Fréttablaðið - 23.01.2004, Qupperneq 12
12 23. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
BARNAÞRÆLKUN
Í byrjun 21. aldar viðgengst barnaþrælkun
ennþá á ýmsum stöðum í heiminum, eins
og þessi mynd frá Bangladesh sýnir, en
pollinn vinnur við að hræra í gúmmítunnu
í blöðruverksmiðju.
ÞORRAMATUR Misjafn er smekkur
manna þegar kemur að þorramat. Í
könnun sem PricewaterhouseCoop-
ers lagði fyrir 1.200 Íslendinga árið
1999 kom í ljós að hákarl, sviðasulta
og hangikjöt var langvinsælasti
þorramaturinn. Þá kom í ljós að
fleiri karlar en konur borða þorra-
mat og að landsbyggðarfólk borðar
þorramat í ríkari mæli en höfuð-
borgarbúar. Fréttablaðið lagði leið
sína á Hrafnistu í Reykjavík og
spurði nokkra íbúa hvaða þorramat
þeim þætti bestur.
Örn Sveinsson:
Hvalurinn bestur
„Mér þykir hvalurinn bestur en hann er
víst ekki á boðstólum um þessar mundir.
Í staðinn læt ég
mér nægja svið, og
súran blóðmör og
lifrarpylsu.“ Í kvöld
er haldið þorrablót
á Hrafnistu. Örn
segist ekki ætla að
láta sig vanta. „Ég
er búinn að bora
þorramat síðan ég
var drengur. Eftir að ég varð einn nældi
ég mér í þorrabakka til að halda í hefð-
ina. Þá er ómissandi hákarl og brennivín.“
Eyjólfur Ragnar Eyjólfsson:
Vill þorramatinn
þokkalega súran
„Mér þykir yfirleitt allur þorramaður góð-
ur sé hann þokkalega súr. En ég sakna
þess að fá ekki
rengi. Þetta var
gæðamatur.“ Eyjólf-
ur segist vera allra
landshorna kvik-
indi. „Ég er fæddur
í Hafnarfirði og var
á sjónum í tuttugu
ár. Þá fluttist ég
norður í Húna-
vatnssýslu og bjó þar í fimmtán ár. Þaðan
fluttist ég á Hvammstanga þar sem ég
bjó næstu tuttugu árin. Í dag er ég fluttur
suður á mölina. Ólík búseta hamlaði mér
ekki frá því að leggja mér þorramat til
munns, síður en svo.“
Herbert Ólafsson:
Alinn upp
á súrmeti
„Það má segja að
ég sé alinn upp á
þorramat og geri
ekki upp á milli
hvað mér þykir best. Móðir mín útbjó
allan súrmat fyrir heimilið. Hún setti í
súr á haustin og síðan var étið upp úr
tunnunum yfir veturinn.“ Herbert er
fæddur á Gjögri í Árneshreppi og er ný-
búinn að vera á þorrablóti Stranda-
manna. „Ég saknaði þess að hvalur var
ekki á boðstólum.“
Guðrún Elíasdóttir:
Súrhvalur
bestur
Guðrún er Vestfirð-
ingur, alin upp í
Þingeyjarsýslu.
„Þorramatur þekkt-
ist á mínu heimili
og sáu fósturfor-
eldrar mínir um að
súrsa. Mér finnst súrhvalur bestur og súrt
slátur þykir mér gott.“ Guðrún segir
ómissandi að borða þorramat að minnsta
kosti einu sinni á ári. ■
Guðfaðir
þorrablótanna
Bóndadagurinn markar upphaf þorrans. Árið 1956 hóf Halldór S. Gröndal
að bjóða viðskiptavinum sínum upp á íslenskan mat framreiddan í trogum.
Það er því eflaust óhætt að kalla hann guðföður nútíma þorrablóta.
BÓNDADAGUR Bóndadagurinn er í
dag og markar hann upphaf þorr-
ans. Fyrir miðja síðustu öld var
þorramatur torfenginn. Það var
helst að þeir sem tilheyrðu átt-
hagafélagum gætu nálgast hann.
Árið 1956 varð breyting á þessu.
Hin hefðbundnu þorrablót, sem
nútímafólk þekkir, á rætur sínar
að rekja til Halldórs S. Gröndal,
þáverandi veitingamanns í
Naustinu. Fyrir tæpum fimmtíu
árum tók hann upp á þeirri ný-
breytni að bjóða viðskiptavinum
sínum upp á íslenskan mat sem
framreiddur var í trogum.
„Um áramótin 1956 var ekk-
ert að gera í Naustinu og mig
vantaði góða hugmynd,“ segir
Halldór. „Um þetta leyti var ég
að lesa bók Jónasar Jónassonar
frá Hrafnagili um íslenska þjóð-
hætti þegar ég kom niður á lýs-
ingu hans á þorramat. Þar sagði
frá því hvaða matur þetta væri
og í bókinni voru myndir af trog-
um. Í kjölfarið ákvað ég að hitta
Kristján Eldjárn, sem þá var
þjóðminjavörður, og bar ég þá
hugmynd undir hann að bjóða
upp á þorramat. Hann tók hug-
myndinni afskaplega vel og
leiddi mig niður í kjallara þar
sem hann sýndi mér nokkur
trog. Síðan lánaði hann mér trog,
sem voru geirnegld, og sagði
mér að smíða nokkur stykki og
safna saman þorramat.“
Að sögn Halldórs var ekki
auðvelt að nálgast þorramat á
þessum árum.
„Ég fór til Þorbjörns í Kjöt-
búðinni Borg á Laugavegi og
hann hjálpaði mér fyrstu árin að
safna saman mat. Þá leitaði ég
fanga hjá afabróður mínum í
Hnífsdal sem skaffaði mér há-
karl. Guðbrandur Magnússon
hjá ÁTVR útvegaði mér síðan
eldgamalt brennivín frá 1930.
Svo var farið af stað.“ Halldór
segir þorrablótið á Naustinu
strax hafa slegið í gegn og húsið
ávallt sneisafullt af fólki.
Viðurkenning
fyrir frumkvæði
Árið 2001 fékk Halldór óvænta
viðurkenningu frá Guðna Ágústs-
syni landbúnaðarráðherra. Í hófi
sem bændur héldu við upphaf árs-
fundar kallaði Guðni Halldór til
sín upp í pontu og las fyrir hann
upp úr skjali þar sem honum var
þakkað fyrir það frumkvæði að
hefja þorramatinn á ný til vegs og
virðingar, jafnt hérlendis sem er-
lendis.
„Frumkvæði þitt færir bænd-
um og afurðastöðvum miklar
tekjur og skapar ófá störf við úr-
vinnslu, sölu og framleiðslu,“
segir í skjalinu.
Halldór segist afar kátur með
þessa viðurkenningu sem jafn-
framt sé sú eina sem hann hafi
hlotið. Hann segist sjálfur alltaf
þreyja þorrann.
„Þeir í Naustinu sendu mér
alltaf trog á bóndadaginn og
kölluðu það höfundarlaun. Nú er
víst búið að loka blessaða
Naustinu. Mér finnst það synd
því staðurinn hefði orðið 50 ára í
haust.“ Aðspurður taldi Halldór
ólíklegt að hann fengi trog ann-
ars staðar frá.
Drottinn hafði betur
Halldór starfaði sem prestur í
aldarfjórðung, lengst af sem
sóknarprestur í Grensássókn.
En hvað olli því að veitingahúsa-
maður settist á skólabekk og fór
að læra guðfræði?
„Ég varð fyrir mikilli köllun á
miðjum aldri að verða prestur
og eignaðist lifandi trú. Ég barð-
ist á móti þessu í tvö ár, en Drott-
inn hafði betur.“
Halldór lét af störfum árið
1997 þá sjötugur að aldri.
kolbrun@frettabladid.is
Amtsbókasafnið:
Lokað í
mánuð
AKUREYRI Amtsbókasafninu á Akur-
eyri verður lokað 1. febrúar næst-
komandi vegna lokaáfanga við end-
urbætur á húsnæði þess.
Á heimasíðu Akureyrarbæjar
segir að aðstaðan í
nýju Amtsbóka-
safni verði öll til
fyrirmyndar. Um
leið eru bæjarbúar
beðnir að sýna um-
burðarlyndi vegna
lokunarinnar. En
fátt er svo með öllu
illt að ekki boði nokkuð gott. Þeir
sem taka bækur, geisladiska eða
myndbönd að láni fram að lokun
safnsins um mánaðamótin, þurfa
vitaskuld ekki að skila því aftur
fyrr en eftir rúman mánuð.
Dyr Amtsbókasafnsins á Akur-
eyri verða opnaðar aftur gestum og
gangandi 6. mars með viðhöfn. ■
LOKA UM
MÁNAÐAMÓT
Opnar aftur
6. mars.
SÉRA HALLDÓR GRÖNDAL
Árið 2001 fékk Halldór óvænta viðurkenningu frá Guðna Ágústssyni landbúnaðarráðherra. Guðni þakkaði
Halldóri fyrir það frumkvæði að hefja þorramatinn á ný til vegs og virðingar, jafnt hérlendis sem erlendis.
Þorramatur:
Söknuður að súrhval