Fréttablaðið - 16.04.2004, Page 8
8 16. apríl 2004 FÖSTUDAGUR
Sum dýr eru jafnari en önnur
„Það virðist sem sá góði ráðherra
sem var árið 1992–1993 í nefnd til
undirbúnings lögfestingar mann-
réttindasáttmála Evrópu hafi villst
af leið. Við fáum ekki lengur að
heyra að allir séu jafnir fyrir lög-
unum heldur að sumir þurfi ekki
að fara eftir vitlausum lögum.“
Andri Óttarsson lögmaður, Fréttablaðið 15. apríl
Sönn ást
„Ég sé enga ástæðu til að forða
mér. Ég elska Árna Þór. Nú er
bara að takast á við framhaldið.“
Mariko Margrét Ragnarsdóttir,
heitkona Árna Þórs Vigfússonar, DV 15. apríl
Hugsjónir rætast
„Nú er vor í lofti. Stuttbuxnafólk
sem slæðst hefur inn á Alþingi hefur
tendrað glóð fagurra hugsjóna um
aukinn gróða títtnefndra sölumanna
og meiri áfengisdrykkju barna og
unglinga í brjóstum nokkurra skýr-
leiksmanna af báðum kynjum.“
Ólafur Haukur Árnason eftirlaunaþegi,
Morgunblaðið 15. apríl
Orðrétt
Forsætisráðherra Danmerkur verst ásökunum:
Hulunni svipt af trúnaðarskjölum
KAUPMANNAHÖFN Danska ríkis-
stjórnin hefur ákveðið að svipta
hulunni af umdeildum skjölum
leyniþjónustunnar um vopnaeign
Íraks. Tilkynnt var um þetta degi
eftir að danski hernaðarsérfræð-
ingurinn Frank Soeholm Grevil,
sem lak trúnaðarupplýsingum í
fjölmiðla, sakaði forsætisráðherr-
ann Anders Fogh Rasmussen um
að hafa logið að þingmönnum til
að réttlæta hernaðaraðgerðir
gegn Írak. Tveir blaðamenn Berl-
ingske Tidende hafa verið ákærð-
ir fyrir að birta brot úr skýrslum
leyniþjónustunnar og ógna þannig
öryggi danska ríkisins.
Í skýrslunum sem nú verða
gerðar opinberar kemur fram
hvaða upplýsingar danska leyni-
þjónustan hafði um gereyðingar-
vopn Íraka fyrir innarásina í Írak.
Grevil hefur fullyrt að engar
áreiðanlegar upplýsingar hafi leg-
ið fyrir um vopnaeign Íraka. Í
október 2002 sagði Rasmussen
þinginu að dönsk stjórnvöld væru
sannfærð um að Írakar hefðu und-
ir höndum gereyðingarvopn. Síð-
ar lýsti ráðherrann því yfir að
Danir hefðu stutt innrásina í Írak
af því að Saddam Hussein hefði
neitað samvinnu við Sameinuðu
þjóðirnar. ■
Alræmdir glæpamenn:
Flýðu úr
fangelsi
MEXÍKÓ, AP Mexíkóskur fangavörð-
ur særðist alvarlega þegar fimm
fangar, sem ákærðir höfðu verið
fyrir manndráp, mannrán og fleiri
brot, skutu sér leið út úr fangelsi í
borginni Tijuana, á landamærum
Bandaríkjanna og Mexíkó.
Fimmenningarnir eru grunaðir
um aðild að alræmdum eiturlyfja-
hring sem gengur undir nafninu
Arellano-Felix. Þeir báru vopn sem
smyglað hafði verið inn í fangelsið
og flúðu á stolnum sendiferðabíl sem
beið þeirra fyrir utan. Bíllinn fannst
skömmu síðar og voru blóðblettir í
honum sem þykir benda til þess að
einn af föngunum hafi særst. ■
PERSSON OG ALBRIGHT
Madeleine Albright, fyrrum utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hitti Göran Persson, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, í Stokkhólmi á miðvikudag.
Leiðtogafundur
í Washington:
Persson fer
á fund Bush
SVÍÞJÓÐ Göran Persson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, fer til Bandaríkj-
anna síðar í þessum mánuði á fund
forsetans George W. Bush.
Leiðtogarnir munu hittast í Hvíta
húsinu í Washington 28. apríl til að
ræða ástandið í Afganistan og Írak,
Líberíu og Miðausturlöndum og bar-
áttuna gegn útbreiðslu HIV-veirunn-
ar, að því er fram kemur í yfirlýs-
ingu frá sænsku ríkisstjórninni.
Sænsk stjórnvöld studdu hernað-
araðgerðir Bandaríkjamanna í
Afganistan en lögðust gegn inn-
rásinni í Írak. ■
Býður Evrópu grið
snúi hermenn heim
Evrópubúum er heitið griðum gegn því að þeir snúi baki við stefnu Bandríkjanna í hljóðritun
sem send var út á arabískum ljósvakamiðlum. Talið er að Osama bin Laden tali á upptökunni, en
eftir er að raddgreina upptökuna. Bandaríkjamönnum er heitið hefndum fyrir drápið á Yassin.
KAÍRÓ AP „Hættið að úthella blóði
okkar svo við getum hætt að úthella
ykkar,“ segir í hljóðritun sem birt
var í arabískum ljósvakamiðlum.
Talið er að röddin sem talar í yfir-
lýsingunni sé rödd Osama bin
Laden. Sérfræðingar hafa ekki stað-
fest með raddgreiningu að það sé
bin Laden sem tali.
Í yfirlýsingunni eru Evrópu boð-
in grið gegn því að þau hætti árás-
um á araba. „Vopnahlé getur hafist
um leið og síðasti hermaðurinn yfir-
gefur lönd okkar,“ segir röddin í
hljóðrituninni. Í yfirlýsingunni er
því vísað á bug að Al Kaiída drepi
drápsins vegna. „Dráp á Rússum
voru í framhaldi af innrás þeirra í
Afganistan; og dráp á Bandaríkja-
mönnum á degi New York voru eft-
ir stuðning þeirra við gyðinga í
Palestínu og innrás á Arabíuskaga.“
Þá er einnig vísað til lestarspreng-
ingarinnar í Madríd 11. mars með
þeim orðum að vörum hafi verið
skilað til þeirra sem þær áttu.
„Gerðir okkar eru viðbrögð við
gerðum ykkar sem birtast í eyði-
leggingu og drápi frænda okkar í
Afganistan, Írak og Palestínu.“
Meint rödd bin Laden hvetur
Evrópubúa til þess að snúa baki við
Bandaríkjamönnum og stefnu
þeirra gagnvart aröbum. Kannanir
sýni að Evrópubúar vilji frið. „Dyr
friðarins mun standa opnar í þrjá
mánuði frá því að þessi yfirlýsing
er send út. Við erum tilbúin fyrir þá
sem hafna friðnum og vilja stríð.“ Í
yfirlýsingunni segir að framhaldið
sé í höndum Evrópubúa, þeir viti
hvað gerist hafni þeir tilboðinu. „Ef
það gerist ekki kenna okkur um,
kennið ykkur sjálfum um.“
Griðin sem röddin býður eru
ekki ætluð Bandaríkjamönnum.
Bin Laden, ef röddin er hans, heit-
ir hefndum fyrir víg Sjeik Ahmed
Yassin, andlegum leiðtoga Hamas
samtakanna sem grandað var í
flugskeytaárás Ísraelsmanna. „Við
heitum guði að við munum refsa
Bandaríkjamönnum fyrir hann,
með guðs vilja.“ ■
KAÍRÓ AP Sérfræðingar CIA, banda-
rísku leyniþjónustunnar, kanna
hvort bin Laden sé sá sem talar á
hljóðritun sem send var út hjá
arabískum ljósvakamiðlum. Við-
brögð við yfirlýsingum hljóðritun-
arinnar eru á eina lund. „Það sem
við viljum er friður, lýðræði og
frelsi. Við þurfum hvorki að hlusta
á né svara þessari hljóðritun,“
sagði tilvonandi utanríkisráðherra
Spánar, Miguel Angel Moratinos, í
spænska þinginu í gær.
Aðrir talsmenn Evrópuríkja eru
á einu máli um að ekki komi til
greina að semja við hryðjuverka-
menn á borð við Osama bin Laden.
„Það er óhugsandi að það komi til
greina að eiga einhverjar viðræður
við bin Laden, það skilja allir,“
sagði utanríkisráðherra Ítalíu,
Franco Frattini.
Joseph Biden, þingmaður
Demókrata sem sæti á í utanríkis-
málanefnd þingsins, sagði hlóðrit-
unina sýna að bin Laden væri tæki-
færissinni. „Nú reynir hann að
reka fleyg milli Bandaríkjanna og
Evrópu.“ Hann segir yfirlýsing-
arnar ekki skipta neinu máli, nema
ef vera skyldi að við þeim yrði
brugðist í Evrópu.
Egypskur sérfræðingur í ís-
lömskum öfgahópum segir hljóð-
ritunina hljóma eins og bin Laden
nema að því leyti að hann noti ekki
hugtakið „krossfarar í bandalagi
við gyðinga“ um Evrópubúa í yfir-
lýsingunni. ■
Viðbrögð við hljóðritun:
Hafna öllum viðræðum
UTANRÍKISRÁÐHERRA ÍTALÍU
Talsmenn Evrópuríkja eru á einu máli um
að ekki komi til greina að semja við bin
Laden. „Það er óhugsandi,“ sagði Franco
Frattini, utanríkisráðherra Ítalíu.
FRIÐUR MEÐ SKILYRÐUM
Á upptöku, sem talin er vera af yfir-
lýsingu Osama bin Laden, er hefnd
heitið fyrir víg Hamasleiðtogans Sjeik
Ahmed Yassin. Evrópubúum er
boðið grið gegn því að þeir sendi
hermenn sína heim frá löndum
araba og hætti stuðningi við stefnu
Bandaríkjanna.
-ráð dagsins
Hendið furukönglum eða rifnum, þurrkuðum
berki af sítrónu/appelsínu í arineldinn til að
fá góðan ilm.
Róm
57.855 kr.
Netver› á mann
Innifalið: Flug, gisting í 4 nætur á Hótel Albani
18. nóvember í 2ja manna herbergi með morgunverði,
flugvallarskattar og ísl. fararstjórn.
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is
FRANK SOEHOLM GREVILL
Danski hernaðarsérfræðingurinn Frank
Soeholm Grevill stendur fyrir framan
dómhúsið í Kaupmannahöfn.