Morgunblaðið - 06.12.2005, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.12.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2005 25 „ÉG GET víst ekki hrósað mér fyrir að eiga hönnunina á vettlingunum. Árið 2003 kom út bókin Skagfirskir rósa- vettlingar. Í henni er sögð saga rósavettlinganna og sýnt hvernig þeir voru gerðir. Ég var svo hrifin af þessu að ég fór að fikta við að gera þá og stæla upp úr bókinni,“ segir Helga Þórðardóttir frá Mælifellsá í Skagafirði. Helga var valin til að sýna vettlingana sína á jólasýningu Hand- verks og hönnunar í ár. „Forverar mínir, konur á 19. og 20. öld í Skagafirði, prjónuðu vettlingana í höndunum en systir mín, hún Sesselja Þórðardóttir, tók sig til og hannaði uppskrift að vettlingunum svo ég gæti prjónað þá í prjónavél og svo handsauma ég mynstrið í þá.“ Helga hefur gert sum mynstrin sjálf en styðst þá við mynstrin í bókinni og breytir þeim. „Ég vil halda í gamla svipinn á vettlingunum en það eru eiginlega alltaf blóm sem eru saumuð í þá. Svo þróast þetta í höndunum á manni og það getur vel verið að mynstrin eigi eftir að breytast hjá mér.“ Pantaðir í pakkann Það er um eitt og hálft ár síðan Helga byrjaði á að gera rósavettlinga en að eigin sögn hefur hún haft gam- an af handavinnu frá æsku. „Það var nú út af bókinni sem ég ákvað að byrja á þessu og ekki síst vegna þess að þetta er sér skagfirskt handverk. Ég hef aldrei lagt í að leggja saman hvað ég er lengi með hvern vettling. Ísaumurinn tekur lengstan tíma, ég prjóna í hönd- unum neðstu röndina á vettlingnum því það er ekki hægt að gera gar- ðaprjón í prjónavélinni, svo eru þeir þvegnir og þæfðir smá. Í vettlingana þarf fínt ullargarn og nota ég aðallega kambgarn frá Ís- tex. Konurnar í gamla daga notuðu fínna garn en ég svo þetta var mikið listaverk hjá þeim.“ Rósavettlingarnir hennar Helgu eru til sölu í Upplýsinga- miðstöðinni í Varmahlíð og á jólasýningunni. „Þeir seljast svo vel að ég hef ekki undan að gera þá. Ég er sauðfjárbóndi og við- urkenndur bókari þannig að vettlingarnir eru frístundavinna,“ segir Helga sem er meðlimur í handverksfélaginu Alþýðulist í Skagafirði. „Ég hef tekið mynd af flestöllum vett- lingapörum sem ég hef gert og stefni á að setja þær á netið svo fólk geti pantað pör með vissu mynstri. En engir tveir vett- lingar verða eins.“ Helga segir vettlingana vera vin- sæla hjá börnum og barnabörnum sín- um og nú þegar sé búið að panta nokkur pör í jólagjöf.  HANDVERK | Skagfirskir vettlingar á handverkssýningu Blómum prýddir rósavettlingar Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís Helga á Mælifellsá með skagfirska rósa- vettlinga eftir sig. Greenland úlpa einnig til í svörtu Jólatilboð kr. 22.990.- verð áður kr. 26.990.- North Face í jólapakkann DAGLEGT LÍF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.