Fréttablaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 13
■ Evrópa ■ Asía
FIMMTUDAGUR 4. mars 2004
LESOTHO, AP Harry prins,
sonur Karls Breta-
prins, er hæstánægður
með dvöl sína í Lesotho
og vonast til að geta
vakið athygli heims-
byggðarinnar á vanda-
málum þessa litla kon-
ungsríkis.
Prinsinn kom til
Lesotho 13. febrúar til
að kynna sér aðstæður
a l n æ m i s s j ú k l i n g a ,
munaðarleysingja og
annarra sem eiga um
sárt að binda. Hann mun
dvelja í landinu í tvo
mánuði, heimsækja
heilsugæslustöðvar og
munaðarleysingjahæli
og skoða náttúruundur
og sögufræga staði.
Harry útskrifaðist úr
heimavistarskólanum
Eton síðasta vor og mun
að líkindum hefja nám
við Sandhurst-herskól-
ann næsta vetur. Síðast-
liðið haust vann hann á
búgarði í Ástralíu. ■
ÍRAK, AP Íraska lögreglan og
bandarískir hermenn hafa hand-
tekið fimmtán manns, þar á meðal
nokkra Írana, í tengslum við rann-
sókn á mannskæðum sprengju-
árásum á helgidóma sjía-múslíma
í Bagdad og Karbala. Staðfest hef-
ur verið að um sjálfsmorðsárásir
hafi verið að ræða en talið er að í
Karbala hafi einnig verið komið
fyrir sprengjum á vögnum. Íraska
framkvæmdaráðið segir að 271
maður hafi farist í árásunum og
393 særst en talsmenn bandaríska
hernámsliðsins höfðu haldið því
fram að tala látinna væri í kring-
um 117.
Reiði sjía-múslíma hefur eink-
um bitnað á bandaríska her-
námsliðinu. Ayatollah Ali al-
Husseini al-Sistan, leiðtogi sjía-
múslíma í Írak, sakaði Banda-
ríkjamenn um að hafa ekki sinnt
þeirri skyldu sinni að gæta örygg-
is íraskra borgara.
Undirritun bráðabirgðastjórn-
arskrár, sem fara átti fram í dag,
hefur verið frestað vegna árás-
anna. Jeremy Greenstock, sendi-
herra Breta í Írak, segir að búast
megi við því að bandarískir og
breskir hermenn verði í Írak í að
minnsta kosti tvö ár eftir að völd-
in hafa verið færð í hendurnar á
heimamönnum í sumar. „Við höf-
um verk að vinna og við ætlum
okkur að ljúka því,“ sagði Green-
stock í samtali við BBC. ■
ELDSVOÐI Í SVEFNSKÁLA Fjórir
létust og sex slösuðust þegar eldur
braust út í svefnskála farandverka-
manna í suðaustanverðu Tékklandi.
Hinir látnu voru frá Tékklandi og
Slóvakíu. Móðir sem bjargaði
tveimur börnum sínum með því að
koma þeim út um glugga fórst í
eldsvoðanum. Eldsupptök eru
ókunn.
SCHRÖDER SNIÐGENGUR BILD
Gerhard Schröder, kanslari Þýska-
lands, mun framveg-
is sniðganga mest
selda dagblaðs
landsins vegna um-
fjöllunar blaðsins
um fyrirhugaðar
efnahagsumbætur
ríkisstjórnarinnar.
Bela Anda, fjölmiðlafulltrúi
Schröders, sakar Bild um að af-
baka sannleikann og segir að kansl-
arinn muni ekki veita blaðinu fleiri
viðtöl.
NÝNASISTAR HANDTEKNIR Fjórt-
án nýnasistar voru handteknir í
samstilltum aðgerðum lögreglu í
nokkrum borgum á Spáni. Einnig
var lagt hald á skotvopn, sveðjur
og tölvur. Mennirnir, sem eru á
aldrinum 22 til 38 ára, eru meðlim-
ir í samtökunum Hammerskin
Spain en þau eru hluti af alþjóð-
legri hreyfingu öfgasinnaðra
hægrimanna.
UPPREISNARMENN FELLDU TUGI
HERMANNA Að minnsta kosti 29
hermenn féllu og tólf særðust
þegar uppreisnarmenn úr röð-
um maóista gerðu árás á fjar-
skiptaturn í fjalllendi í austan-
verðu Nepal. Tíu hermanna er
saknað. Talið er að á annan tug
uppreisnarmanna hafi fallið í
skotbardaga sem stóð yfir í
margar klukkustundir. Upp-
reisnarmennirnir felldu turninn
og kveiktu í banka og opinberri
skrifstofu áður en þeir lögðu á
flótta.
HIV-SMITAÐIR VASAÞJÓFAR
Fimm HIV-smitaðir vasaþjófar
sem komust undan með því að
hóta því að smita fórnarlömbin
og lögreglu hafa verið dæmdir í
allt að þriggja og hálfs árs fang-
elsi í borginni Hangzhou í Kína.
Mennirnir voru aðeins dæmdir
fyrir þjófnað en þeir verða
vistaðir á sérstakri deild fyrir
HIV-smitaða.
ELDSVOÐI Í MOSKU Að minnsta
kosti þrettán manns biðu bana og
48 slösuðust þegar eldur braust
út í mosku sjía-múslíma í bænum
Parachinar í norðvestanverðu
Pakistan. Talið er að eldurinn
hafi kviknað af völdum skamm-
hlaups á efri hæð moskunnar.
Fimm börn voru á meðal þeirra
sem létust.
HARRY PRINS
Prinsinn gróðursetti
ferskjutré við munaðar-
leysingjahæli í Lesotho.
Harry prins í Lesotho:
Heimsækir
munaðarlaus börn
Reiði sjía-múslima bitnar á bandaríska hernámsliðinu:
Fimmtán handteknir
vegna árásanna
JARÐARFÖR Í BAGDAD
Reiði syrgjenda bitnaði einkum
á bandaríska hernámsliðinu,
sem var sakað um að hafa
brugðist íröskum borgurum.