Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.01.2003, Qupperneq 45

Fréttablaðið - 25.01.2003, Qupperneq 45
45LAUGARDAGUR 25. janúar 2003 Taktu lífinu létt – ostur fullkomnar salatið LANDBÚNAÐUR Fjöldi bænda víða um land stundar nám við bænda- skólann á Hvanneyri án þess þó að vera þar. Þeir læra heima á milli þess sem þeir stunda hefðbundin sveitastörf. Fjarnámið á Hvann- eyri hófst fyrir fimm árum og þá voru nemendur aðeins fimm tals- ins. Nú eru þeir hins vegar fjöru- tíu. Bændurnir sem þannig stunda nám sitt verða þó að heimsækja skóla sinn í upphafi hverrar annar auk þess að vinna verklega hluta námsins á staðnum. Að öðru leyti eru þeir heima hjá sér. Umsjónarmaður fjarnámsins á Hvanneyri er Edda Þorvaldsdótt- ir og hefur hún lýst mikilvægi bændamenntunar með þeim orð- um að landbúnaður sé stærsta framleiðsla á matvælum á heims- vísu en í faginu starfi fjöldi fólks með enga menntun. Því sé fjar- námið ekki aðeins spennandi kost- ur fyrir bændur heldur ekki síður mikilvægt. ■ Fjarnám á Hvanneyri: Bændur læra heima LANDBÚNAÐUR Aukinn áhugi bænda á menntun. FINGURKOSS Bandaríska leikkonan Goldie Hawn sendi ljósmyndurum fingurkoss á hóteli í Hamborg í gær. Hawn er stödd í Þýskalandi til þess að kynna nýju myndina sína „Groupies Forever“, sem frumsýnd verður þar í landi í byrjun næsta mánaðar. V-DAGURINN Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu dómsmálaráð- herra að styrkja verkefni í tilefni V-dagsins, 14. febrúar, um eina milljón króna. V-dagurinn var haldinn í fyrsta skipti á Íslandi 14. febrúar í fyrra og voru þá stofnuð samtök sem hafa það að markmiði að vinna gegn ofbeldi á konum á Íslandi. Markmiðið með íslensk- um V-degi er það sama og á hinum alþjóðlegu V-dögum, að vekja fólk til umhugsunar um kynferðisof- beldi gegn konum og breyta hug- arfari fólks varðandi nauðganir. Áhersla er lögð á forvarnir gegn nauðgunum og hafa þekktir aðilar úr þjóðfélaginu lagt málefninu lið, konur jafnt sem karlar. Fjölbreytt hátíðardagskrá verður í Borgarleikhúsinu, heima- síða samtakanna verður opnuð formlega þennan dag og efnt verður til málþings í hátíðarsal Háskóla Íslands. Þá ætla samtök- in að hrinda af stað auglýsinga- herferð sem mun verða hluti af V- deginum 2003. ■ V-dagurinn á Íslandi: Milljón frá ríkisstjórninni V-DAGUR Efnt verður til hátíðardagskrár og málþings 14. febrúar næstkomandi en myndin er tekin á V-deginum í fyrra. HEILBRIGÐISMÁL Unnið er að því að leggja lokahönd á frágang nýja Barnaspítala Hringsins en hann verður vígður á sunnudag klukk- an 10 árdegis. Iðnaðarmenn vinna af kappi og þrátt fyrir að ýmsu hafi ekki verið lokið mun svo verða á tilskildum tíma, að sögn formanns byggingastjórnar, Hjálmars Árnasonar. „Það er ver- tíðarhugsun Íslendinga að vinna á meðan stætt er sem þar gildir. Við erum vön að segja að allt reddist og ég efa ekki að allt verður klappað og klárt þegar gestirnir koma á sunnudag,“ segir Hjálmar. Íslendingum gefst færi á að skoða nýja spítalann á sunnudag að lokinni formlegri athöfn klukk- an 14 til 18. Rétt er að vekja at- hygli á að þetta er eina tækifærið sem almenningi gefst til að ganga um stofur og ganga því spítalinn verður síðan tekinn í notkun. ■ IÐNAÐARMENN UNNU AF KAPPI Það var mikið að gera í gær við að leggja lokahönd á Barnaspítala Hringsins sem vígður verður á sunnudagsmorgun. Eftir það gefst almenningi kostur á að skoða þetta glæsilega hús. Barnaspítalinn: Opinn almenningi FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.