Morgunblaðið - 06.12.2005, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 06.12.2005, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Maður þarf að leika hlutverk sín í lífinu til fullnustu, ekki síst foreldra, vina og maka. Þú getur staðið þig vel í hlut- verkinu, án þess að það skilgreini þig endanlega, líkt og frábær leikari. Naut (20. apríl - 20. maí)  Samfélagið virðist staðráðið í því að minna mann á hversu ungur eða gamall maður er. En maður getur farið mun lengra en takmarkanir aldurs segja fyr- ir um. Hann er bara tala, þegar upp er staðið. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Ábyrgð og samúð eru grundvallaratriði í starfi tvíburans í dag. Ef þú heldur hvort tveggja í heiðri nærðu árangri, sama hversu miklu áþreifanlegu þú skilar. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Það besta sem krabbinn getur gert varðandi veruleika sinn er að hrista hann duglega, jafnvel eyðileggja. Ímyndaðu þér lífið án vinnunnar, heim- ilisins og makans og þú færð nasasjón af því hvað skiptir þig máli. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ljónið gerir uppreisn gegn hvers kyns fyrirmælum, ekki síst þeim sem það gefur sjálft. Kannski finnst þér það sem þér er sagt að gera of smávægilegt fyrir þig en þú getur bjargað heiminum með því að vinna litlu hlutina af mikilli alúð. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Almannatengsl eru ekki bara fyrir stór- fyrirtæki og stórstjörnur. Þú þarft ekki síður á góðri umfjöllun að halda. Láttu taka af þér myndir, kauptu æðislegt bréfsefni og hresstu upp á nafnspjaldið. Það er kannski dýrt, en vel þess virði. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin er að ná nýjum hæðum í vel- gengni á peningasviðinu, en ekki komin alla leið. Haltu áfram að sýna aðhald. Hrútur leggur þér lið hvað það varðar. Ekki láta tilboð um lán á lágum vöxtum byrgja þér sýn. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Virðing er furðulegt fyrirbæri. Sumir virðast haldnir þeim misskilningi að það að vera stærri og valdameiri en aðrir kalli ósjálfrátt á virðingu, en þeg- ar öllu er á botninn hvolft uppsker maður hana fyrir lítilþægni og þjón- ustulund. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Hafðu sjálfan þig í hávegum. Smávegis dekur læknar jafnvel hið illvígasta sjálfsvorkunnarkast. Ástalíf þitt batnar gríðarlega með því einu að skipta um umhverfi. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ef hugmyndir væru peningar, væri steingeitin stórrík nú þegar. Beittu þinni víðfrægu staðfestu og fylgdu einni þeirra eftir. Eyddu að minnsta kosti klukkutíma í að hugsa. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vinur þinn ofleikur og ýkir en þér finnst það bara sjarmerandi. Sýndu sjálfum þér sams konar tilhliðr- unarsemi. Leyfðu þér að upplifa tilfinn- ingar þínar. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Fiskurinn heldur að ótilgreindir mekt- arbokkar séu ósnertanlegir, en þeir eru það reyndar ekki. Enginn á allt. Það vantar alltaf eitthvað. Ef þú beitir þér, kemur þér örugglega í hug leið til þess að hjálpa þeim áhrifamiklu til þess að yfirvinna tómleika. Stjörnuspá Holiday Mathis Tunglið er í vatnsbera og fer í fiskana seint í kvöld. Litbrigði tilfinninganna breytast eftir því sem líður á daginn. Í óeiginlegri merkingu byrjar maður að syngja eitt lag og endar á einhverju öðru. Miðbik dagsins á sína laglínu líka, ósam- stæða og torvelda, líkt og brjálaðan djass. Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 berja, 4 hörfar, 7 fylgifiskar, 8 ósvipað, 9 nóa, 11 vesælt, 13 drepa, 14 ryskingar, 15 mjúk, 17 klúryrði, 20 hryggur, 22 lestrarmerki, 23 tínir, 24 hrörna, 25 vafra. Lóðrétt | 1 jarðeign, 2 hittum, 3 hina, 4 tafl- mann, 5 klifrast, 6 valska, 10 hættulega, 12 verkfæri, 13 tjara, 15 bif- ar, 16 trjátegund, 18 skemma, 19 drepa, 20 að- eins, 21 útungun. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fagurgali, 8 léleg, 9 daður, 10 und, 11 sárar, 13 aurum, 15 sagga, 18 baggi, 21 púa, 22 draga, 23 nautn, 24 ósannindi. Lóðrétt: 2 aflar, 3 uggur, 4 gedda, 5 liður, 6 úlfs, 7 Fram, 12 arg, 14 una, 15 södd, 16 glans, 17 apann, 18 banni, 19 grund, 20 iðna.  Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Tónlist Hafnarfjarðarkirkja, Hásalir | Hinir árlegu aðventu- og jólatónleikar Kammerkórs Hafnarfjarðar verða í Hásölum í kvöld og annað kl. 20. Stjórnandi Kammerkórsins er Helgi Bragason. Þjóðleikhúskjallarinn | Stórsveit Reykja- víkur og Bogomil Font. Kl. 20.20. Salurinn | Kristinn Sigmundsson bassa- söngvari og Jónas Ingimundarson píanó- leikari flytja Svanasöng eftir Schubert. Kl. 20. Uppákomur Héraðsdómstóll Reykjavíkur | Til að vekja athygli á vanheilsu réttarkerfisins munu samtök og stofnanir í 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi setja plástra á héraðs- dóma landsins og bjóða almenningi að taka þátt í gjörningnum. Fólk mæti við þann hér- aðsdómstól sem næstur er kl. 17. desem- ber. Myndlist og söfn Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra- steinn er opinn alla daga nema mánudaga í vetur frá kl. 10–17. Vönduð hljóðleiðsögn, margmiðlunarsýning og gönguleiðir. www.gljufrasteinn.is Ráðhús Reykjavíkur | Helga Birgisdóttir – Gegga. Málverkasýning sem stendur til áramóta. Café Babalu | Claudia Mrugowski – Even if tomorrow is not granted, I plant my tree – á Skólavörðustíg 22a. (www.Mobileart.de) Artótek Grófarhúsi | Sýning á verkum Bjargar Þorsteinsdóttur til áramóta. Handverk og hönnun | Nú stendur sýn- ingin „Allir fá þá eitthvað fallegt“ yfir í Að- alstræti 12. Þetta er í sjöunda sinn sem Handverk og hönnun heldur jólasýningu á aðventunni. Þetta er sölusýning þar sem 39 aðilar sýna íslenskt handverk og list- iðnað úr fjölbreyttu hráefni. Sýningunni lýkur 20. des. Aðgangur ókeypis. Café Karólína | Jón Laxdal Halldórsson. Á sýningunni gefur að líta verk unnin að mestu upp úr ljóðum sem birst hafa í Les- bók Morgunblaðsins auk einnar eldhús- skúffu. Sýningin stendur til 6. janúar 2006. Ráin Keflavík | Erla Magna er með sýningu undir heitinu RÝMI á Ránni Keflavík. Stend- ur til 15. desember. Gallerí Sævars Karls | Sex myndlist- arkonur verða með samsýningu í desem- ber. Hrund Jóhannesdóttir, Hlaðgerður Íris Björnsdóttir, Kolbrá Bragadóttir, Kristín Helga Káradóttir, Margrét M. Norðdahl og Ólöf Björg Björnsdóttir. Þjóðmenningarhúsið | Kristnihátíð- arsjóður hefur opnað sýninguna Hin forna framtíð – Verkefni styrkt af Kristnihátíð- arsjóði 2001–2005 í bókasal Þjóðmenning- arhússins. Sjá má sýnishorn af árangri fornleifarannsókna og kynningu á tugum annarra rannsókna á menningar- og trú- ararfi þjóðarinnar. Þjóðmenningarhúsið | Handritin – saga handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja- safnið – svona var það, Fyrirheitna landið – fyrstu Vestur-Íslendingarnir; mormónar sem fluttust til Utah, Bókasalur – bók- minjasafn, Píputau, pjötlugangur og dig- gadaríum – aldarminning Lárusar Ingólfs- sonar og fleira. Veitingastofa, safnbúð. Aurum | Ásta Júlía Guðjónsdóttir, sýnir ljósmyndir sem tilheyra stærri seríu sem kallast Spor. Sýningin opnuð 4. des. kl. 11 og til 17. des. Opið er mán.–fös. kl. 10–18 og lau. kl. 11–16. Smekkleysa Plötubúð – Humar eða frægð | „Jólasýning Lóu og Hulla“ er myndlist- arsýning með jólaþema. Ekki hafa lista- mennirnir enn komist að niðurstöðu um hvers konar stefnu þau fylgja. Ný hugtök eins og „nastykitch“ og „tyggjógoth“ hafa fæðst meðal listamannana í ferlinu. Hér eru tveir myndasöguhöfundar af krútt- kynslóðinni að krota á veggi. Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Borg- arskjalasafn Reykjavíkur býður upp á ókeypis gamaldags jólakort til að senda á vefnum. Skoðaðu slóðina http:// www.rvk.is/jolakort. Þjóðskjalasafn Íslands | Á lestrarsal Þjóð- skjalasafns Íslands er sýning kl. 10–16 á skjölum sem snerta alþingishátíðina 1930 og undirbúning hennar, á skjölum um ágreining um uppsetningu styttunnar af Leifi heppna, sem Bandaríkjamenn gáfu Ís- lendingum í tilefni af afmælinu, auk gam- alla landkynningarbæklinga. Aurum | Davíð Örn Halldórsson sýnir myndir unnar með iðnaðarmálningu á trefjaplötur. Sýningin stendur yfir í tvær vikur. Aurum | Ásta Júlía Guðjónsdóttir, sýnir ljósmyndir til 17. des. 0pið er mán–fös. 10– 18 og lau. 11–16. Café Babalu | Claudia Mrugowski – Even if tomorrow is not granted, I plant my tree – á Skólavörðustíg 22a. (www.Mobileart.de). Gallerí BOX | Jón Sæmundur Auðarson sýnir verk sín. Til 18. des. Opið fim.–lau. frá 14–17. Gallerí I8 | Þór Vigfússon til 23. des. Gerðuberg | Eggert Magnússon til 9. jan. GUK+ | Hartmut Stockter til 16. janúar. Hafnarborg | Jón Laxdal til 31. des. Hallgrímskirkja | Kristín Gunnlaugsdóttir og Margrét Jónsdóttir til febrúarloka. Karólína Restaurant | Óli G. með sýn- inguna Týnda fiðrildið til loka apríl 2006. Kling og Bang gallerí | Örn J. Auðarson – Miðgarður – Blárauður – Afgirtur reitur. Opið fim–sun. kl. 14–18. Til 4. des. Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýning. Listasafnið á Akureyri | Helgi Þorgils Frið- jónsson til 23. des. Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist II – Um rými og frásögn. Sýning á verkum 13 ísl. samtímalistamanna. Til 12. febrúar 2006. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Bvernd Koberling til 22. janúar. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Guð- rún Vera Hjartardóttir til 30. des. Erró til 23. apríl. Listsafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Jó- hannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá fæð- ingu málarans. Til 19. mars. Listasmiðjan Þórsmörk, Neskaupstað | 10 listakonur frá Neskaupstað sýna á Egils- staðaflugvelli. Til jan. Listhús Ófeigs | Dýrfinna Torfadóttir, Rósa Helgadóttir, Þorbjörg Valdimarsdóttir til ársloka. Norræna húsið | Ósýnileiki: Jonas Wilén, Henrika Lax og Annukka Turakka til 18. des. Nýlistasafnið | Snorri Ásmundsson til 19. des. Ráðhús Reykjavíkur | Helga Birgisdóttir – Gegga. Málverkasýning sem stendur til áramóta. Safn | Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir, Krist- inn E. Hrafnsson – „Stöðug óvissa“, Jón Laxdal – „Tilraun um mann“. Opið: mið.– fös. 14–18, lau.–sun. 14–17. Til 11. des. Skaftfell | Rúna Þorkelsdóttir – „Postcards to Iceland“. Opið mán.–föst. 13–16, sun 15– 18. Suðsuðvestur | Þóra Sigurðardóttir og Anne Thorseth til 11. des. Þjóðarbókhlaðan | Brynjólfur Sveinsson til áramóta. Þrastalundur, Grímsnesi | Reynir Þor- grímsson til 15. des. 101 gallery | Jólasýning. Til 6. jan. Gallerí Yggdrasill | Tolli sýnir málverk. Til 25. jan. Gallerí húnoghún | Soffía Sæmundsdóttir Til 5. jan. Þjóðminjasafnið | Huldukonur í íslenskri myndlist í Bogasal, ljósmyndir Marco Pao- luzzo í Myndasal og ljósmyndir Péturs Thomsen í Myndasal. Fréttir og tilkynningar Happdrætti bókatíðinda | Númer dagsins 6. desember er 24160. Fyrirlestrar og fundir OA-samtökin | OA karladeild fundar á Tjarnargötu 20, Gula húsinu, kl. 21–22. OA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.