Morgunblaðið - 04.11.2005, Side 66

Morgunblaðið - 04.11.2005, Side 66
66 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hvað segirðu gott? Jú, alveg ágætt, þakka þér fyrir. Hvernig finnst þér Kallakaffi? (Spurningin er frá síðustu aðalskonu, Maríönnu Clöru Lúthersdóttur) Hef aðeins séð einn þátt og var alveg sæmi- lega sáttur. Ég gleðst alltaf þegar við fáum að búa til leikið íslenskt efni í sjónvarpi. Mætti vera tíu sinnum meira. Kanntu þjóðsönginn? Jújú, ætli það ekki. Raunar lenti ég einu sinni í þeirri hremmingu að syngja hann ásamt kór á Laugardalsvelli fyrir landsleik. Það var alveg skelfilegt. Þetta var að frumkvæði Gunnars Helgasonar, stórvinar míns, áhugamanns um þjóðsönginn á landsleikjum. Gunnar er eins og Davíð Oddsson og Jónas Hallgrímsson, róm- antískur og næmgeðja og Íslendingur í gegn. Hvenær fórstu síðast til útlanda og hvert? Síðast fór ég til Bandaríkjanna og dvaldi í Kaliforníu. Það var dásamlegt. Hitti fullt af skemmtilegu fólki og furðaði mig á bandarísku sjónvarpi. Þeir eru hræddir við allt! Meira segja Veðurrásin (Weather Channel) er stöðugt að vara fólk við yfirvofandi hættu. Veðrið getur líka verið soddan terroristi! Uppáhaldsmaturinn? Eitthvað sem Valgerður Janusdóttir, vinkona mín, eldar. Hún er meistarakokkur og hjartað fylgir með! Bragðbesti skyndibitinn? Indverski maturinn á Austur- landahraðlestinni. Mætti hins vegar vera miklu ódýrari. Ég hef ekki efni á honum nema annað hvert ár. Besti barinn? Úff, á ég ekki bara að segja Hótel 101? Hvaða bók lastu síðast? Mýrina eftir Arnald. Ég var eini maðurinn í allri Vestur-Evrópu sem átti hana eftir. Hvaða leikrit sástu síðast? Sölku Völku. Algjör snilld hjá Eddu Heiðrúnu og vinum mínum hjá Leikfélagi Reykjavíkur. En kvikmynd? Africa United. Ekki missa af henni! Við eigum að styðja fólk sem þorir að gera svona frábæra hluti! Hún er víst að hætta í bíó. Drífa sig! Hvaða plötu ertu að hlusta á? Ég er voða mikið fyrir Annie Lennox. Já, ég veit það er ekki kúl … Uppáhaldsútvarpsstöðin? Rás 2. Svo hlusta ég heilmikið á Talstöðina. Kannski ber það vott um að árin eru að færast yfir … Besti sjónvarpsþátturinn? Ég elska Silvíu Nótt. Einlægur aðdáandi. Nýja Kastljósið er vel lukkað. Og svo er einhver þáttur á Skjá einum á sunnudagskvöldum klukk- an 8. Alveg frábær! Gætirðu hugsað þér að taka þátt í raunveru- leikaþætti í sjónvarpi? Nei, það gæti ég ekki hugsað mér, eftir bitra reynslu mína af hinum skelfilega Fyrirgefðu. Mér finnst þessir þættir ganga fyrst og fremst út á einelti. Vil aldrei aftur taka þátt í því. Skil ekkert í Bubba og Palla. G-strengur eða venjulegar nærbuxur? Þú ert að grínast! Gettu … Helstu kostir þínir? Læt aðra um að segja þér það. En gallar? Frestunaráráttan. Besta líkamsræktin? Ég fer í Laugar og mér líður mjög vel þar. Hitti mikið af skemmtilegu fólki. Kemur í stað- inn fyrir næturlífið. Hvaða ilmvatn notarðu? Gio, frá Armani. Er mjög fastheldinn á það. Mér finnst Guðjón Pedersen líka frábær. Ertu með bloggsíðu? Nei, en skrifa stundum inn á heimasíðu leik- hópsins Á senunni, www.senan.is Pantar þú þér vörur á netinu? Það kemur fyrir. Flugvöllinn burt? Já. Hann fer að lokum. Viltu spyrja næsta viðmælanda okkar að ein- hverju? Ef þú værir leikhússtjóri, hvað vildirðu þá fá sett upp í leikhúsinu þínu? Íslenskur aðall | Felix Bergsson Indverskur mat- ur annað hvert ár Morgunblaðið/Þorkell Aðalsmaður vikunnar segist vera nýbúinn að lesa Mýrina, enda eini maðurinn í Vestur-Evrópu sem átti það eftir. Aðalsmaður vikunnar er Felix Bergsson, sem spyr helstu tónlistarmenn þjóð- arinnar spjörunum úr í Popppunkti á sunnudags- kvöldum auk þess að troða upp í Íslensku óperunni í söngleiknum Kabarett. BEASTIE Boys hafa gjarnan farið frum- legar leiðir og nú hafa þeir fengið aðdáendur sína til að gera mynd um sveitina. Óháði dreifingaraðilinn ThinkFilm er búinn að kaupa réttinn að myndinni, sem ber nafnið Awesome: I F ’ Shot That. Myndin er tón- leikaheimildarmynd, sem er aðallega tekin upp af 50 aðdáendum með Hi8-upptökuvélar í Madison Square Garden hinn 9. október 2004. Sex vinir sveitarinnar tóku einnig upp á DV-myndavélar og líka var notast við há- gæða upptökuvélar til að taka skot úr fjarska. Myndinni leikstýrir rapparinn Adam „MCA“ Yauch úr sveit undir nafninu Nathaniel Hornblower. Yauch og Jon Doran framleiddu myndina í gegnum fyrirtæki sitt Oscilloscope Films fyrir um milljón Banda- ríkjadali, eða 60 milljónir króna. Búið er að senda myndina til Sundance og vonast er til að hún veki athygli á kvikmyndahátíðum áð- ur en hún fer í almennar sýningar næsta vor. „Undirbúningur tók eitthvað um þrjá daga,“ sagði Yauch, sem fékk innblástur um gerð myndarinnar frá spjallsíðum aðdáenda á netinu. „Einn krakki setti inn myndir úr símanum sínum með átta römmum á sek- úndu,“ sagði hann. Allar 50 myndatökuvélarnar skiluðu sér aftur til sveitarinnar, sagði Yauch. „En við tókum líka ökuskírteinin þeirra í gæslu á meðan.“ Tónlist | Beastie Boys fara frumlegar leiðir Beastie Boys kunna að meta aðdáendur sína og virkjuðu þá í gerð nýrrar heimild- armyndar. Aðdáendur taka upp heimildarmynd Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára 450 kr. Sýnd kl. 3.50 Sýnd kl. 5, 8 og 10.45 b.i. 12 ára DREW BARRYMORE JIMMY FALLON "Fyrirtaks skemmtun sem hægt er að mæla með" MMJ - kvikmyndir.com Frá leikstjórum There´s Something About Mary, eftir bók frá höfundi About a Boy  S.V. / MBL Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 Frá leikstjóra 8 Mile & LA Confidential og handritshöfundi Erin Brockovich Hún er besti vinur þinn og versti óvinur þinn Hún er eina persónan sem þú getur ekki verið án Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 kl. 5, 8 og 10.40 Sýnd kl. 4 og 6 Africa United (Besti leik- stjóri, Besta heimildarmynd, Besta handrit) Tilnefnd til þriggja Edduverðlauna  S.V. Mbl.  TOPP5.is  Ó.H.T. Rás 2 Sími 564 0000 Miðasala opnar kl. 15.30 Sýnd kl. 5.30 og 8 Hún er besti vinur þinn og versti óvinur þinn Hún er eina persónan sem þú getur ekki verið án Frá leikstjóra 8 Mile & LA Confidential og handritshöfundi Erin Brockovich hörku spennumynd frá leikstjóra 2 fast 2 furious og boyz´n the hood Sýnd kl. 8 og 10.15 Sýnd kl. 5.30 og 10.30 Þeir voru leiddir í gildru... nú þarf einhver að gjalda! TOPP myndin á Íslandi í dag TOPP myndin á Íslandi í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.