Fréttablaðið - 25.01.2003, Qupperneq 18
18 25. janúar 2003 LAUGARDAGUR
Mikið vatn hefur til sjávarrunnið í íslensku viðskipta-
lífi frá því þeir feðgar Jóhannes
Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannes-
son opnuðu fyrstu Bónusverslun-
ina við Skútuvog. Viðskiptavinir
tóku henni vel og ekki leið á löngu
þar til fleiri Bónusverslanir voru
opnaðar. Jóhannes var í byrjun
allt í öllu og vinnudagurinn gjarn-
an langur. Hann stóð við kassann,
elti kerrur eða raðaði í hillur. Í
gluggalausum kjallara undir
versluninni kom hann sér fyrir
með allt skrifstofuhald og þar átti
hann sína skonsu.
Þrátt fyrir milljarða veltu hjá
fyrirtæki þeirra feðga hefur
vinnudagur Jóhannesar lítið
breyst. Hann eltir að vísu ekki
kerrur eða stendur við kassa en í
kjallaranum undir versluninni er
hans vinnustaður enn. Þar tók
hann á móti blaðamanni, aldrei lit-
ið betur út, kátur og ekki orða
vant fremur en fyrr.
Það hefur gengið á ýmsu í við-
skiptalífi þeirra feðga á síðasta
ári og Jóhannes er spurður hvort
það hafi ekki sett mark sitt á
hann. „Nei, ekki get ég sagt það.
Hins vegar er hagnaðurinn af
versluninni ekki eins mikill eins
og oft áður miðað við þau verð-
mæti sem lágu undir í fyrirtæk-
inu. Það tók virkilega á í vor þeg-
ar við lækkuðum álagninguna til
að fara ekki yfir rauðu strikin.
Það var okkar framlag í þágu
verkalýðsins. Með því lögðum við
okkar af mörkum til að koma í veg
fyrir að allt færi á kaf í óðaverð-
bólgu og vitleysu.“
Eins og reglur viðskiptalífs-
ins gildi aðeins fyrir suma
Jóhannes segir fólk alltaf sýna
Bónus sömu hollustuna. „Ég get
ekki kvartað, því sem aldrei fyrr
kemur fólk í Bónus og í desember
kom á fimmta hundrað þúsund
manns í verslanir okkar.“
Bónus hefur verið vettvangur
Jóhannesar í gegnum árin. Hann
heimsækir ekki búðirnar á hverj-
um degi eins og áður. „Starfsvett-
vangurinn hjá mér hefur breyst
og daglegur rekstur er ekki leng-
ur í mínum höndum þó að ég fylg-
ist með.“
Hann segir að sú úlfúð sem
beinst hafi að fyrirtækinu hafi
vissulega reynt á og tekið frá
honum tíma. „Lögreglurannsókn-
in í vor, neikvæðar umræður
ráðamanna og það að geta ekki
einu sinni haldið starfsfólkinu
sína árshátíð í friði hefur vissu-
lega áhrif og tekur frá manni
orku.“
Jóhannes rifjar upp kvöldið
sem starfsfólkið hans mætti prúð-
búið á árshátíð í fyrravor. Vegna
þess að veitingamaðurinn hafði
gleymt að sækja um leyfi fyrir
salinn tímanlega kom lögreglan í
veg fyrir hana. „Við bentum á að
hægt væri að loka barnum og
leyfa fólkinu að borða. Því var
hafnað og okkur úthýst. Það var
ekki skemmtilegt að horfa á eftir
mannskapnum í pöbbarölt um bæ-
inn.“
Hver stendur á bak við svona
gjörninga?
„Ég veit það ekki. Það er eins
og gefið hafi verið út veiðileyfi á
okkur og reynt að bregða fyrir
okkur fæti alls staðar sem færi
hefur gefist. Það er eins og þeir
sem setja leikreglurnar í þjóðfé-
laginu sætti sig ekki við að reglur
viðskiptalífsins gildi fyrir alla en
ekki aðeins fyrir suma,“ segir Jó-
hannes og bendir á að þannig hafi
þetta ekki verið í upphafi. Hann
segir að eftir því sem fyrirtækið
hafi stækkað virðist ákveðin öfl í
samfélaginu líta þá feðga horn-
auga.
Bláa höndin
Heldurðu að Jón Ásgeir eigi
frekar þátt í að þessi andúð bein-
ist að ykkur en þú?
„Nei, hann á ekki þátt í því
fremur en ég. Það er óskaplega
erfitt að átta sig á hver meining-
in er á bak við þetta. Hjá okkur
er á þriðja þúsund manns í vinnu
og ég tel að við höfum lagt okkar
af mörkum til að breyta verslun
og viðskiptum í landinu.“ Hann
bendir einnig á að á þinginu sé
deilt á fyrirtækið, forsætisráð-
herra og forseti Alþingis séu þar
fremstir í flokki. „Þetta á sér
hvergi hliðstæðu í heiminum.
Norðmaður sem er hluthafi hjá
okkur hefur sagt að ef svona
myndi gerast í Noregi þá væri
viðkomandi ekki forsætisráð-
herra daginn eftir. Þar eru eftir-
litsstofnanir í samfélaginu sem
ætlað er að fylgjast með að farið
sé að leikreglum. En það verður
að vera hægt að treysta því að
þar innan borðs séu menn með
dómgreind til að meðhöndla það
vald sem þeim hefur verið feng-
ið.“
Er það bláa höndin sem þarna
lýstur niður?
„Já, ég held það hljóti að vera.“
Lögreglurannsókninni hjá
Baugi hefur þá einnig verið
stjórnað af bláu höndinni?
„Það er alveg ljóst að hún var
gerð á þeim tíma sem Arcadia-
samningarnir voru á viðkvæmu
stigi. Með innrás ríkislögreglu-
stjóra var komið í veg fyrir tug-
milljarða hagnað.“
Það hefur verið reiknað út að
það hafi verið þrjátíu og einn
milljarður?
„Já, það er stór upphæð og
helmingi meira en ríkið fékk fyrir
báða bankana og safnaði fyrir í
hundrað ár. Það er talað um að
tjónið sem hlaust af gosinu í Vest-
mannaeyjum hafi verið um það bil
14-15 milljarðar að núvirði. Það
sýnir hve há upphæð þetta er.“
Þetta eru ótrúlegar tölur sem
venjulegt fólk getur alls ekki sett
sig inn í. Það hljóta að vera mikil
umskipti fyrir þig á ekki lengri
tíma. Það eru ekki nema þrettán
eða fjórtán ár síðan þú opnaðir
fyrstu Bónusverslunina og varst
sjálfur að afgreiða?
„Já, en við hefðum aldrei náð
þessum árangri ef við hefðum
ekki náð fylgi fólksins. Og það
hefði okkur ekki tekist nema fyrir
það að við gerðum það sem öðrum
hafði ekki tekist áður.“
Á Jón Ásgeir mikinn þátt í öllu
þessu veldi?
„Já, ekki síður en ég. Hann er
hörkuduglegur og hefur verið
heilinn á bak við þessa útrás.“
Hvernig kemur ykkur saman?
„Alveg prýðilega. Við erum
kannski ekki alltaf sammála en
við náum alltaf lendingu í öllum
þeim málum sem við þurfum að
taka á.“
Eruð þið líkir?
„Já, ég held það. Fólk hefur tal-
að um það.“
Nú ert þú mun úthverfari en
hann?
„Já, ég býst við að hann sé hlé-
drægari.“
Er náttúrukrati í hugsun
Menn segja að þú hafir stórt
hjarta?
„Ég veit það ekki en ætli ég sé
ekki náttúrukrati í hugsun. Það er
kannski dýpra á því hjá Jóni Ás-
geiri en hann hefur sýnt að hjarta
Veröldin
er alveg
nógu stór
Jóhannes Jónsson í Bónus hefur aldrei legið á
skoðunum sínum. Að þeim feðgum, Jóni Ásgeiri
og honum, hefur verið sótt og hann þvertekur ekki
fyrir að það kunni að vera bláa höndin sem þar á
hlut að máli. Hann ræðir einnig um daglegt líf sitt,
samband þeirra feðga, áhugamálin og heilsuna.
JÓHANNES JÓNSSON
„Það er eins og þeir sem setja
leikreglurnar í þjóðfélaginu sætti sig
ekki við að reglur viðskiptalífsins gildi
fyrir alla en ekki aðeins fyrir suma.“
JÓHANNES Á NORRÆNUM FUNDI
Þessi mynd er tekin skömmu eftir að Jóhannes stofnaði Bónus. Þarna er hann á aðalfundi Norænna matvörukaupmanna með Magnúsi
E. Finnssyni, fyrrum framkvæmdastjóra Kaupmannasamtaka Íslands. Jóhannes var sæmdur gullmerki samtaka Norrænna matvörukaup-
manna á fundinum. Hann starfaði lengi að félagsmálum innan stjórn Kaupmannasamtaka Íslands.
Já, það er stór
upphæð og helm-
ingi meira en ríkið
fékk fyrir báða bankana og
safnaði fyrir í hundrað ár.
,,
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M