Fréttablaðið - 04.03.2004, Side 2
2 4. mars 2004 FIMMTUDAGUR
“Nei það er búið að yrkja ljóðið með
viðlaginu „Ísland úr Nató - herinn
burt.“ Engu við það að bæta.“
Birna Þórðardóttir hefur gefið út ljóðabók.
Hún er meðal annars þekkt fyrir einarða
baráttu gegn veru Bandaríkjahers á Íslandi.
Spurningdagsins
Birna, þú hefur ekki ort nein ljóð til
Bandaríkjahers?
■ Evrópa
Dæmdur í fangelsi
í þrjú og hálft ár
Bjarni Sigurðsson, fyrrum fasteignasali og eigandi Fasteignasölunnar
Holts, var ekki í héraðsdómi þegar þriggja og hálfs árs fangelsisdómur
yfir honum var kveðinn upp. Ekki er ljóst hvort dómnum verður áfrýjað.
DÓMSMÁL Bjarni Sigurðsson, fyrr-
um fasteignasali á Fasteignasöl-
unni Holti í Kópavogi, var dæmd-
ur í þriggja og hálfs árs fangelsi, í
Héraðsdómi Reykjaness í gær.
Hann var fundinn sekur um fjár-
svik, skjalafals, fjárdrátt og
skattalagabrot. Þá var honum gert
að greiða 11,3 milljóna króna sekt
í ríkissjóð innan fjögurra vikna.
Ella sæti hann fangelsi í hálft ár
til viðbótar. Bjarna var gert að
greiða fórnarlömbum svikanna,
einstaklingum og fyrirtækjum,
um 90 milljónir króna.
Bjarni var ekki við dómsupp-
söguna í gær. Gylfi Thorlacius,
verjandi Bjarna og Helgi Magnús
Gunnarsson, fulltrúi ríkislögreglu-
stjóra, voru sammála um að dóm-
urinn hefði verið í líkingu við það
sem mátti búast við. Ekki lá fyrir í
gær hvort dómnum verður áfrýjað.
Bjarni, sem var eigandi Fast-
eignasölunnar Holts, játaði brot
sín skýlaust fyrir dómi en hann
sveik samtals um 160 milljónir
króna út úr viðskiptavinum sínum
og fyrirtækjum auk þess sem
hann stóð ekki skil á virðisauka-
skatti. Bjarna er gert að greiða
Íbúðalánasjóði rúmar 37 milljónir
í bætur, Verðbréfastofunni um
27,8 milljónir, Sparisjóði Kefla-
víkur rúmar tíu milljónir, Virð-
ingu hf. og S. Grétarssyni tæpar
sjö milljónir og einstaklingum
samtals um fjóra og hálfa milljón.
Bjarni var samvinnufús við
rannsókn málsins og hefur ekki
áður sætt refsingu. Í dómnum seg-
ir að Bjarni eigi sér engar máls-
bætur. Þá segir að brot hans, sem
tengjast skjölum og fjármunum,
sem honum hafi verið trúað fyrir
sem fasteignasala, séu mjög stór-
felld. Hann braut gróflega gegn
hagsmunum skjólstæðinga sinna í
skjóli opinberrar löggildingar og
olli umtalsverðu tjóni sem hann
hefur ekki bætt nema að óverulegu
leyti. Ástæða þótti að þyngja dóm-
inn sökum þess hver einbeittur
brotavilji Bjarna var.
Bjarni var sviptur ævilangt lög-
gildingu til að starfa sem
fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
vegna þess hversu umfangsmikil
brotin voru sem hann framdi sem
fasteignasali. Honum var einnig
gert að greiða allan sakarkostnað
og 450 þúsund krónur í málsvarn-
arlaun til verjanda síns.
hrs@frettabladid.is
BELGÍA, AP Belginn Marc Dutroux,
sem ákærður er fyrir að ræna og
nauðga sex stúlkum og vera vald-
ur að dauða fjögurra þeirra, var
kallaður í vitnastúku í gær til að
svara spurningum dómara. Hann
kenndi fyrrverandi eiginkonu
sinni, þremur félögum sínum og
tveimur lögreglumönnum um að
hafa rænt stúlkunum og gaf jafn-
framt í skyn að umfangsmikill
barnaklámhringur hefði staðið á
bak við ránin.
Dutroux lýsti því í smáatriðum
hvernig hann útbjó leyniklefa í
kjallaranum á heimili sínu í
Sarsla-Buissiere en neitaði því að
hann hefði verið ætlaður til að
hýsa stúlkurnar. Hann fullyrti að
eiginkonan og tveir aðrir menn
hefðu rænt tveimur átta ára stúlk-
um, Julie Lejeune og Melissu
Russo, í júlí 1995. Dutroux viður-
kenndi aftur á móti að hafa rænt
An Marchal og Eefje Lambrecks í
ágúst sama ár en sagðist hafa not-
ið til þess aðstoðar tveggja lög-
reglumanna. Lík stúlknanna fjög-
urra fundust grafin í garðinum
við hús Dutroux.
Dómarinn spurði um foreldra
Dutroux og menntun en sakborn-
ingurinn sýndi því engan áhuga að
ræða um uppruna sinn og fortíð. ■
Hafnarfjörður:
Fjórir teknir
í dópmáli
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Hafnar-
firði handtók í gær fjóra einstak-
linga á þrítugsaldri vegna meints
fíkniefnamisferlis. Í framhaldi af
því var krafist gæsluvarðhalds yfir
tveimur þeirra, pilti og stúlku. Hin-
um var sleppt að loknum yfir-
heyrslum.
Lögregla hafði fylgst með hús-
næði í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði í
allnokkurn tíma. Í framhaldi af því
voru gerðar tvær húsleitir þar og
einnig var leitað í þremur bílum.
Hald var lagt á rúmlega 850
grömm af hassi, 160 grömm af
kókaíni, 10 grömm af kókaíni og
400 e-töflur. ■
Íslandsbanki:
Gefur út bók
um lífeyris-
sparnað
VIÐSKIPTI Íslandsbanki hefur gefið
út bókina Verðmætasta eignin eft-
ir Gunnar Baldvinsson, forstöðu-
mann lífeyris- og fagfjárfesta-
sviðs eignastýringar Íslands-
banka. Í frétt frá
bankanum kemur
fram að markmið
með útgáfunni sé
að vekja athygli á
lífeyrismálum.
Bókin er ætluð
bæði almenningi
og sérfræðingum
en í henni er að
finna upplýsingar
um réttindi fólks
í lífeyrissjóðum
auk þess sem
bent er á leiðir
sem fólk getur
notað til þess að meta og styrkja
eigin stöðu með tilliti til lífeyris.
Í fréttinni frá Íslandsbanka
segir að nafn bókarinnar hafi ver-
ið valið með hliðsjón af því að líf-
eyrisréttindi fólks séu í flestum
tilfellum verðmætasta eign hvers
og eins.
Með bókinni fylgir aðgangsorð
og lykilorð að vefsvæði þar sem
finna má reiknivél sem nýtist ein-
staklingum til glöggvunar á þeim
réttindum sem þeir hafa áunnið sér.
Bjarni Ármannsson skrifar for-
mála að bókinni. Hún er 255 blað-
síður að lengd og verður fyrsta
eintakið formlega afhent Geir H.
Haarde fjármálaráðherra í dag. ■
Blair gagnrýndur:
Mætir ekki
í atkvæða-
greiðslur
LONDON, AP Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, var gagn-
rýndur í fyrirspurnatíma breska
þingsins í gær fyrir að hafa aðeins
tekið þátt í einni af síðustu tutt-
ugu atkvæðagreiðslum þingsins.
Richard Bacon, þingmaður
Íhaldsflokksins, sagðist skilja að
Blair væri upptekinn en velti fyr-
ir sér hvort
Blair gerði sér
grein fyrir því
að á sama tíma
og hann þrýsti
s a m f l o k k s -
menn sína að
greiða atkvæði
með frum-
vörpum sem
þeir hefðu efa-
semdir um
hefði hann
ekki sjálfur
fyrir því að
mæta og
kjósa.
Blair skaut á þingmanninn á
móti og sagði meirihluta flokks
síns í þinginu svo mikinn að oft
mældist atkvæði hans ekki nema
brotabrot af því sem þyrfti. ■
Dómur kveðinn upp:
Mega ekki
hlera allt
BERLÍN, AP Lög sem heimila þýsku
lögreglunni að hlera samtöl á
heimilum fólks brjóta í bága við
stjórnarskrána og þeim verður
að breyta. Þannig hljóðar dómur
þýska stjórnlagadómstólsins þar
sem fjallað var um lögmæti lag-
anna. Þegar þau voru samþykkt
fyrir sex árum var réttlætingin
sú að þau hjálpuðu lögreglu að
berjast gegn skipulagðri glæpa-
starfsemi og hryðjuverkum.
Stjórnlagadómstóllinn sagði
lögin ganga of langt. Takmarka
ætti hlerunarheimildir við þá
sem eru grunaðir um alvarlega
glæpi og hætta ætti hlerun þeg-
ar fólk ræddi við ættingja,
lækna, presta og lögfræðinga
sem liggja ekki undir grun. ■
HEIMAHJÚKRUN „Við höfum ekki
fjármuni til að gera sérsamninga
til að koma til móts við þær kröfur
sem fyrrverandi starfsmenn heim-
ilishjúkrunarinnar setja fram,“
sagði Guðmundur Einarsson, for-
stjóri Helsugæslunnar, um stöðu
heimahjúkrunardeilunnar. Hann
sagði, að lítið þýddi að boða til við-
ræðna þegar staðan væri þessi.
„Í okkar viðræðum hafa þau
haldið sig við þetta svokallaða sól-
arlagsákvæði,“ sagði hann enn
fremur. „Ef við myndum semja um
það, þá myndum við ekki hafa pen-
inga til að greiða starfsmönnum á
nýja aksturssamningnum tvo
launaflokka eins og um hefur verið
samið. Þeir peningar eiga að koma
úr þessum háu akstursgreiðslum
sem verið hafa við lýði.“
Guðmundur sagði, að fyrst
hefðu starfsmennirnir gert
kröfu um að sólarlagsákvæðið
gilti til starfsloka hvers og eins.
Síðan hefðu þeir slakað á og rætt
um fimm ár. Eftir þann tíma
færu þeir á nýjan aksturssamn-
ing. Loks hefðu þeir orðað að
þeir gætu lækkað sig niður í
þrjú ár.
„Allt þetta er okkur gjörsam-
lega óaðgengilegt,“ sagði Guð-
mundur. „Við getum helst hugsað
okkur að hafa einhvern biðtíma
innan árs, en þá þurfum við líka
aukafjármuni til launahækkunar-
innar fyrir þá sem eru komnir á
nýja samninginn.“ ■
Forstjóri Heilsugæslunnar um stöðu heimahjúkrunardeilu:
Höfum ekki fjármagn
Rekstur Samskipa
árið 2003:
366 milljóna
hagnaður
VIÐSKIPTI Hagnaður Samskipa var
366 milljónir króna í fyrra sem er
124 milljónum króna betri afkoma
en árið 2002 en þá var hagnaður
félagsins 242 milljónir króna eftir
skatta. Heildartekjur Samskipa í
fyrra námu 17,3 milljörðum
króna, hækkuðu um 3,2 milljarða
frá árinu áður, eða um 23%. Tæp-
lega helmingur teknanna kemur
nú frá erlendri starfsemi félags-
ins.
Í tilkynningu frá félaginu segir
að umtalsverður bati hafi orðið á
nær öllum sviðum starfseminnar í
fyrra. Markvisst hafi verið unnið
að áframhaldandi uppbyggingu
Samskipa erlendis. Félagið hafi
styrkt umtalsvert stöðu sína í
flutningum í Norðursjó og á
Eystrasalti, þar sem skipum á
föstum áætlunarleiðum fjölgaði
úr tveimur í níu. Þá styrktu kaup
Samskipa á 80% hlut í hollenska
flutningafyrirtækinu Van Dieren
Maritime BV mjög stöðu félags-
ins á flutningamarkaði í Evrópu.
Með opnun skrifstofa í Suður-
Kóreu og Kína styrkti félagið ein-
nig umtalsvert stöðu sína á al-
þjóðamarkaði.
Framundan er áframhaldandi
útrás Samskipa en nú er unnið að
kaupum á flutningafyrirtæki í
Moskvu sem og opnun á skrif-
stofu í Astrakhan í Rússlandi, til
að styrkja stöðu félagsins enn
frekar á Kaspíahafssvæðinu. ■
Í RÉTTARSALNUM
Marc Dutroux (til hægri) og samverka-
menn hans sitja á bak við skothelt gler í
réttarsalnum í Arlon í Belgíu.
Marc Dutroux svarar spurningum dómara:
Reyndi að koma sökinni
yfir á vitorðsmenn sína
TONY BLAIR
Greiðir sjaldan atkvæði.
Eitt árið greiddi hann
atkvæði litlu oftar en
þingmenn Sinn Fein
sem taka ekki sæti á
þingi og þingmaður
sem lést þegar þing-
haldið var hálfnað.
VERÐMÆTASTA
EIGNIN
Bókin er ætluð
bæði almenningi
og einstaklingum.
GUÐMUNDUR EINARSSON
Skortir fjármagn til að semja um sólarlagsákvæði.
BJARNI SIGURÐSSON
Ef Bjarni greiðir ekki rúmlega ellefu milljón króna sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna bæt-
ist sex mánaða fangelsi við dóminn.
LÖGREGLUMAÐUR DÆMDUR
Breskur lögreglumaður var
dæmdur til tólf ára fangelsis-
vistar fyrir að nauðga átján ára
konu og ljósmynda hana þar
sem hún lá meðvitundarlaus.
Lögregluþjónninn mætti
stúlkunni þar sem hún var á
heimleið af skemmtistað og not-
færði sér ástand hennar.