Morgunblaðið - 04.11.2005, Side 62
62 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
SÝNING Brynju Benediktsdóttur, Ferðir
Guðríðar, var á leikferð um Þýskaland á
dögunum og hafði viðkomu í Frankfurt,
Bonn, Köln og Hamborg. Leikferðin var far-
in að frumkvæði þýsk-íslenska vináttu-
félagsins í Köln og Hamborg og sá dr.
Sverrir Schopka um skipulagningu og fram-
kvæmd. Valdís Arnardóttir leikkona, sem nú
starfar í London, lék einleikinn á þýsku í
fyrsta sinn í Þýskalandi. Ferðinni lauk með
tveimur sýningum í sameiginlega húsi nor-
rænu sendiráðanna í Berlín og var síðasta
sýningin í ferðinni sérstök sýning fyrir
sendiráðsfólk í borginni, sem íslensku sendi-
herrahjónin buðu til, og komust færri að en
vildu.
„Salurinn í sendiráðinu var sneisafullur
og þetta fékk alveg frábærar viðtökur,“ seg-
ir Ólafur Davíðsson, sendiherra Íslands í
Þýskalandi. „Bæði þótti verkið sjálft sér-
staklega áhugavert og vel gert og síðan
þótti leikkonan sem fór með hlutverk Guð-
ríðar og önnur hlutverk í sýningunni, Valdís
Arnardóttir, gera þetta afar vel. Hún lék
þetta á þýsku og það vakti í raun mjög
mikla aðdáun og hrifningu hvernig hún stóð
sig í þessu hlutverki, bæði sem leikkona og
ekki síður leikkona á þýsku. Það var gaman
að verða vitni að þessum góðu viðtökum
sem bæði verkið og leikkonan fengu.“
Hann bendir á að margir menningar-
viðburðir séu í boði í Berlín og því ekki
hlaupið að því að hrífa fólk búsett þar. „Það
er mjög góðu vant. Þess vegna var sér-
staklega gaman að upplifa hvað þetta tókst
vel,“ segir hann.
Ferðir Guðríðar hafa verið sýndar í tólf
Evrópulöndum auk Bandaríkjanna og Kan-
ada frá árinu 1998. Sýningar hafa verið
haldnar öll sumur í Skemmtihúsinu við
Laufásveg 22 í Reykjavík, leikhúsi Brynju
og Erlings Gíslasonar, og leikið á fimm
tungumálum fyrir ferðamenn, erlenda sem
innlenda. Leikkonur sem hafa flutt verkið
eru flestar íslenskar, alls átta að tölu.
Leiklist | Ferðir Guðríðar hljóta góðar undirtektir í Frankfurt, Bonn, Köln, Hamborg og Berlín
Bára Lyngdal Magnúsdóttir
Ljósmynd/Karl Petersson
Caroline Dalton
Valdís Arnardóttir
Ragnhildur Rúriksdóttir
Sólveig Simha Tristan Gribbin
Þórunn Erna ClausenÞórunn Lárusdóttir
Það var gaman að verða vitni að
þessum góðu viðtökum
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is