Morgunblaðið - 06.12.2005, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
kápur með skinni, jakkar bolir, pils, sjöl, skinnkragar.
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Sími 462 3505
Opið virka daga 10-18
laugardaga kl. 10-16
sunnudaga kl. 13-17
f r tr ti , r ri.
í i
i ir -
l r l. -
l. -Christa
JÓLAGJÖFIN HENNAR
AUSTURLAND
Neskaupstaður | Nemendur níunda bekkj-
ar Nesskóla bættu heldur betur við ferða-
sjóð sinn nú á dögunum þegar þeir tóku að
sér að leggja einangrun og járnagrindur
undir 7000 fermetra gólfplötu stóru frysti-
geymslunnar sem verið er að reisa á hafn-
arsvæðinu í Neskaupstað. Krakkarnir, með
aðstoð foreldra, voru um tvo daga að ljúka
verkinu og uppskáru laun erfiðis síns eða
nálægt einni milljón króna sem fara í ferða-
sjóð þeirra.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Lagt á 7.000 fermetra Margar hendur vinna létt verk.
Ferðasjóðurinn fitnar
Neskaupstaður |
Skógræktarfélag
Norðfjarðar hefur
legið í dvala í nokk-
ur ár, en á aðalfundi
sem haldinn var ný-
lega var kjörin ný
stjórn. Í henni eru:
Anna Bergljót Sig-
urðardóttir formað-
ur, Kristín Ágústs-
dóttir varaformaður,
Gunnar Ólafsson rit-
ari, Sigurborg Há-
konardóttir gjald-
keri, Benedikt
Sigurjónsson með-
stjórnandi. Vara-
menn í stjórn eru
Þórður Þórðarson og Bjarni Aðalsteinsson.
Mörg verkefni blasa við nýrri stjórn, en
einna brýnast telur stjórnin vera að laga
umhverfi Hjallaskógar ofan Neskaupstaðar,
sem er mikið notað útivistarsvæði. Til þess
að svæðið nýtist sem best þarf að lagfæra
stíga og grisja skóginn.
Þá vill ný stjórn gera félagið sýnilegra í
samfélaginu og í því skyni er m.a. stefnt að
því að bjóða íbúum í Neskaupstað og
Fjarðabyggð að koma í Hjallaskóg og saga
sitt eigið jólatré. Til gamans má geta þess
að Skógræktin hefur í mörg ár gefið jólatré
úr Hjallaskógi sem Fjarðabyggð færir vi-
nabæ sínum Sandavogi í Færeyjum á hverju
ári.
Gera trjárækt sýni-
legri í samfélaginu
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Jólatréskandídatar skoðaðir Anna B. Sigurðardóttir og Benedikt
Sigurjónsson í Hjallaskógi við Neskaupstað.
Egilsstaðir | Í undirbúningi er formleg stofn-
un samtaka kvenna á Austurlandi, sem mun
m.a. hafa að markmiði að mynda öflugt
tengslanet milli kvenna, hvort sem er í at-
vinnulífi eða á öðrum vettvangi og standa að
námskeiðum, fyrirlestra- og ráðstefnuhaldi til
þekkingarauka. Jafnframt er ætlunin að konur
á Austurlandi hafi aðgang að þekkingu og
reynslu innan samtakanna.
Á undirbúningsfundi sem haldinn var nú í
vikunni, var m.a. ákveðið að halda stofnfund
samtakanna í janúar nk., standa að nám-
skeiðum tengdum framkvæmdastjórn og póli-
tískri þátttöku kvenna síðari hluta vetrar og
ráðstefnu á vori komanda. Stefanía G. Krist-
insdóttir og Kristbjörg Jónasdóttir hjá Þróun-
arfélagi Austurlands leiða undirbúnings-
starfið.
Konur á Austurlandi
mynda tengslanet
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Samtakamáttur Á annan tug kvenna úr atvinnulífinu undirbýr nú stofnun samtaka kvenna.
AKUREYRI
AÐSTÆÐUR á Akureyrarflugvelli
voru nokkuð sérstakar þegar Fokk-
er-flugvél Flugfélags Íslands kom
inn til lendingar um miðjan dag í
gær. Þykk þoka lá yfir flugbraut-
inni og skyggni því ekki eins og
best verður á kosið. „Lendingin var
mjúk og fín en flugstjórinn þurfti
að taka hjólin upp aftur og taka
aukahring áður en hann lenti vél-
inni. Það gerði nú ekkert til og það
ánægjulega var að þurfa ekki að
fara til Reykjavíkur aftur,“ sagði
Hreiðar Gíslason, sem var farþegi
með vélinni.
Morgunblaðið/Kristján
Þoka Fokker-flugvél Flugfélags Íslands kemur inn til lendingar í gær en þá lá þykk þoka yfir flugbrautinni.
Morgunblaðið/Kristján
Frá borði Það var dimmt yfir þegar farþegar gengu frá borði.
Lendingin
var mjúk
og fín
ENGINN af þeim 11 nemendum
Menntaskólans á Akureyri sem voru
skráðir í samræmt stúdentspróf í
stærðfræði mætti til prófs. Alls voru
54 skráðir í íslenskupróf, 9 mættu og
þá voru 57 skráðir í ensku og mættu
11. Edda Hermannsdóttir, formaður
skólafélagsins Hugins, sagði að
margir nemar hefðu ekki skráð sig í
prófin og einn að um16% þeirra sem
skráðu sig og mættu í prófin hafi
ekki tekið þau heldur skilað auðu.
„Með þessum aðgerðum erum við
að mótmæla þessum samræmdu
prófum kröftuglega,“ sagði Edda.
„Okkur þóttu það ekki næg mótmæli
að skrá okkur í prófin og skila auðu.
Það var að okkar mati ekki nógu rót-
tækt.“
Edda sagði að nemum þættu próf-
in ósanngjörn, nemum væri gert að
taka prófin ofan á öll þau próf sem
skólinn legði fyrir, þá væri með slík-
um prófum verið að steypa skóla í
sama mót, gera þá einsleita og ekki
tekið tillit til sérstöðu þeirra. Þá
væri öllum gert að taka sama prófið,
en alls ekki væri hægt að bera saman
kunnáttu nema á eðlisfræði- og
málabrautum t.d. í stærðfræði.
Samræmd stúdentspróf í MA
Enginn mætti í
stærðfræðiprófið
Prófkjör hjá Framsókn | Sam-
þykkt var á aðalfundi fulltrúaráðs
Framsóknarfélaganna á Akureyri að
hafa prófkjör vegna vals á lista
framsóknarmanna fyrir sveit-
arstjórnarkosningarnar 2006, en
ekki hefur verið ákveðið nákvæm-
lega hvenær, að líkindum þó í febr-
úar. Prófkjörið er opið öllum flokks-
bundnum framsóknarmönnum á
Akureyri svo og öðrum Akureyr-
ingum sem undirrita stuðnings-
yfirlýsingu við flokkinn fram að lok-
un kjörfundar. Kosið verður um 6
efstu sætin á listanum.
Myndir frá Grænlandi | Friðrik
Á. Brekkan mun sýna myndir frá
Grænlandi á veggjum Gulu Vill-
unnar á Ak-
ureyri
næstu vikur.
Myndirnar
eru flestar
frá Austur-
Grænlandi,
teknar á ár-
unum 1976
til 2003.
Fræðsluefni
um allar
helstu byggðir Grænlands mun
liggja frammi auk bæklinga.
Fræðsluverkefni þetta er styrkt af
SAMIK, samstarfssamningi Íslands
og Grænlands í ferðamálum.
Siglingaklúbbur | Á síðasta fundi
íþrótta- og tómstundaráðs var tekið
fyrir að nýju erindi frá formanni
Nökkva félags siglingamanna á Ak-
ureyri, þar sem þess er farið á leit við
bæjarráð að Akureyrarbær komi að
framkvæmdum þeim sem fyrirhug-
aðar eru við gerð lítillar hafnar á
Höepfnersbryggju. Bæjarráð vísaði
erindinu til ÍTA og gerðar fjárhags-
áætlunar fyrir árið 2006. Íþrótta- og
tómstundaráð vísar til fram-
kvæmdaáætlunar Akureyrarbæjar
fyrir 2006 þar sem samþykkt hefur
verið að veita 11 milljónum króna til
framkvæmda á athafnasvæði Sigl-
ingaklúbbsins Nökkva og er núgild-
andi samningur frá 15. júlí 2004 hluti
af heildarupphæðinni.