Morgunblaðið - 06.12.2005, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GERT AÐ HLUTAFÉLAGI
Ríkisútvarpið verður gert að
hlutafélagi, samkvæmt nýju frum-
varpi sem þingflokkar stjórn-
arflokkanna samþykktu í gær en
frumvarpið var einnig samþykkt í
ríkisstjórn á föstudag. Tilgang-
urinn með hlutafélagavæðingunni
er að auka rekstrarhagræði, skil-
virkni og snerpu Ríkisútvarpsins.
Segir fanga ekki pyntaða
Condoleezza Rice, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, varði í
gær meðferð bandarískra yf-
irvalda á meintum hryðjuverka-
mönnum. Hún neitaði því ekki að
bandaríska leyniþjónustan CIA
starfrækti leynileg fangelsi í Aust-
ur-Evrópu en lagði áherslu á að
fangarnir væru ekki pyntaðir.
Ringulreið í réttarsalnum
Upplausnarástand ríkti í rétt-
arsalnum þegar Saddam Hussein,
fyrrverandi forseti Íraks, kom fyr-
ir dómara í Bagdad í gær.
Frammíköll sakborninga settu
mikinn svip á réttarhöldin.
Engum laxi s látrað
Framleiðsla á laxaseiðum í
þremur eldisstöðvum í meiri-
hlutaeigu Oddeyrar, dótturfélags
Samherja, hefur gengið afar illa í
ár og verður svo til engum laxi
slátrað í stöðvunum á næsta ári.
Y f i r l i t
Kynning – Með Morgunblaðinu í
dag fylgir jólagjafabók Miðborgar-
innar, eingöngu dreift á höfuðborg-
arsvæðinu.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga
Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Fréttaskýring 8 Bréf 33
Úr verinu 12 Minningar 34/36
Viðskipti 13 Skák 37
Erlent 16/17 Brids 37
Akureyri 20 Dagbók 40
Austurland 20 Víkverji 40
Suðurnes 22 Velvakandi 41
Daglegt líf 23/25 Staður og stund 42
Forystugrein 26 Menning 43/45
Viðhorf 28 Ljósvakamiðlar 50
Menning 30/31 Veður 51
Umræðan 30/33 Staksteinar 51
* * *
GEFIÐ VINUM ERLENDIS ÁSKRIFT AÐ
ICELAND REVIEW Í JÓLAGJÖF
VOL 43 4 - 2005
ICELAND REVIEW
,
!7HA0B9-bajaab!
COD LIVER OIL: HOAX OR HOLY GRAIL?
MARY ELLEN MARK’S PHOTOS FROM REYKJAVÍK
ICELAND LENDS A HAND IN MOZAMBIQUE
DRYING OUT IN THE DARK
AND WHAT’S IN THE WATER?
LONG LIVE ICELAND
ISK 899
USD 7.50
DKK 89
w
w
w
.i
c
e
la
n
d
re
v
ie
w
.c
o
m
Iceland Review er þekkt sem helsta tímaritið um Ísland á ensku.
Sendið vinum og viðskiptavinum gjafaáskrift fyrir jólin strax í dag
og verið með okkur frá upphafi nýs tíma.
Pantaðu áskrift á www.icelandreview.com eða í síma 512 7575
• Áskrifendur IR koma frá
meira en 100 löndum.
• Jólagjöf sem minnir vini
erlendis á Ísland fjórum
sinnum á ári.
• Áskrift að blaðinu er
einungis 3.400 krónur og fá
nýir áskrifendur litla bók að
gjöf, Memoires of
Reykjavik með ljósmyndum
eftir Pál Stefánsson.
BARNA- og unglingageðlæknar,
sem starfa sjálfstætt utan stofnana,
eru hættir að taka við nýjum sjúk-
lingum eða veita viðtöl nema í neyð-
artilvikum, að sögn Páls Tryggva-
sonar, barna- og unglingageðlæknis
á Akureyri. Hann segir að verkein-
ingar, sem greininni voru ætlaðar á
árinu, séu uppurnar. Garðar Garð-
arsson, formaður samninganefndar
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins, er ósammála þeirri túlk-
un.
Að sögn Páls voru barna- og ung-
lingageðlækningum ætlaðar 161.154
grunneiningar á þessu ári. Það er
um 40 þúsund einingum minna en
árið 2003, þrátt fyrir að þörfin fyrir
þjónustuna hafi alls ekki minnkað,
að sögn Páls. Fyrir árið í ár hafi ver-
ið miðað við eininganotkun sérgrein-
arinnar árið 2004, sem var um margt
sérstakt. Samningar milli sérfræði-
lækna og Tryggingastofnunar ríkis-
ins hafi ekki verið í gildi í upphafi
þess árs, sem olli því að margir af-
boðuðu eða frestuðu komum til sér-
greinalækna.
Páll telur að gera þurfi ráð fyrir
a.m.k. um 200.000 einingum á ári til
barna- og unglingageðlækninga.
„Ég hef þurft að loka fyrir að hitta
nýja sjúklinga undanfarnar tvær
vikur,“ sagði Páll í samtali við Morg-
unblaðið í gær. „Í dag hitti ég minn
síðasta sjúkling, það sem eftir er
ársins.“ Í venjulegum mánuði sagð-
ist Páll veita um 90 viðtöl. Þau féllu
niður nú í desember. Undanfarið
hefur hann neitað 17 nýjum sjúk-
lingum um viðtöl. Nú eru fimm sjálf-
stætt starfandi barna- og unglinga-
geðlæknar hér á landi. Páll sagðist
ekki vita betur en að þeir hafi allir
dregið mjög úr þjónustu utan
sjúkrahúsa eða hætt henni.
Páll segir að enginn af hálfu rík-
isins hafi talað við barna- og ung-
lingageðlækna um þeirra kjör, þótt
heilbrigðisráðherra hafi sagt í frétt-
um í byrjun nóvember að tryggt yrði
að þeir gætu haldið áfram störfum.
Sérgreinalæknar hafi veitt magnaf-
slátt af þjónustu sinni allt árið, en nú
sé komið að því að greiðslur verði
skertar þegar farið er umfram um-
saminn kvóta.
Viðbót við einingar og afsláttur
Garðar Garðarsson, formaður
samninganefndar heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins, sagði
að gerður hafi verið heildarsamning-
ur við sjálfstætt starfandi sérgreina-
lækna í árslok 2004 og gildi hann
fram á árið 2008. Þar er kveðið á um
einingar, verð og þjónustufyrir-
komulag. Fyrir hverja einingu eru
nú greiddar 216 kr.
Garðar kvaðst ekki sammála
þeirri túlkun barna- og unglingageð-
lækna að einingar ársins í ár væru
uppurnar. Samið hefði verið um
ákveðinn fjölda eininga á ári og ætti
að dreifa þjónustunni jafnt yfir árið.
Þegar umsömdum einingafjölda er
náð tekur við ákveðið afsláttarkerfi.
„Við, eins og aðrir stórkaupendur
þjónustu, segjum að þegar við höf-
um borgað fastakostnað og förum í
breytilegan kostnað viljum við fá af-
slátt,“ sagði Garðar. „Útfærsla af-
sláttarkerfisins kom frá samninga-
nefnd lækna.“ Um þessar mundir
eru margar sérgreinar komnar að
afsláttarmörkum ársins.
Hvað varðar barna- og unglinga-
geðlækna sérstaklega, og orð heil-
brigðisráðherra um að verið væri að
skoða þeirra mál, sagði Garðar að
grunnur samningsins við sérgreina-
lækna hafi verið tekinn til skoðunar
á þessu ári. Fengin var aukafjárveit-
ing í fjáraukalögum til að auka heild-
arkaup eininga og deilist viðbótin
hlutfallslega jafnt á allar sérgreinar.
Afgreiðsla fjáraukalaga kemur ekki
í veg fyrir að þessar aukaeiningar
séu unnar nú, því lokauppgjör vegna
ársins fer fram á næsta ári. Garðar
kvaðst ekki hafa á reiðum höndum
hvað þetta þýddi sérstaklega fyrir
fjölgun eininga, sem greiddar verða
að fullu á sviði barna- og unglinga-
geðlækninga.
Sjálfstætt starfandi barna- og unglingageðlæknar hætta að veita þjónustu
Mun færri einingar en 2003
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
EFTIR samfellda hækkun í fimm
mánuði stóð matar- og drykkjarliður
vísitölu neysluverðs nánast í stað í
nóvember. Frá því í byrjun árs hefur
matvöruverð sveiflast mikið, fyrst
niður á við í miklu verðstríði og síðan
hefur niðursveiflan gengið smám
saman til baka á síðustu mánuðum.
Þetta kom fram á vef ASÍ í gær.
Í nóvember hafði matar- og
drykkjarliður vísitölu neysluverðs
lækkað um 3,5% síðan í upphafi ársins
og gera má ráð fyrir að sterk staða
krónunnar og sértilboð fyrir jólahá-
tíðina komi í veg fyrir frekari hækkun
matvöruverðs á árinu.
Verð á almennri neyslukörfu hefur
samkvæmt verðkönnunum verðlags-
eftirlits ASÍ í byrjun október og lok
nóvember, lækkað mest í verslunum
Nettó og Krónunnar, eða um 13% og
8,5%. Verð á vörukörfu í Bónus hækk-
aði hins vegar um 2,7% á milli mæl-
inga og hefur munur milli þessara
verslana því minnkað talsvert frá síð-
ustu könnun.
Samkvæmt vísitölu vörukörfu í ein-
stökum verslunum hefur bilið á milli
lágvöruverðsverslana minnkað inn-
byrðis en á sama tíma hefur bil milli
þeirra og annarra verslana aukist. Í
tölunum er aðeins um beinan verð-
samanburð að ræða en ekki er lagt
mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Miklar sveiflur í
matvöruverði á árinu
GOTT útlit er á að samkomulag sé
að nást varðandi vaktafyr-
irkomulag hjúkrunarfræðinga á
blóðskilunardeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss, að sögn Jóhann-
esar Gunnarssonar, lækninga-
forstjóra LSH, en 33 sjúklingar
blóðskilunardeildar hafa sent
áskorun til forsvarsmanna spítalans
um að vaktafyrirkomulagið verði
nú þegar dregið til baka.
Í áskoruninni segir: „Vaktafyr-
irkomulag hefur valdið því að stór
hluti reyndustu hjúkrunarfræðing-
anna hefur sagt upp störfum. Þetta
veldur okkur sjúklingunum gíf-
urlegum áhyggjum og kvíða enda
er öryggi okkar ógnað.“
Jóhannes sagði að það liti vel út
með að samkomulag sé að nást í
þessum efnum og hann bindi vonir
við að það skýrist alveg á næstunni.
Um sé að ræða ákveðna málamiðlun
varðandi vaktafyrirkomulagið.
Útlit fyrir
samkomulag
Grænlands í þeim tilgangi að
örva skáklífið í landinu. Á næstu
dögum verður 500 grunn-
skólabörnum í þessum landshluta
gefið taflsett. Á vegi skákfólksins
varð grænlenskur veiðimaður á
rekísnum undan landi og fékk
hann óvænt silfurúr að gjöf frá
Henrik Danielsen, skólastjóra
Skákskóla Hróksins.
SKÁKFERÐ taflfélagsins Hróks-
ins til Grænlands, sú þriðja í röð-
inni, sem hófst um síðustu helgi,
hefur heppnast eins og best verð-
ur á kosið að sögn Hrafns Jökuls-
sonar, forseta Hróksins. Með í för
eru liðsmenn Barnaheilla á Ís-
landi, Rauða krossins og Kalaks,
vinafélags Íslands og Grænlands.
Förinni var heitið til Austur-
Grænlenski veiðimaðurinn með silfurúrið nýfengna á rekísnum.
Með kveðju frá Íslendingum