Fréttablaðið - 04.03.2004, Síða 41
41FIMMTUDAGUR 4. mars 2004
FÓTBOLTI Alþjóða knattspyrnusam-
bandið heldur upp á 100 afmæli
sitt 20. maí með leik Evrópumeist-
ara Frakka og heimsmeistara
Brasilíumanna í París. Tveimur
dögum eftir afmælisleikinn verð-
ur leikið til úrslita í ensku bikar-
keppninni og fari svo að Arsenal
og/eða Manchester United leiki til
úrslita í bikarnum þurfa franskir
og brasilískir leikmenn félaganna
að velja milli leikjanna. Frakkarn-
ir Thierry Henry, Patrick Vieira,
Robert Pires, Sylvain Wiltord og
Mikael Silvestre leika með þess-
um félögum og eins Brasilíu-
mennirnir Gilberto Silva og
Kleberson. Louis Saha getur leik-
ið með Frökkum, þó svo að United
komist í úrslit, vegna þess að hann
er ekki gjaldgengur með United í
bikarkeppninni.
FIFA getur beitt leikmenn við-
urlögum neiti þeir að leika með
sínu landsliði. Sepp Blatter, for-
seti FIFA, hefur hins vegar lýst
því yfir að enginn sem neitar að
taka þátt í afmælisleiknum eða
bikarúrslitaleiknum þurfi að ótt-
ast refsingu. „Við munum ekki
beita aganefndinni til að grípa inn
í,“ sagði Blatter. „Ég er viss um að
við munum finna lausn. Landsliðs-
þjálfarar Brasilíu og Frakklands
vita upp á hár um vandræði
kollega sinna hjá félögunum.“ ■
1. deild kvenna:
KR vann
Njarðvík
KÖRFUBOLTI KR sigraði Njarðvík 81-
73 í 1. deild kvenna í körfubolta í
gær. KR-ingar leiddu 47-41 í hléi en
Njarðvíkingar hófu seinni hálfleik-
inn vel og minnkuðu muninn í tvö
stig en komust aldrei nær en það.
Andrea Gaines skoraði 27 stig
fyrir Grindavík og Auður Jónsdótt-
ir þrettán. Sæunn Sæmundsdóttir
átti mjög góðan leik og skoraði tólf
stig, náði fimmtán fráköstum og
varði sex skot.
Katie Wolfe skoraði 27 stig fyrir
KR-inga, þar af 22 í fyrri hálfleik,
en Hildur Sigurðardóttir skoraði
fimmtán stig, tók sextán fráköst og
stal boltanum sex sinnum. ■
Enska úrvalsdeildin:
Birmingham
vann
FÓTBOLTI Birmingham sigraði
Middlesbrough 3-1 á heimavelli í
ensku úrvalsdeildinni í gær-
kvöldi. Með sigrinum komst
Birmingham upp í sjöunda sæti
deildarinnar en Middlesbrough er
sem fyrr í þrettánda sæti.
Martin Taylor skoraði fyrsta
mark leiksins fyrir Birmingham
um miðjan fyrri hálfleik og
Robbie Savage jók muninn í tvö
mörk snemma í þeim seinni. Ung-
verjinn Szilard Nemeth minnkaði
muninn í 2-1 þegar korter var til
leiksloka en Finninn Mikael
Forssell tryggði sigur Birming-
ham þegar tíu mínútur voru eftir.
Boudewijn Zenden var hetja
Middlesbrough í úrslitaleik
deildabikarsins á sunnudag. Í
gærkvöldi var hann aftur í sviðs-
ljósinu en þá fyrir verri sakir því
hann var rekinn af velli þegar
þrjár mínútur voru til leiksloka. ■
FÓTBOLTI Liverpool tryggði sér
sæti í sextán liða úrslitum UEFA-
bikarkeppninnar í gær með 4-2
sigri á Levski í Sófíu. Liverpool
sigraði 2-0 í fyrri leiknum og náði
tveggja marka forskoti á fyrstu
ellefu mínútum leiksins í gær.
Steven Gerrard skoraði á sjöundu
mínútu þegar hann komst inn í
lausa sendingu Ilian Stoianov til
markvarðarins og Michael Owen
bætti öðru marki við fjórum mín-
útum síðar. Levski jafnaði en
Dietmar Hamann kom Liverpool
yfir að nýju fyrir leikhlé þegar
hann sendi boltann í mark með
hörkuskalla eftir hornspyrnu
Gerrards. Finninn Sami Hyypiä
skoraði eina mark seinni hálfleiks
eftir aðra hornspyrnu Gerrards.
Newcastle United lenti í mesta
basli með norska félagið Våler-
enga. Alan Shearer skoraði um
miðjan fyrri fyrri hálfleik en Erik
Hagen jafnaði stuttu síðar. Shola
Ameobi kom inn í lið Newcastle
fyrir Craig Bellamy í upphafi síð-
ari hálfleiks og skoraði strax á
annari mínútu hálfleiksins.
Teplice vann Celtic 1-0 á
heimavelli með glæsilegu marki
Jiri Masek. Teplice var aldrei ná-
lægt því að vinna upp þriggja
marka forskot Skotanna frá fyrri
leiknum.
Parma gerði snautlega ferð til
Tyrklands og tapaði 3-0 fyrir
Genclerbirligi. Tyrkirnir unnu 1-0
í Parma í síðustu viku og vonir
Ítalanna um að snúa stöðunni sér í
hag fuku út í veður og vind á 37.
mínútu þegar Sebastian Frey var
rekinn af velli fyrir að brjóta á
sóknarmanni Genclerbirligi.
Belginn Filip Daems skoraði úr
vítinu sem brotið gaf, Matteo
Ferrari gerði illt verra með sjálfs-
marki tíu mínútum fyrir leikslok
og Ali Tangodan setti þriðja mark-
ið á fimmtu mínútu uppbótartíma.
Valencia vann Besiktas með
sannfærandi hætti í Tyrklandi.
Miguel Angulo og Juan Sánchez
skoruðu mörk Spánverjanna en
brasilíski varnarmaðurinn Zago
hjá Besiktas var rekinn af velli á
lokamínútunni fyrir glórulausa
tæklingu á Carlos Marchena.
Pólska félagið Groclin Dysko-
bolia, sem vann Hertha Berlin og
Manchester City í fyrri umferð-
um keppninnar, var engin hindr-
um fyrir Bordeaux. Frakkarnir
unnu 4-1 í gær og 5-1 samanlagt.
Marouane Chamakh, Marc Plan-
us, Albert Riera og einn varnar-
manna Groclin skoruðu fyrir Bor-
deaux en varamaðurinn Kodjo
Afanou átti skammarstrik kvölds-
ins, var rekinn af velli sex mínút-
um eftir að hann tók stöðu Marc
Planus í liði Bordeaux.
Örjan Berg og Azar Karadas
skoruðu fyrir Rosenborg, sem
vann Benfica 2-1 í Þrándheimi.
Nuno Gomes minnkaði muninn og
var síðan rekinn af velli en einum
færri héldu Portúgalarnir út og
komust áfram á fleiri skoruðum
mörkum á útivelli. ■
THIERRY HENRY
Fer ekki í skammarkrókinn þó að hann
leiki ekki afmælisleik FIFA.
Afmælisleikur FIFA:
Engum verður refsað
HANDBOLTI ÍBV sigraði Hauka 39-
34 á Ásvöllum í gærkvöldi. Eyja-
stúlkur eru sem fyrr efstar í
deildinni og hafa nú fimm stiga
forskot á Hauka og Val.
Leikur Hauka og ÍBV var
lengstum jafn í fyrri hálfleik en
Eyjastúlkur áttu góðan lokasprett
og leiddu 18-14 í leikhléi. Hraðinn
í leik liðanna í seinni hálfleik var
mjög mikill en varnarleikurinn
var ekki burðugur. Mörkin í
seinni hálfleik urðu 41, og samtals
73, en ÍBV sigraði 39-34.
Ramune Pekarskyte skoraði
sautján mörk fyrir Hauka, þar af
sex út vítum, Erna Þráinsdóttir
fimm, Sandra Anulyté og Ragn-
hildur Guðmundsdóttir þrjú,
Anna Halldórsdóttir tvö og Petra
Baumruková, Ingibjörg Karls-
dóttir, Erna Halldórsdóttir og
Martha Hermannsdóttir
eitt mark hver. Bryndís
Jónsdóttir varði tólf skot,
þar af eitt víti, og Berg-
lind Hafliðadóttir þrjú.
Anna Yakova skoraði
tíu mörk, Birgit Engl sjö,
Sylvia Strass sex, þar af
tvö úr vítum, Alla Gokori-
an fimm, Guðbjörg Guð-
mannsdóttir fjögur, Anja
Nielsen þrjú, Þórsteina
Sigurbjörnsdóttir tvö og
Nína Kristín Björnsdóttir
og Edda Eggertsdóttir eitt
mark hvor. Julia Ganti-
murova varði nítján skot,
þar af eitt vítakast. ■
RE/MAX-deild kvenna:
ÍBV vann að Ásvöllum
Áskorendakeppni Evrópu:
Báðir í Eyjum
HANDBOLTI ÍBV hefur samið við
króatíska félagið Brodosplit Vranj-
ic um að leika báða leiki félaganna
í átta liða úrslitum Áskorenda-
keppni Evrópu í Eyjum. Leikirnir
fara fram helgina 13. til 14. mars.
Fram kemur á fréttavefnum
Eyjar.net að Eyjamenn telji að ekki
megi fórna möguleikum ÍBV á að
komast áfram í undanúrslit keppn-
innar vegna kostnaðarhliðarinnar.
Þess vegna hafi Eyjamenn og bæj-
arstjórn Vestmannaeyja ákveðið að
taka þátt í þessu verkefni fjárhags-
lega.
Í öðrum leikjum undanúrslit-
anna keppa Nürnberg og Anadolu,
Bayer Leverkusen og Vitaral Jelfa
og Borussia Dortmund og Uni-
versitatea Remin Deva. ■
ÍBV SIGRAÐI HAUKA
Eyjastúlkur höfðu betur í miklum
markaleik í gærkvöld.
STAÐAN Í ENSKU
ÚRVALSDEILDINNI
Arsenal 27 20 7 0 53:18 67
Chelsea 27 18 4 5 48:21 58
Man. United 27 18 4 5 51:25 58
Newcastle 27 10 1 5 38:28 42
Charlton 27 11 7 9 38:34 40
Liverpool 26 10 9 7 38:29 39
Birmingham 26 10 9 7 28:29 39
Aston Villa 27 10 7 10 32:32 37
Fulham 27 10 6 11 39:38 36
Tottenham 26 10 4 12 39:42 34
Bolton 26 8 10 8 32:40 34
Southampton 27 8 9 10 27:27 33
Middlesbrough 26 8 7 11 28:34 31
Everton 27 7 8 12 33:39 29
Blackburn 27 7 7 13 39:44 28
Man. City 27 6 9 12 36:39 27
Portsmouth 26 6 6 14 29:40 24
Wolves 27 5 9 13 24:52 24
Leicester 27 4 11 12 37:51 23
Leeds 27 5 7 15 26:53 22
NÆSTU LEIKIR
Laugardagur 6. mars
Birmingham - Bolton
þriðjudagur 9. mars
Middlesbrough - Tottenham
GERRARD SKORAR
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, skorar fyrsta mark liðsins í 4-2 sigri á Levski í Sófíu í gær.
Besiktas - Valencia 0-2
0-1 Angulo (12.), 0-2 Juan Sánchez (56.),
Valencia sigraði 5-2 samanlagt.
Bordeaux - Groclin Dyskobolia 4-1
1-0 Marc Planus (41.), 2-0 Marouane
Chamakh (42.), 3-0 Ivica Krizanac, sjm
(65.), 4-0 Albert Riera, vsp (74.), 4-1
Tomasz Wieszczycki (90.)
Bordeaux sigraði 5-1 samanlagt.
Debrecen - Club Brugge 0-0
Club Brugge sigraði 1-0 samanlagt.
FK Teplice - Celtic 1-0
1-0 Jiri Masek (35.)
Celtic sigraði 1-0 samanlagt.
Genclerbirligi - Parma 3-0
1-0 Filip Daems, vsp (37.), 2-0 Matteo
Ferrari, sjm (81.), 3-0 Ali Tangodan (90.)
Genclerbirligi sigraði 4-0 samanlagt.
Internazionale - Sochaux 0-0
Samanlagt 2-2 en Internazionale skor-
aði fleiri mörk á útivelli.
Dnipropetrovsk - Marseille 0-0
Marseille sigraði 1-0 samanlagt.
Levski Sofia - Liverpool 2-4
0-1 Steven Gerrard (7.), 0-2 Michael
Owen (11.), 1-2 Georgi Ivanov (27.), 2-2
Sasa Simonovic (40.), 2-3 Dietmar Ham-
ann (44.), 2-4 Sami Hyypiä (67.)
Liverpool sigraði 6-2 samanlagt.
Mallorca - Spartak Moskvu3-1
0-1 Alexander Samedov (43.)
Mallorca sigraði 1-0 samanlagt.
Newcastle United - Valerenga 3-1
1-0 Alan Shearer (19.), 1-1 Erik Hagen
(25.), 2-1 Shola Ameobi (47.), 3-1 Shola
Ameobi (89.)
Newcastle United sigraði 4-2
samanlagt.
PSV Eindhoven - Perugia 3-1
1-0 Kevin Hofland (22.), 2-0 Mateja
Kezman (44.), 3-0 Mateja Kezman (48.),
3-1 Ze Maria (88.)
PSV Eindhoven sigraði 3-1 samanlagt.
Panathinaikos - Auxerre 0-1
0-1 Bonaventure Kalou (71.)
Auxerre sigraði 1-0 samanlagt.
Roma - Gazientepspor 2-0
1-0 Emerson (23.), 2-0 Antonio Cassano (42.)
Roma sigraði 2-1 samanlagt.
Rosenborg - Benfica 2-1
1-0 Örjan Berg (8.), 2-0 Azar Karadas
(14.), 2-1 Nuno Gomes (19.),
Samanlagt 2-2 en Benfica skoraði fleiri
mörk á útivelli.
Leik Barcelona gegn Brøndby og leik
Villarreal gegn Galatasaray var ekki lokið
þegar Fréttablaðið fór í prentun.
Frækinn sigur
Liverpool
Liverpool, Newcastle og Celtic tryggðu sér öll sæti
í sextán liða úrslitum UEFA-bikarkeppninnar.
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR