Morgunblaðið - 06.12.2005, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
Keflavík | „Til að einfalda lífið,“ seg-
ir Lína Rut Wilberg listmálari þegar
hún er spurð hversvegna fjölskyldan
hafi ákveðið að setjast að í Reykja-
nesbæ. Lína Rut og maður hennar,
Gunnar Már Másson flugmaður,
fluttu til Keflavíkur í sumar og hafa
auk íbúðarhúss keypt hús fyrir
vinnustofu og eru með áform um að
gefa öðrum listamönnum og áhuga-
fólki kost á að leigja þar aðstöðu og
fá leiðbeiningar.
Lína Rut og Gunnar Már hafa
lengi búið í miðbæ Reykjavíkur.
„Þegar við vorum með eitt barn, lít-
inn strák í vagni, fannst okkur ágætt
að vera í bænum en þegar við áttum
von á öðrum dreng vildum við breyta
til, til að einfalda okkur lífið. Við
vildum ekki ala börnin upp í mið-
bænum. Við vorum orðin langþreytt
á bílaumferðinni og eins og margir
aðrir veigraði maður sér við að fara
af stað á bíl á háannatímum,“ segir
Lína Rut. Þau fluttu fyrst út í jaðar-
inn á höfuðborgarsvæðinu, í Hafnar-
fjörð, og töldu að þar yrði rólegra.
„Það voru að vísu fleiri börn þar en í
miðbænum en alveg sami skarkal-
inn.“ Þau bjuggu ekki í Hafnarfirði
nema í átta mánuði og fluttu í byrjun
ágúst til Keflavíkur.
Gunnar Már er flugmaður hjá Ice-
landair og sækir því vinnu á Kefla-
víkurflugvöll. Hugmyndin að flytja á
Suðurnesin kviknaði út frá því.
„Reykjanesbær var þannig fyrir fá-
einum árum að maður gat ekki hugs-
að sér að setjast hér að. En eftir að
hugmyndin um að flytja á Suðurnes-
in kviknaði ókum við hér um og
sáum að Árni Sigfússon og hans fólk
hafði greinilega tekið til hendinni.
Búið er að laga umhverfið og ásýnd
bæjarins er orðin snyrtileg,“ segir
Lína Rut. Hún bætir því við að ekki
hafi sakað hvað hægt hafi verið að fá
hús á góðu verði í Reykjanesbæ.
Telur hún að svo sé enn þótt verðið
fari hækkandi.
Spara einn til tvo klukkutíma
Lína Rut sér ekki eftir því að hafa
flutt suður með sjó. „Það var smá
kvíði í mér, sérstaklega þegar ég
heyrði í fólkinu í kringum mig í bæn-
um. Fór að hugsa hvort það vissi
eitthvað sem ég ekki áttaði mig á.
Það var svo hissa á að við skyldum
vera að flytja hingað. En þetta hefur
reynst framar mínum vonum og við
erum mjög ánægð með lífið hér. Ég
hef búið í stórborgum erlendis og
finnst ég vera í úthverfi Reykjavík-
ur. Þetta eru engar vegalengdir og
leiðin verður enn greiðfærari þegar
búið verður að tvöfalda Reykjanes-
brautina alla leið.“
Hún bætir því við að þessi daglega
vinna, að koma börnum í og úr
grunnskóla og leikskóla, sé miklu
auðveldari og taki minni tíma en í
bænum. „Hér er svo stutt í allt. Ég
fæ einn til tvo klukkutíma aukalega
alla virka daga vikunnar sem ég get
notað til að vinna eða vera með fjöl-
skyldunni. Ég losna við ókosti þess
að búa í höfuðborginni en nýt áfram
kosta hennar með því að búa í ná-
grenninu og geta sótt allt þangað
sem ég þarf á að halda.“
Lína Rut og Gunnar Már hafa fest
kaup á húsi í nágrenni Keflavíkur-
hafnar til að koma upp vinnustofu
fyrir Línu Rut og ef til vill fleiri
listamenn. Lína Rut segir að það sé
einn af stóru kostunum við að flytja
út úr Reykjavík að fá loksins góða
vinnuaðstöðu. „Húsnæði er svo dýrt
í Reykjavík að ég hef verið að kúldr-
ast í allskonar aðstöðu, oft lélegri.
Það er kominn tími til að njóta þess
til fulls að fara í vinnuna,“ segir hún
og bætir því við að þetta sé svipuð
þróun og í mörgum stórborgum er-
lendis. Listamenn flytji út á jaðarinn
til að geta haft betri vinnuaðstöðu.
Lína Rut er þessi árin að vinna
myndir fyrir sýningu sem henni hef-
ur verið boðið að halda í Amsterdam
í Hollandi. Boðið kom í kjölfar sýn-
ingarinnar Kynjakettir sem hún hélt
í Pakhuis Vilhelmina fyrir ári. Sýn-
ingarsalurinn heitir Artitls – gallery
shop og er í Westergasfabriek sem
er með stærstu ef ekki stærsta lista-
miðstöð í Evrópu. Reiknar Lína Rut
með að sýningin verði haldin innan
tveggja ára. Hún segist vera að
vinna að ýmsum fleiri skemmti-
legum verkefnum.
Þau Gunnar Már fá húsnæðið við
höfnina afhent nú um mánaðamótin
og eru byrjuð að undirbúa breyt-
ingar. Húsið er 250 fermetrar að
stærð, með sjö metra lofthæð. „Mig
langar að útbúa fallega vinnuaðstöðu
ásamt skemmtilegri kaffistofu
fremst í rýminu þar sem er útsýni út
á sjóinn. Listamenn vinna mikið
hver í sínu horni. Það er upplagt að
hittast í kaffistofunni til að spjalla
saman.“ Þau telja sig geta útbúið
vinnustofur fyrir allt að sex lista-
menn og hyggjast leigja þær út. „Og
ef áhugi er á því er hugmyndin að
fólkið geti jafnframt notið aðstoðar
minnar. Ég myndi þá koma á
ákveðnum tíma, til dæmis einu sinni
í mánuði,“ segir Lína Rut.
Mikill áhugi er á myndlist í
Reykjanesbæ og þar er fjöldi áhuga-
fólks að vinna við myndlist. Lína Rut
segist þekkja það af eigin raun hvað
það geti verið erfitt að vinna alltaf
ein og mikilvægt að geta farið í
smiðju til fagmanns. Þetta gæti orð-
ið til að efla myndlistarfólkið, það
sem teldi sig þurfa á leiðbeiningum
að halda. Þau eru byrjuð að kynna
þessar hugmyndir og segist Lína
Rut hafa fengið góðar undirtektir.
Tveir til þrír hafi sýnt mikinn áhuga
á að nýta þessa aðstöðu.
Til að hvíla sig frá myndlistinni
Mögulegt verður að halda sýn-
ingar í kaffistofu vinnustofunnar og
hyggst Lína Rut nýta sér þann
möguleika í framtíðinni.
„Það verður skemmtilegt fyrir
mig ef þessar hugmyndir ganga eft-
ir. Ég hef í mörg ár verið að leita
leiða til að gera eitthvað með mynd-
listinni, til að hvíla mig frá eigin
sköpun og endurnýja hugsanir mín-
ar. Ég hef hugsað mér að vera með
námskeið, kannski einu sinni eða
tvisvar á ári. Ég ætla líka að reka
þarna förðunarskóla.“
Lína Rut lærði förðunarfræði og
stofnaði fyrsta förðunarskólann á Ís-
landi, áður en hún sneri sér að list-
námi og vinnu. „Mig langar stundum
að tengjast förðuninni, en aðeins
stöku sinnum. Vinnustofan verður
sett þannig upp að ég get breytt
henni með lítilli fyrirhöfn og kennt
förðun. Þannig get ég sinnt þessu
áhugamáli, þegar hugurinn girnist,
án þess að leigja sérstakt húsnæði til
þess,“ segir Lína Rut Wilberg.
Listamaðurinn Lína Rut kemur sér upp vinnustofu og hyggst leigja öðrum aðstöðu með ráðgjöf
Lífið er einfaldara utan borgarinnar
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
TENGLAR
..............................................
www.linarut.is
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Málverk Lína Rut Wilberg við mynd sem hún er að ljúka við þessa dagana, í bráðabirgðavinnustofunni í Njarðvík.
Minnt er á fund í Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri
miðvikudaginn 7. desember nk. kl. 20:00 í Kaupangi v/Mýrarveg.
Fyrir fundinum liggur að taka ákvörðun um aðferð við val á
framboðslista flokksins vegna bæjarstjórnarkosninga sem fram eiga
að þann 27. maí 2006.
Dagskrá:
1. Tillaga um aðferð við val á framboðsboðslista Sjálfstæðisflokksins
á Akureyri vegna bæjarstjórnarkosningar þann 27. maí nk.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Fulltrúðaráð
sjálfstæðisfélaganna
á Akureyri