Morgunblaðið - 06.12.2005, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 06.12.2005, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ „Meistarastykki!“ -F.G.G., Fréttablaðið „Tilvalin fjölskylduskemmtun sem auðgar andann!“ -S.P., Rás 1 „Sjón er sögu ríkari!“ -H.J., Mbl  Þar sem er vilji, eru vopn. S.V. MBL Þar sem er vilji, eru vopn. S.V. MBL  H.J. Mbl. V.J.V. topp5.is Þau eru góðu vondu gæjarnir. Sýnd bæði með íslensku og ensku tali. Þegar maður er þetta lítill verður maður að hugsa stórt. Harry Potter og Eldbikarinn kl. 6 - 8 og 10 B.i. 10 ára Green Street Hooligans kl. 5.45 - 8 og 10.15 Lord of War kl. 5.30 - 8 og 10.20 B.i. 16 ára La Marche De L'empereur kl. 6 og 8 Litli Kjúllinn kl. 6 Íslenskt tal Tim Burton´s Corpse Bride kl. 10 Gæti vakið ótta ungra barna!  H.J. Mbl. V.J.V. Topp5.is Er frábær staður til að uppgötva sjálfan sig upp á nýtt. er komin. Kýldu á þessa. Stranglega bönnuð innan 16 ára. Stattu á þínu og láttu það vaða. Jólalegasta jólamynd ársins er komin með Óskarsverðlauna- hafanum, Susan Sarandon, blómarósinni Penelope Cruz ásamt frábærum leynileikara sem á eftir að koma öllum á óvart. Hörkulegasta kvikmynd ársins er komin. Kýldu á þessa. Stranglega bönnuð innan 16 ára. Stattu á þínu og láttu það vaða. FÓTBOLTABULLUR (hooligans), eru í sviðsljósinu í mynd sem fer bærilega af stað með kraftmiklum og áhugaverðum miðkafla en lypp- ast að lokum niður í afleitt meló- drama. Matt (Wood), aðalpersóna Green Street Hooligans, er bandarískur háskólanemi í blaðamennsku, sem í myndarbyrjun er rekinn frá Har- vard þegar hann tekur á sig alvar- legt brot herbergisfélaga síns. Matt brestur kjark til að segja karli föður sínum frá brottrekstrinum, hann er virtur blaðamaður sem hefur haft lítinn tíma fyrir Matt eftir hann skildi við móður hans, sem er látin, né systur hans Shannon (Forlani), sem býr í London ásamt manni sín- um Steve (Warren). Þangað flýr Matt, sem á fyrsta degi verður vitni að hatrömmum átökum milli bræðr- anna Steve og Pete (Hunnam). Sá síðarnefndi er harður í horn að taka og fara leikar svo að Matt fer með honum á leik á milli West Ham og Birmingham, íþrótt framandi Bandaríkjamanninum. Það kemur í ljós að Pete er fremstur í flokki harðkjarna aðdá- endahóps Hammers, GSE. Hann sendir Matt heim að leik loknum, en ekki tekst betur til en svo að Matt lendir í klónum á fótboltabullum sem fylgja Birmingham, er barinn og ber frá sér. Pete og félagar koma honum til hjálpar og allt í einu er hægláti Bandaríkjamaðurinn orðinn vinur og félagi hörðustu fótboltabullnanna í hverfinu. Að vísu verða sinnaskipti Wood aldrei trúverðug, til þess er leik- arinn alltof meinleysislegur, og ekki hjálpar einkar illa skrifað hlutverkið þar sem lítið er gert til að útskýra umskipti mélkisunnar sem lætur troða á sér í Harvard en gerist síðan útkýldur ofbeldisseggur. Á hinn bóginn eru Pete og félagar hans í GSE, eins og sprottnir úr gömlum fréttamyndum um það ófélega fyr- irbrigði, bullurnar, sem fylgja, eða öllu frekar fylgdu öllum félögum, ekki síst út úr fátækrahverfunum. Þetta er yfirleitt lítið brot stuðnings- mannahópanna, en sá sem gjarnan lætur mest á sér bera og hefur oft- sinnis komið óorði á klúbbana sína. Með þeim grófustu eru bulluhóp- ur West Ham og Millwall, annars Lundúnafélags, sem frægast er af endemum. Þessum hópum lýstur saman í lokauppgjöri myndarinnar, afleitum, hádramatískum kafla sem sækir fyrirmyndina frekar í velluna West Side Story en glórulítið of- stæki breskra fótboltabullna. Með einni undantekningu þó, sem er Geoff Bell, sem leikur forsprakka Millwallbullna á trúverðugan hátt. Allt í einu er þessi slúbbertalýður orðinn samnefnari fyrir samheldni, bræðralag og vináttu á henni jörð. Bandaríska liðleskjan orðinn slags- málahundur og ekki nóg með það heldur beinlínis örlagavaldur í at- burðarásinni sem kostar mann- fórnir. Til að bæta gráu ofan á svart kemur systir hans til skjalanna á Rangernum sínum, með kornabarn í farteskinu. Og enn finnst handrits- höfundum ekki nóg komið af vellu því þeir ljúka myndinni á að hreinsa Matt af brottrekstrarsökinni frá Harvard á klisju sem var löngu orðin ofnotuð árið eftir tilkomu vasaseg- ulbandstækisins. Úr Harvard í „Hamrana“ KVIKMYNDIR Sambíóin, Háskólabíó Leikstjóri: Lexi Alexander. Aðalleikarar: Charlie Hunnam, Claire Forlani, Elijah Wood, Leo Gregory, Marc Warren, Henry Goodman, Geoff Bell, Rafe Spall.110 mín. Bretland. 2005 Green Street Hooligans  „Að vísu verða sinnaskipti Wood aldrei trúverðug, til þess er leikarinn allt- of meinleysislegur, og ekki hjálpar einkar illa skrifað hlutverkið.“ Sæbjörn Valdimarsson UPPSELT er á fyrirhugaða tónleika Hætta!-hópsins hinn 7. janúar næst- komandi, en alls hafa selst 5.500 miðar á þessa stórtónleika að sögn Gríms Atlasonar tónleikahaldara. Hann sagði það mjög ánægjulegt hversu fljótt hefði selst upp á tón- leikana. „Það er alltaf erfitt að fylla Laug- ardalshöllina en það hefur nú tek- ist,“ segir Grímur. „Það er greinilegt að fólki finnst málefnið verðugt og tónleikarnir spennandi.“ Tilefni tónleikanna er að vekja at- hygli á náttúru Íslands og umgengni okkar um hana. Með tónleikunum vilja skipuleggjendur og listamenn beina athyglinni að náttúrunni og að hún sé ekki sjálfsögð uppspretta raf- orkuvera eða álvera. Fjöldi erlendra og innlendra tónlistarmanna koma fram á tónleikunum, meðal annars Ham, Damien Rice, Lisa Hannigan, Magga Stína og hljómsveit, Múm, Sigur Rós, Hjálmar, KK, Rass, Björk, Zeena Parkins, Ghostigital, Damon Albarn og Egó auk óvæntra uppákoma. Allir listamenn sem koma þarna fram, skipuleggjendur og þorri starfsmanna gefa vinnu sína í þágu málstaðarins. Verði hagnaður af tón- leikunum mun hann renna í sér- stakan sjóð Hætta!-hópsins sem not- aður verður til að efla náttúruvernd á Íslandi. Tónlist | Tónleikar gegn virkjunum Uppselt í Höllina Damien Rice sækir Íslendinga heim og mótmælir virkjanastefnu í nátt- úru landsins. TILKYNNT var í Ósló í gær, að drengurinn, sem þau Mette-Marit, krónprinsessa Noregs, og Hákon krónprins eignuðust á laug- ardagsmorgun verði skírður Sverrir Magn- ús. Haraldur kon- ungur, afi drengsins, tilkynnti þetta á rík- isráðsfundi. Sverrir er gamalt norskt konunganafn en það er einnig að finna í fjölskyldu Mette- Marit. Hákon krón- prins heitir einnig Magnús. Fólk | Nýfæddi norski prinsinn Fær nafnið Sverrir Magnús Reuters Mynd af norska prinsinum Sverri Magnúsi eins dags gömlum. BRASILÍSKA ofurfyrirsætan Gis- ele Bundchen grípur hér knöttinn fyrir leik New England Patriots og New York Jets í Amerískum ruðn- ingi. Leikurinn fór fram síðastliðinn sunnudag í Foxbro í Massachusetts að viðstöddu fjölmenni, enda um að ræða eina vinsælustu íþróttagrein í Bandaríkjunum. Reuters Gisele grípur!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.