Fréttablaðið - 25.01.2003, Page 12
Stærstur hópur fólks telur kjörsín svipuð nú og fyrir fjórum
árum samkvæmt könnun Frétta-
blaðsins. Af þeim sem tóku af-
stöðu sögðust 48,1% búa við svip-
uð kjör og fyrir fjórum árum.
27,3% töldu kjör sín hafa batnað
en 24,6% sögðu þau hafa versnað.
Á landsbyggðinni töldu fleiri kjör
sín verri nú en á höfuðborgar-
svæðinu. Alls töldu 23,7% lands-
byggðarfólks kjör sín hafa versn-
að meðan 18,3% íbúa höfuðborg-
arsvæðisins mátu stöðu sína
verri.
Mismunur er einnig í afstöðu
kynjanna til kjara sinna. 36,2%
karla telja hag sinn betri nú en
fyrir fjórum árum en 28% kvenna
eru sama sinnis. Hópurinn sem
telur kjör sín svipuð er álíka stór
hjá báðum kynjum. Munurinn er
1,5%. Tæpur fjórðungur kvenna
sem tóku afstöðu í könnuninni
taldi kjör sín hafa versnað meðan
rúm 16% karla upplifðu stöðu sína
sem verri nú en við upphaf núver-
andi kjörtímabils.
Sjálfstæðismenn
skera sig úr
Í könnuninni var stuðningur
við stjórnmálaflokka borinn sam-
an við viðhorf til kjara. Stuðn-
ingsmenn Sjálfstæðisflokksins
skera sig nokkuð úr hvað þetta
varðar. Tæp 50% stuðnings-
manna Sjálfstæðisflokksins telja
kjör sín betri nú en fyrir fjórum
árum. Hlutfall kjósenda sem
telja kjör sín betri er næsthæst
hjá stuðningsfólki Samfylkingar-
innar. Þar segjast 28% hafa það
betra.
Einungis rúm 10% kjósenda
Sjálfstæðisflokksins telja kjör
sín hafa versnað meðan hlutfall
stuðningsmanna annara flokka er
á bilinu 20 til 23%. Marktækni
þessara talna er þó minni eftir
því sem færri styðja flokk.
Þannig mælist stuðningur við
Frjálslynda flokkinn það lítill að
ekki er hægt að draga neinar
ályktanir af skiptingu viðhorfs
stuðningsmanna flokksins.
Mynstrið hjá þeim sem hafa
ekki gert upp hug sinn varðandi
kjör sín er ólíkt mynstrinu hjá
Sjálfstæðisflokknum. Sá hópur
raðast á svipaðan hátt og kjós-
endur Framsóknarflokks, Sam-
fylkingar og Vinstri grænna. Ef
dregin væri ályktun út frá þess-
ari forsendu einni er líklegra að
sá hópur dreifist frekar á aðra
flokka en Sjálfstæðiflokkinn.
Samkvæmt því væri verkefni
flokksins fyrir kosningar að
sannfæra fleiri um að þeir hefðu
það betra.
Kaupmátturinn óx
Hagtölur sýna að kjör hafa
farið batnandi á undanförnum
árum. Kaupmáttur launa hefur
hækkað á kjörtímabilinu. Skuldir
heimila sem hlutfall af ráðstöfun-
artekjum hafa hins vegar hækk-
að. Greiðslubyrði af skuldum hef-
ur áhrif á ráðstöfunartekjur
fólks. Ari Edwald, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins,
segir tölur einnig sýna að launa-
munur hafi farið minnkandi á
tímabilinu.
„Við vitum það að kaupmáttur
hefur verið að aukast,“ segir
Ólafur Darri Andrason, hagfræð-
ingur hjá Alþýðusambandi Ís-
lands. Hann bendir á að það sé
mismikið eftir hópum. Kaupmátt-
ur lægstu launa hefur aukist mest
og laun opinberra starfsmanna
hafa hækkað meira en laun á al-
mennum vinnumarkaði. „Ég geri
ráð fyrir því að viðhorfin litist
einnig af framtíðarhorfum. Við
vitum að atvinnuástand er óvenju
slæmt núna og það spilar örugg-
lega inn í viðhorf þeirra sem telja
sig búa við verri kjör nú en fyrir
fjórum árum.
Kaupmátturinn hefur vaxið
meira og minna allt kjörtímabilið
fyrir utan þegar verðbólgan fór
hæst. Þá hélt launaþróun rétt í við
hækkun neysluverðsvísitölunnar.
Ólafur býst við því að við sjáum
töluverða kaupmáttaraukningu á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs.
Hækkun launa um áramót og lág
verðbólga muni skila launafólki
auknum kaupmætti. „Á móti kem-
ur að verið er að hækka ýmis
gjöld hjá því opinbera.“
Ari Edwald segir huglægt mat
fólks á eigin kjörum ekki alltaf
byggjast á útreikningum. Hann
segir allar tölur sýna að kjör alls
þorra fólks hafi farið batnandi á
síðustu fjórum árum. Launabilið
hafi farið minnkandi og kaup-
máttur hafi alls staðar aukist.
haflidi@frettabladid.is
12 25. janúar 2003 LAUGARDAGUR
BREYTING
LAUNAVÍSITÖLUNNAR
1999 184,0
2000 198,0
2001 217,0
2002 228,7
SKULDIR ÍSLENSKRA HEIM-
ILA AF RÁÐSTÖFUNARTEKJUM
1999 145,8%
2000 159,5%
2001 169,1%
2002 175,0%
Tæpur helmingur fólks telur kjör sín svipuð nú og fyrir fjórum árum. Um það bil 20% telja þau hafa batnað og um
30% að þau hafi versnað. Einungis 10% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks telja kjör sín verri nú en fyrir fjórum árum.
Hagtölur sýna aukinn kaupmátt almennings. Skuldir heimila hafa hins vegar vaxið.
Kjósendur Sjálfstæðisflokks
telja kjörin hafa batnað
KJÖR ALMENNINGS
Hagtölur sýna að kaupmáttur fólks hefur batnað síðustu fjögur ár. Upplifun fólks af eigin
kjörum sýnir hins vegar að 24,6% telja kjör sín verri nú en fyrir fjórum árum.