Fréttablaðið - 23.01.2004, Qupperneq 24
24 23. janúar 2004 FÖSTUDAGUR
■ Andlát
■ Jarðarfarir
■ Afmæli
Spænski listmálarinn SalvadorDali lést á sjúkrahúsi í heima-
bæ sínum Figueras í Katalóníu á
Spáni þann 23. janúar 1989. Dali
var 84 ára að aldri en það voru
hjarta- og lungnamein sem drógu
hann til dauða.
Dali var síðasti stórmálarinn
úr hreyfingunni sem kenndi sig
við súrrealista og var þekktur fyr-
ir frumlegar og mátulega sýrðar
myndir af draumheimum en hann
sótti efnivið sinn vitaskuld mikið í
undirmeðvitundina en blandaði
oft saman raunveruleikanum og
hinu fáránlega.
Súrrealistarnir hristu upp í
listaheiminum á þriðja og fjórða
áratug síðustu aldar með frumleg-
um efnistökum sínum en Dali
varð ekki síður þekktur fyrir sér-
stæða framkomu sína, útlit og
krassandi yfirlýsingar.
Þegar Dali lést hafði hann ekki
málað í fimm ár vegna hand-
skjálfta og taugaveiki en andlegri-
og líkamlegri heilsu hans hrakaði
jafnt og þétt eftir að eiginkona
hans, Gala, féll frá.
Jóhann Karl Spánarkonunung-
ur minntist Dali með þeim orðum
að óviðjafnanleg verk hans yrðu
alltaf sérstakur kafli í listasög-
unni. Dali var ástríðufullur Spán-
verji og ánafnaði spænsku þjóð-
inni allar eigur sínar en einkasafn
hans og fasteignir voru metin á
6,5 milljarða íslenskra króna. ■
Valgeir Guðjónsson er 52 ára.
Guðný Halldórsdóttir er 50 ára.
Friðgerður Friðriksdóttir, elliheimilinu
Grund, lést miðvikudaginn 21. janúar.
Friðrik Ingvarsson frá Vestmannaeyjum,
búsettur í Bandaríkjunum, lést laugar-
daginn 17. janúar.
Guðrún Jónsdóttir, Akurgerði 17, lést
mánudaginn 12. janúar. Útförin fór fram
í gær.
Jónas Jóhannsson, Sléttahrauni 23,
Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 20. janúar.
Ólafur Helgi Gestsson, Smyrilshólum 2,
Reykjavík, lést þriðjudaginn 20. janúar.
Salvör Ebenesersdóttir frá Ísafirði, áður
til heimilis að Neshaga 7, Reykjavík, lést
miðvikudaginn 21. janúar.
Sigmar Guðmundsson, Smyrlahrauni
43, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 20. jan-
úar.
Sigurður Jónsson, Heiðargerði 21, lést
sunnudaginn 11. janúar. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey.
KARÓLÍNA MÓNAKÓPRINSESSA
Fæddist á þessum degi árið 1957.
23. janúar
■ Þetta gerðist
1849 Elizabeth Blackwell verður fyrsta
konan til þess að hljóta doktors-
nafnbót í lækningum.
1932 Franklin D. Roosevelt ríkisstjóri
tilkynnir að hann muni sækjast
eftir því að verða forsetaefni
demókrata.
1950 Ísraelsþing samþykkir tillögu um
að Jerúsalem skuli verða höfuð-
borg landsins.
1968 Floti Norður-Kóreu yfirtekur
bandaríska herskipið Pueblo
þar sem áhöfn þess var grunuð
um njósnir.
1973 Richard Nixon, forseti Bandaríkj-
anna, tilkynnir að Bandaríkin
muni draga sig út úr átökunum í
Víetnam.
1978 Terry Kath, gítarleikari rokkhljóm-
sveitarinnar Chigaco, deyr af völd-
um voðaskots 31 árs að aldri..
SALVADOR DALI
Þessi annálaði furðufugl og súrrealisti lést
á Spáni á þessum degi árið 1989.
Síðasti súrrealistinn
LISTAMAÐUR DEYR
■ Súrrealistinn og sérvitringurinn
Salvador Dali lést 84 ára að aldri..
23. janúar
1989
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma, langalangaamma
Torfhildur Guðlaug Jóhannesdóttir
(fædd 12.11.1926)
Hlíf 1, Ísafirði
andaðist á fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði þriðjudaginn 20. janúar.
Guðrún Ásgeirsdóttir
Guðmunda Ásgeirsdóttir
Sigrún Ásgeirsdóttir
Ásgeir Jónsson
Bóndadagurinn er í dag og þávelur dægurmálaútvarp Rásar
2, samkvæmt venju, kynþokka-
fyllsta mann landsins. „Við
komumst ekki hjá því,“ segir út-
varpskonan Lísa Páls. „Þetta var
gert í gamla daga þegar Rásin var
að byrja og svo tókum við þetta aft-
ur upp þegar Stefán Jón Hafstein
stjórnaði hérna í kringum 1989. Ég
held einmitt að hann hafi orðið fyr-
ir valinu þá og er því sá fyrsti sem
var valinn. Hann fór alveg hjá sér.“
Handboltamaðurinn Guðjón Val-
ur Sigurðsson var kynþokkafyllst-
ur að mati hlustenda Rásar 2 í
fyrra. Handbolta landsliðið er í eld-
línunni þessa dagana á Evrópumót-
inu í Slóveníu og Lísa efast því ekki
um að strákarnir hafi nokkra for-
gjöf á önnur þokkatröll í dag.
„Annars virðist þjóðin gleyma
þeim kynþokkafyllstu á milli ára og
þeir hverfa jafnan af lista. Það er
enginn nema Logi Bergmann Eiðs-
son sem hangir alltaf á listanum.
Aðrir virðast bara falla í gleymsk-
unnar dá, nema smekkur fólks
breytist svona hratt.“
Símakosningin hefst klukkan tíu
og stendur til rúmlega þrjú en þá
eru atkvæði talin og reynt verður
að fá sigurvegarann í heimsókn í
dægurmálaútvarpið eftir fréttir
klukkan fjögur. ■
Kynþokki
■ Rás 2 velur kynþokkafyllsta karl-
manninn í dag. Logi Bergmann hefur
haft mest úthald í gegnum árin.
Hver er mest sexí?
10.30 Dóra S. Hlíðberg, Ofanleiti 25,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju.
10.30 Helga Guðríður Vilhjálmsdóttir,
Albany, Ástralíu, verður jarðsungin
frá Grafarvogskirkju.
13.30 Birgir Sigurðsson verður jarð-
sunginn frá Dalvíkurkirkju.
13.30 Einar Hannes Guðmundsson,
Skipholti 21, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Fossvogskapellu.
13.30 Elín Sveinsdóttir verður jarðsung-
in frá Garðakirkju, Álftanesi.
13.30 Guðrún Anna Árnadóttir verður
jarðsungin frá Bústaðakirkju.
13.30 Kristín Þorsteinsdóttir, Skúlagötu
40, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Háteigskirkju.
13.30 Lilli Karen Wdowiak verður jarð-
sungin frá Kópavogskirkju.
13.30 Ólafur Valgeir Sverrisson, Víði-
hlíð, Grindavík, verður jarðsung-
inn frá Grindavíkurkirkju.
15.00 Einar Ingi Guðjónsson, Vestur-
bergi 39, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Fella- og Hólakirkju.
Það verður allt voðalega ró-legt,“ segir Guðmundur Elías
Knudsen, dansari hjá Íslenska
dansflokknum, sem er þrítugur í
dag. Hann slasaðist á frumsýn-
ingu söngleiksins Chicago um síð-
ustu helgi og óttast var að um
brjósklos væri að ræða. Vegna
baksins heldur hann sér rólegum.
„Jú, þetta er allt að batna,“ seg-
ir hann aðspurður um heilsuna.
„Ég þarf bara að ná bólgunni nið-
ur, sem betur fer var þetta ekki
brjósklos. En ég ætla að fresta af-
mælisfagnaði fram að næstu
helgi. Á morgun ætla ég að borða
eitthvað gott með fjölskyldunni.
Við ætluðum út að borða, en
vegna baksins þurfum við að
hætta við það. Ætli við sitjum ekki
bara og spilum og kjöftum og höf-
um það huggó.“
Guðmundi hefur verið bannað
að dansa um þessa helgi vegna
meiðsla og hann á því eftir sína
frumsýningu á Chicago. „Ég fæ að
dansa aftur á föstudaginn í næstu
viku, það verður mín frumsýning.
Einhverjir úr fjölskyldunni ætla
að reyna að koma og sjá því meira
að segja mínir nánustu hafa bara
séð sýninguna fyrir hlé. Þetta er
æðislega skemmtilegt verk og því
alveg þess virði að fara og kíkja,
jafnvel fyrir þá sem eru ekki mik-
ið fyrir söngleiki.“
Þetta er þriðja starfsár Guð-
mundar með dansflokknum og
hann segir starfstíma dansara
vera nokkuð stuttan. „Starfstím-
inn rokkar mikið til og frá. Í
kringum þrítugt er maður kominn
á seinni kantinn. Ef maður heldur
þessu við og er duglegur er
kannski hægt að vera í þessu fram
að fertugu.“ En Guðmundur
reiknar ekki með að dansa svo
lengi. „Þetta með bakið vakti mig
til umhugsunar. Ég er ekki alveg
með það á hreinu hvað ég geri í
framtíðinni en maður verður að
fara að hugsa um það. Ég er að
vonast til að fá hugljómun.“ ■
Fyrir tveimur árum síð-an vorum við með
raksturskeppni og settum
Íslandsmet í rakstri. Þá
rökuðum við 149 á einum
degi, þannig að við þurfum
ekki að setja met aftur,“
segir Torfi Geirmundsson,
rakari á Hárhorninu við
Hlemm. Í tilefni bónda-
dagsins munu þeir á Hár-
horninu bjóða upp á frían
rakstur á kl. 13–18 og veita
um leið ráðleggingar um
góðan rakstur.
„Í dag ætlum við að
leggja áherslu á að við-
skiptavinir fái þekkingu á
rakstri. Þetta verður dek-
urdagur og við þurfum
ekki að flýta okkur. Síðast
gátum við ekki einbeitt
okkur að viðskiptavininum
vegna þess að við stefnd-
um að því að raka svo
marga. Það er staðreynd
að margir drengir vita lít-
ið um hvernig á að raka
sig meðal annars vegna
þess fleiri alast upp hjá
einstæðum mæðrum og sjá aldrei
mann raka sig. Þetta er því kær-
komið tækifæri fyrir þá til þess
að læra rakstur.“
Það er mikil kúnst að raka sig
rétt og segir Torfi að þeir hafi
myndir sem sýni hvernig rakst-
ursleiðir eiga að vera. „Flestir
sem raka sig rangt raka á móti
rótinni en það verður að raka eft-
ir því sem rótin liggur. Ef rakað er
á móti rót getur það blóðgað og
myndast bólur á hálsi þegar rótin
vex inn í hann. Það er minna um
önnur vandamál eftir því sem
hreinlæti hefur aukist.“ ■
Rakstur
■ Torfi rakari býður karlmönnum
ókeypis rakstur í dag. Kjörið tækifæri fyrir
unga menn að læra réttu handtökin.
Afmæli
GUÐMUNDUR ELÍAS KNUDSEN
■ er 30 ára Hans nánustu hafa bara séð
söngleikinn Chicago fyrir hlé.
TORFI GEIRMUNDSSON
Rakar ekki lengur með hníf enda banna hreinlætis-
reglur slíkt. Nú nota rakarar einnota verkfæri en í
gamla daga þótti sá slyngasti rakarinn
sem brýndi hnífinn sinn best.
Ókeypis rakstur
á bóndadegi
Slegið á
frest um viku
GUÐMUNDUR ELÍAS
KNUDSEN
Slasaðist á frumsýningu söng-
leiksins Chicago. Hans frum-
sýning verður á föstudaginn
eftir viku.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
LÍSA PÁLS
Vill ekki nefna neinn sem hún telur standa
upp úr þegar kemur að kynþokka. „Ég
held mig bara til baka og laumast svo inn
og gef kallinum mitt atkvæði.“
Steinn í
heimsókn
Nú um helgina verða gesta-sýningar á litla sviði
Borgarleikhússins á einleikn-
um Steinn Steinarr. Verkið
sem er samið af leikaranum
Elfari Loga Hannessyni og
leikstjóranum Guðjóni Sig-
valdasyni og fjallar um ævi
skáldsins.
Textinn er allur eftir Stein
sjálfan og tekinn úr ljóðum
hans og tilsvörum. ■