Fréttablaðið - 25.01.2003, Qupperneq 34
OPNUN
14.00 Hlynur Hallsson, Finnur Arnar
Arnarsson og Jessica Jackson
Hutchins opna sýningar sínar í
Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3.
UPPLESTUR
15.00 Upplestur verður á vegum Ritlist-
arhóps Kópavogs í Gerðarsafni.
Magnús Bjarnfreðsson les úr
drögum að nýrri bók sinni um
Jón úr Vör. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill.
LEIKHÚS
16.00 Dýrlingagengið eftir Neil Labute í
EGG-leikhúsinu.
20.00 Söngleikurinn Með fullri Reisn
eftir Terrence McNally og Davit
Yazbek á Stóra sviði Þjóðleik-
hússins.
20.00 Rakstur eftir Ólaf Jóhann Ólafs-
son á Litla sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Söngleikurinn Sól og Máni eftir
Sálina og Karl Ágúst Úlfsson á
Stóra sviði Borgarleikhússins.
20.00 Jón og Hólmfríður eftir Gabor
Rasov á Nýja sviði Borgarleik-
hússins.
20.00 Ginusögur - Vagina Monologu-
es - Píkusögur á færeysku, dön-
sku og íslensku á Þriðju hæð
Borgarleikhússins. Leiksýning
með kaffi og tónleikum. Eivör
Pálsdóttir syngur.
21.00 Einleikurinn Sellófan eftir Björk
Jakobsdóttur í NASA við Austur-
völl.
Hætt-a-Telja með Halla og Ladda í
Loftkastalanum.
SKEMMTANIR
17.00 Söngkeppni Samfés, samtaka fé-
lagsmiðstöðva, verður í Laugar-
dalshöllinni. Keppni stendur til
21.30.
Stuðmenn halda uppi fjörinu í Sjallan-
um á Akureyri.
Í svörtum fötum spila á Broadway í
kvöld.
Hunang skemmtir á Players í Kópavogi.
KGB er mættur aftur til leiks á skemmti-
staðnum 22 við Laugaveg. Fyrstir koma
fyrstir fá. Munið skírteinin.
Teknóveisla á Grandrokk í kvöld. Plötu-
snúðarnir Exos og Tómas T.H. láta
gamminn geisa.
Óskar Einarsson trúbador skemmtir á
Ara í Ögri.
ÚTIVERA
11.00 Farin verður fyrsta ferð af fjórum í
raðgöngu Ferðafélags Íslands
um fornar hafnir á Suðvestur-
landi. Ætlunin er að skoða Álfta-
nesið og hlýða á sögur heima-
fólks af staðnum. Að lokum verð-
ur farið á Sjóminjasafn Íslands í
Hafnarfirði og safnið skoðað með
leiðsögn. Lagt af stað frá BSÍ með
viðkomu í Mörkinni 6. Heimkoma
er áætluð um kl.15.
MESSA
14.00 Ensk messa verður í Hallgríms-
kirkju eins og jafnan síðasta
sunnudags hvers mánaðar. Prest-
ur verður sr. Bjarni Þór Bjarnason
og organisti Hörður Áskelsson.
KVIKMYND
15.00 Kvikmyndin „Moskva trúir ekki á
tár“ (Moskva slezam ne verit)
verður sýnd í bíósal MÍR að Vatns-
stíg 10. Myndin hlaut bandarísku
Óskarsverðlaunin sem besta er-
lenda kvikmyndin árið 1981.
Enskur texti. Aðgangur ókeypis og
öllum heimill.
TÓNLEIKAR
17.00 Tónleikar með léttri og skemmti-
legri franskri tónlist í Norræna
húsinu. Flytjendur eru Guido
Baeumer á saxófón og Aladár
Rácz á píanó.
17.00 Kristín Mjöll Jakobsdóttir og Jón
Sigurðsson leika á fagott og pí-
anó í kirkju Óháða safnaðarins
við Háteigsveg. Tónleikarnir eru
um klukkustundarlangir, án hlés
með stuttu spjalli á milli efnisat-
riða.
20.00 Á Tíbrártónleikum í Salnum,
Kópavogi, flytja sjö tónlistarmenn
úr Caput-hópnum „Sögu dátans“
eftir Stravinskí og „Örsögur“ eftir
Hafliða Hallgrímsson. Sögu-
menn eru Felix Bergsson og
Hafliði Hallgrímsson.
20.00 Tríó Reykjavíkur hefur fengið
söngvarana Sigrúnu Hjálmtýs-
dóttur og Bergþór Pálsson til liðs
við sig á tónleikum í Hafnarborg í
kvöld. Boðið verður upp á Vínar-
tónlist, sígaunatónlist og tónlist úr
þekktum söngleikjum.
LEIKHÚS
14.00 Benedikt Búálfur eftir Ólaf Gunn-
ar Guðlaugsson í Loftkastalan-
um.
14.00 Honk! Ljóti andarunginn eftir
George Stiles og Anthony Drewe
á Stóra sviði Borgarleikhússins.
14.00 Jón Oddur og Jón Bjarni eftir
Guðrúnu Helgadóttur á Stóra
sviði Þjóðleikhússins.
14.00 Karíus og Baktus eftir Thorbjörn
Egner á Litla sviði Þjóðleikhúss-
ins.
34 25. janúar 2003 LAUGARDAGUR
LAUGARDAGUR
25. JANÚAR
hvað?
hvar?
hvenær?
SUNNUDAGUR
26. JANÚAR
Milli draums
og veruleika
Jessica Jackson Hutchins, Hlynur Hallsson og Finnur Arnar Arnars-
son opna í dag sýningar í Nýlistasafninu við Vatnsstíg. Hlynur er frek-
ar pólitískur í sínum verkum en Finnur treystir frekar á einlægnina.
MYNDLIST Í dag verða opnaðar
þrjár sýningar í Nýlistasafninu
við Vatnsstíg. Á neðri hæð Ný-
listasafnsins sýnir Jessica
Jackson Hutchins ljósmyndir og
skúlptúra, en á efri hæðinni sýn-
ir Finnur Arnar Arnarsson
myndbandsverk og Hlynur
Hallsson ljósmyndir, texta,
myndbandsverk og fleira.
Á sýningu Finns eru tvö
myndbandsverk sem hann segir
að myndi eina heild.
„Þetta er um náunga sem ég
kannast lauslega við og ástand
hans í ýmsum myndum,“ segir
Finnur og útskýrir síðan að
þessi náungi sé hann sjálfur. „Ég
hef verið að eiga svolítið við
karlmanninn sem fyrirbæri og
skoða það í samhengi við sam-
tímann. Þetta snýst jafnframt
svolítið um tímann og vanmátt-
arkennd okkar gagnvart honum.
Ég hef upp á síðkastið leyft mér
að nálgast þetta efni með ein-
lægum hætti. Um leið reyni ég
að treysta því að það sem maður
kann og þekkir og upplifir geti
kannski höfðað til annarra.“
Finnur segist annars eiga
erfitt með að lýsa þessu verki í
orðum. Verkin sín séu sífellt að
verða meira án orða.
„En það opnar um leið ýmsar
nýjar víddir. Þetta er svona ein-
hvers staðar milli draums og
veruleika. Þetta er í seinni tíð
orðið miklu ljóðrænna hjá mér
heldur en áður var.“
Í verkum Hlyns Hallssonar
kveður hins vegar við nokkuð
annan tón. Auk ljósmynda og
texta hefur hann meðal annars
verið að vinna með við-
horfskannanir.
„Ég held að Hlynur sé
kannski svolítið pólitískari en
ég,“ segir Finnur. „Hann hefur
verið það nokkuð lengi.“
Sem kunnugt er verður Hlyn-
ur í þriðja sæti á framboðslista
Vinstri grænna í Norðaustur-
kjördæmi. Hann hefur sömu-
leiðis verið óhræddur að sýna
verk með pólitískri skírskotun.
Sýning hans í litlum bæ í
Texas í sumar vakti heldur bet-
ur uppþot þar í bæ. Hann hafði
meðal annars skrifað á veggi
sýningarsalarins að Bandarík-
in, Bretland og Ísrael væru
hinn sanni öxull hins illa og að
George W. Bush væri fáviti.
Eftir að reiðir bæjarbúar höfðu
látið í sér heyra var ákveðið að
byrgja glugga sýningarsalarins
svo þessar yfirlýsingar blöstu
ekki við blásaklausum vegfar-
endum.
gudsteinn@frettabladid.is
ÓLÍKIR LISTAMENN
Þótt þau þrjú séu frekar ólíkir listamenn segist Finnur telja að sýningar þeirra í Ný-
listasafninu myndi býsna góða heild.
Virtur franskur organisti leikur af fingrum fram:
Harmónía í Hallgrímskirkju
ORGELTÓNLEIKAR „Já, ætli megi
ekki löggilda hann sem Íslands-
vin. Daniel Roth var hér á ferð
árið 1993 og lék þá með
Mótettukórnum. Hann var ákaf-
lega glaður að fá boð um að
koma aftur,“ segir Hörður Ás-
kelsson.
Klukkan fimm á sunnudag
verða orgeltónleikar í Hall-
grímskirkju en þá mun franski
organistinn Daniel Roth leika
verk eftir Bach, Franck og
Messiaen og fleiri. Auk þess
mun hann flytja frumsamda
tónlist og leika af fingrum
fram. Enda þykir hann mikill
spunasnillingur.
„Daniel Roth er organisti við
Saint Sulpice kirkjuna í París
þar sem hann leikur á hið fræga
Cavaillé-Coll orgel frá 1862. Við
skulum athuga það að í hóp
þessara Parísarorganista kom-
ast ekki nema þeir allra frem-
stu,“ segir Hörður og bendir á
að meðal fyrirrennara hans séu
engir aðrir en tónskáldin og
virtúósarnir Charles-Marie
Widor og Marcel Dupré.
Daniel, sem er sextugur, er
að sögn hrifinn af Klaisorgeli
Hallgrímskirkju en tónleikarn-
ir eru liður í hátíðarhöldum
vegna 10 ára vígsluafmælis
þess. „Já, þetta orgel er í
stærsta klassanum og er barn
síns tíma með sínum kostum og
fáum göllum. Flestir eru ákaf-
lega hrifnir af því hvernig org-
elið og kirkjan spila saman. Þar
ríkir mikil harmónía,“ segir
Hörður.
Klaisorgel Hallgrímskirkju
er langstærsta hljóðfæri lands-
ins, 15 metra hátt og 25 tonn að
þyngd. Það er skipað 72 rödd-
um sem raðast á fjögur hljóm-
borð og fótspil. Orgelpípurnar
eru alls 5275. Og við þennan
mikla grip hafa margir af fræg-
ustu organistum heims sest og
látið óma Guði til dýrðar og
mönnum til ánægju. ■
HÖRÐUR ÁSKELSSON OG DANIEL ROTH
Vinirnir og organistarnir við risavaxið Klaisorgel Hallgrímskirkju en tónleikar Daniels Roth verða á sunnudaginn klukkan 17.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M