austurstræti.
Náttúran, maðurinn í náttúrunni
og náttúran í manninum eru meg-
inyrkisefni sýningarinnar.
Guðrún útskrifaðist úr Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands 1987
og hefur haldið fjölda sýninga
bæði hérlendis og erlendis. Hún
var valin bæjarlistamaður Kópa-
vogs 1996, er félagi í SÍM og rak
ásamt öðrum Listgalleríið og
vinnustofuna Skruggustein í
Hamraborg.
Sýningunni lýkur 2. desember.
Náttúran í mann-
inum og maðurinn
í náttúrunni