Fréttablaðið - 07.05.2004, Síða 25
Gamalt og gott ráð til að
koma í veg fyrir sterka
matarlykt er að láta kerti loga við elda-
vélina. Það gleypir súrefnið og þá lykt-
ina líka.
3FÖSTUDAGUR 7. maí 2004
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Opið
laugardag
10-14.30
Opið
laugardag
10-14.30
Glæný stórlúða og humar í dag.
Grillfiskur er okkar fag
Til hnífs og skeiðar
GUÐRÚN JÓHANNESDÓTTIR BAKAR
ÍTALSKAR TVÍBÖKUR MEÐ MÖNDLUM.
Flestar þjóðir eiga sína tvíböku.
Ítalskt biscotti er fádæma gott
meðlæti bæði með ekta góðum
kaffibolla og er ekki síðra með
ilmandi gullnu glasi af víni frá
Toskana. Á Ítalíu ku hvert hérað
eiga sína gerð af biscotti. Upp-
lagt er að hjúpa tvíbökurnar með
súkkulaði eða bæta rifnum
sítrónuberki í uppskriftina til til-
breytingar.
Ristið möndlurnar á heitri
pönnu og setjið þær svo til hliðar
til kælingar. Blandið sykri, hveiti,
matarsóda og salti saman í skál.
Bætið eggjum, smjöri, dropum
og möndlum út í og hrærið með
hrærivél þar til deigið loðir vel
saman. Best að hræra eins lítið og
hægt er. Flytjið deigið á borðflöt
þakinn hveiti og hnoðið 1 dl af
hveiti saman við deigið. Deigið á
að vera pínulítið klístrað. Dustið
hendurnar með hveiti og mótið 5
til 6 hleifa sem eru um 4x20 cm
að stærð og raðið þeim á vel
smurða bökunarplötu. Hafið að
minnsta kosti 5 cm á milli hleif-
anna þar sem þeir fletjast út við
bökun. Bakið í 200 gráðu ofni í
um 20 mínútur eða þar til hleif-
arnir eru fallega gullnir, takið þá
svo út úr ofninum og látið kólna.
Skáskerið síðan hvern hleif í um
1,5 cm þykkar kökur raðið þeim á
bökunarplötu og bakið aftur í um
10 mínútur. ■
Biscotti
!
Rosalega mikið af steinselju -
það er málið í matreiðslunni
hjá Bergi Þór.
31/2 dl sykur
5 dl hveiti
1/4 tsk. matarsódi
1/4 tsk. salt
150 g möndlur með hýði
4 stór egg
2 msk. smjör
1 tsk. vailludropar
1 tsk. möndludropar
1 dl hveiti til að hnoða með
Bergur Þór Ingólfsson:
Borðar æðislegan
mat á hverjum degi
„Ég bý við þau forréttindi að borða æðislegan mat á hverjum degi hjá
henni Evu minni,“ segir Bergur Þór Ingólfsson leikari spurður um eft-
irlætis hvunndagsmatinn sinn. Hann upplýsir líka að hún Eva hans heiti
Eva Vala Guðjónsdóttir. Eftir smá umhugsun og vangaveltur nefnir
hann einn rétt sem hann heldur upp á öðrum fremur, það er „Tún-
fiskpasta a la Siebenmorgen“. „Siebenmorgen er spánskur kunningi
okkar og hann býr til þetta afbragðsgóða pasta,“ segir hann til skýring-
ar. En nú verður hann að kalla í Evu til að spyrja betur út í galdurinn við
matlagninguna. Jú, það er olía á pönnu og hvítlaukur látinn krauma um
stund. Síðan kemur túnfiskur úr dós og rjómi saman við. Þetta er aðeins
látið malla og hleypt upp á því með ekta parmesanosti sem rifinn er út
í. Spaghettíið er soðið eftir leiðbeiningum á pakkanum og sósunni hellt
yfir. Aðaltrompið er svo hellingur af steinselju sem tætt er yfir diskinn,
„Rosalega mikið af steinselju – heilt knippi,“ áréttar Bergur Þór. Í lokin
er leikarinn spurður hvort honum hætti ekkert til að þyngjast fyrst
hann býr við svona gott fæði upp á hvern dag. Svarið kemur um hæl.
„Ég rokka til um svona sex kíló upp og niður á hverju ári eftir því hvað
mikið er að gera. Holdafarið ræðst af viðfangsefnunum.“ ■
HÚSRÁÐ: