Fréttablaðið - 04.03.2004, Side 23
FIMMTUDAGUR 4. mars 2004
■ Bækur
SÆRÚN ÓSK GUNNARSDÓTTIR
Er framkvæmdarstjóri bókamarkaðarins í
Perlunni og sinnir öldruðum á Vífilsstöðum.
Hver?
Samviskusöm með fullt af réttlætis-
kennd. Sé um bókamarkaðinn í
Perlunni.
Hvar?
Er í pásu á kaffistofu starfsmanna í
Perlunni.
Hvaðan?
Er Reykvíkingur í húð og hár.
Hvað?
Starfa nú um stundir í Perlunni en er
einnig í aðhlynningu á Vífilsstöðum, þar
sem ég hlynni að öldruðum og líkar vel.
Hvernig?
Er núna á bíl en verð fótgangandi í
næsta mánuði.
Hvers vegna?
Þá flyt ég í Garðabæinn.
Hvenær?
Ég ákvað það fyrir jól. Til að komast nær
vinnustaðnum.
■ Persónan
Ný rödd í útvarpi
Blaðamaðurinn Páll Ásgeir Ás-geirsson hefur skipt um gír og í
stað þess að láta orð sín flæða á síð-
um DV eins og hann gerði hér áður
má nú heyra í honum í Dægurmála-
útvarpi Rásar 2 ásamt þeim Sig-
tryggi Magnasyni, Lísu Páls, Ævari
Erni og Huldu Sif á Akureyri. Til að
byrja með er hann ráðinn í hluta-
starf til tveggja mánaða en ef sam-
starfið gengur vel má reikna með að
hann verði fastur meðlimur í Dæg-
urmálaútvarpinu.
„Mér fannst þetta skemmti-
legt,“ segir Páll Ásgeir um reynslu
sína í útvarpi. „En ég geri mér
grein fyrir að enn sem komið er
fjalla ég af fullkominni vanþekk-
ingu um þetta starf. Ég vona að ég
læri og þroskist með hlustendum.“
Hann segir jafnframt að samstarf-
ið gangi mjög vel og það sé ekkert
skrýtið við það að starfa með
Huldu á Akureyri, þrátt fyrir að
sjá hana aldrei. „Við höfum mynd
af henni á tölvuskjá í stúdíói,“ seg-
ir hann og því geta þau „horft“ á
hana þegar við hana er talað.
Fyrsti þáttur Páls var á mánu-
daginn og hann hefur öruggar heim-
ildir fyrir því að útvarpið henti hon-
um ágætlega. „Mamma taldi að ég
hefði staðið mig vel.“ ■
Útvarp
PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
■ Bætist við hópinn á
Dægurmálaútvarpinu.
PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
Skiptir um miðil og heyrist nú í útvarpi í
stað þess að skrifa í blöð.
Mál og menning hefur gefið útskáldsöguna LoveStar eftir
Andra Snæ Magnason í kilju. Bókin
var ein af metsölubókum fyrir jólin
2002 og féll bæði lesendum og gagn-
rýnendum vel í
geð en hún var
valin skáldsaga
ársins af ís-
lenskum bók-
sölum, fékk
M e n n i n g a r -
verðlaun DV í
bókmenntum
og var tilnefnd
til Íslensku bókmenntaverðlaun-
anna.
Sagan gerist í framtíðinni þegar
alþjóðlega stórfyrirtækið LoveStar
hefur komið Íslandi á heimskortið –
markaðssett dauðann, komið skipu-
lagi á ástina og reist stórfengleg-
asta skemmtigarð sögunnar í Öxna-
dal þar sem LoveStar blikkar bak
við ský. Indriði og Sigríður eru
handfrjálsir einstaklingar í þessu
hátæknivædda samfélagi. Þau telja
sig hafa fundið ástina upp á eigin
spýtur þar til hræðilegt bréf berst
frá stórveldinu. Á sama tíma er
LoveStar sjálfur um það bil að gera
stærstu uppgötvun allra tíma og
stemningsdeildin hefur stórfeng-
legar áætlanir um hvernig megi
fullkomna LoveStar-veldið. Og tím-
inn er naumur. ■