Fréttablaðið - 04.03.2004, Page 28

Fréttablaðið - 04.03.2004, Page 28
ferðir o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur ferðalögum Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ferðir@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Sumar- fríið? Helgarslaufur fyrir hópa, klúbba og félög af öllum stærðum. Hafðu samband við Bergþóru eða Kristjönu í síma 570 30 75 hopadeild@flugfelag.is Skógarhlíð 18, sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Síðustu sætin til Prag þann 15. mars. Þú bókar 2 sæti, en greiðir bara fyrir 1. Kynnstu þessari yndisfögru borg á besta tíma ársins þegar vorið er að byrja. Þú bókar núna, og tryggir þér síðustu sætin og að auki getur þú valið um úrval hótela, þriggja og fjögurra stjarna og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 19.950 Fargjald kr. 32.600/2 = 16.300. Skattar kr. 3.650. Alm. verð kr. 20.950. Glæsileg hótel í hjarta Prag í boði. 2 fyrir 1 til Prag 15. mars frá kr. 19.950 ÆVINTÝRALEIÐANGUR Í HEIÐMÖRK Börnin hafa nóg við að vera meðan fullorðnir anda að sér árstímanum. Dagsferðir út í náttúruna: Ævintýraland í túnfætinum heima Í körfunni eru hamborgarar, heittkókó og sykurpúðar. Leiðangurs- menn eru klæddir eftir veðri og í aftursætinu liggur bolti sem bíður þess að vera laminn yfir net. Leiðin liggur út úr bænum, enda yndisleg- ur dagur og ekkert því til fyrirstöðu að eyða honum úti í náttúrunni. Kílómetramælirinn þarf þó ekki að hækka neinu sem nemur eða bens- ínbuddan að léttast ört, því drauma- dagur fjölskyldunnar, ástfanginna para eða þeirra sem langar í einka- stefnumót við móður náttúru verð- ur að veruleika í útivistarparadís Skógræktarinnar í Heiðmörk. Við- komustaðir í þessu 2.800 hektara skógar- og friðlandi höfuðborgar- landsins eru bæði margir og fjöl- breyttir, en víst er að Furulundur á Elliðavatnsheiði kætir unga sem aldna. Þar hafa verið útbúin virki, þrekþrautir, bjálkakofi, sandkassi og undirgöng fyrir krakka, sum hver falin inni í skóginum, sem ger- ir alla ævintýraleiðangra enn skemmtilegri. Eftir að fjölskyldan hefur spreytt sig í keppnum og leikjum er engu líkt að kveikja upp í fallegum steingrillum rjóðursins og grilla sér nestið til að borða á lautartúrsborðum milli ilmandi birkitrjáa. Í Heiðmörk er landslag allt ægi- fagurt, mikil fjallasýn og heillandi útsýni yfir borgina í buskanum. Svæðið hefur upp á margt að bjóða; margbreytilegan gróður, fjölbreytt fuglalíf við Elliðavatn og Myllu- lækjartjörn, silungsveiði, skjólsæla skógarlundi og 35 kílómetra af frá- bærum göngustígum sem einnig nýtast til skíðagöngu á vetrum. Við stígana standa fræðsluskilti um plöntur, trjágróður, fugla og fleira, prýdd myndum eftir Brian Pilk- ington og Eggert Pétursson. Víða hafa verið sett upp útigrill, leik- svæði og áningarstaðir með tilheyr- andi aðstöðu. Það þarf heldur ekki að vera bjartur sumardagur til að heimsækja Heiðmörk, því allar árs- tíðir hafa sterkan sjarma fyrir gesti og gangandi. Gjöfult berjaland er í Heiðmörk og þar má einnig finna mikið af sveppum. Svæðið hentar einkar vel til náttúru- og umhverfis- fræðslu, og ekki má gleyma forn- minjunum við Þingnes, þar sem talið er að hafi verið þingstaður frá árinu 900 til 1200. ■ FERÐATORG 2003 Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun Gallups færist í vöxt að landsmenn ferðist innanlands á sumrin. Könnunin sýndi að 70% Íslendinga vilja ferðast meira um Ís- land. 70% vilja ferðast meira um Ísland: Ferðatorg 2004 í maí Ferðatorg 2004 verður haldið íþriðja sinn í vor. Á Ferða- torgi 2004 gefst almenningi kostur á að kynna sér ferða- möguleika og afþreyingu sem í boði er á landinu og verður að þessu sinni lögð sérstök áhersla á gönguferðir og golf. Ferðatorgið er eins konar markaðstorg innlendra ferða- mála þar sem fólk á þess kost að afla sér upplýsinga um helstu ferða- og afþreyingarmöguleika á landinu. Innan Ferðamálasam- taka Íslands eru átta landshluta- samtök sem öll taka þátt í sýn- ingunni og verður lögð sérstök áhersla á að kynna hvað er að gerast í hverjum landshluta. Auk þess verða ýmsir aðilar sem tengjast ferðaþjónustu með kynningarbása. Með Ferðatorginu er orðinn til mikilvægur vettvangur sem þjónustu- og hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu geta nýtt sér. Ár- lega bætast við nýir ferðamögu- leikar og fjölbreytt afþreying í eigin landi. Sýningarstjóri er Herdís Skúladóttir en formaður Ferðamálasamtaka Íslands er Pétur Rafnsson. Sýningin verð- ur í Vetrargarði Smáralindar 7. til 9. maí. ■ ÁÐ Í RJÓÐRI Lautartúrsborð milli trjánna. FURULUNDUR Í HEIÐMÖRK Dagur í Heiðmörk er ógleymanlegur. GÍSLI ÁGÚSTSSON „Það er nú eiginlega alveg óráðið. En ég stefni á að fara upp á hálendið, á jeppa.“ Vor í Kaupmannahöfn: Alls konar tónlist Vorið er að koma í Evrópu oghægt að taka forskot á sumar- ið með því að bregða sér í stutta ferð og anda að sér vorblæ og menningu. Með vorinu eykst víða framboð af alls konar tónlistar- viðburðum þannig að það er um að gera að undirbúa sig til dæmis með því að fara á Netið og kynna sér hvað er á döfinni í þeirri borg sem haldið skal til. Á vefnum aok.dk má til dæmis finna upplýs- ingar um það sem er á döfinni í Kaupmannahöfn. Aðdáendur dansks vísnasöngs geta hlýtt á Povl Dissing og gítar- leikarann Las Nissen, í Klauzdal í Herlev á laugardaginn 6. mars. Leikið verður úrval af söngvum Dissings en synir hans koma ein- nig fram með honum. 10. mars verða Limp Bizkit í Valbyhallen og má búast við kraftmiklum tónleikum þar. Kaupmannahafnarbúum og gestum þeirra standa svo til boða Flamenco-tónleikar á Copenhagen Jazzhouse 14. mars. Þá koma fram Tríó Gerardo Núñez, Rafael de Utrera og Carmen Cortés. Sama dag og einnig 15. mars verður Oratoria Mendelsohns Paulus flutt í Sankt Petri kirkjunni. Loks er að nefna að Belle & Sebastian verða á Store Vega 24. mars. ■ POVL DISSING Hann er einn þeirra sem verða með tón- leika í Kaupmannahöfn í þessum mánuði.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.