Morgunblaðið - 06.12.2005, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2005 41
DAGBÓK
Skugga-Sveinn eftir Matthías Jochumssonverður jólaleikrit Útvarpsleikhúss Rík-isútvarpsins í ár, en verkið hefur veriðnokkurs konar þjóðarleikrit Íslendinga
frá því að það var frumsýnt árið 1862 undir heit-
inu Útilegumennirnir. Margir söngvar úr leikrit-
inu hafa ennfremur orðið vinsælir og verið mikið
sungnir, svo sem Geng ég fram á gnípu og Látum
af hárri heiðarbrún.
Hins vegar hefur þótt skorta á góðar upptökur
af söngvunum og meðal annars þess vegna var sú
ákvörðun tekin að Skugga-Sveinn skyldi vera
jólaleikrit Ríkisútvarpsins 2005, með sérstakri
áherslu á tónlistina. Leikritið verður flutt kl. 13.00
á jóladag, en kl. 13.00 á aðfangadag verður Una
Margrét Jónsdóttir með þátt um tónlistina í
Skugga-Sveini.
„Í þessari uppfærslu eru að mestu leyti notuð
gömlu lögin, en líka tvö lög eftir Þórarin Guð-
mundsson, samin upp úr 1920, og nokkur lög eftir
Karl O. Runólfsson, samin 1935 og 1960. Einnig
verða fluttir Forleikur og Draugadans eftir Karl,
sem ekki hafa áður verið hljóðritaðir svo vitað sé,“
segir Una Margrét.
Margir telja að gömlu lögin í Skugga-Sveini séu
öll dönsk og tekin úr danska leikritinu Álfhól. Er
það rétt?
„Það er misskilningur, aðeins tvö lög eru tekin
úr Álfhól, en hin eru úr ýmsum áttum; dönsk,
norsk og þýsk lög, og einnig íslensk þjóðlög. Það
hefur kostað þónokkrar rannsóknir að grafast
fyrir um uppruna sumra laganna, t.d. fengust
upplýsingar um lagið Býsna marga hildi háð hjá
Þýsku þjóðlagastofnuninni í Freiburg, og eftir
bréfaskriftir á netinu komst ég í samband við
danskan sérfræðing um tónskáldið Lumbye, sem
veitti mér upplýsingar um lagið Hjarta, því
slærðu.
Einnig hefur nú verið hljóðritað lagið Mér er
svo kalt sem var í elstu gerð Útilegumannanna, en
var síðar fellt burt, og hefur aldrei áður verið
hljóðritað. Það var sænskt lag, en þótt það væri
fellt burt úr leikritinu lifði það áfram með þjóðinni
og tók sérkennilegum breytingum. Í þætti mínum
verður lagið sungið í sinni upprunalegu mynd og
einnig með breytingunum.“
Hverjir koma að gerð tónlistarinnar í Skugga-
Sveini að þessu sinni?
„Viðar Eggertsson leikstýrir verkinu, en Þórð-
ur Magnússon útsetur tónlistina og stjórnar
hljómsveitinni. Sverrir Guðjónsson hefur æft söng
með leikurunum en í aðalhlutverkum eru Jóhann
Sigurðarson sem leikur Skugga-Svein, Björgvin
Franz Gíslason sem leikur Harald og Vigdís
Hrefna Pálsdóttir sem leikur Ástu í Dal.“
Ríkisútvarpið | Skugga-Sveinn er jólaleikrit RÚV með sérstakri áherslu á tónlistina
Margir söngvanna orðið vinsælir
Una Margrét Jóns-
dóttir er fædd í Reykja-
vík 14. júní 1966. Hún
stundaði söngnám við
Söngskólann í Reykja-
vík frá hausti 1983 til
vors 1987. Tók BA-próf
í frönsku frá Háskóla
Íslands haustið 1990
og byrjaði sama ár að
vinna sem dag-
skrárgerðarmaður á
Tónlistardeild Rík-
isútvarpsins. Hún hefur unnið þar síðan, með
hálfs árs hléi 1992 þegar hún lagði stund á
tónlistarnám í París.
Una Margrét er gift Hólmsteini Eiði Hólm-
steinssyni sem vinnur á Barna- og unglinga-
geðdeild Landspítalans. Þau eru barnlaus.
Sammála Víkverja
ÉG ER hjartanlega sammála Vík-
verja þar sem hann skrifar sl.
fimmtudag um umferðina á höf-
uðborgarsvæðinu. Segir Víkverji í
pistli sínum að þessar umferð-
arteppur á höfuðborgarsvæðinu séu
smámunir samanborið við umferð-
arteppur erlendis.
Fólk t.d. frá Hafnarfirði þarf að
sitja í löngum bílalestum og upplifði
ég þetta þegar ég flutti til Hafn-
arfjarðar, en nú fer ég aðeins fyrr af
stað og kem á réttum tíma í vinnuna.
Íslendingar virðast alltaf leggja af
stað á síðustu stundu og allir leggja
af stað á sama tíma og því myndast
umferðarteppur. En það er hægt að
hagræða þessu. Þeim mun meira
sem er gert af götum því meira fjölg-
ar bílunum.
Helga.
Af hverju ekki veggjakrot?
MÉR finnst alveg fáránlegt að borg-
in sé að eyða fullt af peningum í að
fjarlægja allt veggjakrot í Reykja-
vík. Hægt væri að nota peninginn í
eitthvað mikilvægara eins og til
dæmis að hækka upphæðina sem
skólarnir fá en ekki lækka hana og
lækka. Í Austurbæjarskóla mega
nemendur til dæmis ekki henda rusli
og verða því að taka það með sér
heim. Mér finnst bara flott að hafa
allt þetta veggjakrot, það lífgar bara
upp á borgina.
Grunnskólanemi í Reykjavík.
Plötur með Ellu Fitzgerald
ÉG undirritaður vil koma því hér
með á framfæri að mig vantar í safn-
ið mitt Melódíur minninganna, 78
snúninga plötu með Ellu Fitzgerald.
Hún þarf ekki að vera í nothæfu
standi.
Þeir sem gætu liðsinnt mér vin-
samlega hafið samband við undirrit-
aðan:
Með fyrir fram þökk.
Jón Kr. Ólafsson,
söngvari,
Reynimel, Bíldudal.
Sími 456 2186.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Torfason
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
80 ÁRA afmæli. Heiða í Auðsholti(Ragnheiður Guðmundsdóttir)
verður 80 ára fimmtudaginn 8. desem-
ber. Af því tilefni verður hún með opið
hús föstudaginn 9. desember milli
klukkan 18 og 22 í sal Karlakórs Sel-
foss að Gagnheiði 40, Selfossi (gengið
inn frá Eyrarvegi). Ættingjar og vinir
velkomnir.
80 ÁRA afmæli. Í dag, 6. desem-ber, er áttræð Svanfríður K.
Benediktsdóttir frá Hnífsdal, Arahól-
um 2, Reykjavík. Svanfríður dvelst á
sjúkrastofnun í Reykjavík um þessar
mundir.
Tæknilega rétt.
Norður
♠ÁKD2
♥1043 A/AV
♦ÁKD7
♣108
Vestur Austur
♠63 ♠G4
♥K976 ♥G5
♦G1085 ♦64
♣954 ♣KDG7632
Suður
♠109875
♥ÁD82
♦932
♣Á
Suður verður sagnhafi í sex spöðum
eftir opnun austurs á þremur laufum.
Hvernig á að spila með laufi út?
Í kvöld fer fram önnur lotan af
þremur í hinum vinsæla Kauphallartví-
menningi Bridsfélags Reykjavíkur.
Andstætt hefðbundnum tvímenningi,
er árangur para veginn í IMP-stigum
eins og í sveitakeppni og því veltur
mikið á því að koma vel út úr „stóru
spilunum“.
Að ofan má sjá eitt af stóru spilum
fyrstu lotunnar. Sex spaðar er góður
kostur, en slemman var aðeins sögð á 5
borðum af 21. Og tveir sagnhafar töp-
uðu slemmunni, sem kemur spánskt
fyrir sjónir, því hjartagosinn fellur
annar í austur.
En – eins og Billy (Broadway) Ei-
senberg sagði eitt sinn eftir misheppn-
aða spilamennsku: „Right in theory,
wrong in practice.“ Í þessu tilfelli tap-
ast slemman með tæknilega besta
spilamennsku.
Sagnhafi tekur tvisvar tromp, sting-
ur lauf og spilar þremur efstu í tígli.
Skipting austurs teiknast upp og það
liggur fyrir að hann á tvíspil í hjarta.
Ef það eru tveir hundar, felst vinnings-
leiðin í því að trompa fjórða tígulinn og
spila litlu hjarta að tíunni. Þá er vestur
endaspilaður hafi hann byrjað með
KGxx. Þessi leið dugir líka ef austur á
Kx í hjarta, en ekki þegar austur á Gx
– sem var legan í reynd.
Við tökum því undir með Billy:
Tæknilega rétt, en rangt í reynd.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega hafið samband
á skrifstofutíma í síma 551 4349 eða á netfangið
maedur@simnet.is. Einnig er hægt að leggja framlög inn á
reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Dagana 5. og 6. des. er tekið á móti umsóknum
vegna jólaúthlutunar.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sólvallagötu 48.
ER ÞITT ATVINNUHÚSNÆÐI
Í SÖLU HJÁ FAGMÖNNUM?
VELDU EIGNAMIÐLUN
eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
MÖGULEIKHÚSIÐ hefur nú hafið
sýningar á barnaleikritinu Smiður
jólasveinanna eftir Pétur Eggerz
með tónlist eftir Ingva Þór Kor-
máksson.
Smiður jólasveinanna var fyrst
sýndur fyrir jólin 1992 og urðu sýn-
ingar á verkinu þá alls 52 talsins á
einum mánuði. Leikritið var síðan
gefið út á geisladiski fyrir jólin 1993.
Smiður jólasveinanna var tekið upp
að nýju á vegum Möguleikhússins
fyrir síðustu jól og var þá sýnt rúm-
lega þrjátíu sinnu í leik- og grunn-
skólum. Nú þegar eru sýningar á
verkinu nánast fullbókaðar til jóla,
en að vanda verður ferðast með sýn-
inguna milli leik- og grunnskóla til
jóla.
Í leikritinu segir frá Völundi
gamla sem situr einn í litla kofanum
sínum hátt uppi til fjalla. Völundur er
smiðurinn sem sér um að smíða allar
gjafirnar sem jólasveinarnir færa
börnunum á jólunum. Eftir að síð-
ustu sveinarnir eru farnir til byggða
er einmanalegt í kotinu. Þá birtast
óvæntir gestir, tröllabörnin Þusa og
Þrasi sem aldrei hafa heyrt talað um
jólin og sjálfur jólakötturinn sem er
hættur að fara til byggða. Völundur
tekur vel á móti þeim og saman rifja
þau upp söguna af fæðingu Jesú.
Þeim þykir sagan svo skemmtileg að
þau ákveða að leika hana saman.
Leikstjóri sýningarinnar er Pétur
Eggerz, sem einnig hannaði leik-
mynd ásamt Bjarna Ingvarssyni,
tónlist gerði Ingvi Þór Kormáksson
og búningahönnuður Helga Rún
Pálsdóttir. Leikarar eru Bjarni
Ingvarsson, sem leikur smiðinn Völ-
und, Ásta Sighvats Ólafsdóttir í hlut-
verki jólakattarins, Alda Arn-
ardóttir, sem tröllastelpan Þusa og
Pétur Eggerz, sem bregður sér í
hlutverk Kertasníkis og tröllastráks-
ins Þrasa.
Möguleikhúsið sýnir Smið
jólasveinanna á nýjan leik
Morgunblaðið/Jim Smart