Fréttablaðið - 25.01.2003, Page 9
9LAUGARDAGUR 25. janúar 2003
Taktu Ford á
rekstrarleigu
Hafðu strax samband við ráðgjafa okkar og fáðu
nánari upplýsingar um hagstæðu rekstrarleigu
Brimborgar.
Hlutverk okkar hjá Brimborg er að bjóða einstak-
lingum og fyrirtækjum framúrskarandi þjónustu
fyrir heimsþekkt merki sem skara framúr:
Nú getur Brimborg boðið Ford Ranger 4x4 á
einstaklega hagstæðum rekstrarleigukjörum
fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Settu öryggi og þjónustu ofar öllu öðru. Vertu í
hópi með þeim sem vita hvað góð hönnun er
– vertu í Ford hópnum; leigðu nýjan bíl frá Ford.
Misstu ekki af tækifærinu. Komdu í Brimborg.
Lausnin er í Brimborg
– leigðu nýjan vinnuþjark frá Ford
Br imborg Reykjav ík s ími 515 7000 • Br imborg Akureyr i s ími 462 2700 • B í lav ík Reykjanesbæ s ími 421 7800 • br imborg. is
Aukabúnaður á mynd: Álfelgur og tvílitur
Smur- og þjónustuskoðanir eru
innifaldar í leigugreiðslu
Rekstrarleiga m.v. mánaðarlegar greiðslur í 36 mánuði og er háð
breytingum á gengi erlendra mynta og vöxtum þeirra.
Ford Ranger 4x4 frá kr. 36.922 án vsk.
miðað við vsk-útgáfu á mánuði í 36 mánuði.
Vertu
á ný
jum
„Við hjá SÍF höfum það að markmiði að ná sífellt
betri árangri í rekstri:
Við völdum þess vegna Ford Ranger
4x4 frá Brimborg til marvíslegra starfa.
Við lögðum upp með ákveðin atriði
sem viðmið á þarfir okkar.
Atvinnubílinn þurfti að vera:
• Fjórhjóladrifinn
• Með öfluga dísilvél
• Öruggur í rekstri og með lága bilanatíðni
• Vel hannaður og þægilegur fyrir starfsmenn
Þægileg og örugg þjónusta var auðvitað
skilyrði og Brimborg varð fyrir valinu.
SÍF velur Ford
B
R
IM
B
O
R
G
/
G
C
I I
C
E
LA
N
D
-
G
C
I E
R
H
LU
TI
A
F
G
R
E
Y
G
LO
B
A
L
G
R
O
U
P
Sigurður Jóhannsson
Skelfing í steypiflugi Flugleiða:
Hræðslan sat lengi í sumum farþegum
FLUGÖRYGGI Flugstjóri og aðstoðar-
flugmaður Flugleiðaþotunnar sem
lenti í steypifluginu við
Gardermoen-flugvöll fyrir rúmu ári
unnu ekki saman eins og þeir áttu
að gera samkvæmt starfsferlum.
Þetta er niðurstaða Rannsóknar-
nefndar flugslysa í Noregi.
Eftir röð mistaka greip aðstoðar-
flugmaðurinn loks í taumana og
hrópaði á flugstjórann að þeir ættu
að stefna vélinni upp á við. Með
samstilltu átaki tókst þeim að forða
vélinni frá brotlendingu á allra síð-
ustu stundu.
Flugstjórinn ræddi atburðinn við
áhöfn sína eftir atburðinn en er átal-
inn fyrir að hafa ekki ávarpað skelf-
ingu lostna farþega sína þegar vélin
var lent heilu og höldnu. Farþegarn-
ir hafi ýmist verið æpandi eða á
bæn á meðan á ósköpunum stóð.
Norska flugslysanefndin segir að
sumir þeirra hafi verið lengi að
vinna úr þessari lífsreynslu. Far-
þegarnir telji það vera vegna þess
að þeir fengu engar upplýsingar.
Lagt er til að Flugleiðir breyti
starfsaðferðum sínum með þetta í
huga. Það mun flugfélagið þegar
hafa gert. ■
Gallað bremsukerfi:
Innkalla
Citroën
NEYTENDUR Citroën hefur kallað inn
bíla af gerðinni C3 vegna raka-
myndunar í stjórntölvu ABS-kerfis-
ins.
Brimborg hf. segir sautján bíla
af þessari gerð vera hérlendis. Eig-
endur þeirra verði boðaðir með bíla
sína til skoðunar og fái bíl til afnota
á meðan.
Í fáeinum tilfellum erlendis mun
raki hafa komist í ABS-stjórntölv-
una og gert ABS-kerfið óvirkt. Al-
menna bremsukerfið er þó áfram
virkt. Engin bilun mun hafa komið
upp vegna þess á Íslandi þó raka-
myndunar hafi orðið vart í einum
bíl. Sá er í eigu Brimborgar. ■
ELDSVOÐINN FLÚINN
Heimamenn notuðu báta sína til að flýja
eldsvoðann sem braust út og eyddi stór-
um hluta sjávarþorpsins Navotas á Filipps-
eyjum.
Flýðu eldinn á bátum
sínum:
Hundruð
heimila
eyðilögðust
FILIPPSEYJAR, AP Þrír létust og
hundruð heimila eyðilögðust þeg-
ar mikill eldur kviknaði og
breiddist út í sjávarþorpinu
Navotas, norður af Manila á Fil-
ippseyjum.
Húsin í þorpinu eru byggð úr
alls konar léttum efnum sem
brenna auðveldlega. Það var því
mikill eldmatur fyrir hendi þegar
eldurinn kviknaði og hann breidd-
ist hratt út. Heimamenn réðu lítið
við eldinn og brugðu á það ráð að
flýja burt á bátum og skektum. ■
Háskólanemi drepinn:
Bræður
berjast
KALIFORNÍA, AP Átök milli tveggja
bræðrafélaga í háskóla í San Jose í
Kaliforníu enduðu með því að ungur
maður var stunginn til bana á 23 ára
afmælisdaginn sinn og fjórir særð-
ust. Hóparnir tveir höfðu hist í al-
menningsgarði í borginni síðla
kvölds til þess að útkljá deilumál
sem upp hafði komið nokkrum dög-
um áður. Fljótlega kom til harðra
átaka og voru margir háskólanem-
anna vopnaðir hnífum og bareflum.
Maður sem bjó í nágrenni við
garðinn hringdi á lögregluna þegar
hann varð slagsmálanna var en ungi
maðurinn hafði þegar verið stung-
inn þegar lögreglumenn bar að
garði. Hann lést á sjúkrahúsi síðar
um nóttina. Farið var með yfir 60
manns á lögreglustöðina til yfir-
heyrslu en að sögn háskólayfirvalda
er þetta í fyrsta sinn sem upp hafa
komið vandræði í tengslum við
þessi bræðrafélög. ■
Nýtt eftirlitskerfi:
Klingir
bjöllum
VIÐSKIPTI Kauphöll Íslands mun
fljótlega taka í notkun nýtt eftirlits-
kerfi með viðskiptum í kauphöll-
inni. Kerfið ber heitið SMARTS og
gerir kauphöllum kleift að fylgjast
með viðskiptum í rauntíma.
Inn í kerfið hafa verið forritaðar
bjöllur sem vekja athygli starfs-
manna Kauphallarinnar ef ein-
hverjar óvenjulegar hreyfingar
verða í viðskiptakerfinu. ■
FLUGLEIÐAÞOTA
Flugleiðir segjast þegar hafa breytt vinnu-
brögðum sínum varðandi upplýsingar til
farþega sem lenda í óvæntum aðstæðum.