Morgunblaðið - 06.12.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 06.12.2005, Blaðsíða 40
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn HEYRÐU! ÞETTA ER MITT TYGGJÓ ÞAÐ ER FLUTNINGA- BÍLL FYRIR UTAN HÚSIÐ HENNAR HÚN ER AÐ FLYTJA BURTU. SJÁÐU...ÞAÐ ER VERIÐ AÐ BERA ÖLL HÚSGÖGNIN ÚT! EF HÚN ER AÐ FLYTJA ÞÁ MUNTU ALDREI SJÁ HANA FRAMAR. ÞÚ VERÐUR AÐ GERA EITTHVAÐ, KALLI! ÉG VAR AÐ VONAST EFTIR EIN- HVERJU ÞROSK- AÐRA VIÐ SKULUM SPYRJA ANDAGLASIÐ AFTUR HUMM... ÞAÐ HREYFIST G..U..Ð..F.. O..R..D.. ..I..O..S ...S..F..R.. Á..Þ..V..Í NÆST ÞEGAR ÉG VIL FÁ ÞITT ÁLIT ÞÁ BIÐ ÉG UM ÞAÐ, HEIMSKA GLAS! Ó, MIKLA ANDAGLAS, VERÐ ÉG EINHVERN TÍMANN FORSETI? HRÓLFUR, HVAÐ EIGUM VIÐ AÐ GERA!?! HVAÐ? HVAÐ? ÉG HELD AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ BYRJA Á ÞVÍ AÐ BIÐJA HANN AFSÖKUNAR ÉG TRÚ EKKI AÐ ÞEIR HAFI GRÆTT Í MIG TÖLVUKUBB! ÉG ER EKKI LENGUR HUN- DUR! ÉG ER BARA NÚMER Í KERFINU! ÞÚ HEFUR ALTAF VERIÐ NÚMER Í MÍNUM AUGUM, GRÍMUR ER ÞAÐ!?! JÁ, 112 PABBI, MEGUM VIÐ FARA OG KAUPA OKKUR PIZZU Í SJOPPUNNI? JÁ, JÁ MEGUM VIÐ LÍKA KAUPA FLÖGUR ÆTLI ÞAÐ EKKI HVAÐ MEÐ GOS? GOS, LÍKA? SVONA, ÞETTA ER KOMIÐ GOTT. FARIÐ NÚ AÐ SYNDA VIÐ ERUM OF SÖDD RÓSA SAGÐI SATT, TARANTÚLAN ER RAUNVERULEG ÉG ÞARF AÐ KANNA ÞETTA BETUR EINHVERRA HLUTA VEGNA ÞÁ TREYSTI ÉG HENNI EKKI Á MEÐAN... Dagbók Í dag er þriðjudagur 6. desember, 340. dagur ársins 2005 Víkverji hefur veriðdyggur stuðnings- maður enska knatt- spyrnufélagsins Ars- enal í meira en aldarfjórðung. Hefur hann á þeim tíma séð margan kappann leika vel fyrir félagið og aðra illa – eins og gengur. Víkverja er þó skapi næst að halda að hann hafi ekki í annan tíma séð leik- mann Arsenal gera jafn hressilega í bræk- urnar og brasilíska miðvallarspilarann Gilberto Silva í leik gegn Bolton Wanderers liðinn laugardag. Slík hryggðarmynd er sjaldséð á velli. Maðurinn hafði ekki roð við miðju- mönnum Bolton, sendingar hans, flestar 4–5 metra langar, voru ýmist fyrir aftan samherjana eða þeir þurftu að teygja sig í þær, þ.e.a.s. þær sendingar sem ekki voru beint á mótherja. Svo kórónaði kappinn frammistöðu sína með því að leggja upp síðara mark Bolton, í 2:0 ósigri, með miklum glæsibrag. Oft var John Jensen slakur og skipbrot Igors Stepanovs í 6:1 ósigr- inum á Old Trafford um árið er því miður ógleymanlegt. Að ekki sé tal- að um sjálfan Gus Caesar. Á þessu augnabliki er Víkverji hins vegar sannfærður um að Gilberto hafi slegið þeim öllum við. Kannski dofnar sú til- finning með árunum en er svona frammi- staða félaginu sam- boðin? Það er ekki eins og þessi maður hafi oft leikið vel. Vík- verji man varla eftir því. Raunar gerðust þau undur og stór- merki í fyrra þegar hann gekk úr skaftinu vegna meiðsla að liðið hætti að geta varist. Óx þá vegur Brasilíumanns- ins til muna. Hann var allt í einu orð- inn ómissandi. Svo ómissandi að mönnum á borð við Patrick Vieira, besta miðjumanni sinnar kynslóðar í heiminum, og öðrum mun fram- bærilegri Brasilíumanni, Edu, var skolað burt með baðvatninu í sumar svo Gilberto fengi notið sín. Einmitt! Frammistaða eins og Gilberto bauð stuðningsmönnum Arsenal upp á í Bolton er vítaverð og myndi hafa í för með sér langt leikbann ef Vík- verji fengi að ráða. En af einhverjum óskiljanlegum ástæðum er Víkverji ekki knattspyrnustjóri Arsenal. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is           Myndlist | Heimur íssins er yfirskrift alþjóðlegrar ís- og snjóskúlptúrhátíðar sem hefst í þýska bænum Lübeck á föstudag. Þema hátíðarinnar að þessu sinni er „dýraríkið“ og úkraínski listamaðurinn Yuriy Koscerin vinnur hér að framlagi sínu sem er sú geðþekka skepna elgur. Reuters Elgur úr ís MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Vík hvorki til hægri né vinstri, haltu fæti þínum burt frá illu. (Ok. 4, 27.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.