Morgunblaðið - 06.12.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 06.12.2005, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÉG HEF haldið því fram að undir forustu Matthíasar Johann- essen og Styrmis Gunnarssonar hafi Morgunblaðið orðið opið mál- þing og þjóðfundur Íslendinga. Ég hef haldið því fram að undir ritstjórn þeirra varð Morgunblaðið miðja frjálsra skoðanaskipta og lýðræðislegrar umræðu í landinu. Ég hef haldið því fram að Morg- unblaðið sé helsti vettvangur og trygging lærðra og leikra til op- inberra skoðanaskipta. Opinber skoðanaskipti eru forsenda virks lýðræðis. Morgunblaðið er nú eina flokks- pólitíska blaðið í landinu og ástæðulaust að gera athugasemdir við það. Blaðið hefur oft upplýst að það birti pólitík sína; í leiðara og Reykjavíkurbréfi og Stak- steinum. Það birtir ekki pólitík sína í dularklæðum. Það gengst við vígum sínum. Þó að Morg- unblaðið gangist við pólitískum skrifum sínum og iðki ekki þann heigulshátt að leggja til andstæð- inga sinna úr nafn- lausu launsátri, þá ber samt að gera þá sjálfsögðu kröfu til þess, að efnistök blaðsins og máls- meðferð sé ekki óvönduð. Kamarinn Á árum áður var landlægur sá ósiður að krota á veggi og hurðir á klósettum og kömrum alls kyns sóðavísur og kúk og piss brand- ara. Líka var krotað háð og níð og dylgjur um kunnar persónur. Svona skrif voru kölluð kamar- krot, og þóttu skítleg. Þegar gömlu flokks- blöðin lögðust í per- sónuleg heiftarskrif með dylgjum, skít- kasti og rógi um and- stæðingana og fylg- ismenn þeirra. Þá var það líka kallað kamar- krot. Þessi fyrrum sóða- skrif gömlu flokks- blaðanna hafa rifjast upp fyrir mér þegar ég hef lesið Stak- steina Morgunblaðsins und- anfarnar vikur. Þar hafa verið birtar aðdróttanir, rangtúlkanir og illkvittnar dylgjur um einstaklinga og hópa, sem ógna Sjálfstæð- isflokknum. Oft eru skrifin studd aula- rökum, sem blaðið sækir í eigin útúrsnúninga – dylgjurnar lifa sjálfbærar. Vinir Morgunblaðsins Þessi skrif Staksteina eru langt, langt fyrir neðan virðingu blaðs- ins. Þau eru rætin og rógskennd og koma óorði á það. Þau rýra trúverðugleika þess og valda vin- um þess og velunnurum raunum. Eins og sjá má af þessari grein er ég velunnari Morgunblaðsins. Ég á sæti í flokksstjórn Samfylk- ingarinnar og hef verið og er enn óspar að hvetja fólk til að kaupa blaðið. Ég hef fært fyrir því þau rök að Morgunblaðið sé besti vett- vangur sem opinn er almenningi til þátttöku í þjóðmálaumræðu og skýrasta þversnið þjóðarsál- arinnar. Lýðræðissinnum beri því að kaupa Morgunblaðið. Þegar horft er til Morgunblaðs- ins í heild og faglegs ferils þess er erfitt að trúa að einhverjir af rit- stjórum þess standi að lágkúru Staksteina þó að þeir taki auðvita á sig ábyrgðina. Við þá vil ég því segja að lokum: Hlífið vinum og velunnurum Morgunblaðsins við þeirri raun að ganga undir högg fyrir afturhvarf Staksteina til gamla kamarkrotsins. „Kamarkrot“ í Morgunblaðinu Birgir Dýrfjörð gerir at- hugasemdir við Staksteina Morgunblaðsins ’…er erfitt að trúa aðeinhverjir af ritstjórum þess standi að lágkúru Staksteina…‘ Birgir Dýrfjörð Höfundur situr í flokksstjórn Samfylkingarinnar. UNDANFARINN áratug hafa bæjaryfirvöld í Kópavogi byggt upp hafnaraðstöðu í Kópavogi í samvinnu við Atlantsskip. Nýr samningur milli bæjarins og skipa- félagsins er nú til meðferðar í stjórn- kerfi Kópavogs. Nýi samningurinn gerir ráð fyrir umtalsverðri stækkun á höfninni og gámasvæði henni tengdu, með það fyrir augum að tvö stór gámaflutningaskip geti legið við bryggju í einu. Samningurinn er til 20 ára og í hann er bundið að gjaldskrá Kópavogshafnar verði alltaf sú lægsta á höf- uðborgarsvæðinu. Með því er bæj- arstjórnum nágrannasveitarfélag- anna í raun afhent vald til að ákveða hafnargjöld í Kópavogi. Breytt starfsemi Hér er um mikla útþenslu á starfsemi hafnarinnar að ræða og í algerri andstöðu við það sem bæj- arbúum var lofað í upphafi. Þá sögðu forsvarsmenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks að hér væri að mestu leyti um umskipunarhöfn að ræða, vörur sem skipað væri upp færu aldrei af hafnarsvæðinu. Þær hugmyndir sem hér eru kynntar eru af allt öðrum toga og ljóst að aukinni starfsemi fylgir enn þyngri um- ferð um íbúðargötur í vesturbæ Kópavogs. Samfylkingin leggst algerlega gegn hug- myndum um stækkun stórskipahafnar á Kársnesi og mun mæla gegn samn- ingnum á vettvangi bæjarins. Það er skoð- un Samfylkingarinnar að nú þegar samn- ingar eru lausir á hafnarsvæðinu eigi að nota tækifærið og horfa til upp- byggingar á svæðinu með fram- sæknum hætti. Framsæknar hugmyndir Samfylkingin leggur til að boðað verði til samstarfs atvinnurekenda, íbúa og annarra um uppbyggingu á svæðinu með það fyrir augum að nýta hafnarsvæðið með öðrum hætti. Á svæðinu á að blanda sam- an íbúðarbyggð, og menningar- og atvinnustarfsemi, með áframhald- andi starfsemi smábátahafnarinnar. Atvinnustarfsemi af ákveðnum toga og önnur starfsemi getur þrifist í góðu nábýli auk þess sem umferð- artoppar eru misjafnir eftir starf- semi. Svæðið vestast á Kársnesi er dýrmætt land sem á að nýta með framsýnum hætti bæjarbúum til góðs. Þarna hafa Kópavogsbúar tækifæri til að skipuleggja gott og eftirsótt íbúðarhverfi sem samrým- ist þeirri íbúðarbyggð sem fyrir er á Kársnesi. Nú er tækifæri til að snúa við blaðinu í skipulagi Kárs- nessins og Samfylkingin vill nýta það. Tækifæri á Kársnesi – íbúar í stað gáma Flosi Eiríksson fjallar um skipulagsmál í Kópavogi ’Samfylkingin leggstalgerlega gegn hug- myndum um stækkun stórskipahafnar á Kársnesi.‘ Flosi Eiríksson Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. EITT AF því áhugaverðasta sem kom út úr seinasta landsfundi sjálf- stæðismanna var jákvætt viðhorf flokksins til flats tekjuskatts, en flokk- urinn vill þegar í stað hefja starf sem miðar að því að slíkur skattur geti verið tekinn upp. Fróðlegt er að skoða áhrif slíks skatts á launamun því flatur skattur hefur engin tekjujöfnunaráhrif eins og núverandi skattur. Launamunur hefur nefnilega vaxið gífurlega hérlendis á seinustu 10 árum og hafa t.d. ráðstöf- unartekjur launahærri helmings hjóna hækk- að u.þ.b. helmingi meira en hjá launa- lægri helmingnum. Ís- land hefur þannig farið frá því að vera með einn minnsta launamun í heimi í að vera með töluvert meiri launamun en öll hin Norðurlöndin. Flatur skattur mun enn auka á launamun. Ef fram heldur sem horf- ir og skatturinn verður tekinn upp þá verður launamunur á næsta ári aðeins hærri í Bandaríkjunum meðal velmegandi þjóða. Þá verður Gini- stuðull fyrir ráðstöfunartekjur hjóna (mælikvarði launamunar) kominn í 36 og aðeins Bandaríkin með hærra gildi af þeim 20 þjóðum sem búa við bestu lífskjör í heiminum samkvæmt nýlegri skýrslu Sameinuðu þjóð- anna. Því hefur nefnilega ekki verið haldið nægjanlega vel til haga að launamunur er minnstur meðal vel- megandi þjóða. Á því er þó ein und- antekning sem eru vaxtarþjóðir As- íu, en þar er launamunurinn enn minni. Það eru því sterkar líkur á því að minni launamunur bæti lífskjör en aukinn launamunur skerði lífs- kjör. Aukinn launamunur hérlendis ætti því að vera áhyggjuefni fyrir þá sem vilja bæta lífskjör þjóðarinnar. Áhrifin af hinum aukna launamun virðast einnig vera að koma fram í dagsljósið núna, t.d. í stefnu sjálf- stæðismanna til menntamála. Þeir sem hafa meira milli hand- anna sætta sig ekki lengur við almenna skóla og eru því einka- grunnskólar eitt aðal baráttumál sjálfstæð- ismanna í borginni (sem eflaust munu innheimta skólagjöld). Einnig vill flokkurinn taka upp skólagjöld í háskólum. Þetta mun að öðru jöfnu færa okkur bandarískt ástand í menntamálum, þar sem börn auðugri foreldra eru 6 sinnum líklegri en börn þeirra fátækari til að ljúka háskólanámi. Þannig verða línurnar milli sjálfstæðismanna og jafn- aðarmanna varla skýrari, en við vilj- um að aðgangur að menntun sé al- gerlega óháður fjárhag foreldra. Enda felst hrein sóun á mannauði og lífskjaraskerðing í því að veita fá- tækum börnum minni tækifæri til menntunar en þeim ríkari. Eftir að Þjóðhagsstofnun var lögð niður varð það hlutverk Hagstof- unnar að upplýsa landsmenn um þróun launamunar. Það gera allar aðrar hagstofur í löndunum í kring- um okkur en hérlendis hafa menn ekki séð neina ástæðu til þess. Það er óskiljanlegt af hverju menn þar á bæ vilja halda leyndri þeirri byltingu sem er að eiga sér stað í tekjudreif- ingu landsmanna. Það hefur leitt til þess að enn er til fólk sem trúir því ekki að gífurleg aukning á launamun hafi átt sér stað og enn eru til stjórn- málamenn sem halda fram hinu gagnstæða. Flatir skattar og launamunur Guðmundur Örn Jónsson fjallar um áhrif flats skatts Guðmundur Örn Jónsson ’Flatur skatturmun enn auka á launamun.‘ Höfundur er verkfræðingur. NÚ LIGGUR fyrir Alþingi frumvarp um fjarskiptasjóð. Þar er um að ræða sjóð með um 2,5 milljörðum króna. Hlutverk hans er skýrt: Koma Íslend- ingum öllum í fremstu röð á sviði fjarskipta. Framfarir á þessu sviði hafa verið ótrúlegar á allra síðustu árum. Fyrir 5–6 árum settu menn sér það mark- mið að koma ISDN- sambandi á flest heimili landsmanna fyrir árslok 2002. Það markmið náðist að mestu en nú hefur tækninni fleygt fram, kröfur aukist og ADSL er orð dagsins – hið minnsta. Þessi tæknibylting hefur haft endalausar afleiðingar og þær flestar jákvæð- ar. Hún hefur stuðlað að hækkuðu menntastigi, rofið einangrun inn- anlands og alþjóðlega – hún hefur í raun minnkað landið en stækkað fólkið. Og áfram skal haldið. Samkvæmt fjarskiptaáætlun Al- þingis er ætlunin að efla fjarskipti um land allt á næstu tveimur árum. Fram- sóknarflokkurinn bók- aði sérstaklega í tengslum við sölu Símans að komið yrði á fót sérstökum fjar- skiptasjóði til að tryggja aðgang lands- manna allra að nú- tíma fjarskiptum. Nú er hann orðinn að veruleika. Boðin verða út þau svæði sem enn á eftir að tengja almennilega um landið. Gildir það jafnt um gsm-samband sem netsamband. Íslendingar elska að ferðast um land sitt en vilja jafnframt vera tengdir hvar sem þeir eru. Fólk vill geta malað í síma hvenær sem er og fólk vill komast á netið vegna vinnu sinnar, náms eða til að vera í sambandi við vini og ætt- ingja. Þetta er í raun spurning um jafnrétti til nútímans. Fólk á að geta tengst hvar sem er á landinu. Fólkið sem býr í sveitum, fólkið í sumarbústöðum, fólkið á ferðalög- um. Með metnaðarfullri fjar- skiptaáætlun er lagður enn traust- ari grunnur að þeim skilyrðum. Á næstu mánuðum má búast við að vinna hefjist á grundvelli þessa og er hún í raun hafin með hinni öfl- ugu samkeppni sem ríkir á þessu sviði. Þannig má sjá þessa dagana meðfram Vesturlandsveginum vinnu við lagningu strengs á veg- um Orkuveitu Reykjavíkur. Mun hann eiga að teygja sig alla leið upp að Bifröst. Engum blöðum þarf um það að fletta hvílík lyfti- stöng öflugra netsamband hefur fyrir samfélagið á Vesturlandi vegna þeirra framkvæmda. Net- byltingin mun breiðast um allt land og hafa meiri áhrif á innviði samfélagsins en nokkurn órar fyr- ir. Fjarskiptasjóður mun gegna þar mikilvægu hlutverki. Netbyltingin Hjálmar Árnason fjallar um fjarskiptasjóð og netsamband ’Netbyltingin munbreiðast um allt land og hafa meiri áhrif á inn- viði samfélagsins en nokkurn órar fyrir.‘ Hjálmar Árnason Höfundur er alþingismaður. ATVINNA mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.