Morgunblaðið - 04.11.2005, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 47
MINNINGAR
✝ Guðríður Ólafs-dóttir fæddist á
Kljáströnd í Höfða-
hverfi 25. apríl
1916. Hún lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
25. október síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Anna María Vigfús-
dóttir frá Hellu á
Árskógsströnd, f.
28. nóv. 1888, d. 10.
júlí 1973, og Ólafur
Gunnarsson frá
Höfða í Höfðahverfi, f. 27. júlí
1878, d. 15. janúar 1964. Systkini
Guðríðar eru Gunnur, f. 7. maí
1911, d. 31. október 1945, Dóra, f.
6. júlí 1912, Gunnar, f. 1. október
1917, d. 6. september 1991, Bald-
vin, f. 26. desember 1919, Vigfús,
f. 7. nóvember 1922, Árni, f. 1.
október 1925, d. 26. maí 2003,
Þóra Soffía, f. 18. apríl 1931.
Guðríður giftist Haraldi Hall-
dórssyni skipstjóra, Hlíð í Höfða-
hverfi, f. 4. febrúar 1912, d. 23.
ágúst 1965. Foreldrar hans voru
Sigurlaug Jóhannesdóttir ljós-
móðir, f. 25. apríl 1880, d. 11.
ágúst 1956, og Halldór Jónasson
frá Bárðartjörn í Höfðahverfi, f.
11. september 1876, d. 14. nóvem-
ber 1937. Þau bjuggu lengst af í
d. 6. janúar 1990. Anna María, f.
17. febrúar 1977, d. 30. mars 2003.
Sambýlismaður hennar var Árni
Friðriksson. Sonur hennar er Ró-
bert Steindór. Katrín, f. 21. sept-
ember 1982. Sambýlismaður henn-
ar er Friðrik Helgason, þau eiga
einn son.
Guðríður ólst upp í Sigtúnum á
Kljáströnd hjá foreldrum sínum
og systkinum en einnig bjuggu þar
föðursystir hennar, Guðríður
Gunnarsdóttir, maki hennar Sig-
urður Ringsted og fimm börn
þeirra. Mikil útgerð var stunduð
frá Kljáströnd í um einn manns-
aldur og voru börnin virkir þátt-
takendur við fiskvinnsluna í landi.
Guðríður giftist Haraldi árið
1940. Þau bjuggu sín fyrstu bú-
skaparár í Höfðahverfi en fluttu
síðan til Akureyrar. Guðríður
missti eiginmann sinn snemma og
lagði á sig mikla vinnu til þess að
koma börnum sínum til mennta.
Hún starfaði lengst af við ÚA en
einnig í fatahreinsun bræðra sinna
Vigfúsar og Árna. Guðríður var
mikill náttúruunnandi, áhugamál
hennar tengdust útiveru s.s. ferða-
lögum, að leggja net og fara á færi
frá æskustöðvunum á Kljáströnd.
Ekkert haust var án berjaferða,
engin veikindi gátu hamlað því.
Guðríður las mikið um andleg
málefni og yfirleitt allt annað sem
hún komst yfir. Hún var mikil
hannyrðakona, beitti nál og prjón-
um af list.
Útför Guðríðar fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Höfðahverfi en einn-
ig í Fjörðum á Látra-
strönd og stunduðu
útgerð. Börn Guðríð-
ar og Haraldar eru:
1) Guðmundur, út-
gerðarmaður, f. 16.
apríl 1943. Eigin-
kona hans er Íris
Karlsdóttir, f. 6. febr-
úar 1947. Börn
þeirra eru Karl Þór,
f. 22. ágúst 1964. Eig-
inkona hans er Matt-
hildur Björnsdóttir,
þau eiga tvö börn.
Haraldur Þór, f. 23. janúar 1966.
Eiginkona hans er Ragnheiður
Valgarðsdóttir, þau eiga þrjú
börn. Haukur Þór, f. 29. maí 1969,
d. 14. ágúst 1969. Laufey, f. 19.
júní 1970. Eiginmaður hennar er
Jóhann Bjarnason. Þau hafa eign-
ast sex börn og eru þrjú látin. Arn-
ar Þór, f. 29. desember 1973.
Drengur, f. 29. desember 1973, d.
sama dag. Lilja Hrönn, f. 13. apríl
1983. 2) Gunnar, verkfræðingur, f.
12. janúar 1946. 3) Halldóra, lekt-
or, f. 21. mars 1951, hún á eina
dóttur, Guðrúnu Sif Friðriksdótt-
ur, f. 22. júní 1979. 4) Ólafur, stýri-
maður, f. 13. ágúst 1953. Eigin-
kona hans er Inga Lára
Bachmann, f. 3. janúar 1955. Börn
þeirra eru Jósep, f. 30. júní 1974,
Elsku amma mín. Ég á eftir að
sakna þín mikið, ég veit samt að þú
hefðir sagt mér að vera ekki leið yf-
ir að þú sért farin. Alveg frá því að
ég var lítil að skottast í kringum þig
talaðirðu alltaf um dauðann sem svo
eðlilegan hlut, hvað það yrði nota-
legt að láta móður jörð faðma sig að
sér og fá svo að hitta gamla vini og
ættingja. Ég veit líka að nú ertu
komin í hóp látinna; Önnu Maríu,
Jóseps og auðvitað Halla afa. Ég
veit að nú ertu ánægð og hraust aft-
ur, það er samt svo erfitt fyrir okk-
ur sem sitjum eftir. Mér finnst
þetta allt eitthvað svo óraunveru-
legt þar sem ég er svo langt í burtu.
Þú varst sko manneskja sem hafðir
lifað tímana tvenna, og varst því
viskubrunnur okkar yngri. Allar
vísurnar og sögurnar sem þú kunn-
ir, sumar þeirra hafði ég hvorki
heyrt né lesið fyrr né síðar. Ég man
þegar ég var í pössun hjá þér í Þór-
unnarstrætinu, mér fannst svo
gaman að sitja hjá þér í rauða sóf-
anum og hlusta á allar sögurnar og
skemmtilegu vísurnar. Mér fannst
helst líka nauðsynlegt að fá að sofa
með þér í gamla kvistherberginu í
Hlíð, það fylgdi einhvern veginn
sveitadvölinni. Við fórum líka oft út
á sjó saman, annaðhvort að leggja
net eða veiða á færi, það voru fáir
sem voru jafnaflasælir og þú.
Um daginn þegar ég kom í heim-
sókn til þín var erfitt að sjá hvað þú
varst orðin máttfarin og grönn. Lík-
ami þinn var við það að gefa sig og
ég vissi að það var líklegt að þetta
yrði í síðasta sinn sem við myndum
hittast, a.m.k. hérna. Ég veit samt
að við eigum eftir að hittast aftur,
og þá verða veikindi og sorg svo
fjarri að það mun ekki geta snert
okkur. Ég mun þá faðma þig fast að
mér. Ég hlakka til þess, en það
verður erfitt að bíða. Það verður
aldrei það sama að fara í sveitina án
þín, fara á færi út á fjörð eða sitja
við kertaljós og spila. Mamma sagði
mér frá friðnum sem skein úr and-
litinu þínu, nú vitum við að sársauk-
inn er hættur að herja á þig og þú
ert búin að yfirgefa þitt jarðneska
líf og gamla líkamann. Ég gleðst
með þér, en á sama tíma er ég svo
leið að missa þig, elsku amma mín.
Ástarkveðjur.
Þín
Lilja Hrönn.
Þegar ég var lítil og fór fyrst að
velta fyrir mér dauðanum leitaði ég,
eins og með svo margt annað, til
ömmu. Mig minnir að ég hafi ein-
faldlega spurt hana hvort hún héldi
ekki að það væri hræðilegt að
deyja. Viðbrögð ömmu komu mér
heldur betur á óvart. Að sögn
ömmu var dauðinn þvert á móti
yndisleg upplifun og ekkert sem
maður gæti nokkurn tímann upp-
lifað í lífinu væri sambærilegt við
þá dásamlegu reynslu. Síðan sagði
hún mér frá öllu því sem hún hafði
lesið um fólk sem hafði staðið við
dauðans dyr en vaknað aftur til lífs-
ins. Hún talaði um að sjá líf sitt fyr-
ir augum sér, að lyftast upp frá lík-
ama sínum, að sjá skært ljós í
fjarska en umfram allt talaði hún
um yfirgnæfandi sælutilfinningu
sem jafnaðist ekki á við neitt sem
maður þekkti í hinu lifanda lífi.
Amma var afskaplega sannfærandi
í útskýringum sínum á dauðanum,
svo sannfærandi að ég féll strax frá
hugmyndum mínum um dauðann
sem hræðilegan atburð og hefur sú
hugmynd aldrei komið upp í kollinn
á mér síðan.
Nú hefur amma upplifað þennan
atburð sem hún talaði svo fallega
um við mig fyrir 20 árum. Hún
hafði átt við mikil veikindi að stríða
í langan tíma og eins og við var að
búast stóð hún sig eins og hetja í
baráttunni við veikindin, margbúin
að koma læknum og hjúkrunarfólki
á óvart með seiglu sinni. En jarð-
lífið er ekki eilíft eins og amma vissi
vel og sá hún það sjálf undir lokin
að nú væri komin tími til að kveðja
það. Það hefur sjálfsagt verið mikill
léttir að losna úr þessum gamla,
veika líkama. Í raun var dauði
hennar blessun og við ættum að
samgleðjast henni, ég veit að hún er
frelsinu fegin.
Hugurinn getur auðveldlega tek-
ið slíkum rökum en hjartanu reyn-
ist það erfiðara því söknuðurinn er
svo sár. Fyrir mér er lífið mun fá-
tæklegra án ömmu enda var hún
mikilvægur og ráðandi hluti þess.
En ég reyni að brosa í gegnum tár-
in og hugsa um og þakka fyrir allar
góðu minningarnar. Þegar ég hugsa
um ömmu, hugsa ég um hina
sterku, góðu konu sem vissi ekkert
skemmtilegra en veiða fisk úr sjó,
tína ber, spila bridds og ferðast.
Hún var líka mikið náttúrubarn og
hefði væntanlega numið líffræði ef
hún hefði átt kost á framhalds-
menntun. Hún horfði með athygli á
alla dýralífsþætti og talaði oft um
hvað náttúran væri furðulegt og
fullkomið fyrirbæri. Það er ekki
langt síðan hana dreymdi draum
þar sem hún var dáin og sat á graf-
arbakka sínum á tali við Móður
Jörð. Þegar amma vaknaði mundi
hún ekkert af því sem Móðir Jörð
hafði sagt en eftir sat sterk tilfinn-
ing um hvað samtal þeirra hafði
verið stórkostlegt. Hún sagðist því
ekki kvíða því að hvíla í örmum
Móður Jarðar.
Það sem ég dáðist þó alltaf mest
af í fari ömmu var einstakt for-
dómaleysi hennar. Hún skildi ekki
kynþáttafordóma, fordóma gagn-
vart samkynhneigðum eða nokkra
aðra árekstra manna á milli. Hún
tók öllu fólki eins og það er og hef
ég alltaf virt hana mikils fyrir þann
eiginleika. Hún var líka ævintýra-
gjörn og sýndi mér ávallt mikinn
stuðning í ferðalögum mínum og
var sérstaklega hrifin af Indlands-
för minni. Hún sagði mér það ekki
alls fyrir löngu að þegar hún myndi
deyja skyldi hún einnig fara til Ind-
lands, sem og Egyptalands.
Elsku besta amma mín, ég vona
að upplifun þín af dauðanum hafi
verið jafn yndisleg og þú lýstir
henni fyrir mér um árið. Ég vona
einnig að þú hafir hitt fólkið þitt
hinum megin, að þar sé nóg um
fisk, ber og spilastokka og að þú
hafir nú fengið tækifæri til þess að
upplifa leyndardóma Indlands og
Egyptalands. Njóttu vel.
Guðrún Sif.
Kjarnakonan hún amma mín er
dáin. Og þó. Við trúum því að hún
lifi áfram, gamli líkaminn hennar
var orðin þreyttur og þjakaður, en
ég trúi því að nú hafi hún fengið
nýjan himneskan líkama fullan af
þrótti og upplifi aldrei framar þján-
ingar. Við amma ræddum oft um
lífið og hvað tæki við eftir dauð-
ann.Við vorum sammála um að
dauðinn væri ekki endirinn á tilver-
unni heldur myndi lífið halda áfram.
Nú sé ég hana fyrir mér siglandi á
lygnu himnesku hafi með Jesú sér
við hlið, bæði áttu það sameiginlegt
að elska hafið. Nú hefur hún hitt
afa, alla gömlu félagana og börnin
sem voru farin á undan henni og
það hafa verið fagnaðarfundir.
Mínar fyrstu minningar um
ömmu eru úr Þórunnarstræti 112.
Þar bjuggum við í sama húsi. Ég
skrapp því oft í heimsókn til ömmu,
sem tók mér alltaf opnum örmum,
hún bauð mér líka stundum að
borða með sér, sérstaklega þegar
voru fiskibollur í bleikri sósu sem
hún vissi að mér þóttu svo ljúffeng-
ar. Hún gaf sér alltaf tíma til að
spjalla við mig, talaði aldrei niður
til mín, en hlustaði og sagði svo frá
sinni skoðun. Það sem hún sagði
var stundum svo nýstárlegt. Eitt
sinn þegar þegar ég var fimm ára
vorum við að tala um Guð, sem ég
hafði alltaf séð fyrir mér sem góð-
legan gamlan mann, sagði hún mér
að fyrir sér gæti Guð alveg eins
verið góð kona. Ég mótmælti þessu
harðlega, en nú finnst mér það eitt
skipta máli að Guð tekur á móti
okkur í kærleika hvort sem hann er
karl eða kona. Ömmu minni var
margt til lista lagt. Hún prjónaði
lopapeysur, sokka og vettlinga.
Börnin í fjölskyldunni eiga öll falleg
verk eftir hana, og ég á eina fallega
útsaumsmynd sem hún saumaði eft-
ir að hafa farið í augnaðgerð og
fengið sjónina á ný.
Amma elskaði náttúruna og
hennar mestu sælustundir voru á
Kljáströnd þar sem hún fór á sjó á
árabát og veiddi á handfæri. Hún
naut þess líka að fara til berja á
haustin. Þessi áhugi smitaði út frá
sér og hlökkuðum við krakkarnir
alltaf mikið til að fara á Kljáströnd.
Elsku amma mín, þakka þér fyrir
allt gott. Ég mun alltaf minnast þín
með hlýhug.
Þín
Laufey Guðmundsdóttir.
Smám saman saxast á kynslóð-
ina, sem með dugnaði og ósérhlífni
lagði grunninn að íslensku nútíma-
samfélagi. Kynslóðin, sem ekki
mátti vamm sitt vita, kom börnum
sínum til mennta, krafðist ekki
neins. Þetta fólk fórnaði oft öllu
sem það átti svo að aðrir mættu
njóta.
Einn besti fulltrúi þessara ís-
lensku alþýðuhetja er fallinn í val-
inn og verður jarðsett í dag. Þeir
sem næst standa vita mæta vel um
afrek Guðríðar, Búbbu, sem allt frá
unga aldri lagði metnað sinn í að
standa sína vakt. Hún vaskaði salt-
fisk og beitti línu á unglingsárunum
á Kljáströnd, en hanskar voru ekki
dregnir á hendur. Síðar á lífsleið-
inni vann hún langan vinnudag í
frystihúsinu á Akureyri svo að
börnin skorti ekki neitt.
Ég minnist þess úr æsku að sjá
konurnar í hverfinu, sem störfuðu
hjá ÚA, koma heim í hádeginu og
aftur undir kvöld. Búbba var í þess-
um hópi og hún gekk hratt og
örugglega heim í Reynivelli 8 enda
næg verkefni heima. Oft hlýtur hún
að hafa verið ógnar þreytt þegar
hún lagði höfuð á kodda, en aldrei
heyrði ég hana kvarta undan hlut-
skipti sínu og uppgjöf var ekki til í
hennar orðabók. Afrek Búbbu
verða sjálfsagt aldrei skráð en svo
mikið er víst að þau voru veruleg.
Afrekin felast ekki í söfnun efn-
islegra verðmæta, en þau eru hins
vegar skráð í minningum þeirra
sem eftir lifa og þekktu Búbbu.
Víst fengu Kljástrandarbörnin að
kynnast vinnuhörku sem þekkist
ekki lengur í íslenska velferðarrík-
inu. Móðir mín segir mér að Búbba
hafi sannarlega fengið sinn
skammt. En þau fengu líka annað í
vegarnesti. Þarna ríkti samheldni
stórrar fjölskyldu og einstaklingar
bundust sterkum böndum sem
dauðinn einn fær skorið á. Samband
fólksins sem ólst upp á Kljáströnd
er einstakt – og góð tengsl systk-
inanna eru til fyrirmyndar.
Skemmtileg hlið á þeim samskipt-
um var þegar þau hittust og spiluðu
bridds – og meðalaldurinn var tæp
90 ár. Þau spiluðu til skiptis á heim-
ilum sínum og sagnirnar ekki spar-
aðar og síðan skeggrætt um hvern-
ig spilið hefði nú farið.
Búbba er kvödd með söknuði, en
eftirlifendur vita að trú hennar á
framhaldslíf var sterk og einlæg.
Hún var þess fullviss að handan
móðunnar miklu biðu, ásamt Halla,
horfnir Kljástrendingar og aðrir
góðir vinir og ættingjar. Án efa hef-
ur hópurinn strax farið í göngutúr
um Ströndina og rifjað upp gamlar
minningar. Ég efast ekki um að þá
hafi hljómað gleðihlátrar enda sög-
ur um uppátæki endalausar og stór-
skemmtilegar.
Við, sem eftir lifum, kveðjum
góða konu.
Áskell Þórisson og fjölskylda.
GUÐRÍÐUR
ÓLAFSDÓTTIR
Elskuleg kona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
ÁSDÍS BJÖRNSDÓTTIR,
Ögmundarstöðum,
Skagafirði,
lést laugardaginn 29. október.
Útför hennar fer fram frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 5. nóvember kl. 13.00.
Hróðmar Margeirsson,
Sigríður Hróðmarsdóttir, Guðmundur Kr. Eydal,
Jón Margeir Hróðmarsson, María Jónsdóttir,
Hróðmar, Ríkey, Urður og Hörn.
Sonur minn, bróðir okkar og mágur,
INGIBJARTUR ANTONSSON,
Hlíf II,
Ísafirði,
sem lést þriðjudaginn 25. október, verður jarð-
sunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 5. nóv-
ember kl. 14.00.
Guðmundína Vilhjálmsdóttir,
Guðný Antonsdóttir,
Gerður Antonsdóttir,
Ingvar Antonsson, Erla Pálsdóttir,
Vilhjálmur Antonsson, Elísabet Pálsdóttir.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, sambýlismaður
og afi,
GESTUR BERGMANN MAGNÚSSON,
Laugabraut 21,
Akranesi,
lést á Landspítala Fossvogi miðvikudaginn
2. nóvember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Berglind Gestsdóttir, Víðir Pétursson,
Ágústa Samúelsdóttir
og barnabörn.