Fréttablaðið - 23.08.2003, Side 26

Fréttablaðið - 23.08.2003, Side 26
■ Bandaríkin 26 23. ágúst 2003 LAUGARDAGUR Byssuhvellir hafa undanfariðrofið kyrrðina í Charleston í Vestur-Virgíníufylki sem er ein af náttúruperlum Appalakíufjalla í Bandaríkjunum. Charleston er friðsæll staður sem er fjölsóttur af ferðamönnum og í Vestur-Virg- iníu er glæpatíðni einna lægst í öllu landinu. En nú er friðurinn úti. Fyrir fáeinum dögum féllu þar þrjár manneskjur fyrir byssu- kúlum. Að kvöldi fimmtudagsins 7. ágúst var Jeannie Patton skotin til bana á bensínsstöð skammt fyrir sunnan Charleston, þegar hún hafði lokið við að setja bensín á bílinn sinn og var á leiðinni inn til að borga. Hún var einstæð móðir og lét eftir sig 14 ára gamlan son. Klukkutíma síðar varð Okey Mea- dows fyrir banaskoti fyrir utan verslunarmiðstöð austan við bæ- inn. Meadows var 26 ára gamall. Hann fékk byssukúlu í höfuðið þar sem hann stóð við verslunar- lúgu og ætlaði að kaupa mjólk. Hann var fráskilinn og átti 3 ára son. Sunnudagskvöldið 10. ágúst féll svo þriðja fórnarlambið fyrir byssukúlu úr launsátri. Það var Gary Carrier, 44 ára gamall, þar sem hann var að nota almennings- síma fyrir utan verslunarmiðstöð vestan við Charleston. Hann var fráskilinn, fjögurra barna faðir. Dökkur pallbíll Vitni sáu dökkan pallbíl fyrir utan verslunarmiðstöðina þar sem Gary Carrier var skotinn. Eitt vitnanna, kona sem var að tala í almenningssíma í námunda við Carrier, segist hafa séð „svartan pallbíl með lengdu húsi.“ Önnur vitni segja að pall- bíllinn hafi verið dökkleitur, jafnvel vínrauður. „Við teljum að leyniskyttan hafi skotið úr pallbílnum,“ segir lögreglustjórinn í Kanawha-sýslu, Phil Morris, „vegna þess að um leið og skotinu var hleypt af var bílnum ekið burt í skyndi með ískrandi hjólbörðum.“ Hvítur maður Engin tóm skothylki fundust á staðnum, sem er enn ein ástæða fyrir því að lögreglan telur að leyniskyttan hafi skotið úr bifreið. Vitni sáu dökkan pallbíl, ef til vill Ford F-150, standa fyrir utan versl- unarmiðstöðina í fullar 20 mínútur áður en morðið var framið, en eina lýsingin sem fengist hefur á bíl- stjóranum er sú að hann sé „hvítur maður, þreklega vaxinn“. Þrátt fyrir þessar vísbendingar er enginn hægðarleikur að hafa uppi á pallbílnum. Dökkir pallbílar eru vinsæl farartæki í fjölsóttri Vestur-Virginíu. Bæjarstjórinn í Charleston, og að minnsta kosti tveir menn úr lögregluliði bæjar- ins, aka um á slíkum farartækjum. Lögregluyfirvöld á svæðinu vilja ekki kveða upp úr með að sami eða sömu aðilar hafi verið á ferðinni í öllum þremur tilvikum, þótt margt bendi óneitanlega til þess. Lögregl- an segist ekki vilja vekja óþarfa ótta meðal almennings og einnig er mönnum mikið í mun að eyðileggja ekki friðsama ímynd Vestur-Virgín- íu, en það gæti dregið mjög úr að- sókn ferðamanna. Áhrif Malvos og Muhammads Ástæðan fyrir því að íbúar Kanawh-asýslu eru felmtri slegn- ir er sú að skemmst er að minnast þess þegar leyniskytturnar John Allen Muhammad og Lee Boyd Malvo fóru í tortímingarherferð og drápu á annan tug fórnarlamba úr launsátri í Louisiana, Alabama, Georgíu og Washington í október á síðasta ári. Hið blóði drifna ferðalag þeirra stóð í þrjár vikur uns lögreglan hafði hendur í hári þeirra, en réttarhöld yfir þeim hefjast í október og nóvember næstkomandi. Íbúar Vestur-Virginíu hafa áhyggjur af því að á meðal þeirra sé einhver eða einhverjir sem hafi hugsað sér að vekja ótta og skelfingu á meðal almennings í Bandaríkjunum með því halda áfram launvígum að hætti þeirra Malvos og Muhammads, sem nú bíða þess að réttarhöld hefjist í málum þeirra. ■ Michael Moore, rithöfundur ogkvikmyndagerðarmaður, hefur gert meira en flestir aðrir til að vekja athygli á því að hugs- anlega sé samband á milli þess hversu útbreidd byssueign er í Bandaríkjunum og þeirrar stað- reyndar að þar í landi falla fleiri fyrir byssukúlum en í nokkru öðru landi þar sem ekki ríkir styrjaldarástand. Börn og byssur Morðleiðangur Malvos, sem er sautján ára, og Muhammads um nokkur fylki Bandaríkjanna í fyrra, þegar þeir myrtu á annan tug saklausra borgara úr laun- sátri með riffilskotum vakti mik- inn óhug og sömuleiðis sú stað- reynd að skotvopn í höndum barna og unglinga á skólaaldri hafa kostað fjölmörg mannslíf. Engu að síður ræður aðgerðaleysi stjórnmálamanna, öfugt almenn- ingsálit og sterk hagsmunasam- tök því að skotvopn í einstaklings- eigu eru nú álitin vera um 250 milljón talsins í Bandaríkjunum, og líklega mun þeim fjölga frem- ur en fækka á næstunni. Byssuglaðir Bandaríkjamenn segja að það séu undirstöðumann- réttindi að hver og einn, sem upp- fyllir ákveðin skilyrði, fái að eiga vopn til að stunda veiðimennsku, verja hendur sínar, eða einfald- lega sér til gamans. Andstæðingar vopnaburðar segja hins vegar að byssudýrkunin sé komin út í al- gjörar öfgar og augljóst samhengi milli byssueignar þjóðarinnar og byssuglæpa. Margir vilja kenna sjónvarp- inu eða Hollywood um mikinn fjölda ofbeldis- og byssuglæpa í Bandaríkjunum, en svarið við því er jafnan að afþreyingariðnaður endurspegli fremur en móti þjóð- félagið. Leikarinn Tim Robbins benti á að meðan Clinton forseti sakaði Hollywood um að eiga sök á skotvopnadýrkun, hafi banda- ríski herinn verið að kasta sprengjum á Kosovo, samkvæmt fyrirmælum forsetans. Glettni örlaganna Það er undarleg grá glettni örlag- anna að tveir menn með riffil gætu sett þjóðfélag með 250 milljónir skotvopna á annan endann. Það gerðu þeir John Allen Muhammad og Lee Malvo, en þeir héldu þjóð sinni í heljar- greipum óttans í samfellt 23 daga í októbermánuði á síðasta ári. Morðæði Malvos og Muhamm- ads hófst 2. október, í námunda við Rockville í Maryland-fylki, og áður en þeir voru handteknir þremur vikum síðar höfðu þeir skotið og sært 13 manns, þar af 10 til ólífis. Þeir höfðu skilið eftir sig orðsendingar og hringt símtöl til að krefjast 10 milljón dala fyrir að láta af morðherferðinni, þegar loksins tókst að handtaka þá. Vopnið sem þeir notuðu var Bush- master-riffill með hlaupvídd .223 og þeir höfðu innréttað bíl sinn, Chevy Caprice, árgerð 1990, þannig að leyniskyttan gat falið sig inni í bílnum og miðað á fórn- arlömb sín. Fyrir utan þessar 13 skotárásir eru Muhammad og Malvo grunað- ir um að minnsta kosti átta skotárásir til viðbótar og þrjú morð. Raðmorð algengust í Bandaríkjunum Margir fræðimenn á sviði þjóðfélagsrannsókna og geð- lækninga hafa velt vöngum yfir þeirri staðreynd að raðmorð virð- ast vera mun tíðari í Bandaríkj- unum en í öðrum löndum. Talið er að um 85% raðmorða í heimin- um séu framin í Bandaríkjunum. Rannsóknir alríkislögreglunnar, FBI, benda til þess að raðmorð verði sífellt algengari og að hverju sinni leiki 20 til 50 raðmorðingjar lausum hala í landinu. Erfitt getur verið að hafa hend- ur í hári raðmorðingja, einkum ef þeir breyta um aðferðir til að komast yfir fórnarlömb sín. Fræðimenn hafa ýmsar hugmynd- ir um hvað verður um þá raðmorðingja sem lögregl- unni tekst ekki að handtaka. Sumir þeirra kunna að fremja sjálfsmorð, deyja, lenda í fangelsi af einhverjum öðrum ástæðum eða á geðveikra- hæli. Sumir flytja í önnur lands- horn og aðrir láta af iðju sinni. Auðvelt að hneykslast Það er auðvelt að hneykslast á byssudýrkun Bandaríkjamanna. En svo að allrar sanngirni sé gætt á bandarískt þjóðfélag sér aðeins tveggja alda sögu, sem vissulega er mjög stuttur tími í samanburði við evrópsk þjóðfé- lög. Menning og minning land- nemanna lifir enn góðu lífi í Bandaríkjunum. Í villta vestrinu væntu menn þess ekki að réttlæt- ið kæmi úr munni dómara, heldur úr byssukjafti. Stjórnir Bandaríkjanna hafa einnig verið tilkippilegri en flest- ar aðrar stjórnir til að grípa til vopna á síðustu öld og í upphafi þeirrar sem við nú lifum. Evópu- menn voru að sönnu fegnir þátt- töku Bandaríkjanna í heimsstyrj- öldunum tveimur, þótt önnur stríð sem Bandaríkjamenn hafa háð hafi verið umdeildari. En þótt byssudýrkun Banda- ríkjamanna eigi sér ýmsar skilj- anlegar forsendur og byggi á þjóðfélagslegum hefðum er ekki þar með sagt að þessar forsendur réttlæti áframhaldandi byssu- dýrkun og vígamóð. Byssan, sem er í augum margra Bandaríkja- manna tákn um frelsi og sjálf- stæði og ákvörðunarrétt einstak- lingsins, virðist vera orðin að plágu sem líkja má við landfar- sótt sem leiðir af sér skelfingu og dauða. Byssan, þetta tákn rétt- lætis í lófa hvers borgara, þetta tákn landnemans, er líklega orðin úrelt í tæknivæddu fjöldasamfé- lagi nútímans, eins og dæmi Mu- hammads og Malvos sýnir svo glöggt. Og kannski var þetta kærleikssnauða tákn ekki heldur gott til að byggja samfélag á í upphafi. thrainn@frettabladid.is GLÆPATÖLFRÆÐI FRÁ BANDARÍKJUNUM Eitt morð er framið á 34 mínútna fresti. Einn ofbeldisglæpur á sér stað á hverjum 5 sekúndum. Eitt rán er framið á 43 sekúndna fresti. Ein líkamsárás á 24 sekúndna fresti. Einn þjófnaður aðra hverja sekúndu. Eitt innbrot á 9 sekúndna fresti. Einn bílþjófnaður á 34 sekúndna fresti. Ein nauðgun aðra hverja mínútu. 172 konur verða fyrir ofbeldi eða nauðgun á hverri klukkustund af hálfu einhvers nákomins aðila. Tvö börn eru misnotuð og/eða vanrækt á hverri mínútu. Manneskja er myrt á vinnustað sínum annan hvern dag. Árið 1999 dóu 1492 börn á skólaaldri af völdum skotsára. EFTIRLÝSTUR Lögreglan í Bandaríkjunum lýsir nú eftir þessum manni í sambandi við launsáturs- morð í Vestur-Virginíu sem framin hafa veirð undanfarið. Ekkert lát er á morðum í Bandaríkjunum. Nú leita lögreglan að leyniskyttu í Vestur-Virginíu: Skothvellir rjúfa kyrrðina Talið er að um 85% af raðmorðum í heiminum séu framin í Bandaríkjunum. Rannsóknir Alríkislögreglunnar, FBI, benda til þess að raðmorð verði sífellt algengari, og að hverju sinni leiki 20 til 50 raðmorðingjar lausum halda í landinu. ,, BUSHMASTER .223 Leyniskytturnar Malvo og Muhammad skutu fórnarlömb sín á færi m.a. með stolnum Bushmaster-riffli. JOHN ALLEN MUHAMMAD Ásamt Lee Boyd Malvo er Muhammad ákærður fyrir að hafa drepið eða sært ríflega 20 manns í nokkrum fylkjum Bandaríkjanna, þar af myrt 10 manns í Washington-borg á þriggja vikna tímabili í október í fyrra. Hér gengur Muhammad inn í réttarsal í byrjun vikunnar, umkringdur öryggisvörðum og lögmönnum. Réttarhöld yfir leyniskyttunum Malvo og Muhammad, sem grunaðir eru um að hafa myrt 10 manns úr launsátri í Washington í fyrra, hefjast í október. Að vonum hefur málið hleypt nýju lífi í umræðu um skotvopnaeign og morð. Um 250 milljón skotvopn eru skráð í Bandaríkjunum Byssan - úrelt tákn um frelsi?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.