Fréttablaðið - 23.01.2004, Side 4
4 23. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
Hefur þú áhyggjur af gróðurhúsa-
áhrifum?
Spurning dagsins í dag:
Hvernig mun ganga hjá Íslendingum á
EM í handknattleik?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
38,5%
61,5%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
SJÁVARÚTVEGUR „Ákvörðun mín er
þaulhugsuð eftir að hafa verið í
10 ár í krefjandi starfi,“ segir
Gunnar Örn Kristjánsson, for-
stjóri sjávarútvegsrisans SÍF,
sem hefur óvænt sagt starfi sínu
lausu. Gunnar Örn segir að legið
hafi fyrir, frá því hann hóf störf,
að hann myndi aðeins starfa hjá
SÍF í sex til átta ár.
Í gær hélt Gunnar starfs-
mannafund vegna fréttar DV um
að hann hefði sofið á meðan 80
milljóna fjárdráttur hjá Trygg-
ingasjóði lækna átti sér stað. Í
framhaldi fundarins sendi hann
frá sér yfirlýsingu:
„Á forsíðu DV í dag er slegið
upp með risavöxnu letri frétt
blaðsins um málefni Trygginga-
sjóðs lækna og meintan fjárdrátt
framkvæmdastjóra hans. Er
helst á uppslættinum að skilja, að
ég undirritaður hafi átt þar hlut
að máli og sé nú að segja af mér
starfi mínu sem forstjóri SÍF
vegna þess. Er komist svo
smekklega að orði um þetta, að
ég segi af mér „í skugga millj-
ónasvika“. Má jafnvel skilja
fréttaflutning blaðsins svo, að ég
hafi verið einhvers konar þátt-
takandi í hinum meinta fjár-
drætti. Allur áburður um slíkt er
að sjálfsögðu alger fjarstæða. Í
tilefni af þessu tek ég fram að
milli þessara tveggja mála eru
engin tengsl. Uppsögn mín úr
forstjórastarfinu tengist þessu
máli ekki að nokkru leyti...,“ seg-
ir í yfirlýsingunni.
Gunnar Örn hefur gert starfs-
lokasamning við SÍF sem kveður
á um að hann haldi launum þar til
í ágúst 2007. ■
EFNAHAGSMÁL Markaðsverðmæti
fimm stærstu fyrirtækja í Úrvals-
vísitölu Kauphallar Íslands hefur
hækkað um tæplega 190 millj-
arða.
Þetta er meiri verðmætasköp-
un en sem nemur áætlaðri heild-
arfjárfestingu í virkjun og álveri
á Austurlandi, en að sögn Bene-
dikts Þórs Valssonar, hagfræðings
hjá fjármálaráðuneytinu, gera
nýjustu áætlanir ráð fyrir að
kostnaður við virkjanir að Kára-
hnjúkum verði 90–95 milljarðar
króna og að framkvæmdir vegna
álversins sjálfs nemi um 85–90
milljörðum. Alls nemur fjárfest-
ingin fyrir austan því um 180
milljörðum króna.
Samanlögð verðmæti stærstu
fyrirtækjanna fimm, og þeirra fé-
laga sem síðan hafa sameinast
þeim, voru 217 milljarðar króna í
lok viðskipta 20. janúar 2003 en
voru 405 milljarðar eftir lok
markaðar 20. janúar 2004.
„Á árinu 2003 hækkaði heildar-
markaðsvirði skráðra hlutabréfa í
Kauphöll Íslands úr 528 í 659
milljarða,“ segir Sigþór Jónsson
hjá greiningardeild KB-banka.
Hann bendir á að hækkanirnar
hafi haldið áfram á miklum krafti
á fyrstu vikum þessa árs.
„Á þessu ári hefur hækkunin
haldið áfram af krafti. KB-banki
er búinn að hækka um 15,6 millj-
arða það sem af er þessu ári og
hin stærstu fyrirtækin um fjóra
til sex milljarða,“ segir hann.
„Aukning markaðsvirðis á
þessum fimm fyrirtækjum jafn-
gildir tæpum fjórðungi af áætl-
aðri landsframleiðslu íslensku
þjóðarinnar á síðasta ári og tæp-
lega 70% af fjárlögum ríkisins.
Þetta gefur ágæta mynd af þeirri
gríðarlegu hækkun sem orðið hef-
ur á markaðinum og til þess að
setja þetta í samhengi sem allir
ættu að skilja þá nemur eigna-
myndun þessara fimm félaga á
tímabilinu tæplega 650 þúsund
krónum á hvern Íslending,“ segir
Sigþór.
Stærstur hluti hækkunarinnar
er vegna Pharmaco, sem hefur
hækkaði um 88 milljarða frá 20.
janúar 2003 til 20. janúar 2004,
KB-banki hefur hækkað um tæp-
lega 60 milljarða, Landsbankinn
um ríflega 25 milljarða og Ís-
landsbanki um tæpa tíu milljarða.
Þá hefur Eimskip hækkað um ríf-
lega 5,5 milljarða á þessu tímabili
en öll sú hækkun hefur komið
fram á fyrstu mánuðum þessa árs.
thkjart@frettabladid.is
Flutningaskipið Svanur:
Skipið er
óskemmt
SJÓSLYS Flutningaskipið Svanur
náðist á flot klukkan hálf fimm í
gærmorgun eftir að það strandaði
við Grundartanga á miðvikudags-
kvöld. Tveir dráttarbátar frá
Akranesi náðu skipinu á flot og
komu því upp við bryggju. Kafar-
ar skoðuðu botn skipsins og
reyndist það óskemmt. Ákveðið
var að halda áætlun skipsins.
Klárað var að lesta skipið með áli
og hélt það á brott seinnipartinn í
gær.
Lögreglan í Borgarnesi segir
líklegt að um mannleg mistök hafi
verið að ræða þegar skipið strand-
aði. Skipstjórinn hafi ætlað að
taka bakborðsbeygju og stýrt
skipinu of nærri landi. ■
KÓPAVOGUR
Minnihlutinn deilir á vinnu við samningu
menningarstefnu Kópavogs.
Menningarstefna
Kópavogsbæjar:
Segja stefnu
vera afrit
SVEITARSTJÓRNARMÁL „Þetta eru ekki
vinnubrögð sem við viljum taka
þátt í. Við viljum ekki leggja nafn
okkar við plagg sem er svona til
komið,“ segir Sigrún Jónsdóttir,
bæjarfulltrúi Samfylkingar í
Kópavogi, og furðar sig á plaggi
sem var lagt fyrir lista- og menn-
ingarráð.
Í fundargerð er plaggið sagt
tillaga að menningarstefnu Kópa-
vogs. Við athugun kom í ljós að
flest atriði plaggsins er að finna
nokkurn veginn orðrétt í menn-
ingarstefnu Reykjavíkurborgar
sem samþykkt var fyrir tveimur
árum.
Sigurrós Þorgrímsdóttir, for-
maður lista- og menningarráðs,
segir að plaggið hafi verið unnið
fyrir nefndina úti í bæ. Síðar hafi
komið í ljós að það væri að mestu
menningarstefna Reykjavíkur-
borgar og klúður að mál skyldu
æxlast svona. ■
NÝ NÁMSGREIN
Forsvarsmenn Singapore Management
University telja að það geti komið sér vel
fyrir nemendurna að læra undirstöðuatriði
í golfi.
Golf er ný námsgrein:
Eykur sam-
skiptahæfni
SINGAPÚR, AP Viðskiptaháskóli í
Singapúr hefur ákveðið að bjóða
nemendum sínum upp á kennslu í
golfi og siglingum til að auka sam-
skiptahæfni þeirra og opna fyrir
þeim mikilvæga leið til að mynda
tengsl í viðskiptalífinu að námi
loknu.
Um 200 manns hafa skráð sig
til þátttöku í golfnámskeiði sem
hefst í febrúar. Áætlað er að allir
nemendur skólans, sem eru um
2.200 talsins, læri annaðhvort golf
eða siglingar áður en þeir útskrif-
ast.
Singapore Management Uni-
versity var stofnaður árið 2000 að
fyrirmynd eins af virtustu við-
skipaháskólum Bandaríkjanna. ■
Olíustöðvar á
höfuðborgarsvæðinu:
Engin hækk-
un á bensíni
NEYTENDUR Verð á 95 oktan bensíni
í sjálfsafgreiðslu á olíustöðvum á
höfuðborgarsvæðinu helst
óbreytt eftir að olíufélögin þrjú,
Esso, Skeljungur og Olís lækkuðu
öll verðið fyrir síðustu helgi. Gef-
inn er sami afsláttur hjá öllum ol-
íufélögunum, sjö krónur og tutt-
ugu aurar á lítranum af bensíni og
níu krónur og níutíu aura á lítran-
um af dísilolíu.
Óbreytt verð er á sjálfs-
afgreiðslustöðvum. Ódýrasti bens-
ínlítrinn er sem fyrr hjá Orkunni.
Samkvæmt upplýsingum frá Atl-
antsolíu er von á nýrri sendingu af
bensíni nú um mánaðamótin.
BENSÍNVERÐ Á
SJÁLFSAFGREIÐSLUSTÖÐUM
Bensín Dísilolía
Atlantsolía Uppselt 35,00
Esso Express 92,50 34,90
Orkan 92,40 34,80
ÓB 92,50 34,90
Esso 93,70 35,90
Olís 93,70 35,90
Shell 93,70 35,90
MENNTUN „Samdráttur í kennslu og
vísindastörfum á Landspítala-
háskólasjúkrahúsi þýðir óhjá-
kvæmilega að nemendum heil-
brigðisstétta, sem koma hingað til
kennslu og þjálfunar verður
minna sinnt heldur en áður,“ segir
Gísli Einarsson, framkvæmda-
stjóri kennslu, vísinda og þróunar
við Landspítalann.
Gísli sagði að fjárhagsumhverfi
Háskólans byggði á samningi við
menntamálaráðuneytið. Í því
reiknilíkani sem notað væri, hefði
sá hluti sem tæki til klínískrar
kennslu heilbrigðisvísindagreina,
aldrei verið reiknaður inn.
„Ef þessi hluti væri reiknaður
inn, þá ættum við að vera með um
800 milljónir inni í spítalanum
fyrir þá nema sem koma árlega til
kennslu og þjálfunar,“ sagði Gísli.
„En spítalinn fær ekki krónu úr
menntageiranum, því þetta hefur
aldrei verið skilgreint og reiknað
inn í dæmið. Þær 2-300 milljónir
sem hann fær koma úr heilbrigð-
isgeiranum.“
Á Landspítalanum fá um 600
nemendur heilbrigðisstétta
kennslu og þjálfun árlega. Gísli
sagði að samdrátturinn myndi
ekki verða til þess að fjöldinn yrði
skorinn niður, heldur kæmi hann
fram í því að nemendum yrði
minna sinnt. ■
LANDSPÍTALINN
Klínísk kennsla ekki reiknuð inn.
Landspítalinn segist eiga inni 800 milljónir vegna kennslu og þjálfunar:
Nemendum minna sinnt en áður
SIGÞÓR JÓNSSON
Bendir á að verðmætaaukning stærstu fyrirtækja jafngildi næstum fjórðungi
landsframleiðslu.
Sóriðjan minni en
Kauphallargróði
Fimm stærstu félögin í Kauphöllinni hafa vaxið að verðmæti um tæp-
lega 190 milljarða á einu ári. Þetta er meiri verðmætaaukning en sem
nemur öllum fjárfestingum vegna virkjunar og stóriðju á Austurlandi.
Verð 20. jan 2004
Verð 20. jan 2003
Pha
rm
aco
Eim
ski
p
132
114,5
71,4
49,5
37,5
31,924,4
61,755,4
43,9
Lan
dsb
an
ki
Ísla
nd
sba
nki
KB
ba
nki
ÞRÓUN Á MARKAÐSVERÐMÆTI
STÆRSTU FYRIRTÆKJANNA
VERÐMÆTI 5 STÆRSTU* FYRIR-
TÆKJA Í ÚRVALSVÍSITÖLU
KAUPHALLAR ÍSLANDS
Markaðsverðmæti í milljörðum króna
Heimild: KB-banki
Markaðsverðmæti í milljörðum króna
* Þau fimm sem nú eru stærst að teknu tilliti
til sameninga og breytinga á hlutafé.
Heimild: KB-banki
160,3
405
3.1. 2003 20.1. 2004
Gunnar Örn Kristjánsson, fráfarandi forstjóri SÍF:
Segir uppsögn sína ótengda læknasjóði
GUNNAR ÖRN
KRISTJÁNSSON
Sleppir á næstunni stjórnar-
taumunum hjá SÍF.
■ Lögreglufréttir
ÖLVUNARAKSTUR Einn var tekinn
grunaður um ölvun við akstur, við
reglubundið eftirlit, á Egilsstöðum
í fyrrinótt.