Fréttablaðið - 16.04.2004, Síða 13

Fréttablaðið - 16.04.2004, Síða 13
ÍRAK Þrátt fyrir að rúmt ár sé nú liðið frá innrás Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í Írak, Saddam Hussein hafi verið hand- samaður, synir hans drepnir og aðrir lykilmenn sem Bandaríkja- menn töldu nauðsynlegt að fjar- lægja hafi verið drepnir eða hand- teknir, er ekkert lát á blóðbaðinu í Írak. Nýir óvinir spretta upp sem þarf að uppræta. Vopnahlé eru virt að vettugi, átökin halda áfram og hafa sjaldan verið harðari. Andspyrnan gegn innrásarher- mönnum er hvað sterkust í Fallu- jah og innrásarherinn virðist ekki hafa stjórn á ástandinu. Uppbyggingarstarfið í Írak eftir innrásarstríðið er í molum og starfsmenn erlendra ríkja sem áttu að byggja upp eftir átökin eru sem óðast að tygja sig til brottfarar. Fréttaskýrendur tala um nýtt Víetnam. Blóðug harðstjórn Saddams er horfin en frelsið er dýrkeypt. Írak rambar á barmi borgara- styrjaldar. Engu er eirt. Tugir hermanna hafa fallið og óbreytt- ir borgarar falla í hundraðatali, einkum konur og börn. Talið er að yfir 600 hundruð manns hafi fallið í Fallujah einni í liðinni viku. Írakar lifa í stöðugum ótta. Fæstir hafa í nokkurt hús að venda og eru því á stöðugum flótta. Þrátt fyrir óöldina er enn stefnt að því að mynda bráða- birgðastjórn og undirbúa kosn- ingar. Ætlunin er að færa völdin 16 16. apríl 2004 FÖSTUDAGUR STYRK STOÐ Mackenzie, 6 ára bandarísk stúlka, faðmar föður sinn David Brooks, birgðastjóra Bandaríkjahers í Írak, að sér á sjúkrahúsi í Bloomington. Stúlkan veiktist alvarlega og var Brooks veitt leyfi frá störfum í Írak til að vitja dóttur sinnar. TÓKÝÓ, AP Þremur japönskum gísl- um, sem uppreisnarmenn rændu fyrir viku, var sleppt í Írak í gær- morgun. Gíslarnir eru allir við góða heilsu, að sögn arabísku sjón- varpsstöðvarinnar Al-Jazeera. Þre- menningunum, tveimur hjálpar- starfsmönnum og einum blaða- manni, var sleppt við japanska sendiráðið í Bagdad í morgunsárið þar sem fjölskyldur gíslanna tóku á móti þeim. Fjölmiðlar fylgdust með endurfundunum. Uppreisnarmenn höfðu hótað að drepa gíslana ef Japanar kölluðu ekki herlið sitt heim frá Írak en Junichiro Koizumi, forsætisráð- herra Japans, neitaði að verða við kröfunum. Koizumi sagðist ekki semja við mannræningja og hryðjuverkamenn, japanskt herlið væri í Írak af mannúðarástæðum. Gleðin vegna frétta af lausn gíslanna þriggja í gær varð þó skammvinn því skömmu síðar bár- ust óstaðfestar fregnir af því að uppreisnarmenn í Írak hefðu rænt tveimur japönskum borgurum. ■ Vesturbyggð: Ráðning Árna staðfest VESTURBYGGÐ Meirihluti bæjar- stjórnar Vesturbyggðar staðfesti á síðasta fundi sínum verksamning við Árna Johnsen, fyrrverandi al- þingismann, um verkefni til allt að þriggja mánaða á sviði atvinnu- og ferðamála í Vesturbyggð. Samn- ingurinn var staðfestur með fjór- um atkvæðum sjálfstæðismanna gegn þremur atkvæðum Sam- stöðu. Bæjarfulltrúar minnihlut- ans létu bóka mótmæli við ráðn- ingu Árna og áréttuðu að ráða bæri ferðamálafulltrúa til sveitarfélaga í Vestur-Barðastrandarsýslu í sam- ræmi við nýja atvinnumálastefnu sveitarfélaganna. ■ LAGERÚTSALA MONSOON/ACCESSORIZE Faxafeni (Bláu húsunum) OPNUM Í DAG 16. april Kl. 10.00 Opið mánudag - föstudags 10-18 laugardag og sunnudag 12-18 NÝTT KORTATÍMABIL Skar t 250 HattarTreflar Töskur 500 Pils 1500 Buxur1500 Sprengiskemmdir á húsum í Neskaupstað: Eigendur fá bætur FJARÐABYGGÐ Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð og verktakafyrir- tækið Arnarfell hafa verið dæmd til að greiða alls 1.750 þúsund krónur í skaðabætur til eigenda tveggja húsa í Neskaupstað. Hús- in skemmdust þegar sprengt var vegna gerðar snjóflóðavarnar- garðs í fjallinu ofan byggðarinnar. Héraðsdómur Austurlands kvað upp dóminn. Stefndu, Bæjarsjóður Fjarða- byggðar og Arnarfell, voru enn fremur dæmdir til að greiða máls- kostnað eigendanna, samtals 1.600 þúsund krónur. Eigendum annars hússins voru dæmdar 1.500 þúsund krónur en hins húss- ins 250 þúsund krónur. Dómurinn var fjölskipaður. ■ MILLI VONAR OG ÓTTA Ayako Inoue, systir Nahoko Takato, eins þriggja japanskra gísla sem uppreisnar- menn í Írak slepptu í gær, brast í grát þeg- ar fyrstu fregnir af lausn gíslanna voru dregnar til baka. Síðar fékkst staðfesting á lausn gíslanna. Þremur japönskum gíslum sleppt í Írak: Tveimur rænt í kjölfarið M YN D /A P Ekkert lát er á blóðbaðinu í Írak. Talið er að rúm- lega sex hundruð manns hafi verið drepnir í Fallujah í liðinni viku, einkum konur og börn. Heimamenn lifa í stöðugum ótta og hrekjast und- an stríðinu. Trú manna á að takist að færa völdin í hendur heimamanna í sumar fer þverrandi. DÆMDAR BÆTUR Í þessu húsi ,sem er í rúmlega 100 metra fjarlægð frá neðsta hluta snjóflóðavarna- garðsins, fóru ofnalagnir úr sambandi við sprengingarnar. Blóðvöllurinn í Írak KORNABÖRN SKOTMÖRK Nura, þriggja ára írösk stúlka, í örmum föður síns á leið á sjúkrahús. Nura hlaut skotsár í átök- um sem blossuðu upp milli bandarískra hermanna og súnnímúslima í Fallujah á dögunum. ENDALAUS FLÓTTI Svipur þessarar írösku konu í Fallujah segir meira en mörg orð. Heimili tugþúsunda Íraka hafa verið sprengd í loft upp og hafa fæstir í önnur hús að venda. Þeir eru því á stöðugum flótta undan átökunum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.