Morgunblaðið - 06.12.2005, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2005 25
„ÉG GET víst ekki hrósað mér fyrir að eiga hönnunina á
vettlingunum. Árið 2003 kom út bókin Skagfirskir rósa-
vettlingar. Í henni er sögð saga rósavettlinganna og sýnt
hvernig þeir voru gerðir. Ég var svo hrifin af þessu að ég
fór að fikta við að gera þá og stæla upp úr bókinni,“ segir
Helga Þórðardóttir frá Mælifellsá í Skagafirði. Helga
var valin til að sýna vettlingana sína á jólasýningu Hand-
verks og hönnunar í ár.
„Forverar mínir, konur á 19. og 20. öld í Skagafirði,
prjónuðu vettlingana í höndunum en systir mín, hún
Sesselja Þórðardóttir, tók sig til og hannaði uppskrift að
vettlingunum svo ég gæti prjónað þá í prjónavél og svo
handsauma ég mynstrið í þá.“ Helga hefur gert sum
mynstrin sjálf en styðst þá við mynstrin í bókinni og
breytir þeim.
„Ég vil halda í gamla svipinn á vettlingunum en það
eru eiginlega alltaf blóm sem eru saumuð í þá. Svo
þróast þetta í höndunum á manni og það getur vel verið
að mynstrin eigi eftir að breytast hjá mér.“
Pantaðir í pakkann
Það er um eitt og hálft ár síðan Helga byrjaði á að
gera rósavettlinga en að eigin sögn hefur hún haft gam-
an af handavinnu frá æsku.
„Það var nú út af bókinni sem ég ákvað að byrja á
þessu og ekki síst vegna þess að þetta er sér skagfirskt
handverk. Ég hef aldrei lagt í að leggja saman hvað
ég er lengi með hvern vettling. Ísaumurinn
tekur lengstan tíma, ég prjóna í hönd-
unum neðstu röndina á vettlingnum
því það er ekki hægt að gera gar-
ðaprjón í prjónavélinni, svo eru
þeir þvegnir og þæfðir
smá. Í vettlingana þarf
fínt ullargarn og nota ég
aðallega kambgarn frá Ís-
tex. Konurnar í gamla daga
notuðu fínna garn en ég svo
þetta var mikið listaverk hjá
þeim.“
Rósavettlingarnir hennar
Helgu eru til sölu í Upplýsinga-
miðstöðinni í Varmahlíð og á
jólasýningunni.
„Þeir seljast svo vel að ég
hef ekki undan að gera þá. Ég
er sauðfjárbóndi og við-
urkenndur bókari þannig að
vettlingarnir eru frístundavinna,“
segir Helga sem er meðlimur í
handverksfélaginu Alþýðulist í Skagafirði.
„Ég hef tekið mynd af flestöllum vett-
lingapörum sem ég hef gert og stefni á að
setja þær á netið svo fólk geti pantað pör
með vissu mynstri. En engir tveir vett-
lingar verða eins.“
Helga segir vettlingana vera vin-
sæla hjá börnum og barnabörnum sín-
um og nú þegar sé búið að panta nokkur
pör í jólagjöf.
HANDVERK | Skagfirskir vettlingar á handverkssýningu
Blómum prýddir
rósavettlingar
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Helga á Mælifellsá með skagfirska rósa-
vettlinga eftir sig.
Greenland úlpa
einnig til í svörtu
Jólatilboð kr. 22.990.-
verð áður kr. 26.990.-
North Face í jólapakkann
DAGLEGT LÍF