Fréttablaðið - 25.01.2003, Page 48
Skrýtið hvað gleraugu verðasamofin persónu þess sem
þau ber. Svona eins og afkvæm-
in. Órjúfanlegur þáttur. Munur-
inn á gleraugum manns og börn-
um er hins vegar sá að maður
getur ráðið hvernig gleraugun
líta út. Ekki öfugt. Hitti gler-
augnasala um daginn sem var
mér innilega sammála. Og rúm-
lega það.
Gleraugnasalinn vildi nefni-
lega hrinda af stað landssöfnun
til að kaupa ný gleraugu handa
forsetanum. Sagði Ólaf Ragnar
búinn að vera með sömu gler-
augun svo áratugum skipti.
Kannski ekki sömu gleraugun en
alltaf sömu týpuna. Í raun at-
hyglisvert því forsetanum er
umhugað um eigið útlit eins og
sjá má á smekklegum klæða-
burði hans og fasi. Gleraugun
hafa hins vegar setið á hakanum.
Gleraugu forsetans eru þeirr-
ar gerðar sem voru í tísku fyrir
20 árum og sjást nú hvergi nema
í Austur-Evrópu. Þetta eru gler-
augun sem Michael Caine var
með í Alfie. Og það er langt síð-
an. Annar gleraugnasali benti
mér á að forsetinn væri heims-
maður sem færi víða og þó gler-
augun hans væru ekki í tísku hér
heima þá gætu þau þótt flott er-
lendis. Bandaríkjamenn væru til
að mynda með miklu stærri gler-
augu en Íslendingar. Kínverjar
væru svo með gleraugu yfir
hálft andlitið eins og sást á Kína-
forseta þegar hann kom hingað í
fyrra. Þetta væri því afstætt.
Ef og þegar þjóðin tekur
ákvörðun um að kaupa ný gler-
augu á forseta sinn mætti taka
fleiri í hópinn. Menntamálaráð-
herra er enn með gleraugu frá
Oliver Peoples sem hálf þjóðin
var með fyrir tíu árum en flestir
hafa lagt á hilluna. Þau eru
hringlótt og gera menn gáfulega.
En menntamálaráðherra þarf
ekki á því að halda. Hann talar
frönsku gleraugnalaus. Árni
Mathiesen sjávarútvegsráðherra
var með eins gleraugu fyrir
nokkrum misserum en þau pöss-
uðu ekki á hann. Voru hálf uppi á
enni. Hann skipti þeim út eftir
að hafa verið bent á það í blaða-
grein. Er miklu betri eftir en
áður. Held að forsetinn yrði það
líka.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
www.ikea.is
50% afsl. í dagí Nammilandi
Hagkaup Smáralind og Kringlunni
Gleraugu
Bakþankar
Eiríks Jónssonar
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
19
98
6
1.
20
03
Allt á sinn stað
Laugardaga ..................kl. 10:00 - 18:00
Sunnudaga....................kl. 12:00 - 18:00
Mánudaga - föstudaga...kl. 10:00 - 18:30
((
KASSETT kassi 2 stk.
BRANÄS karfa
990 kr. 990 kr.1.990 kr. 1.450 kr.
890 kr. 590 kr.490 kr. 590 kr.
LINNAN skápur/stk. SKUBB rúmkassi SKUBB þvottakarfa
VÅXTORP kassi/2 stk.
HÅBOL kassi/2 stk.
MÅRD kassi/stk.
Snjallar lausnir