Morgunblaðið - 04.11.2005, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 61
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–12. Smíði/útskurður kl. 9–
16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, frjálst að
spila í sal.
Dalbraut 18–20 | Postulínsmálun kl.
9–12. Fastir liðir eins og venjulega.
Sími 588 9533. Skráning stendur yf-
ir á Halldór í Hollywood. Handverks-
stofa Dalbrautar 21–27 alla virka
daga kl. 8–16. Félagsstarfið er öllum
opið.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshús, föstu-
daga kl. 13–16. Handverksklúbbur fyr-
ir konur og karla. Kaffi að hætti
FEBÁ. Akstur annast Auður og Lindi,
sími 565 0952.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist verður spiluð í kvöld kl.
20.30 í Gjábakka.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Árshátíð FEB verður haldin í kvöld í
Akogessalnum, Sóltúni 3. Húsið opn-
að kl. 19 og hátíðin hefst kl. 20. Fjöl-
breytt dagskrá: Veislustjóri Árni
Norðfjörð, hátíðaræðu flytur Guðrún
Ásmundsdóttir, danssýning, söngur,
gamanmál o.fl. Skráning og uppl. á
skrifstofu FEB og í síma 588 2111.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Slökunarjóga og teygjur kl. 10.30 og
bútasaumur kl. 13.30 í Kirkjuhvoli.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–
16.30 vinnustofur opnar, m.a. bók-
band, krílaðir skartgripir o.fl. Kl. 9.30
létt ganga um nágrennið. Frá hádegi
spilasalur opinn. Veitingar í hádegi
og kaffitíma í Kaffi Berg. Allar uppl. á
staðnum og í síma 575 7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall,
dagblöðin. Almenn handavinna, út-
skurður, baðþjónusta, Fótaaðgerð
(annan hvern föstudag). Hárgreiðsla.
Kl. 10 pútt. Kl. 11 Spurt og spjallað. Kl.
12 hádegismatur. Kl. 14.45 bókabíll.
Kl. 15 kaffi. Kl. 14 bingó. Laugardag-
inn 5. nóvember kl. 13 verður okkar
árlegi basar. Margt fallegra muna
eins og prjónavörur, húfur, vettlingar,
sjöl, armbönd, hálsmen, púðar, kort,
rekaviður og margt fleira til jólagjafa.
Hraunsel | Dansleikir á föstudögum,
tvisvar í mánuði fram að áramótum.
Húnvetningafélagið í Reykjavík |
Sunnud. 6. nóv. er árlegur kirkju- og
kaffisöludagur. Messa kl. 14 í Kópa-
vogskirkju. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson,
stólræða Ingibjörg Kolka Bergsteins-
dóttir. Samkórinn Björk frá Blönduósi
leiðir safnaðarsöng og flytur aðra
tónlist. Undirl. Elínborg Sigurgeirsd.
Kaffihlaðborð í Húnabúð, Skeifunni 11
frá kl. 15.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnu-
stofa hjá Sigrúnu kl. 9–16, silki- og
glermálun, kortagerð. Jóga kl. 9–11.
Frjáls spilamennska kl. 13–16. Böðun
fyrir hádegi. Fótaaðgerðir 588 2320.
Hæðargarður 31 | Björgvin Þ. Valdi-
marsson tónlistarmaður kemur í
heimsókn kl. 12. Fastir liðir. Uppl. í
síma 568 3132.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14.30 hann-
yrðir. Kl. 11.45–12.45 hádegisverður.
Kl. 13.30–14.30 Sungið v/flygilinn. Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar. Kl. 14.30–
16 dansað í Aðalsal.
Vesturgata 7 | Tískusýning verður
föstudaginn 4. nóv. kl. 14. Sýndur
verður dömu-vetrarfatnaður frá
versluninni Dalakofanum í Hafn-
arfirði. Veislukaffi. Björgvin Þ. Valdi-
marsson kynnir nýútkominn geisla-
disk og spilar nokkur lög, kl. 15.
Vinabær | Félagsvist og dans verður
laug. 5. nóv. kl. 20 í Vinabæ, Skip-
holti 33. Að lokinni spilamennsku
verður dansað fram eftir nóttu. Fjöl-
mennum og tökum með okkur gesti.
Félagstarf SÁÁ.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9–12.30, leirmótun kl. 9–13, morg-
unstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, leir-
mótun kl. 13, bingó kl. 13.30.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Vímulaus æska –
stuðningur fyrir fólk á Eyjafjarð-
arsvæðinu í safnaðarheimilinu kl. 18–
20.
Árbæjarkirkja | Fundur Kvenfélags
Árbæjarkirkju mánudaginn 7. nóv. kl.
20. Gestur fundarins Gunnbjörg Óla-
dóttir guðfræðingur, fjallar um „Við-
horfsmeðferð“. Konur eru hvattar til
að koma og eiga uppbyggjandi stund
í góðum félagsskap.
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Hallgrímskirkja | Starf með öldr-
uðum alla þriðjudaga og föstudaga
kl. 11–14. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
Háteigskirkja | Starf eldri borgara.
Bridsaðstoð frá kl. 13 og kaffi.
Kirkjuskólinn í Mýrdal | Munið sam-
veru Kirkjuskólans í Víkurskóla
næsta laugardag kl. 11.15–12. Söngur,
sögur, gleði og gaman. Brúðuleikhús
og fleira. Hittumst hress og kát.
Sóknarprestur og starfsfólk kirkju-
skólans.
Kirkjuskólinn í Skaftárhreppi |
Næsta laugardag, 5. nóvember, kl.
13.30 verður samvera fyrir börn í
Skaftárhreppi, í Minningarkapellunni
á Kirkjubæjarklaustri. (Ath. tíma-
setninguna). Síðast mættu fáir og
eru því foreldrar og forráðamenn
beðnir að minna börnin á samveruna
og koma einnig með þeim sjálf. Allir
eru velkomnir. Haraldur M. Krist-
jánsson.
Kvenfélag Langholtssóknar | Hinn
árlegi basar félagsins verður haldinn
laugardaginn 5. nóv. kl. 14 í safn-
aðarheimilinu. Happdrætti, tertu- og
kökusala, flóamarkaður. Allur ágóði
rennur í gluggasjóð. Kökur vel þegn-
ar.
Heimsókn frá Færeyjum
Um helgina verða færeyskur
prestur, Jógvan Fríðriksson, og
sönghópur í heimsókn hjá Fær-
eyska Sjómannaheimilinu.
Í tilefni þessa verður samkoma á
föstudag kl. 20.30 og laugardag kl.
20.30 verður kvöldvaka.
Á sunnudag kl. 15 verður guðs-
þjónusta í Háteigskirkju. Jógvan
Fríðriksson prédikar. Boðið verður
í kaffi í Sjómannaheimilinu á eftir.
Allir velkomnir.
Skildinganes - sjávarlóð
Hóll fasteignasala er með í einkasölu gott
206,5 fm 7 herbergja parhús, auk ca 60 fm
kjallara, sem er ekki skráður hjá Fasteigna-
mati ríkisins, samtals 266,5 fm. Húsið stend-
ur á sjávarlóð og er vandfundinn betri staður
á Reykjavíkursvæðinu. Húsið er á 3 pöllum
og er afar vel skipulagt. Þetta er hús sem
býður upp á mikla möguleika fyrir kaupand-
ann. Verð 59,8 millj. Nánari upplýsingar veitir
Kristberg Snjólfsson í síma 892 1931.
DRAGSPILIÐ átti hvað lýðhylli
varðar sitt gullskeið hér á landi á
fyrri hluta síðustu aldar, þegar
færra var um fagurtónræna drætti
en síðar varð. Fleira hefur breytzt;
raunar líka viðfangsefni bringu-
orgelsins, er nú er orðin viður-
kennd námsgrein („accordeon“) í
tónlistarháskólum. En hvort það
hafi endilega aukið því vinsældir
yngri hlustenda er önnur saga.
Hitt er víst að fylgi harmónik-
unnar helzt enn furðuöflugt meðal
eldri borgara, eins og sjá mátti á
fjölda tónleikagesta í Hafnarborg á
fimmtudag.
Að vanda var dagskráin örstutt;
fimm lítil verk frá Asturríki-
Ungverjalandi, Rúmeníu og Rúss-
landi af léttari sortinni er flokka
mætti í breiðasta skilningi sem sí-
græna millitónlist, þ.e. af því tagi
er reið húsum í ríkisútvarps-
stöðvum sem alþýðlegt afþreying-
arefni inn á milli gömlu stórmeist-
aranna, áður en djassinn og síðar
rokkið tók við á 6./7. áratug. Ant-
onía Hevesi kynnti að venju og
leiðrétti fyrst þann enn útbreidda
misskilning að Ungversku dansar
Brahms væru ósvikin ungversk
þjóðlög. Heldur er iðulega um
kaffihúsa- og sígaunamúsík að
ræða, sem var n.k. félagslegt ígildi
djasstónlistar í Vín, þ.e.a.s. 50-70
árum áður en sá eini rétti barst
austur um haf.
Ungverski fiðluvirtúósinn
Edouard Reményi gaukaði mörgu
slíku efni að Brahms snemma á
ferlinum, og léku þau Tatu Kant-
omaa eftir Johannes Ungverskan
dans nr. 1 í G (fyrst saminn fyrir
tvö píanó en seinna umritaður fyr-
ir eitt) með áberandi þungstígum
andstæðuköflum. Eftir Rúmenska
smámeistarann Dinicu (1889-1949)
léku þau fyrst Hora staccato er
Heifetz gerði víðfrægt á milli-
stríðsárum í sinni boganeistandi
útsetningu f. fiðlu og píanó – þó
hægar en vænta mátti – og síðan
L’alouette með stórtækum
rúbatóum í rammþjóðlegum
cimbalom-stíl.
Rússneski dansinn eftir Send-
ereff sótti í sig veðrið eftir fremur
óljósa verkaskiptingu hljóðfæranna
í byrjun, og loks lagði Tatu alfarið
undir sig sviðsljósið með suðandi
Flugi humalflugu Rimskíj-
Korsakoffs – þeirrar örskepnu er
skv. útreikningum flugvélaverk-
fræðinga á ekki að getað flogið en
gerir það samt. Sama gerði nikk-
an, og var eiginlega ekki seinna
vænna, því þrátt fyrir annars nota-
legt samspil þeirra félaga hafði
fram að þessu lítið bólað á nafn-
togaðri fimi finnska snillingsins.
Gengu því allir glaðir út fyrir rest.
Blítt og létt að austan
Morgunblaðið/Þorkell
Tatu Kantomaa og Antonía Hevesi spiluðu í Hafnarborg á miðvikudag.
Ríkarður Ö. Pálsson
TÓNLIST
Hafnarborg
Sígræn austurevrópsk millitónlist. Tatu
Kantomaa hnappaharmónika, Antonía
Hevesi píanó.
Fimmtudaginn 3. nóvember kl. 12.
HÁDEGISTÓNLEIKAR
GÓÐ aðsókn hefur verið að sýning-
unni Hraunblómi í Listasafni Sig-
urjóns Ólafssonar en henni lýkur
um næstu mánaðamót. Á sýning-
unni eru verk eftir dönsku lista-
mannahjónin Else Alfelt og Carl-
Henning Pedersen sem þau máluðu
á Íslandi sumarið 1948. Einnig eru
þar myndir eftir Sigurjón Ólafsson
og Svavar Guðnason, en Svavar var
félagi í Cobra-hópnum, eins og þau
Carl-Henning og Else. Sýningin,
sem er mjög áhrifamikil, gefur
skemmtilega mynd af því hvernig
framúrstefnulistin var fyrir 50 ár-
um síðan og veitir innsýn í hug-
myndafræði þess tíma. Myndir Else
Alfelt eru unnar með vatnslitum en
myndir Carl-Hennings og Svavars
með olíukrít, efni sem venjulega er
notað af börnum. Í myndum sínum
reyna þessir málarar að ná fram
hinu einlæga og barnslega. Meðal
annars þess vegna á sýningin sér-
stakt erindi til skólabarna.
Gefin hefur verið út vegleg sýn-
ingarskrá með myndum og ítar-
legri umfjöllun um listamennina.
Bókin kostar 1.500 kr. og hana má
panta hjá Listasafni Sigurjóns.
Listasafn Sigurjóns hefur í sam-
vinnu við kennara úr Félagi ís-
lenskra myndmenntakennara útbú-
ið kennsluefni fyrir skólaheim-
sóknir og býður nemendum
grunnskóla og framhaldsskóla að
koma í safnið með kennurum sín-
um. Kennarar og leiðbeinendur
sem hafa áhuga á að koma með hóp
sinn í safnið eru beðnir um að hafa
samband við Listasafn Sigurjóns í
síma 553-2906 eða í tölvupósti
lso@lso.is.
Kennsluefnið er einnig að finna á
vef safnsins. Gert er ráð fyrir að
nemendur og kennarar séu búnir
að kynna sér það fyrir heimsókn í
safnið.
Hraunblóm fyrir skólabörn
TENGLAR
.....................................................
www.lso.is/syning-i.htm