Morgunblaðið - 06.12.2005, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2005 33
UMRÆÐAN
„ELSKA skaltu náunga þinn eins
og sjálfan þig og breyttu við aðra
eins og þú vilt að aðrir breyti við
þig,“ finnst mér vera
inntakið í kristilegum
siðaboðskap.
Orðið bókstafs-
trúarmaður hefur und-
anfarið verið notað í
neikvæðri merkingu
um ýmsa öfgamenn
Múhameðstrúar. En
nú geysast fram á rit-
völlinn kristnir bók-
stafstrúarmenn ís-
lenskir og lýsa
hneykslun sinni yfir
því að nokkrum skuli
detta í hug að vígja
sambúð samkynhneigðra. Ég trúi
því að Kristur hafi verið til og er viss
um að hann hefði skoðað þetta mál
af skilningi.
Ég lít á Biblíuna sem mannanna
verk. Ef Guð er faðir alls sem er,
hlýtur hann einnig í þeim skilningi
að vera faðir Jesú. Ég trúi ekki að
Guð almáttugur hafi fíflað heitkonu
Jósefs og held að þar hafi guð-
spjallamennirnir farið offari. Hvort
Heilagur andi hafi gert það, eins og
stendur í trúarjátningunni, treysti
ég mér ekki til að fullyrða um, enda
veit ég engin deili á þeim kauða.
Sá Guð sem ég kýs að trúa á hefði
aldrei látið son sinn
saklausan líða til að
friðþægja fyrir syndir
mannanna.
Um eitt get ég verið
sammála mörgum sem
hneykslast, að það er
alfarið kirkjunnar að
taka ákvörðun í þessu
máli.
Ég held að kirkjan
ætti í leiðinni að endur-
skoða trúarjátninguna,
sem þulin er í hverri
messu, svo að allir
meðlimir þjóðkirkj-
unnar geti farið með hana án þess að
fá klígju.
Ég þekki ekki heilagan anda, sem
er tvisvar nefndur í trúarjátning-
unni. Ef ég trúi á fyrirgefningu
syndanna, þá veit ég ekki til hvers
Kristur á að koma og dæma lifendur
og dauða. Ég hef ekki græna glóru
um hvað samfélag heilagra þýðir, en
finnst það bera með sér einhvers
konar lítilsvirðingu á þeim, sem ekki
eru heilagir. Ég þekki hvorki Hel né
Himnaríkið þar sem Jesús Kristur
situr við hægri hönd Guðs föður al-
máttugs (eru örvhentir óæðri af því
að þeir eru færri?).
Samkynhneigðum er það áskapað
að elska sitt eigið kyn, það er þeirra
eðli. Þeir hafa ekki það sem við hin
köllum eðlilega kynhneigð, en sam-
bönd þeirra byggjast á kærleika
ekki síður en sambönd gagnkyn-
hneigðra. Óski einhverjir samkyn-
hneigðir að láta vígja samband sitt í
kirkju þá eru þeir að minnsta kosti
trúaðri en ég.
Elska skaltu náunga þinn
Þórhallur Hróðmarsson
fjallar um kristna trú og
samkynhneigð ’Óski einhverjir sam-kynhneigðir að láta
vígja samband sitt í
kirkju þá eru þeir að
minnsta kosti trúaðri en
ég.‘
Þórhallur Hróðmarsson
Höfundur er framhaldsskólakennari
á eftirlaunum.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
ÉG ÞARFNAST aðstoðar fé-
lagskerfisins vegna MND sjúk-
dóms. Ekki mjög mikils stuðnings í
dag en gæti þurft á þjónustu allan
sólarhringinn, alla daga þegar á líð-
ur.
Þegar sú staða kemur upp hjá
fjölskyldu er eins gott að búa í bæj-
arfélagi sem sýnir metnað sinn í
þjónustu við þá sem minna mega
sín. Ég hef stundum velt því fyrir
mér hvernig „ör“-sveitarfélög um
landið mundu bregðast við svona
þörf. Útsvar nokkura tuga manna
munu duga skammt. Ætli íbúar
smærri sveitarfélaga hafi hugsað
um þetta þegar sameiningar víðast
á landinu voru felldar um daginn?
Mikilvægt er að okkar frábæru,
einstöku bæjarfélög séu sterkar
einingar. Af þessari ástæðu kaus ég
með sameiningu síðast. Ekki að ég
telji eininguna sem við búum í,
Hafnarfjörð, of litla. Ég er svo lán-
samur að búa í sterku samfélagi
þar sem íbúar og yfirvöld hugsa vel
um sína og geta það.
Við skulum hugsa lengra en nef
okkar nær þegar við teljum bæinn
eða sveitina okkar hinn eina full-
komna stað. Sjúkdómar eins og
MND fara yfir bæjarmörk og eng-
inn veit hver er næstur. Áður en við
höldum í kjörklefann næst skulum
við horfa í augu barna og eða
barnabarna okkar og hugsa um þá
þjónustu sem við viljum að þau
njóti, komi eitthvað fyrir.
Við erum lánsöm Íslendingar, bú-
um í frábæru landi, en þurfum að
hafa vit á að nýta öll tækifærin sem
eru til staðar.
GUÐJÓN SIGURÐSSON,
formaður MND félagsins,
Berjavöllum 2, Hafnarfirði.
Að búa í frábæru
bæjarfélagi!
Frá Guðjóni Sigurðssyni:
ÉG MÁ til með að leiðrétta missögn
ríkisútvarpsins sem afbakar nafn
þjóðkunns manns, Lúðvíks Guð-
mundssonar, skólastjóra Hand-
íðaskólans. Lúðvík lét mjög að sér
kveða í þjóðmálum Íslendinga og á
það skilið að nafni hans sé haldið á
loft óbjöguðu. Hann var þjóðkunnur
fyrir stjórn sína á Handíða- og
myndlistarskólanum, einnig sem
bjargvættur Íslendinga, sem voru
úrræðalausir í Þýskalandi við stríðs-
lok. Viðar B. Eggertsson leikari,
sem er athafnasamur útvarpsmaður
og flytur marga lofsverða þætti, má
gæta sín á framburði nafna. Hann
kallar Lúðvík jafnan „Lúdwig“. Rík-
isútvarpið verður að vanda fram-
burð sinn.
PÉTUR PÉTURSSON,
þulur.
Framburður
í Ríkisútvarpi
Frá Pétri Péturssyni:
ÞAÐ VAR merkileg umræða í sjón-
varpi á dögunum með sr. Hirti
Magna Jóhannssyni og Jóni Vali
Jenssyni guðfræðingi. Þar var rætt
m.a. hvort lögskylda ætti trúfélög
til þess að gefa saman samkyn-
hneigð pör í staðfesta samvist eður
ei. Sömuleiðis var tekin póllinn á
guðfræðinni þar um hvort slíkur
gerningur væri eftir „heimild að of-
an“ eins og sr. Guðmundur Karl
Brynjarsson orðaði það svo
skemmtilega eigi alls fyrir löngu.
Guðfræðileg rök
Reynt var að finna við umræðurnar
hvort fyrir slíkum gerningi lægju
einhver þau guðfræðilegu rök sem
dygðu til þess að renna stoðum
undir þá kröfu að kristnir söfnuðir
framkvæmdu slíkan lagagerning og
hvort hann væri þá í takt við kenni-
setningar kristninnar og grundvöll
trúarinnar. Fram kom í máli sr.
Hjartar að hann væri búinn að
leggja mikla guðfræðilega rann-
sókn í þetta álitaefni og ekkert væri
því til fyrirstöðu að gefa mætti
hverja sem er, óháð kynferði, sam-
an í hjónaband með kirkjulegri
vígslu. Þessu var Jón Valur ósam-
mála og reyndi ítrekað að koma
fram guðfræðilegum rökum sínum í
umræðuna. En í hvert sinn sem
hann reyndi það greip fríkirkju-
presturinn fram í fyrir honum og
fór mikinn. Jón Valur sýndi af sér
mikla stillingu við þessum ákafa sr.
Hjartar, sem virtist ekki ætla að
leyfa neinum rökum að koma fram
sem ekki væru á hans línu.
Hógværð og lítillæti
Sr. Hjörtur hefur ekki tileinkað sér
ráðleggingu Drottins sem Hann
kenndi okkur: „Lærið af mér, því
að ég er hógvær og af hjarta lít-
illátur, og þá munuð þér finna hvíld
sálum yðar.“ Hefði sérann hagað
sér í samræmi við þetta og þar með
sýnt andmælanda sínum háttprýði,
þá hefðu áheyrendur fengið að
heyra færð fram guðfræðileg rök
Jóns. Maður rennir reyndar í grun
með margan prestinn, að skorti
nokkuð á hógværðina og lítillætið.
Kemur það vart nokkrum á óvart
þótt nefnd séu nöfn í þessu sam-
bandi eins og til dæmis sr. Örn
Bárður Jónsson og sr. Bjarni
Karlsson svo aðeins tveir séu
nefndir. Aðra sem ég nefni ekki
sérstaklega á nafn verð ég biðja um
að fyrirgefa mér það eins og Frels-
arinn gerir svo fúslega með yf-
irsjónir okkar.
Eftirlýst
Flestir kirkjunnar menn sem ég
hefi rætt þessi málefni við hafa ver-
ið á öndverðri skoðun við sr. Hjört.
Í ljósi þessa þá er lýst eftir hinni
viðamiklu guðfræðilegu rannsókn
sem sr. Hjörtur kvaðst vera búinn
að gera í þessu máli. Best væri að
hann birti rannsóknina alla á
heimasíðu fríkirkjunnar www.fri-
kirkjan.is en helstu niðurstöður og
tilvísanir á síðum Morgunblaðsins
svo að einnig þeir sem ekki eru í
tölvusambandi fái notið niðurstöðu
sr. Hjartar. Jón Valur hefur ritað
um þetta á þessum síðum og mun
vera einnig aðgengilegt nokkurt
efni þessu tengt á vefsíðu hans
www.kirkja.net. Sömuleiðis væri
gott að fá frá honum samantekt í
Morgunblaðsgrein.
ÞORSTEINN
HALLDÓRSSON,
Hlíðarhjalla 6, Kópavogi.
Kristileg vígsla
eða …?
Frá Þorsteini Halldórssyni:
Á HVERJUM degi eru framdir
glæpir sem aldrei eru kærðir og
aldrei er refsað fyrir. Ofbeldi gegn
konum er landlægt hér á landi sem
annars staðar og er ein
versta birtingamynd
kynjamisréttis. Andleg
kúgun, líkamlegt og
kynferðislegt ofbeldi
gagnvart konum inni á
heimilum, misnotkun á
börnum, vændi, man-
sal og kynferðisleg
áreitni eru meðal
þeirra glæpa sem rétt-
arkerfið nær ekki utan
um. Glæpirnir þrífast í
skjóli skammar og
veikleika kerfisins til
að takast á við þá. Að-
eins brot af þeim konum sem leita
til Kvennaathvarfs, Neyðarmóttöku
vegna nauðgunar og Stígamóta
kærir, enn færri tilvik eru ákærð og
dómar falla í sárafáum málum.
Vissulega eru þessi mál erfið við-
fangs þar sem glæpirnir eru oft
framdir innan fjölskyldna en áskor-
unin til að ná fram réttlæti er þeim
mun meiri. Reyndar er það skylda
samfélagsins að beita öllum tækjum
sem við búum yfir til að grafa upp
og undan kynbundnu ofbeldi. Afsak-
anir eins og þær að konur vilji ekki
kæra eru einfaldlega ekki marktæk-
ar. Við þurfum að spyrja okkur
hvort þeim sé gefinn raunverulegur
kostur á að sækja rétt sinn.
Ástæður þess að konur kæra ekki
ofbeldi sem þær eru beittar eru
margvíslegar: Konur treysta sér
ekki í gegnum kæruferlið, málin eru
fyrnd, þær eru jafnvel hræddar um
hefndaraðgerðir, kon-
ur treysta því ekki að
þeim verði trúað eða að
réttlætið nái fram að
ganga. Verkefnin sem
að samfélaginu snúa
eru að skoða og breyta
kæruferlinu og við-
horfunum. Við höfum
því miður nærtæk
dæmi þar sem ofbeldis-
mál gagnvart konum
eru ekki sett í forgang
við rannsókn mála.
Konur eru jafnvel latt-
ar til að kæra eða að
halda kærum til streitu. Mál taka
allt of langan tíma í kerfinu og síð-
ast en ekki síst hafa fallið dómar þar
sem ábyrgðinni á glæpnum er að
hluta til varpað yfir á konur. Hvern-
ig ýtir þetta undir það að konur
sæki rétt sinn?
Það réttarfar og þær vinnureglur
sem viðhafðar eru í dag hafa verið
við lýði í áratugi. Umræðan um kyn-
bundið ofbeldi er því miður ekki sér-
lega gömul þó að fyrirbærið sé jafn
gamalt kynjamisrétti. Þegar leik-
reglurnar voru smíðaðar komu kon-
ur þar hvergi nærri og gátu ekki
miðlað af reynslu sinni og þekkingu.
Kerfið var búið til af körlum, og því
miður, fyrir karla. Þessu þarf að
breyta og tryggja að konur búi við
öryggi og réttarvernd. Mikilvæg
skref í þá átt hafa verið stigin á
þessu ári með lagabreytingum og
bættum vinnureglum en betur má ef
duga skal.
Nú stendur sem hæst 16 daga
átak gegn kynbundnu ofbeldi. Alls
25 samtök og stofnanir standa að
átakinu sem sýnir áhugann og þekk-
inguna sem til staðar er til breyt-
inga. Til að vekja athygli á vanbún-
aði kerfisins til að taka á kynbundnu
ofbeldi, munu þau sem standa að 16
daga átakinu setja plástra á alla
héraðsdómstóla landsins og bjóða
almenningi að taka þátt í gjörn-
ingnum. Fólk er hvatt til að mæta
við þann héraðsdómstól sem næstur
er klukkan 17:00 í dag og plástra
kerfið svo það megi ná heilsu til að
tryggja öryggi og rétt kvenna og
barna.
Plástrum réttarkerfið
Eftir Drífu Snædal ’Fólk er hvatt til aðmæta við þann héraðs-
dómstól sem næstur er
klukkan 17:00 í dag og
plástra kerfið…‘
Drífa Snædal
Höfundur er fræðslu- og
framkvæmdastýra Samtaka
um kvennaathvarf.
STAKSTEINAR, daglegur
pistill í Morgunblaðinu, hefur það
sér til ágætis svo sem margítrek-
að er að vera skrifaður undir
nafni – nafni Morgunblaðsins.
Nýlega birtist þar grein sem
fjallaði meðal annars um vinafæð
Ingibjargar Sólrúnar, formanns
Samfylkingarinnar, sem birtist
samkvæmt mati blaðsins í fátæk-
legum skrifum í kjölfar meints
fylgishruns flokksins frá því
Ingibjörg var kosin formaður.
Blaðinu þykir það eftirtektarvert
að sá eini sem kemur henni til
varnar er gamall últrakommi,
sem hefur að vísu mildast með
árunum, samkvæmt mati blaðs-
ins. Í sjálfu sér er það með betri
meðmælum sem hægt er að gefa
hverjum sem er að hann eða hún
hafi verið últrakommi. Fyrrver-
andi kanslari Þýskalands á að
hafa sagt eitthvað á þá leið að
ungur maður sem er kommi sé
hjartahlý manneskja, miðaldra
kommi sé hins vegar asni. Ég vil
fúslega skipa mér í sveit með
Gísla sem stuðningsmaður for-
manns Samfylkingarinnar.
Stjórnmál kunna samkvæmt
kokkabókum Morgunblaðsins að
snúast um næstum daglegar vin-
sældakosningar. Ef þú eða þinn
flokkur tapar fylgi ber að skipta
um forystu, stefnu, áherslur eða
auglýsingastofu. Góður kratismi
sem á sér rætur í frumkristni, í
önn um velferð náungans, velferð
hans og hamingju er að mun eldri
en nýgamlar kenningar um
vonsku kommúnismans. Ef horft
er á viðleitni blaðs allra lands-
manna til að styðja útslitna
stjórn Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins læðist að
manni sá grunur að á ferðinni sé
þórðargleði. Mér er í rauninni
sama um fylgi Samfylkingarinnar
frá degi til dags í vinsældakapp-
hlaupi sem stjórnað er að hluta af
ofvöxnum fréttaflutningi ofur-
frjálsra fjölmiðla. Ég er hins veg-
ar á því að kjör Ingibjargar hafi
verið það besta sem hent gat
sósíaldemókrata á Íslandi. Ef
Morgunblaðinu er einhver fróun í
því, þá er ég líka kaþólikki án
þess þó að fylgja páfanum að
málum í öllu.
Kristófer Már Kristinsson
Til liðs við Gísla
Höfundur stundar nám
við Háskóla Íslands.