Fréttablaðið - 23.01.2004, Side 54
Ólafur Gunnarsson hlaut í gærÍslensku bókmenntaverðlaun-
in í flokki fagurbókmennta fyrir
Öxina og jörðina en Guðjón Frið-
riksson var verðlaunaður í flokki
fræðirita og bóka almenns efnis
fyrir verkið Jón Sigurðsson - Ævi-
saga II.
Það kom fæstum á óvart að
Ólafur fengi verðlaunin fyrir Öx-
ina og jörðina og flestir höfðu fyr-
irfram veðjað á þessa niðurstöðu.
Ólafur tók gleðifréttinni af sinni
alkunnu ró en sagði þó að það
væri afskaplega gaman að fá
verðlaun. „Það er ekki hægt að
ljúga neinu um það.“
Guðjón átti alls ekki von á að
hljóta verðlaunin að þessu sinni
enda hefur hann fengið þau
tvisvar áður en árið 1991 hlaut
hann þau fyrir bókina Saga
Reykjavíkur - bærinn vaknar og
árið 1997 fyrir fyrsta bindi ævi-
sögu Einars Benediktssonar.
„Ég gældi ekki einu sinni við
hugmyndina um að vinna. Maður
gerir það nú yfirleitt þegar maður
er tilnefndur en að þessu sinni
hvarflaði það ekki að mér,“ sagði
Guðjón eftir að hann hafði tekið
við verðlaununum úr hendi Ólafs
Ragnars Grímssonar forseta.
Það kom viðstöddum nokkuð á
óvart að Guðjón skyldi hreppa
hnossið í þriðja sinn en almennt
var talið að Saga Reykjavíkur – í
þúsund ár, 870-1870, fyrri og sein-
ni hluti, eftir Þorleif Óskarsson
yrði verðlaunuð að þessu sinni.
Það var engu að síður almenn
ánægja með niðurstöðuna enda
Guðjón talinn vel að verðlaunum
komið fyrir ævisögu mannsins
sem alla jafna er kallaður sómi Ís-
lands, sverð þess og skjöldur.
Auk bókar Ólafs voru Landslag
er aldrei asnalegt eftir Bergsvein
Birgisson, Skugga-Baldur eftir
Sjón, Stormur eftir Einar Kárason
og Tvífundnaland eftir Gyrði Elí-
asson tilnefndar í flokki fagur-
bókmennta. Úr flokki fræðibóka
voru auk bókarinnar um Jón Sig-
urðsson tilnefnd verkin Að láta
lífið rætast eftir Hlín Agnarsdótt-
ur, Halldór eftir Hannes Hólm-
stein Gissurarson, Saga Reykja-
víkur og Valtýr Stefánsson, rit-
stjóri Morgunblaðsins, eftir
Jakob F. Ásgeirsson.
Ragnar Arnalds var formaður
lokadómnefndar en í henni sátu
með honum Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir og Snorri Már Skúla-
son. ■
Hrósið 46 23. janúar 2003 FÖSTUDAGUR
Þetta kemur fólki raunverulegaekkert við en verður samt að
koma fram. Ruth gerði þau leiðu
mistök að bera það á borð í
æsifréttastíl í tímaritum og dag-
blaði að ég hafi arðrænt hana þegar
hún var barnastjarna og ber þar
með á mig þjófsorð,“ segir Ríkey
Ingimundardóttir um raunveruleg-
ar ástæður þess að hún eigi erfitt
með að fyrirgefa Ruth Reginlads,
dóttur sinni, orð sem hún hefur
látið falla um sig á prenti.
„Þetta er náttúrlega víðs fjarri
öllum sannleika og kallar á réttlæt-
ingu. Ruth hefur þegar fyrir
nokkrum árum reynt að lögsækja
mig og krafist endurgreiðslu vegna
ímyndaðs arðráns af minni hálfu.
Ekki þótti nokkur ástæða til að reka
það mál.“
Mál mæðgnanna var til umfjöll-
unar í þættinum Fólk á Skjá Einum
í vikunni en Ríkey segir að „þar hafi
ekki komið nægilega skýrt fram
raunveruleg og stærsta ástæða þess
að ég er ósátt við Ruth. Auðvitað er
gott og nauðsynlegt að geta fyrir-
gefið, en að sverta mannorð ann-
arra í annarlegum tilgangi er erfitt
að fyrirgefa. Ég vissi vel að „ævi-
saga“ Ruthar gengi ekki upp frekar
en aðrar ævisögur án þess að
minnst sé á foreldra og uppruna en
kannski var ekki rétt að hafa þetta
alveg óritskoðað.“
Ríkey segist gjarnan vilja að
bókin nái að þjóna þeim göfuga til-
gangi sem Ruth leggur upp með og
hefur ekkert á móti bókinni sem
slíkri. „Þetta er einstæð bók um lífs-
reynslu Ruthar eftir Ruth. Mig
vantar bara húmor fyrir rangfærsl-
um, ósannindum og skáldskap um
sjálfa mig á prenti fyrir alþjóð.“ ■
Deilur
RÍKEY INGIMUNDARDÓTTIR
■ telur að það hafi ekki komið nægi-
lega skýrt fram í sjónvarpsþætti í vikunni
af hverju hún telji sig eiga afsökunar-
beiðni inni hjá Ruth Reginalds.
Verðlaun
ÓLAFUR GUNNARSSON OG
GUÐJÓN FRIÐRIKSSON
■ hlutu í gær Íslensku bókmenntaverð-
launin. Þetta er í þriðja sinn sem Guðjón
hlýtur verðlaunin og hann átti því alls
ekki von á þeim að þessu sinni.
Rocky
...fær Helgi í Góu fyrir að láta
ekkert á sig fá og framleiða 50
tonn af blandi í poka a mánuði.
Fréttiraf fólki
Hefur ekki húmor fyrir rangfærslum
1
6 7
8 9
14
16 17
15
18
2 3 4
1311
10
12
5
í dag
Brjóstin gætu
sprungið
Eftirlaunaþjófurinn
heiðarlegur
heimavið
Forstjóri SÍF með
84 milljóna
starfslokasamning
Það eru ekki allir hrifnir afhugsanlegum forsetaframboði
Ástþórs Magnússonar og Snorra
Ásmundssonar. Meðal þeirra sem
líst ekkert á þetta er Ingvi Hrafn
Jónsson sem fjallaði um framboð
tvímenninganna á Útvarpi Sögu í
fyrradag. Þar sagði hann það
hneyksli að slíkir menn kæmust í
framboð vegna þess eins að 3000
Íslendingar væru það vitlausir að
skrifa undir stuðningsyfirlýsingu
við þá. „Þeir komast í framboð af
því það eru íslensk fífl, 3000
stykki, sem skrifa undir það. Þið,
þessi 3000, eigið að skammast
ykkar, hundskammast ykkar,“
sagði Ingvi Hrafn áður en hann
sneri sér að öðru.
RÍKEY INGIMUNDARDÓTTIR
„Það er alls ekki minn stíll að standa í erj-
um og síst af öllu í fjölmiðlum.
Ég vil miklu heldur brosa að lífinu og
halda mínu góða skapi og stunda ánægð
mína vinnu sem myndlistarkona.“
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6:
1.
2.
3.
Guðbrandur Sigurðsson.
Lappi.
Keflavík.
Lárétt: 1 léttir svefni, 6 karlfugl, 7 í röð, 8
fimmtíu og einn, 9 vitskerti, 10 fataefni,
12 virði, 14 keyra, 15 einkennisstafir, 16
stafur, 17 látbragð, 18 hestur.
Lóðrétt: 1 steinn, 2 mannsnafn, 3 félag,
4 ríkidæmi, 5 óreiðu, 9 áköf, B ílát, 13 á
golfvelli (þf), 14 hagnað, 17 kind.
Lausn. Lárétt: 1vaknar, 6ara,7uú,8li,
9óði,10ull,12met,14aka,15ge,16
ká,17æði,18klár.
Lóðrétt: 1vala,2ari,3ka,4auðlegð,5
rúi,9ólm,11skál,13teig,14akk,17ær.
Þú getur bara lesið þér til og æft þig!
Passaðu þig á mávinum!
En hvernig í hlandblautu horngrýti á maður að vita hvað
kvenfólk vill í rúminu ef það vill aldrei nein gella koma með
manni heim??!
Öxin og frelsishetjan unnu
ÓLAFUR GUNNARSSON OG GUÐJÓN FRIÐRIKSSON
Bókmenntaverðlaunahafar ársins 2004 fá hvor um sig 750 þúsund krónur og skrautritað verðlaunaskjal og verðlaunagrip, hannaðan af
Jóni Snorra Sigurðssyni á gullsmíðaverkstæði Jens, – opin bók á granítstöpli með nafni verðlaunahöfundar og bókar hans.