Fréttablaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 6
6 4. mars 2004 FIMMTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 71,47 2,01%
Sterlingspund 131,09 0,63%
Dönsk króna 11,64 -0,11%
Evra 86,72 -0,13%
Gengisvísitala krónu 121,06 0,56%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 838
Velta 9.142 milljónir
ICEX - 15 2.545,5 +1,3%
Mestu viðskipti
KB banki hf. 643.224
Pharmaco hf. 283.462
Eimskipafélag Íslands 161.761
Mesta hækkun
Jarðboranir hf. 13,33%
Pharmaco hf. 5,49%
Íslandsbanki hf. 2,01%
Mesta lækkun
AFL fjárfestingarfélag hf. -1,96%
SH -1,82%
Landsbanki Íslands hf. -1,27%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
Dow Jones* 10594,81 0,03%
Nasdaq* 2034,91 -0,23%
S&P* 1150,83 0,15%
FTSE 4.525,1 -0,3%
DAX 4.071,7 -0,7%
NK50 1.436,3 0,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 19.50
Veistusvarið?
1Hvaða erlenda leikfangakeðja í eiguBaugs auglýsir á Formúlu 1 bílum
næsta keppnistímabil?
2Hvað heitir hjúkrunarforstjóriHeilsugæslunnar í Reykjavík?
3Metfjöldi tilnefninga barst til friðar-verðlauna Nóbels. Hve margir eru til-
nefndir?
Svörin eru á bls. 46
Fundur norrænna utanríkisráðherra:
Aukið samráð við Eystrasaltsríkin
STJÓRNMÁL Evrópumál, öryggis- og
varnarmál og málefni Íraks og
Afganistans voru til umræðu á
tveggja daga fundi utanríkisráð-
herra Norðurlanda sem lauk í
Reykjavík í gær, en Ísland gegnir
formennsku í norrænu ráðherra-
nefndinni um þessar mundir.
„Það var lögð mikil áhersla á
það, ekki síst af hálfu Íslands og
Noregs, að hafa reglulegt samráð
Norðurlanda og Eystrasaltsríkj-
anna, sem nú eru að ganga í Evr-
ópusambandið. Það er ekki síst í
kjölfar þess sem við þurfum að
endurskipuleggja okkar samráð.
Það er tekið mjög jákvætt í það að
Ísland og Noregur geti tekið þátt í
því með viðeigandi hætti,“ sagði
Halldór.
Utanríkisráðherrarnir töldu
einnig nauðsynlegt að hafa reglu-
legt samráð í tengslum við NATO-
fundi, en þótt Svíar og Finnar séu
ekki aðilar að bandalaginu þá
koma þeir með margvíslegum
hætti að því starfi. Á fundinum
var rætt um fullgildingu stækk-
unar Evrópska efnahagssvæðis-
ins og hugsanleg áhrif af nýrri
stjórnarskrá og stækkun Evrópu-
sambandsins.
„Það er ljóst að ný stjórnarskrá
Evrópusambandsríkjanna kemur
til með að hafa áhrif á stöðu okkar
og samstarfið innan EES og
Schengen. Áhrif okkar í ákvarð-
anatökuferlinu verða væntalega
minni en áður, en við getum ekk-
ert að því gert þar sem við höfum
ekki atkvæðisrétt innan ESB,“
sagði Halldór. ■
DÓMSMÁL Mál Karls Benediktsson-
ar, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra lífeyrissjóðsins Framsýnar,
var þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Karl er ákærð-
ur af ríkislögreglustjóra fyrir að
hafa sem framkvæmdastjóri mis-
notað aðstöðu sína og stefnt fé
sjóðsins í stórfellda hættu.
Í ákæru segir að Karl hafi far-
ið út fyrir umboð sitt til fjárfest-
inga þegar hann keypti fyrir hönd
lífeyrissjóðsins skuldabréf, sam-
tals að upphæð 51 milljón króna,
af syni sínum en einkahlutafélag-
ið Ingólfshvoll var greiðandinn.
Samkvæmt fjárfestingastefnu
sjóðsins voru fjárfestingar í
skuldabréfum með veði í atvinnu-
húsnæði utan höfuðborgarsvæðis-
ins og fasteignum á landsbyggð-
inni utan kaupstað óheimilar. Þá
er hann sagður
vanhæfur til að
ákvarða kaup á
skuldabréfun-
um vegna
tengsla sinna
við lánþega, son
sinn og tengda-
dóttur.
Karl er ein-
nig ákærður
fyrir að hafa
veitt sjálfum
sér fjögurra
milljón króna
lán úr sjóðnum
með veði í jörð-
inni Hlíðar-
tungu. Þá keypti hann af sjálfum
sér, fyrir hönd sjóðsins, sex millj-
ón króna skuldabréf með veði í
jörðinni Gljúfurárholti. Karl er
talinn vanhæfur til að lána og
kaupa af sjálfum sér, auk þess
sem veðsetning fasteigna á lands-
byggðinni var óheimil samkvæmt
reglum lífeyrissjóðsins.
Karl er líka sakaður um að
hafa lánað einkahlutafélaginu
Gerplu, sem sonur hans er í fyrir-
svari fyrir, 34 milljónir króna með
veði í fasteign við Hverfisgötu.
Lánið var 79 prósent að kaupverði
eignarinnar sem er langt umfram
leyfileg viðmiðunarmörk auk
þess sem hann er vanhæfur til að
veita syni sínum lán.
Lífeyrissjóðurinn Framsýn
gerir kröfu um rúmlega 35 millj-
ón króna skaðabætur.
hrs@frettabladid.is
JAN PETERSEN
Utanríkisráðherra Noregs sat fund nor-
rænna utanríkisráðherra sem haldinn var í
Reykjavík. Hann segir eðlilegt að auka
kvóta Norðmanna í norsk-íslenska síldar-
stofninum og koma á æskilegu jafnvægi.
Veiðar úr norsk-íslenska
síldarstofninum:
Réttlát krafa
Norðmanna
STJÓRNMÁL „Norsk stjórnvöld hafa
gert réttláta kröfu um að auka
kvótann í norsk-íslenska síldar-
stofninum. Kvótinn hefur í mörg
ár verið langt undir því sem
stjórnvöld telja eðlilegt og það er
rétt að leiðrétta það og koma á
æskilegu jafnvægi í veiðunum,“
segir Jan Petersen, utanríkisráð-
herra Noregs, um stöðu samninga
um veiðar úr norsk-íslenska síld-
arstofninum.
Utanríkisráðherrar Íslands og
Noregs ræddu ekki um síldar-
samningana á tveggja daga fundi
utanríkisráðherra Norðurland-
anna sem lauk í Reykjavík í gær.
Halldór Ásgrímsson hefur sagt að
samningar strandríkjanna fjög-
urra, Íslands, Færeyja, Noregs og
Rússlands um veiðarnar séu í
hnút, þar sem ekki sé hægt að fall-
ast á kröfur Norðmanna. Hann
segir engar nýjar tillögur liggja
fyrir í þessum efnum, en ef eitt-
hvað nýtt komi upp, séu menn í
sambandi til að ræða málin. ■
HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS
ver›ur haldinn í Borgarleikhúsinu föstudaginn
19. mars 2004 og hefst hann kl. 14.00.
Á dagskrá fundarins ver›a eftirtalin mál:
1. A›alfundarstörf skv. 14. gr. samflykkta félagsins.
2. Tillögur um breytingar á samflykktum félagsins:
a. Breyting á 1. gr.: Nafn félagsins ver›i Bur›arás hf.
b. Breyting á 10. gr. um lánveitingar til samræmis vi›
ákvæ›i hlutafélagalaga.
c. Breyting á 21. gr.: Fækkun stjórnarmanna úr 7 í 5.
d. Breyting á 14. og 27. grein. Lagt er til a› felld ver›i
úr samflykktum ákvæ›i um sko›unarmenn.
3. Tillaga um heimild stjórnar félagsins til a› kaupa hluti
í félaginu skv. 55. gr. hlutafjárlaga.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á upp á a›alfundi, skulu
vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi sí›ar en
sjö dögum fyrir a›alfund.
Frambo› til stjórnar skulu vera komin skriflega í hendur
stjórnar eigi sí›ar en fimm dögum fyrir a›alfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningar félagsins
ásamt sk‡rslu endursko›enda munu liggja frammi á
skrifstofu Eimskipafélagsins, Pósthússtræti 2 viku fyrir
a›alfund. Ennfremur ver›ur hægt a› nálgast flær á vefsí›u
félagsins www.ei.is frá sama tíma.
Fundargögn ver›a afhent hluthöfum e›a umbo›smönnum
fleirra á fundarsta› frá kl. 13.00 á fundardegi.
Sérstök athygli er vakin á flví a› fundurinn ver›ur nú í
fyrsta skipti í a›alsal Borgarleikhússins.
Reykjavík, 3. mars 2004.
Stjórn Hf. Eimskipafélags Íslands
A ‹ A L F U N D U R
Móðir endurheimti dóttur:
Rænt fyrir
sex árum
FÍLADELFÍA, AP Tíu daga stúlkubarn
sem talið var hafa látist í eldsvoða
fyrir sex árum reyndist hafa lent í
klóm mannræningja.
Stúlkan var talin af eftir að eldur
kviknaði á heimili hennar í Fíladelf-
íu árið 1997. Líkið fannst þó aldrei. Í
janúar síðastliðnum sá móðir henn-
ar sex ára stúlku í afmælisveislu og
var sannfærð um að hún væri dóttir
sín. DNA-rannsókn sýndi að hún
hafði rétt fyrir sér.
Lögreglan hefur gefið út hand-
tökuskipun á hendur 41 árs konu
sem grunuð er um að hafa kveikt í
húsi fjölskyldunnar og rænt barn-
inu. ■
NORRÆNIR UTANRÍKISRÁÐHERRAR
Fundi utanríkisráðherranna lauk í Reykja-
vík í gær með blaðamannafundi sem
haldinn var í Þjóðmenningarhúsinu.
KARL
BENEDIKTSSON
Karl veitti sjálfum sér
lán og keypti sín
eigin skuldabréf fyrir
hönd lífeyrissjóðsins.
KRÖFUGANGA VERKALÝÐSINS 1. MAÍ
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Framsýnar er ákærður fyrir að hafa misnot-
að aðstöðu sína í starfi og að hafa stefnt fé sjóðsins í hættu.
Lánaði sér og sínum
tugi milljóna króna
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Framsýnar, er ákærður
fyrir að hafa misnotað aðstöðu sína í starfi og að hafa stefnt fé sjóðsins í
stórfellda hættu. Framsýn krefst rúmra 35 milljóna króna í skaðabætur.
?