Morgunblaðið - 04.11.2005, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 65
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Póstsendum
Glæsilegir
síðkjólar
Stærðir
34-44
Snyrtileg og rúmgóð 66 fm íbúð á annarri hæð í litlu
fjölbýli. Þvottahús í íbúðinni. Bað með sturtuklefa.
Stórt svefnherbergi með góðum skápum. 12 fm stórar
suðursvalir. Mjög snyrtileg sameign. 20 fm bílskúr.
Verð 18,3 millj. Uppl. í síma 564 4744 eða 695 5611.
(Örnólfur).
Nýleg 3ja herb. ca 100 fm íbúð á 1. hæð ásamt stæði í
bílskýli. Sérlega hentug og snyrtileg íbúð með sérinn-
gangi af svölum. Engar tröppur af bílastæði en lyfta úr
bílageymslu. Falleg eldhúsinnrétting, lagt fyrir upp-
þvottavél. Parket á öllum gólfum nema á baði og for-
stofu eru flísar. Góðir skápar í báðum herbergjum.
Baðherbergi flísalagt í loft og á gólfi. Falleg innrétting.
Úr stofu er útgangur á stóra hellulagða og afgirta ver-
önd. Stór sérgeymsla í kjallara, snyrtileg sameign. Hús
og lóð er fullgrágengin. Verð 25,9 millj.
Uppl. í síma 564 4744 eða 695 5611 (Örnólfur).
GARÐHÚS 12
2JA HERB.
HLYNSALIR 1-3
TIL SÖLU
Leikkonan Kim Cattrall, semeinkum er þekkt fyrir túlkun
sína á hinni óseðjandi Samönthu í
Beðmálum í borginni (Sex and the
City), segist hafa orðið skelfingu lost-
in við tilhugsunina um að vera með
sér miklu yngri manni. Kærasti henn-
ar, Alan Wyse, er aðeins 26 ára gam-
all en hún er 49 ára. Mun það svip-
aður aldursmunur og var með
Samönthu og kærasta hennar, Smith,
í fyrrnefndum þáttum.
Óttaðist Cattrall að þau myndu
ekkert eiga sameiginlegt. Hún hefði
mikið velt því fyrir sér hvernig hún
ætti að taka á þessu. „Við getum
ómögulega haft svipaðar skoðanir á
hlutunum af því það er svo mikill ald-
ursmunur á okkur,“ hefði hún hugsað
með sér og það hefði komið á daginn.
Sagði Cattrall frá þessu í viðtali við
dagblaðið USA
Today. „En þetta
gengur mjög vel hjá
okkur. Við höfum
bæði áhuga á mat.
Ég hef unun af því
að borða – og borða
vel – og við njótum
þess að elda saman.“
Segir Cattrall það verða sífellt al-
gengara að sjá konur með mönnum
sem eru mun yngri en þær. Er það
iðulega kallað að eiga sér „leik-
fangastrák“ í götublöðum ýmiss kon-
ar. Af öðrum frægum leikkonum sem
eiga sér slíkan strák má nefna Demi
Moore, en hennar strákur heitir As-
hton Kutcher. Þá á leikkonan Came-
ron Diaz sér yngri kærasta, popp-
arann Justin Timberlake, en hann
getur vart talist leikfangastrákur þar
sem aðeins munar níu árum á þeim.
Ekki fylgir þó fréttinni hversu
miklu yngri karl þurfi að vera konu
sinni til þess að hljóta hið vafasama
viðurnefni.
Fólk folk@mbl.is
Hljómsveitin Dimma er ámeðal þeirra sem látafyrst í sér heyra á þessuhausti, en í næstu viku
kemur út fyrsta breiðskífa sveit-
arinnar, samnefnd henni, og í dag og
í kvöld heldur sveitin tvenna útgáfu-
tónleika til að kynna væntanlega
plötu. Þó Dimma sé ekki gömul í
hettunni, aðeins ríflega ársgömul,
hafa liðsmenn hennar víða komið við
í íslensku og erlendu rokki, en þeir
Geirdalsbræður fara fyrir Dimmu.
Þeir bræður Ingólfur og Sigurður
Geirdal, Ingó og Silli, gerðu garðinn
frægan með rokksveitinni Stripshow
fyrir nokkrum árum sem vakti með-
al annars athygli fyrir framsækið
þungarokk og einkar líflega og lif-
andi leikræna tónleika. Hljómsveit-
inni auðnaðist að gefa út eina plötu,
sem naut meðal annars talsverðrar
hylli austur í Asíu, en lagði síðan upp
laupana.
Þeir bræður voru ekki af baki
dottnir og lögðust í ferðalög, spiluðu
meðal annars víða um Bandaríkin
með liðsmönnum úr hljómsveit Alice
Cooper. Ingó gekk síðar til liðs við
Quarashi um hríð, en Silli hefur ver-
ið iðinn við að aðstoða aðrar hljóm-
sveitir í hljóð- og upptökumálum.
Langaði að gera bræðraplötu
Fyrir ári fóru þeir síðan að velta
fyrir að sér að taka upp þráðinn við
að gera músík saman. Þá langaði að
taka upp bræðraplötu þar sem þeir
myndu vera í aðalhlutverki en fá síð-
an hina og þessa í heimsókn í hljóð-
verið eftir því sem verkast vildi.
„Þetta átti að vera okkar verkefni
fyrst og fremst,“ segja þeir, en málin
skipuðust á annan veg.
Fyrsti trommuleikari sem þeir
kölluðu til sögunnar var Birgir Jóns-
son, en hann spilaði í titillagi plöt-
unnar, laginu Dimmu, sem er eins-
konar „tónlistarmanifesto“
sveitarinnar. Þegar kom að því að
syngja lagið leituðu þeir til Hjalta
Ómars Ágústssonar, góðkunningja
þeirra bræðra, „en við vorum svo
rosalega ánægðir með það að við
sáum um leið að við myndum ekki fá
okkur annan söngvara, hann myndi
bara syngja allt.“ Þá voru þeir
komnir með grunn að hljómsveit og
svo slóst fjórði maðurinn í hópinn
þegar Bjarki Þór Magnússon settist
við trommusettið. „Hann átti líka
bara að spila tvö eða þrjú lög, en svo
var hann bara áfram eftir það og við
vorum komnir með hljómsveit.“
Allt bar þetta við fyrir ári, en á
þeim tíma sem liðinn er hefur sveitin
verið að grípa í að taka upp fyrstu
breiðskífuna eftir því sem færi hefur
gefist, þó ekki hafi hún eytt öllu
árinu í upptökur.
Kórsöngur og tölvutækni
Eins og getið er var Stripshow
fræg fyrir leikrænt rokk og reyndar
líka hádramatískt, rokk í anda Alice
Cooper, David Bowie og álíka kóna.
Þeir bræður segja að enn eimi eftir
af þess lags tónlist í því sem þeir
gera í dag, en þeir hafi leiðst út í æ
harðari tónlist, séu farnir að hlusta á
Manson, Korn, Slipknot og álíka, og
þess megi óneitanlega sjá stað í tón-
list Dimmu – í stað þess að mýkjast
og stillast eins og vill verða með
menn eftir því sem aldurinn færist
yfir eru þeir að verða þyngri og
kraftmeiri. Þeir hafa líka tekið tölvu-
tæknina í gagnið, nota hljóðsmala
talsvert á plötunni og eins á tón-
leikum, enda gefur það tækifæri til
að skreyta lög með kórsöng, svo
dæmi sé tekið, en á plötunni eru ein-
mitt tvö lög þar sem fjölmennur kór
kemur við sögu, karlakór í öðru og
kvennakór í hinu.
Dimma, fyrsta breiðskífa Dimmu,
kemur út næstkomandi þriðjudag,
en tvennir útgáfutónleikar sveit-
arinnar verða á Gauknum í dag.
Fyrri tónleikarnir eru fyrir alla ald-
urshópa og byrja kl.17 en seinni tón-
leikarnir hefjast á miðnætti og er að-
gangseyrir 500 kr. Á báðum
tónleikunum spila einnig færeysku
rokksveitirnar SIC og 48 Pages.
Tónlist | Dimma sendir frá sér samnefnda plötu
Þyngri og kraftmeiri
Dimmu-menn eru ekki í því að mýkjast og stillast með aldrinum.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
TÓNLISTARGÚRÚ Færeyja núm-
er eitt, tvö og þrjú er maður að
nafni Kristian Blak. Auk þess að
hafa unnið hörðum höndum að
uppgangi tónlistarlífs í eyjunum
undanfarna þrjá áratugi eða svo
hefur hann rekið sveitina Ygg-
drasil í um aldarfjórðung. Blak
kemur með sveitina hingað til
lands nú um helgina og mun hún
halda þrenna tónleika. Hljóm-
sveitin ætlaði að koma hingað í
sumar en varð frá að hverfa þar
sem flugsamgöngur frá Færeyjum
lágu niðri daginn sem halda átti til
Íslands.
Yggdrasil var stofnuð við upphaf
níunda áratugarins en fyrsta plata
sveitarinnar, Den Yderste Ø, kom
út árið 1981. Blak hefur lýst því að
sveitin átti í upphafi að vera gal-
opinn vettvangur fyrir alls konar
tónlistarsýsl en þróaðist með tíð og
tíma í leið fyrir Blak til að vinna
með skandinavískan tónlistararf og
meira til. Tónsmíðarnar byggjast
m.a. á færeyskum rímnasöngvum,
sálmum og þjóðlögum og einnig er
sótt í inúíta-söngva og þjóðlög frá
Hjaltlandseyjum og öðrum Norð-
urlöndum. Djassinn kemur þá einn-
ig við sögu og áhrifin eru víða að.
Þetta hefur gert Yggdrasil kleift
að spila á ólíkum hátíðum og fyrir
ólíka áheyrendur og nóg hefur ver-
ið að gera í tónleikahaldi víðs veg-
ar um heim að undanförnu. Plötur
Yggdrasil eru alls sjö en sú síðasta,
Live at Rudolstadt, kom út í fyrra
og var hún tekin upp á stærstu
þjóðlagatónlistarhátíð Þýskalands.
Yggdrasil verður þannig skipuð í
þessum Íslandstúr: Villu Veski
(saxafónn), Heðin Ziska Davidsen
(gítar), Kristian Blak (píanó), Mika-
el Blak (bassi), Brandur Jacobsen
(trommur) og Eivör Pálsdóttir
(söngur). Eivör og Kári Sverrisson,
hinn frábæri söngvari þjóðlaga-
sveitarinnar Enekk, hafa skipt með
sér söngnum í Yggdrasil undan-
farin ár.
Yggdrasil heldur þrenna tón-
leika á Íslandi og eru þeir fyrstu í
kvöld í Borgarfirði, Hótel Hömr-
um. Hefjast þeir klukkan 21. Á
morgun leikur sveitin svo í höf-
uðborginni, á Kaffi Reykjavík
klukkan 21. Lokatónleikarnir eru
svo í Norræna húsinu á sunnudag-
inn klukkan 16.
Tónleikar | Yggdrasil leikur á Íslandi
Norðlægur spuni
Yggdrasil heldur þrenna tónleika á Íslandi og eru þeir fyrstu í kvöld.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
www.kristianblak.com
UNGLIST, listahátíð unga fólksins,
hefst í dag. Viðburðir dagsins eru
eftirfarandi:
Myndlistarmaraþoni verður
hleypt af stokkunum í upplýsinga-
miðstöð Hins hússins, Pósthússtræti
3–5. Þátttakendur geta mætt milli
klukkan 13 og 17 og fengið afhent
gögn og reglur um þátttöku.
Leikhúsgjörningurinn The China
Man verður sýndur í Sundhöll
Reykjavíkur klukkan 19 og 21 í
kvöld. Stjórnandi er Firenza Guidi
en þátttakendur koma frá Íslandi,
Þýskalandi, Frakklandi, Ítalíu og
Wales.
Unglist í dag